Dagblaðið - 16.10.1980, Side 16

Dagblaðið - 16.10.1980, Side 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980. Iþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir D Stefin Halldörsson, Val — I hvitum búningi - kvöld. brýzt I gegnum Haukavörnina og skorar eitt af sjö mörkum sinum i gær- DB-mynd Sv. Þ. Valsmenn voru ætíð sterkari aðilinn — unnu góðan sigur 28-19 á Haukum í gærkvöld Valsmenn hristu af sér slyðruorðið eftir 17—18 tapiö fyrir KR á dögunum, er þeir unnu góðan sigur á Haukum i 1. deild handboltans i Laugardalshöll i gærkvöldi. Lokatölur uröu 28—19, en i Staðan íl.deild Úrslit í leikjunum í 1. deild hand- knattleiksins i gær urðu þessi: Valur — Haukar 28-19 FH - KR 21-27 Staðan ernú þannig: Vikingur 4 3 1 0 69-60 7 Þróttur 3 3 0 0 68-56 6 KR 4 2 1 1 75-76 5 Valur 4 2 0 2 82-64 4 FH 4 2 0 2 81-91 4 Fylkir 3 1 0 2 58-68 2 Haukar 4 1 0 3 78-84 2 Fram 4 0 0 4 78-90 0 Leik Fylkis og Þróttar i 4. umferð- inni hefur verið frestað um sinn — og fimmta umferðin hefst ekki fyrr en undir mánaðamót vegna Noröurlanda- mótsinsi Noregi. Markhæstu leikmenn eru nú: Kristján Arason, FH 37/20 Axel Axelsson, Fram, 33/16 Sig. Sveinsson, Þrótti, 29/6 hálfleik leiddu Valsmenn 13—9. Það var aðeins fyrstu minútur leiksins, sem jafnræði var með liðunum, en eftir það skildu leiðir og Valur jók forskot sitt hægt og örugglega það sem eftir var leiksins. Er sex mínútur voru liðnar af leikn- um var staðan jöfn 3—3, en þá skoruðu Valsmenn tvö mörk, fyrst Þorbjörn Guðmundsson og síðan Stefán Halldórsson og næstu mínútur smábreikkaði bilið. Um miðjan hálf- leikinn var staðan 7—4 fyrir Val, en þá höfðu Haukar verið afar óheppnir, því í tvígang hafði Sigurgeir Marteinsson skotið í stengur Valsmarksins. Júlíus Pálsson náði þá að minnka muninn í 5—7, en næstu tvö mörk gerði Jón Karlsson fyrir Val með langskotum, faldi boltann vei á bak við sig eins og honum einum er lagið, áður en hann læddi honum í netið. Þessi fjögurra marka munur hélzt síðan út hálfleik- inn. Síðasta mark fyrir hlé gerði Stefán „tætari” Jónsson hjá Haukum og kom það upp úr vítakasti. Ólafur Benediktsson varði víti Harðar Harðar- sonar, boltinn hrökk aftur út og Haukar skutu aftur á markið, en Óli varði enn. í þriðju tilraun náði svo Stefán boltanum og kom honum rétta boðleið í mark Vals. Báðir markmenn- irnir stóðu fyrir sínu í fyrri hálfleik, Ólafur Benediktsson í marki Vals og nafni hans Guðjónsson í marki Hauka. Svíar voru Norður- írum engin hindrun Vonir Svia um að komast á HM á Spáni 1982 urðu að engu i Belfast i gærkvöldi, er liöið tapaði 0-3 fyrir Norður-írlandi i leik liðanna i 6. riðli undankeppni HM. öll mörk leiksins voru gerð i fyrri hálfleik, en Norður- írar eru nú efstir i sinum riðli með jafn- mörg stig og Skotar en betri markatölu. Fyrsta mark leiksins skoraði Noel Brotherston á 24. mínútu og Sammy McIIroy breytti stöðunni í 2-0 með skalla fjórum minútum síðar. Punktinn yfir i-ið setti sfðan Jimmy Nicholl með skoti af 30 metra færi á 37. mínútu. í síðari hálfleik slökuðu Norður-írar á, en Svíar áttu aldrei möguleika í leikn- um, og sagði þjálfari liðsins, Lars Arnesson, að hann heföi ekki átt von á jafngóðu norður-írsku liði og raun bar vitni. Liðin: Norður-írland: Platt, Jim Nicholl, Donaghy. McClelland, Chris Nicholl, Cassidy, O’Neill, Hamilton, Armstrong, Mcllroy og Brotherston. Svíþjóð: Möller, Arvidsson, Borg, Boerjesson, Holmgren, Larsson, Ram- berg, P. Nilsson, T. Nilsson, Ed- stroem, Ohlsson. Staðan í 6. riðli undankeppni HM í knattspyrnu eftir leikina tvo í gær- kvöldi er nú þessi: Norður-írland 2 110 3-0 3 Skotland 2 110 1-0 3 ísrael 20201-1 2 Portúgal 10 10 1-1 1 Svíþjóð 3 0 12 1-5 1 Hörður Harðarson gerði fyrsta mark síðari hálfleiksins úr víti, og þegar svo Jón Pétur Jónsson var rekinn af leik- velli í tvær mínútur, virtist sem Haukar ættu góða möguleika á að minnka muninn enn frekar. En því var ekki fyrir að fara, Bjarni og Þorbjörn Guð- mundsson gerðu næstu tvö mörk fyrir Val, staðan orðin 15—10 Val í vil, og það þrátt fyrir að Gunnar Einars- son, sem kom í mark Hauka í hálfleik, hefði varið af stakri prýði. Haukar skoruðu svo næstu þrjú mörk leiksins, en Vaiur svaraði með þremur mörkum, 18—13 og 13 mínútur búnar. Loka- kafla leiksins voru svo Valsmenn mun sterkari, Haukar áttu aldrei mögu- leika á stigi, einkanlega ekki eftir að Hörður Harðarson var útilokaður frá leiknum, eftir að hafa farið niðrandi orðum um annan dómaranna, er honum mislíkaði dómur þeirra. Síðasta orðið í leiknum átti Steindór Gunnarsson er hann skoraði 28. mark Vals úr hraðaupphlaupi á lokasekúnd- unni. Lið Vals var mjög jafnt í þessum leik, sóknarleikur liðsins beittur, en vörnin lakari, mjög gloppótt á köflum. Ólafur Benediktsson varði vel framan af leiknum, en undir lokin fór hann þó út af, og Þorlákur Halldórsson tók hans sess. Hann varði einnig vel, þær fáu mínútur, sem hann var inná. Auk markvarðanna áttu Stefán Halldórsson og Bjarni Guðmundsson bezta leik Valsaranna. Gunnar Einarsson hjá Haukum varði tvö skot fyrstu mínútur síðari hálfleiks, en síðan lítið sem ekki neitt og var skipt út af fyrir Ólaf Guðjónsson, sem varði betur. Að venju voru Júlíus Pálsson og Hörður Harðar- son mest áberandi í liðinu og sömu- leiðis Karl ingason á línunni, sem þó var í strangri gæzlu allan leikinn. Tvö vítaköst voru misnotuð í leiknum, Viðar Simonarson skaut yfir í síð^ri hálfleik og Óli Ben varði frá Herði. Rögnvaldur Erlingsson og Óiafur Steingrímsson dæmdu leikinn frekar slælega, virtust á köflum ekki vera alveg í takt við hann. Mörk Vals: Stefán Halldórsson 6/2, Þorbjörn Guðmundsson 5/1, Steindór Gunnarsson 4, Jón Karlsson, Bjarni Guðmundsson, Jón Pétur Jónsson, og Gunnar Lúðvíksson 3 hver og Brynjar Harðarson 1/1. Mörk Hauka: Hörður Harðarson 6/3, Júlíus Pálsson 5, Karl Ingason og Sigurgeir Marteinsson 3 hvor, og Árni Sverrisson ogStefán Jónsson 1 hvor. -SA Belgar héldu jöfnu í Dublin Irar, sem höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína, múttu sætta sig við 1-1 jafn- tefli á heimavelli á móti Beigum i 2. riðli undankeppni HM i knattspyrnu i Dublin í gær. Belgia varð fyrri tii að skora, er Erwin Vandenbergh sendi góða sendingu i Albert Cluytens, sem skoraði af öryggi. Markið kom á 12. minútu og upp frá þvi reyndu Belgar að hanga á markinu. Það tókst þeim þó ekki, því frar jöfnuðu rétt fyrir hálf- leik. Liam Brady, sem átti stórleik á miðjunni, vippaði þá knettinum inn fyrir rangstöðugildru Belga og þar kom Tony Grealish aðvifandi og sendi bolt- ann i netið. trar voru lengstum i sókn, og voru bakverðlr liðsins, Langan og Hughton, óþreytandi við að aðstoða framherja liðsins i að opna vörn Belga. En ellin hrjáði nokkuð fremstu menn íra, þá Steve Highway og Don Givens, sem báðir eru komnir yfir þritugt, og þá skorti snerpu til að leika á varnarmenn Belga. Liðin voru þannig skipuð: írland: Peyton, Langan, Hughton, Lawren- son, Moran, Daly, Grealish, Brady, Stapleton, Givens (McGee 75) og Heighway. Belgia: Pfaff, Gerets, Meeuws, Millecamps (de Wolf, 86), Renquin, Van Moer (Heyligen, 85), Dortmund tapaði fyrir Hamborg Borussia Dortmund tapaði á útivelli fyrir Hamborg SV i þýzku Bundeslfg- unni i fyrrakvöld, 1—2, en nokkrir ieikir voru leiknir í deildinni þá og i gærkvöldi. Önnur úrslit urðu sem hér segir: 1860Munchen—Bayern Munchen 1-3 Kaiserslautern—Köln 5-1 MSV Duisburg—B. Mönchengl. 4-0 Numberg—Eintracht Frankfurt 1-4 Stuttgart—Fortuna Dusseldorf 4-2 Bochum—Bayern Uerdingen 2-2 Staða efstu liða er nú þessi: Bayern Munchen 9 8 0 1 25—11 16 Kaiserslautern 9 6 2 1 18—7 14 Hamborg SV 9 6 2 1 19—11 14 E. Frankfurt 9 6 0 3 19—13 12 Stuttgart 9 4 2 3 21—16 10 MSV Duisburg 9 3 4 2 15—10 10 Borussia Dortmund kemur svo i 8. sæti með 10 stig 0-0 í r m m Austur-Þjóðverjar og Spánverjar gerðu markalaust jafntefli í vináttu- landsieik i knattspyrnu i Leipzig i Þýzkalandi i gærkvöldi. Áhorfendur voru 30.000. Coeck, Van den Eycken, Cluytens, Wandenbergh og Ceoulemans. írland 3 2 1 0 6-4 5 Frakkland 1 1 0 0 7-0 2 Belgia 10 10 1-1 1 Holland 10 0 11-2 0 Kýpur 2 0 0 2 2-10 0 SVEINN AGNARSSON Portúgalir stálu stigi á Hampden Markvörður Portúgala, Bento, var Skotum óþægur Ijár i þúfu er liðin léku í 6. riöli undankeppni HM á Hampden Park i gær. Hann varði með ólikindum i leiknum og þrátt fyrir góð tækifæri tókst skozku framherjunum aldrei að koma boltanum i netið að baki honum, úrslit leiksins 0-0. Einkanlega þótti Bento sýna góða markvörzlu i síðari hálfleik þegar hann varði þrívegis vel frá Liverpool leik- mönnunum Kenny Dalglish og Greame Souness. Hápunkti náði markvarzla hans á 74. mínútu er Dalglish átti þrumuskalla að marki af fjögurra metra færi. En Bento sveif eins og fim- leikamaður á eftir boltanum og bjargaði. Lið Skotlands var þannig skipað í leiknum í gær: Rough, McGrain, Frank Gray, Souness, Hansen, Miller, Strachan, Dalglish, Andy Gray, Gemmill og Robertson. Óvæntur útisigur Grikkja Grikkir komu mjög á óvart er þeir sigruðu Dani 1-0 i leik liðanna i Kaup- mannahöfn i gærkvöld i 5. riðli undan- keppni HM. Eina mark leiksins kom á 50. minútu og gerði Castas Kouis það, en hetja leiksins var samt markvörður Grikja, Sarganis, sem varði frábærlega í leiknum. Sarganis er varamarkvörður Grikk- lands, en hann hélt liði sinu alveg á floti á lokaminútunum, sýndi stórkost- leg tilþrif er hann varði skot fyrrum knattspyrnumanns Evrópu, Allan Simonsen, af tveggja metra væri. Rúmenía vann Eng- land á hæpnu vfti Vafasamt viti á 76. minútu varð Englendingum að falli er þeir léku við Rúmena á útivelli i 4. riðli undan- keppni HM í gær. Kenny Sansom og Brian Robson klemmdu þá Crisan á milli sín i vítateig Englendinga og sænski dómarinn Ulf Eriksson var ekki í neinum vafa og dæmdi umsvifalaust viti. Úr þvi skoraði siðan Anghel Ioran- escu sigurmark Rúmena, 2—1, en i hálfleik feiddu þeir, 1—0. Englendingar gátu aðeins þakkað heilladísunum að þeir voru aðeins einu marki undir í hálfleik, því Rúmenar voru í stórsókn allan fyrri hálfleikinn. Eina markið skoraði Marcel Raducanu á 34. mínútu . 1 síðari hálfleik léku Englendingar mun betur, en samt voru þeir miklu slakari en við hafði verið búizt. Tony Woodcock jafnaði metin á 64. mínútu, eftir gott samspil við Garry Birtles en Rúmenar áttu lokaorðið í leiknum. Eftir leikinn sagði Ron Greenwood, framkvæmdastjóri enska landsliðsins, að það yrðu fá lið til að fara á brott frá Rúmeníu með tvö stig í pokahorninu. „Við áttum ekki skilið meira en jafn- tefli í leiknum, en þó það miðað við leik okkar í síðari hálfleik,” sagði Greenwood. Englendingar léku ekki með sitt sterkasta lið, Keegan, Wilkins og Brooking allir meiddir, en eigi að síður voru það mikil vonbrigði fyrir þá að tapa leiknum. I ið Englands var þannig skipað: Clemence, Sansom, Thompson, Watson, Neal, Rix, Robson, McDermott, Gates, Birtles og Woodcock. Cunningham kom inn á fyrir Birtles i síðari hálfleik og einnig Coppell fyrir Gates. Staðan i 4. riðli undankeppni HM i knattspyrnu er þessi eftir sigur Rúmena á Englendingum 2—1. Rúmenia 2 110 3—2 3 England 2 10 1 5—2 2 Noregur 2 0 11 1—5 1 Ungverjaiand og Sviss sem einnig eru i riölinum hafa enn ekki leikið.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.