Dagblaðið - 12.09.1980, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980.
21
I
d
íþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Aðalfundur
hjá Haukum
AAalfundur handknaltleiksdeildar Hauka verdur
haldinn í félagsheimiiinu iaugardaginn 20. septemb-
er kl. 14. Á dagskránni eru venjuleg adalfundar-
störf.
Keppni hafin
í nýliðabikarnum
Keppni í nýliðabikarnum hjá Golfklúbbi Reykja-
víkur hófst á sunnudag og var þá forkeppni unglinga
og eldri. Keppni i nýliðabikarnum var síðan fram-
haldið i gær, miðvikudag, en áætlað er að henni
Ijúki þann 27.
í eldri flokknum urðu úrslit þessi:
1. Rrynjólfur Markússon 58 högg nettó
2. Stefán Halldórsson 59 högg netó
3. Haukur Björnsson 60 högg nettó.
Brynjólfur sigraði, þar sem hann hafði betra skor
en Stefán á siðustu sex holunum, en leiknar voru 18
holur.
í ungiingaflokki urðu úrslit þessi:
1. Jón Karlsson 61 högg nettó
2. Helgi Eiríksson 63 högg netló
3. Karl Karlsson 69 högg nettó
KR-dagurinn
á sunnudag
KK-ingar halda sinn árlega KR-dag á félagssvæði
sinu við Frostaskjól á sunnudag. Hefst dagskráin
klukkan 13 með kappleikjum, innan húss og utan.
Meðal annars munu KR-stúlkur leika sinn fyrsla
knattspyrnuleik, en einnig verða knattleikir í yngri
og eldri flokkum og old-boys munu sýna hæfni sina
og leikni.
Þá bjóða KK-konur upp á sitl margrómaða KR-
kaffi og góðgæti á vægu verði.
Matthías Hallgrímsson, Val
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki
Sigurlás Þorleifsson, Vestm.eyj.
Sigþór Ómarsson, Akranesi
Pétur Ormslev, Fram
Magnús Bergs, Val
Sigurður Halldórsson, Akranesi
Ingólfur Ingólfsson, Rreiðahliki
Magnús Teitsson, FH
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
Kagnar Margeirsson. Keflavík
Helgi Ragnarsson, FH
13 mörk
9 —
9 —
7 —
7 —
6 —
6 —
6 —
Matti nær öruggur
sem markakóngur
Sá misskilningur hefur sézt á prenti nokkrum
sinnum að undanförnu að Matthías Hallgrímsson í
Val hafi aðeins skorað 11 mörk í sumar. Það rétta er
hins vegar 13 mörk og er næsta víst að Matti verður
markakóngur í þriðja sinn á ferlinum. Nú er aðeins
ein umferð eftir í 1. deildinni og fyrir hana hafa.
þessir skorað flest mörkin í sumar:
LANDSUÐSMENNIHVERRISTODU
Þessa mynd af lyftingalandsliöinu tók Svéinn Þormóðsson í Laugardalnum i gær. Landsliðið hélt i morgun til Noregs til
keppni á NM í kraftlyftingum.
er liðið talið líklegt til afreka i vetur.
Kevin Keegan, knattspyrnumaður
Evrópu undanfarin tvö ár, hefur sagt í
blaðaviðtali að hann telji Köln bezta lið
Vestur-Þýzkalands, betra en stórliðin
Hamborg og Bayern Munchen, núver-
andi Þýzkalandsmeistara í knatt-
spyrnu.
Landsliðsmenn frá
fjórum þjóðum
í liði Köln eru níu þýzkir landsliðs-
menn, og einn frá Sviss, Englandi og
Japan. Frægustu menn liðsins eru án
efa enski landsliðsframherjinn Tony
Woodcock, sem áður lék með Notting-
ham Forest, Reiner Bonhoff, sem varð
heimsmeistari með liði Ves.tur-Þýzka-
lands 1974; en hann var keyptur frá
Valencia, og nýja stórstjarnan í
Búndeslígunni, Bernd Schúster.
Schuster er aðeins tvítugur að aldri, en
hann þykir með beztu miðvallarleik-
mönnum Evrópu í dag. Schuster var
varamaður hjá Köln, þegar liðið lék hér
fyrir tveimur árum, en lék með vestur-
þýzka landsliðinu á Laugardalsvellin-
um í fyrravor.
1 þeim leik lék annar Kölnarleik-
maður sinn fyrsta landsleik, markvörð-
urinn Harald Schumacher. Meðal
annarra landsliðsmanna liðsins má
nefna Bernd Cullmann, Herbert Zimm-
ermann og Dieter Miiller, einhver mesti
markaskorarinn í þýzku deildakeppn-
inni. Þá má nefna svissneska landsliðs-
manninn Rene Botteron, en hann skor-
aði annað mark Sviss í vináttulandsleik
við Vestur-Þjóðverja fyrr í vikunni.
Köln var stofnað fljótlega eftir seinni
heimsstyrjöldina eða í febrúar 1948:
Fljótlega haslaði félagið sér völl meðal
beztu liða Þýzkalands og hefur um
langt árabil átt sæti i I. deildinni,
Búndeslígunni, sem svo er kölluð. Und-
anfarin ár hefur Köln vegnað mjög vel í
deildakeppninni og hefur ekki hafnað
neðar en í sjötta sæti sl. niu keppnis-
tímabil. Segir það nokkuð um styrk-
leika liðsins.
Félagið hefur þrisvar orðið þýzkur
meistari, árin 1962, 1964 og 1978 og
þrívegis hefur Köln orðið bikarmeistari
1967, 1977 og 1978. í Evrópukeppnun-
um hefur Köln aldrei unnið, en næst
þvi að vinna komst liðið veturinn
1978—’79, er liðið tók þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða. Þá komst félagið í
fjögurra liða úrslit en tapaði þar 3—4
samanlagt fyrir enska liðinu Notting-
ham Forest. Fyrri leikurinn, sem
leikinn var i Englandi, endaði með
jafntefli 3—3 eftir að Köln hafði leitt á
timabili 2—0. En á heimavelli tapaði
Köln afar óvænt 0—1 og Nottingham
Forest vann síðan sigur í keppninni er
liðið sigraði Malmö í úrslitum 1—0.
Aðalþjálfari Kölnarliðsins er hinn
þekkti þjálfari Karl-Heinz Heddergott
en aðstoðarþjálfari Johannes Löhr.
Fjármálalegur framkvæmdastjóri er
Karl-Heinz Thieles en forseti félagsins
er Peter Weiand.
Heimavöllur FC Köln er Munger-
dorfer Stadion, nýr og glæsilegur leik-
vangur, sem rúmar 60 þúsund áhorf-
endur:
17. Evrópuleikur
Akurnesinga
Leikurinn við Köln verður 17.
Evrópuleikur Akurnesinga. Skaga-
menn voru lengi vel fremur óheppnir
með drátt i keppninni en síðustu þrjú
árin hefur liðið haft heppnina með sér.
Þeir drógust á móti Köln I978, Barce-
lona í fyrra og nú aftur á móti Köln.
Leikirnir við Köln og fyrri leikurinn við
Barcelona verða að teljast með beztu
leikjum Akurnesinga. Sérstaklega þótti
leikurinn á móti spænska stórliðinu
góður, en hann endaði 0—I fyrir
Barcelona. Máttu Spánverjar teljast
heppnir að vinna þann leik.
Einn leikmaður, Jón Alfreðsson,
hefur leikið alla 16 Evrópuleiki lA, en
hann er ekki með að þessu sinni. Leik-
reyndasti maður Akranesliðsins nú er
Jón Gunnlaugsson með 309 leiki, þar
af 15 Evrópuleiki. Guðjón Þórðarson
hefur leikið 2I5 leiki, þar af I2 Evrópu-
leiki og Árni Sveinsson hefur leikið
I93 leiki, þar af I2 Evrópuleiki.
Sem fyrr getur verður fyrri leikur
Akraness við Köln á Laugardalsvell-
inum þriðjudaginn I6. september og
hefst hann klukkan 18. Dómari verður
norður-írskur, Jim Haughey, og línu-
verðir eru einnig frá Norður-írlandi.
Forsala aðgöngumiða verður í verzlun-
inni Óðni á Akranesi á mánudag og
þriðjudag, og á Laugardalsvellinum frá
klukkan 13 á þriðjudag. Miðaverð er
6000 kr. í stúku, 4000 kr. í stæði og
1000 kr. fyrir börn. Tekið skal fram að
sumaráætlun Akraborgarinnar, sem
Ijúka átti á mánudag, hefur verið fram-
lengd um einn dag, og verða því ferðir
á þriðjudag óbreyttar frá því, sem verið
hefur í sumar.
Nú fer að styttast í fyrri leik Akra-
ness og Kölnar í UEFA-keppninni í
knattspyrnu, en leikurinn verður leik-
inn á Laugardalsvellinum 16. þessa
mánaðar. Víst er að róðurinn verður
erfiður fyrir Akranes, því í liði Kölnar
eru hvorki fleiri né færri en 12 lands-
liðsmenn. En Akurnesingar hafa iðu-
lega staðið sig vel gegn stórliðum
Evrópu, og engin ástæða er til að ætla
að nokkur breyting verði þar á nú.
Akurnesingar hafa áður ieikið við
Köln og var það í Evrópukeppni meist-
araliða árið 1978. Þá vann Köln fyrri
leikinn úti i Köln, 4—1, en síðari leikn-
um lyktaði með jafntefli 1—1. Var sá
leikur leikinn á Laugardalsvellinum og
þóttu Akurnesingar standa sig vel i
honum.
Þótt Köln hafi ekki gengið vel í upp-
hafi keppnistímabilsins í V-Þýzkalandi
landsliðsmenn.
Aðalleikvangur Laugardal
Sunnudag kl. 14.
Valur — Víkingur
Síðasti fyrstu deildar leikurinn í
ár, flugelda- og björgunarblysa-
sýning Ellingsen h/f í hálfleik og
margt fl.
VALUR
FlugeMasýning, blómagjafir og
400 manna kaffiboð á sumudag
— er Valsmenn og Víkingur leiða saman hesta sína í Laugardalnum
„Jú, það er rélt, við verðum með I síðasta leik Vals í 1. deildinni,” sagði
nokkuð óvenjulegar uppákomur á | Jón G. Zoéga, formaður knattspyrnu-
WEST HAM HÓTAR
LÍFSTÍÐARBANNI
Forráðamenn Lundúnafélagsins
West Ham United lýstu því yfir í dag,
að ef áhangendur liðsins höguðu sér
ekki skikkanlega á leik West Ham og
Castilla á Spáni í næstu viku, yrðu þeir
settir í lifstíðarbann hjá West Ham.
West Ham og Castilla leika á miðviku-
dag fyrri leik sinn í 1. umferð Evrópu-
keppni bikarmeistara í knattspyrnu.
Búizt er við að um 500 aðdáendur
félagsins muni fylgja því til Spánar og
er víst vissara fyrir þá að haga sér vel á
vellinum, vilji þeir fá -að komast inn á
heimavöll West Ham, Upton Park, í
framtíðinni.
deildar félagsins, er DB hafði tal af
honum í gærkvöld. „Fyrfr ieikinn
ætlar ungfrú Hollywood að afhenda
leikmönnum Vals blóm i tilefni
dagsins. Þá mun hún einnig afhenda 4
núlifandi íslandsmeisturum Vals frá
árinu 1930 blóm, en nú eru einmitt liðin
50 ár frá þeim atburði. Þeir sem enn
eru lifandi eru Jóhannes Bergsteinsson,
Hólmgeir Jónsson, Jón Eiríksson og
Agnar Breiðfjörð”.
í hálfleik verður svo heljarmikil flug-
eldasýning auk þess sem veitt verða
verðlaun í mótorhjólakeppninni sem
hefur verið í gangi i sumar eins og
áliorfendur í Laugardalnum hafa vafa-
litið tekið eftir. Þá verðúr einnig 400
manna kaffiboð undir stúkunni í hálf-
leik. Að sögn Jóns ætla Valsmenn sér
sigur i leiknum gegn Víkingi á sunnu-
dag og sýna þar með að Valur er
verðugur meistari í ár.
Valsmenn hafa lítillega rætt við
Volker Hofferbert, þjálfara sinn, um
áframhaldandi starf hjá félaginu, en
enn er ekki ljóst hvort af því getur
orðið. Mikil ánægja hefur verið með
Hofferbert í sumar og vilji fyrir því að
fá hann aftur til félagsins.
-SSv.
ARNIFEREKKI
ÚT TIL HAUFAX
— Kirby svaraði ekki gagntilboði hans
og lætur ekkert í sér heyra
Nú liggur nokkuð Ijóst fyrir að Árni
Sveinsson frá Akranesi mun ekki fara
út til enska 4. deildarliðsins Halifax
eins og (iðrætt hefur verið i blöðum að
undanförnu og Árni sjálfur jafnvel
talið möguleika á. Árni fékk fyrir
skömmu skeyti frá George Kirby, sem
gegnir stöðu framkvæmdastjóra liðs-
ins, þar sem honum var boðið að koma
út, Fréttist síðan lítið frá Kirby en Árni
sendi gagntilboð út á móti. Eftir það
hefur hins vegar ekki heyrzt hósti né
stuna frá Halifax og má telja vist að
Kirby hafi ekki sætt sig við gagntilboð-
ið enda veður Halifax ekki beint í seðl-
um.
Árangur liðsins hefur litið batnað
eftir að Kirby tók við stjórn þess og það
margsannar þá kenningu að útilokað er
að ná einhverju út úr lélegum mann-
skap. Það eina umtalsverða sem
Halifax hefur gert var bikarsigur gegn
Manchesler City í janúar í fyrra —
annað ekki. Arni vcrður því líkast til
áfram hjá Skagamönnum næsta árið.
-SSv.
Tony Woodcock hleypir af. Woodcock hefur gcrt mikla lukku í Bundcslígunni, og hér sést hann í baráttuv ið Ivan Buljan hjá
Hamborg. Woodcock skoraði eitt mark á miðvikudag, er Kngland vann Nóreg 4—0 í undankeppni HM.
AXEL AXELSS0N TEK-
UR VIÐ FRÖMURUM!
— fyrsti leikur undir hans stjórn gegn Þrótti á fimmtudag
Samkvæmt heimildum sem 1)B hefur
aflað sér, og telja má næsta öruggar,
mun Axcl Axelsson taka við þjálfun
Kínverjar hingað í næsta mánuði
Landslið Kínverja í körfuknattleik
mun væntanlegt hingað til lands um
miðjan næsta mánuð. Mun það leika
fjóra leiki við A-landsliðið dagana 9.—
13. október. Þá eru einnig talsverðar
líkur á heimsókn Skota hingað til lands
í lok þess mánaðar en enn hefur ekki
verið gengið endanlega frá því.
Körfuknattleiksvertiðin hófst óopin-
berlega í gærkvöld með leik ÍS og Vals í
Kennaraháskólanum en með liði ÍS lék
m.a. hinn góðkunni Dirk Dunbar.
Þótti hann sýna frískleg tilþrif svo og
Bandaríkjamaður þeirra Valsmanna,
Roy Johns. Var leikurinn furðugóður
miðað við árstíma og er greinilegt að
hugur er í körfuboltamönnum. Vals-
menn sigruðu naumlega í leiknum í
gærkvöld.
Mikil kergja rikir nú hjá stjórnend-
um KKÍ vegna dæmalauss seinagangs
forráðamanna iþróttahúsa borgar-
innar. Var það ætlun KKÍ að vera búið
að ganga frá endanlegri mótskrá fyrir
veturinn en þegar við síðast fréttum var
það ekki hægt vegna skorts á svörum
og upplýsingum frá iþróttahúsunum.
Var KKÍ þá búið að biða svara í II —12
vikur.
-SSv.
Framliðsins í vetur af Karli Benedikts-
syni. Karl þjálfaði Framliðið í fyrra og
var endurráðinn en mun hafa lagt hart
að Axel að taka að sér liðið.
Nokkur styrr hefur staðið um Karl
hjá Fram og DB veit t.d. að einstaka
leikmenn sættu sig ekki við að vera
undir hans stjórn og höfðu hug á eða
voru í sumum tilvikum búnir að skipta
um félög.
Karl er einhver reyndasti þjálfari
landsins en reynsla Axels er einkum
fólgin í að spila í Þýzkalandi og varla fá
menn mikið betri skólun en þar. Hins
vegar hefur hann ekki mikið fengizt við
þjálfun. Það verður þvi fróðlegt að
fylgjast með Framliðinu undir sljórn
Axels en margir eru á þeirri skoðun að
Framararnir eigi eftir að rífa sig upp í
vetur. Frumraun Axels verður ef að
likum lætur gegn Þrótti á fimmtudags-
kvöld en Þróttarar eru undir stjórn
Ólafs H. Jónssonar, sem einmitt lék
með Axel hjá Dankersen um árabil —
báðir við góðan orðstír.
-SSv.
Axel Axelsson í leik með Dankersen.
— í liði Köln, sem mætir Akranesi á Laugardalsvellinum á þriðjudag í UEFA-keppninni