Dagblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980.
2
Skammdegið nálgast:
Allir með end-
urskinsmerki
Áhugamaður um umferðaröryggi
skrifar:
Nú er dagurinn tekinn að styttast,
skammdegið nálgast. Með hverjum
deginum verður erfiðara fyrir öku-
menn að fylgjast með gangandi veg-
farendum og myrkrið eykur hættuna
á slysum. Þeir sem eru gangandi gætu
hjálpað verulega til með þvi að ganga
með endurskinsmerki. Allir ökumenn
hljóta að hafa tekið eftir þvi öryggi
sem fylgir því að sjá gangandi mann
glampa úr mikilli fjarlægð, vita af
honum með nægum fyrirvara.
Endurskinsmerki eru ódýr hjálpar-
tæki sem geta sparað í peningum
miklar fjárhæðir i sjúkrahúsakostn-|
aði en miklu dýrmætari eru að sjálf-
sögðu þær tilfinningar sem við berum
til barna okkar, ættingja og vina.
Það ætti því ekki að vera nein spurn-
ing. Merkjum okkur og börnin okkar
vel fyrir skammdegið með endur-
skinsmerkjum.
Þessi endursskinsmerki eru öll næid í
flíkur en limmerkin eru einnig mjög
hentug.
Þessi mynd var tekin 1 Vogunum i fyrra, fyrir utan nýja barnaskólahúsið. DB-mynd: ÁP
Dapurt félags-
líf í Vogunum
—áhrifamenn á staðnum hafa algjörlega brugðizt,
segir einn íbúinn
Hreppsbúi skrifar:
í Vogum á Vatnsleysuströnd búa
um 400 íbúar. Þar er samkomuhús,
ein verzlun, sjoppa, skóli og sjálfvirk
símstöð. En félagslífið þar er ekk'i
upp á marga físka. Það er nánast
ekkert sem ungt fólk getur gert þar í
frístundum sínum.
Ungmennafélagið á staðnum hefur
lítið sem ekkert gert fyrir ungt fólk og
aðra. Ágætis knattspyrnuvöllur er i
Vogunum en samt starfar ekkert
knattspyrnufélag þar, þrátt fyrir að
áhuginn sé þar mikill. Það þyrfti að
koma á fót knattspyrnufélagi þar
bæði fyrir eldri sem yngri og senda
það i þriðju deildina.
Þó að gott samkomuhús sé í Vog-
unum eru þar samt sárasjaldan
haldin böll, aðeins þrisvar til fjórum
sinnum á ári. Engar kvikmyndasýn-
ingar eru eða leikfélag.
Ekki er að undra þótt féiagslífið
hér sé viðburðasnautt, áhrifamenn á
staðnum hafa algjörlega brugðizt.
Jamaica er stórhættuleg:
Alræmdasta eyjan í Karíbahaf inu
—látið ekki glepjast af fSgrum auglýsingum
Magnús Guðmiindsson bryti, Pat-
reksfirði, skrifar:
Ég sá auglýsingu í blaði þar sem ís-
lenzk ferðaskrifstofa býður íslend-
ingum upp á ferðir og dvöl á eyjunni
Jamaica í Karibahafi. Ég varð mjög
hissa að sjá og lesa þessa auglýsingu,
vegna þess að einmitt Jamaica er al-
ræmdasta eyjan í Karíbahafinu og
stórhættuleg.
Ég kom með skipti til Jamaica fyrir
stuttu og varð fyrir miklum von-
brigðum, eyjan býður upp á geysi-
mikla náttúrufegurð, hálend,,
blómum og skógi vaxin frá fjalli til
fjöru.
En á bakvið alla náttúrufegurðina
leyndist ömurlegt ástand meðal eyjar-
skeggja. Um leið og búið var að
binda landfestar komu menn um
borð í skipið og gengu á fund skips-
manna og vöruðu okkur við að fara i
land, því það gæti kostað okkur lífið
eða jafnvel verra, því morð og rán
væru framin oft á dag. Ég spurði
svertingjann sem kom til mín og tjáði
mér þetta hvernig stæði á þessu
ástandi og svarið var: Forsætisráð-
Frá Jamaica.
herrann er kommúnisti og er undir
áhrifum frá Kúbu, þess vegna er
ástandið svona hérna, fólkið hefur
ekki nóg að borða.
Ég var matsveinn á skipinu og kom
þessi maður inn í eldhús til mín til að
aðvara mig, en á meðan hann var að
tala við mig kom svertingi inn í eld-
húsið að aftan og hirti ruslapakkann
og fór með hann í land, sjálfsagt til
að éta leifarnar sem hann fyndi í pok-
anum. Ég sá svo síðar menn koma
um borð og leita í ruslapokunum,
sem ég setti aftur fyrir og þeir tíndu
upp úr þeim hálfar brauðsneiðar og
aðrar Ieifar.
Þetta var þá dýrðarljómi kommún-
ismans, morð, hroðalegar limlest-
ingar, rán og hungur. Brezkt skip lá
þarna í höfninni og gekk skipstjórinn
í land með konu sinni upp í borg, en
þegar þau komu til baka var skip-
stjórinn skotinn í hliðinu við höfn-
ina. Já, svona er nú ástandið á þess-
ari fögru eyju, Jamaica, og ættu
menn að hugsa sig tvisvar um áður en
þeir láta glepjast á fögrum auglýsing-
um.
Jólafargjöldin ekki gagnkvæm?
2332-6809 hringdi:
Mig langar að spyrjast fyrir um eitt
atriði í sambandi við jólafargjöldin.
Eru þau ekki gagnkvæm?
Þannig er mál með vexti að ég
ætlaði að kaupa miða fyrir dóttur
mína sem vinnur í sendiráði erlendis.
En af því að miðinn gildir fyrir flug
að utan þarf að borga meira fyrir
hann.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að hér væri um mis-
skilning að ræða, jólafargjaldið gilti í
báðar áttir. Hins vegar væru öll far-
gjöld miðuð við alþjóðlegan far-
gjaldastuðul, flugfélög heimsins
hefðu tekið að miða verð fargjalda
við þennan stuðul eftir að dollarinn
hætti að vera stöðugur gjaldmiðill.
Þess vegna hefðu allar breytingar á
gengi áhrif á verð farmiða og væri
það skýringin á mismunandi verði.
Hægfara ökumenn hægra megin
,,Ein pirruð” hringdi:
Hvenær ætla hægfara ökumenn að
læra að nota akreinar rétt?
Þar sem tvær akreinar liggja í
hvora átt eiga þeir ökumenn sem ekki
eru að flýta sér og aka langt undir
eðlilegum ökuhraða að halda sig á
hægri akreininni. Það virðist vera
nauðsynlegt að brýna þetta fyrir
hægfara ökumönnum með reglulegu
millibili því ennþá eru allt of margir
sem ekki sýna öðrum lágmarks tillits-
semi.