Dagblaðið - 17.09.1980, Page 28
Sendimenn ASÍ á fundi hjá Alþýðubandalagsráðherrunum:
„Lítið í kassanum” er
skattalækkun var rædd
— krafa um að ríkið skili 6 milljörðum í auknum sköttum til láglaunafólks
Þrir sendimenn frá Alþýðusam-
bandinu, þeir Guðmundur J.
Guðmundsson, Karl Steinar Guðna-
son og Björn Þórhallsson, gengu í
gær á fund ráðherranna Ragnars
Arnalds og Svavars Gestssonar til að
skiptast við þá á skoðunum um hug-
myndir sem uppi eru innan verka-
lýðshreyfingarinnar um lækkun
skatta á láglaunafólki. Fundinn sátu
auk þeirra sem áður eru nefndir
aðstoðarmenn ráðherranna tveggja,
Þröstur Ólafsson og Arnmunduk
Bachmann.
Engin ákvörðun var tekin á
fundinum, eftir því sem næst verður
komizt, önnur en sú að halda annan
slíkan fund á morgun. Munu
ráðherrarnir hafa sagt ríkiskassana
innihaidslítinn þegar skatta-
lækkunarmálið bar á góma.
Dagblaðið hefur áður skýrt frá
ályktun sem alþýðuflokksmenn í
verkalýðsforystunni standa að og um
var deilt á fundi 43ja manna
samninganefndar ASÍ fyrir skömmu.
Þar er þess krafizt að ríkið skili til
láglaunafólks 6 milljörðum kr. sem
nemur hækkun á greiðslubyrði ein-
staklinga í beinum sköttum á yfir-
standandi ári.
-ARH.
Tveir hvalhátanna sigla inn á Reykjavikurhöfn l gœr að lokinni velheppnaðri hvalvertlð.
DB-mynd: Sv. Þorm.
AGÆTRIHVALVERTH) LOKH)
Hvalvertíðin í ár reyndist mjög 437 hvalir í ár en í fyrra veiddust 440
svipuð og i fyrra. Vertiðinni lauk hvalir. Telst það ágætis vertíð. Skipt-
síðastliðið mánudagskvöld eftir að ingin milli tegunda var sú að 236 lang-
hafa staðið í 107 daga. Alls veiddust reyðar veiddust, 101 búrhvalur og 100
sandreyðar. Ákveðið var að hætta um. Vel horfir með sölu á hvalafurðun-
veiðunum nú þar sem búið var að fylla um.
bæði búrhvals- og sandreyðarkvótana, -GAJ
auk þess sem komin var bræla á miðun-
Kópavogur:
Fundað um val
nýs bæjarstjóra
— ýmsir fúsir til að
taka að sér starfann
— ekki búizt við
ágreiningi með
meirihlutaflokkunum
Meirihlutaflokkarnir í bæjar-
stjórn Kópavogs funda nú vegna vals
á nýjum bæjarstjóra kaupstaðarins.
Svo sem fram hefur komið féll
Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri.
frá á bezta aldri í síðasta mánuði. Frá
þeim tíma hefur Bjarni Þór Jónsson
bæjarritari gegnt störfum bæjar-
•stjóra.
Framsóknarflokkurinn hefur þeg-
ar fundað um málið og Alþýðu-
flokkurinn fjallaði um bæjarstjóra-
val í gærkvöldi. Þá mun
Alþýðubandalagið halda fund um
sama efni í kvöld. Samkvæmt reglum
getur bæjarritari gegnt bæjarstjóra-
starfinu í þrjá mánuði eða út
nóvember. Það er þvi búizt við að
e.t.v. i næstu viku verði auglýst eftir
nýjum bæjarstjóra í Kópavogi.
Komið er fram á seinni hluta kjör-
timabilsins, en samt munu ýmsir fúsir
að taka að sér starf bæjarstjóra í
Kópavogi. Samkvæmt heimildum
DB er ekki búizt við að mikill á-
greiningur verði um val nýs bæjar-
stjóra milli meirihlutaflokkanna.
Óneitanlega kemur nafn Bjarna Þórs
Jónssonar fyrst upp í hugann, enda
sagði bæjarfulltrúi í Kópavogi í
morgun, að i starfslýsingu bæjarrit-
ara væri hann aðstoðarbæjarstjóri.
Þess má geta, að Bjarni Þór var
bæjarstjóri á Siglufirði áður en hann
tók við embætti bæjarritara í Kópa-
vogi. -JH.
frjáJst, úháð dagkbið
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPT. 1980.
„Sjáum fyr-
ir endann
á þessu”
— segir fulltrúi lög-
reglustjóra um mál
blaðamannsins
„Við sjáum fyrir endann á þessu. Eg
get fullyrt að rannsókninni lýkur næstu
idaga,” sagði William Th. Möller, aðal-
j fulltrúi lögreglustjóra, er blaðamaður
iDB innti hann frétta af máli Guðlaugs
Bergmundssonar, sem handtekinn var
!af lögreglunni þar sem hann var að
'■ fylgjast meðafskiptum lögreglu af ung-
lingum í miðborg Reykjavikur fyrir
rúmri viku.
William sagði að lögreglan héldi fast
við að ræða málið ekki opinberlega
fyrr en rannsókn þeirri, sem nú fer
fram innan embættisins, væri lokið.
; William sagði að eftir væri að yfirheyra
tvö vitni. Eftir það ætti málið að liggja
ljóst fyrir.
Guðlaugur Bergmundsson sagðist i
samtali við blaðamann DB í morgun
ekki hafa ákveðið hvort hann höfðaði
mál vegna handtökunnar. ,,Ég býð
eftir að lögfræðingur minn fái öll máls-
gögn. Það verður ekki fyrr en þá sem
ég ákveð hvort ég kæri,” sagði Guð-
taugur.
-GAJ
Miklar skuldir
olíufélaganna
„Skuldir olíufélaganna við við-
skiptabankana eru mjög miklar. Þær
stafa af því að olíuvörur hafa hækkað
gífurlega. Atvinnureksturinn hefurátt í
erfiðleikum, t.d. útgerðin, og það hafa
hlaðizt upp skuldir við olíufélögin,”
jsagði Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra á blaðamannafundi í gær.
Eins og fram hefur komið í fréttum
hefur staða viðskiptabankanna gagn-
vart Seðlabankanum versnað um 29
milljarða króna frá áramótum. Tómas
játaði því að stór hluti þessarar skulda-
aukningar væri tilkominn vegna skulda
olíufélaganna við viðskiptabankana,
sem rekja mætti til skulda atvinnufyrir-
tækjanna og einkum útgerðarinnar við
oliufélögin.
-GAJ
Loðnuvertíð:
Mjög lítil veiði
„Það eru litlar fréttir núna. Veiðin er
mjög lítil. Síðasta sólarhring tilkynntu
sig þrír bátar með 1100 tonn, það er
ekki neitt. Frá miðnætti í nótt hefur
enginn bátur tilkynnt sig,” sagði
Andrés Finnbogason hjá l.oðnunefnd i
samtali við DB í morgun.
„Þetta er millibilsástand í veiðinni.
Septembermánuður er oft lélegur en
við vonum allt það bezta,” sagði
Andrés.
-ELA
500 milljarða
fjárlagafrumvarp
Niðurstöðutölur fjárlagafrumvarps-
ins sem ríkisstjórnin hefur nú fjallað
um munu nema rúmum 500 milljörðum
króna en það mun vera yfir 50% hækk-
un frá fjárlögum þeim sem samþykkt
voru fyrirum hálfu ári. -GAJ
J.UKKUDAGAR:
17. SEPTEMBER 16263
Kodak Pocket A 1 myndavél.
Vinningshafar hringi |
isima 33622.
!
4
5
4
5
4
í
5
*
j