Dagblaðið - 12.09.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980.
9
Erlendar
fréttir
REUTER
i
Bandaríkin:
Iðnaðarúr-
gangur ógnar
lífi fólks
Eitraður úrgangur frá iðnverum ógn-
ar nú lifi og heilsu fólks i Bandarikjun-
uni. Þetta kom fram í skýrslu sem gerð
var á vegum stjórnarinnar um málið.
Heilbrigðismálastofnunin í Banda-
rikjunum segir i skýrslunni, sem lögð
var fram á þingi, að vandamál vegna
eitraðs úrgangs séu mikil og vaxandi
liætta heilsu manna. Ekki er I skýrsl-
unni talað um neinar sérstakar lausnir á
vandanum en mælt með mjög viða-
miklum rannsóknum til þess að kanna
betur útbreiðslu eiturefna, hættuna af
þeim og hvernig hreinsa má þau úr.
Væntanl^gt er frumvarp um hreinsun
iðnaðarúrgangs fyrir þingið í næstu
viku og eru menn innan lieilbrigðiskerf-
isins sammála um að það hefði mátt
vera fyrr á ferðinni.
New York:
Kúbufulltrúi
skotinn
til bana
Kúbanskur sendifulltrúi á þingi Sam-
einuðu þjóðanna var skotinn til bana á
götu í New York í gær. Maðurinn
var skotinn undir stýri á bíl sinum.
Ilann er talinn vera fyrsti sendifulltrúi
SÞ sem myrtur er I New York. Neðan-
jarðarhreyfingin Omega 7, sem berst
gegn Castró Kúbuforseta, hefur tekið á
sig ábyrgð á morðinu.
Þeir eru
drepnir
í Kólombíu
Tveir vinstrisinnar og einn lög-
regluþjónn létu lífið i átökum í borg-
inni Bogota í Kólombiu í gær. Barizt
var i 2 klukkustundir á götumhorg-
arinnar. Upphaf bardagans v.i. að
lögregluþjónar á m^torhjólum hugð-
ust stöðva meðlimi M-19 skæruliða
hreyfingarinnar sem voru að reyna að
ná opinberri stofnun með vopna-
valdi. Auk hinna látnu særðist einn
lögregluþjónn og fjórir skæruliðar
voru teknir höndum.
Pinochet
sigrar í
kosningunum
Allt þykir nú benda til þess að
Augusto Pinochet beri mikinn sigur
úr býtum í kosningu um nýja
stjórnarskrá Chile. Pinochet verður,
ef' hin nýja stjórnarskrá verður sam-
þykkt, forseti Chile næstu átta ár og
tekur við því embætti i marz næst-
komandi.
Allur akstur
krefst s.
varkárni
Ytum ekkí barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
!/////
HERINN TILKYNNIR
□GIN BYLTINGU
Tyrkneski herinn gerði byltingu í
morgun. Samkvæmt fregnum frá
Ankara var hún friðsamleg og ekki
skert hár á höfði nokkurs manns. Var
þetta tilkynnt í sérstakri útvarpssend-
ingu tyrkneska hersins i morgun. Var
það forseti tyrkneska herráðsins sem
tilkynnti atburðinn I sérstöku ávarpi.
Strax klukkan fjögur að tyrk-
neskum tíma var tilkynningin lesin og
síðan endurtekin með fimm mínútna
millibili. Þar utan voru leiknir göngu-
og stríðsmarsar. Tilkynnt var að
bæði ríkisstjórn Tyrklands og þingið
hefðu verið sett af. Herlög gilda nú i
Tyrklandi öllu. Öllum flugvöllum og
landamærastöðvum var lokað í
morgun og útgöngubanni lýst frá
klukkan fimm í morgun.
Skriðdrekar og herbifreiðir óku t
morgun um götur Ankara, einkum
við mikilvægar byggingar eins og út-
varp og skrifstofur stjórnmála-
flokka.
Áður en lilkynnt var um byllingu
hersins var Ijósl orðið að eitthvað var
á seyði. Æðstu foringjar tyrkneska
hersins koniu þá saman til fundar.
Skömmu siðar var tilkynnt um valda-
töku hersins.
Hálfgert stríðsástand hefur verið i
Tyrklandi að undanförnu. Stórir
hlutar landsins hafa verið lýstir undir
herlögum. Meira en tvö þúsund
manns hafa fallið þar eða verið
drepnir í átökum hægri og vinstri
manna. Tyrkland er einnig eitt af
vandamálum Allantshafsbandalags-
in; l.andið er mjög mikilvægt hern-
.aðarlega en efnahagsmál þess I kalda-
koli. Um tyrkneska herinn er sagt að
hann sé einn sá sterkasti i heimi og
Tyrkir sagðir mjög „góðir” her-
menn.
iciag en í gær
í tilefni afmælisins stækkar Dagblaöió nú um sextán síöur í viku.
Viöaukum: Skemmtilesningu
Fréttir
Fróöleik
Kjallaragreinar o.m.fl.
Á hverjum föstudegi verður greint frá
öllu því helsta sem býöst á menningar og
skemmtanasviðinu á komandi helgi.
LplllMlíM)
//////
/////
Neyte/rdaAm
limsjon
////i
////