Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.10.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 16.10.1980, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980. s Snyrting '80 V Kynnizt haust- og vetrarlínunni í snyrtingu á glœsilegu frœðslu- og skemmtikvöldi í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudagskvöld 16. okt. kl. 20.30. Tízkusýningar Vörukynningar Gestir frá Línunni o.fl. o.fl. S Félag íslenzkra snyrtifrœðinga REKSTRAR8TYRKIR til sumardvalarheimila í fjárlögum fyrir árið 1980 eru veittar 2,5 millj. kr. til rekstrar sumardvalarheimila og vistheimila fyrir börn úr bæjum og kauptúnum. Styrkir þessir eru einkum ætlaðir félagasamtökum, sem reka barnaheimili af framangreindu tagi. Umsóknir um styrk af fé þessu vegna rekstrarins 1980 skulu sendar ráðuneytinu, ásamt upplýsingum um tegund heimilis, tölu dvalarbarna og aldur, dvalardaga samtals á árinu miðað við heils dags vist, fjárhæð daggjalda, upplýs- ingar um húsnæði (stærð, búnað og aðra aðstöðu) og upplýsingar um starfsfólk (fjölda, aldur, starfsreynslu og menntun). Ennfremur fylgi rekstrarreikningur heimilisins fyrirárið 1980. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, en umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 30. nóvember næstkomandi. Menntamólaróðuneytið, 14. oktöbar 1980. iBlABIÐ JOKER v/HLEMM Leiktækjasalur fAvcn Bowut Peking: Giscard deilir við ráðamenn i Kínaveldi Frakkland og Kína greinir mjög á varðandi afstöðuna til Sovétríkj- anna. Kom þetta mjög fram í kvöld- verðarboði kínverska forsætisráð- herrans sem hann hélt Valery Giscard d’Estaing forseta Frakklands í Höll fólksins i Peking í gærkvöldi. í ræðu sem þar var flutt varaði kin- verski forsætisráðherrann Frakka við yfirgangi Sovétrikjanna hvar sem er í heiminum. Einkum beindu þau spjót- um sínum að Vestur-Evröpu og Asíu. Sendimenn erlendra ríkja sem eru í Peking segja að með þessu séu Kín- verjar að gagmýna Frakka fyrir slök- unarstefnu þeirra gagnvart Sovétríkj- unum. Kinverjar eru taldir litlir fylgismenn hennar. Viðræður franska forsetans viö Brésnef forseta Sovétríkjanna, í Varsjá í Póllandi ný- liðið vor, hafa ekki gleymzt í Peking. Voru Kínverjar þeim mjög andvíeir. Hinn kínverski forustumaður fuliyrti að heimsfriðinum væri mjög hætt í byrjun þessa áratugar. Evrópuríkin flest yrðu að sætta sig við stöðugt aukna hernaðarógnun. Auk þess benda Kínverjar á að tvö ríki i Asíu sem hallað hafa sér að Sovétríkjun- um eigi í blóðugri borgarastyrjöld. Er þar um að ræða Afganistan og Kampútseu. Styrjöld Irans og íraks: Bretar skipuRigðu stríðið árið 1950 Skipulagning styrjaldar íraks og írans var gerö af Bretum á sjötta ára- tugnum að því er bandaríska blaðið The New York Times segir í morgun. Takmark Breta var þá að ná Khuzest- an, sem er auðugasta olíuhérað íran. Þetta er haft eftir bandarískum hernaðarráðgjafa í Washington. Rajai forsætisráðherra frans heldur á morgun í ferð til New York. Þar mun hann halda ræðu á fundi öryggisráðsins og skýra þar afstöðu stjórnarinnar í Teheran. íranir skýrðu í gær frá því að flug- her þeirra hefði gert loftárásir á átta framvarðarstöðvar fraka og auk þess borgir innan landamæra þeirra. Styrjaldaraðilum ber ekki saman um tölur fallinna en að sögn kunnugra er tala þeirra mjög há. Strax eftir að fregnir bárust af fyrirhugaðri ferð Rajai forsætisráð- herra frans til New York komst á kreik orðrómur um að Bandaríkja- menn hygðust beita sér í málinu gegn því að gíslarnir sem teknir voru í bandaríska sendiráðiriu i Teheran í nóvember síðastliðnum yrðu látnir lausir. Hvað varðar styrjaldarskipulag það sem írakar beita í styrjöldinni við nágranna sína frani er það að segja að hin gamla áætlun Breta komst lengi vel ekki til framkvæmda þrátt fyrir að oft væri heitt í kolunum. Þrátt fyrir tíð skipti á ríkisstjórnum í Bagdad þá týndist hún ekki og að lokum beitti íraski herinn henni og með góðum árangri i það minnsta ef ráða má af verkum hans hingað til í styrjöldinni við fran. t og byltingarleiðtoga i tran, sú Þeir segjast berjast til sigurs báðir og eru sigurvissir 1 orði. Efri myndin er af Khomeinf trúar- neðri af Saddam Hussein forseta traks.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.