Dagblaðið - 12.09.1980, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980.
Til sölu
Tveir Mercedes Benz framdrifsfólksflutn-
ingabílar 25—30 sæta. Hentugir til skóla-
aksturs.
Uppl. í síma 99-5117 og 28261 á kvöldin.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 49 — Sími 15105
KEFLVÍKINGAR -
SUÐURNESJAMENN!
Myndlistardeild Baðstofunnar í Keflavík byrjar starfsemi
sína 18. þ.m.
lnnritun fer fram 15. og 16. þ.m. Eftir kl. 19 í síma 92-
1142. Nefndin.
GÆT MYND AF POL POT
— Ijósmyndarar komast sjaldan nærri honum
Það er Pol Pot sem situr næst
glugganum til vinstri og horfir ú( um
hann — meðan lestin brunar vfir
hernaðarþreytt héruð Kampúlseu.
Ásamt honum í vagninum eru
nánustu hjálparmenn hans. Er hægt
að lesa úr svip þeirra að i sameiningu
hafa þeir komið tveim milljónum
landa sinna fyrir kattamef?
Pol Pot er talinn í hópi verstu
harðstjóra heims. Þó fullyrða margir
sem tii þekkja að Kampútseumenn
kjósi fremur stjórn þessa morðfúsa
landa sins heldur en að komast undir
yfirráð Víetnama.
Oskum eftir
að taka á leigu lítið einbýlishús eða 4 herbergja
íbúð helst í Hafnarfirði eða Stór-Reykjavíkur
sVæðinu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Sími
52945.
Sölutum í Hafnarfirði
Pólverjar aðvaraðir
með handtökum
i Tékkóslóvakíu
til sölu — góð velta. — Þeir sem áhuga
hafa leggi nafn og símanúmer inn á
augl.þjónustu DB, sími 27022 eftir kl. 1,
fyrir mánudagskvöld 15. sept.
Reykjavík - Atvinna
Óskum eftir góðum iðnverkamanni til að
annast byggingasvæði í stóru verki í Breið-
holti. Góð laun fyrir góðan mann. Upplýs-
ingar í síma 92-3966 milli kl. 10 og 12 alla
virka daga og síma 92-1670 á kvöldin og
um helgar.
Húsnæði - Salur
um það bil 100 ferm salur óskast fyrir
félagsstarfsemi. Unn'v ingar hjá auglýs-
ingaþjónustu Dagoiaösins í síma 27022.
H—743
STYRKIR
til að sækja þýskunámskeið í Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi.
Þýska sendiráðið í Reykjavik hefur tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að
boðnir séu fram þrir styrkir til handa íslenskum stúdentum til að sækja
tveggja mánaða þýskunámskeið I Sambandslýðveldinu Þýskalandi á
vegum Goethe stofnunarinnar á timabilinu júni október 1981. Styrkirnir
taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda auk 600 marka ferðastyrks.
Untsækjendur skulu vera á aldrinum 19—32 ára og hafa lokiö a.m.k.
tveggja ára háskólanámi. Þeir skulu hafa góða undirstöðukunnáttu I
þýskri tungu.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik. I'yrir 20. oktobet k Serstök umsóknar
eyðublöðfást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
8. september 1980.
Skyndileg aðför að tékkneskum
andófsmönnum virðist taka af allan
vafa um að aðrar Austur-Evrópu-
þjóðir séu staðráðnar í því að láta
ekki ókyrrðina af völdum verka-
manna í Póllandi breiðast út til ann-
arra kommúnistalanda, að mati
vestrænna sérfræðinga.
Ellefu andófsmenn sem sendu frá
sér bréf þar sem þeir lýstu samúð
og stuðningi við verkfallsaðgerðir
pólskra verkamanna í Gdansk voru
handteknir fyrirvaralaust síðastliðinn
þriðjudag. Meðal þeirra var fyrrver-
andi utanríkisráðherra í stjórn
Dubcheks, sem Sovétmenn ýttu úr
valdastóli á sínum tima.
Nú greina tékkneskar heimildir frá
þvi að þeir hafi verið látnir lausir.
Vestrænir fréttamenn í Tékkó-
slóvakíu telja þó að enn séu tveir
þeirra enn i haldi, og að annar þeirra
sé Hayeck, fyrrum utanrikisráðherra,
sem getið var.
Matvælaskortur er hvergi í austur-
blokkinni sagður jafn alvarlegur og i
Póllandi. Það sé því í raun hvergi þar
jafnmikil hætta á sameiginlegu átaki
og aðgerðum verkamanna og andófs-
Duhi .t'K l'yrrum forsælisráðherra
rékkóslóvakíu er notaður sem grýla
á andúfsmenn i Póllandi.
manna í stéttum menntamanna sem i
Póllandi.
Þrátt fyrir góð orð Tékka um efna-
hagslegan stuðning við Pólverja er
samt talið að ástandið í Tékkó-
slóvakiu gefi engan kost á því að mat-
væli eða nokkur seljanleg framleiðsla
fyrir harðan gjaldeyri standi Pól-
verjum til boða.
Þegar síðast gætti verulegs óróa
meðal verkamanna og menntamanna
i Tékkóslóvakíu, árið 1968, gripu
Sovétmenn í taumana og veltu stjórn
landsins. Meðal annars settu þeir
Dubchek forsætisráðherra af. Hann
er nú skógarhöggsmaður. Handtök-
urnar nú eru taldar alvarleg aðvörun,
ekki aðeins fyrir Pólverja og Tékka
heldur og aðrar Austur-Evrópuþjóð-
ir.
BRYGGJUBÍLL
FRÁ KRUPP
— siglir að flutningaskipinu og tekur gáminn og ekur
síðan eftir næsta vegi á landi
Lausnin á hafnleysi við strend-
urnar virðist í sjónmáli fyrir tilstuðl-
an vestur-þýzks fyrirtækis. Er það
eitt af fyrirtækjum Krupp stórveldis-
ins, Buckau-Wolf, sem hefur látið
gera sjóbifreið sem getur tekið til sín
gáma frá skipum á rúmsjó, siglt með
þá að landi og ekið sem leið liggur frá
sjávarborði og þangað sem ferðinni
er heitið á landi.
Bilbáturinn er sagður vera sérstak-
lega heppileg lausn fyrir vanþróuð
ríki þriðja heimsins þar sem hafnleysi
háir öllum framförum.
Gripurinn var sýndur í Kiel í
Vestur-Þýzkalandi í gær. Ók hann
eða sigldi að flutningaskipi sem þar lá
úti. Tók einn gám (container) og
sigldi með hann á land. Ekki varð
vart neinna erfiðleika við að koma
bílskipinu upp fjöruna með fullan
gáminn.
Sjóbifreiðin er 12,45 metrar á
lengd, 3,5 metrar á breidd og hæðin
er 3,9 metrar. Þegar hefur komið í
Ijós að víða þar sem hafnleysi er hafa
menn mikinn áhuga á sjóbifreiðinni.
Að sögn framleiðenda er talið að
söluverð bifreiðarinnar verði jafn-
virði um það bil 240 milljóna
íslenzkra króna. Framleiðsla mun
hefjast fyrri hluta næsta árs.