Dagblaðið - 29.11.1980, Page 13

Dagblaðið - 29.11.1980, Page 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980. Kalli útskrifast í pípureykingum Listin er kröfuhörð. Á sama tíma og áróðurinn er hvað harðastur fyrir betri heilsu og minnkandi reykingum er Karl Ágúst Úlfsson nýbyrjaður að reykja. Karl er leiklistarnemi á fjórða ári en kunnari sem stjómandi ungl- ingaþáttarins Púkk í útvarpinu. Sjálfur telst Karl þó vart unglingur lengur, orðinn 23 ára. Það kostaði því töluvert átak þegar hlutverk hans í íslandsklukku Nemendaleikhússins útheimti stífar reykingar. „Það varð ekki komizt hjá því að ég byrjaði að reykja. Ég leik Jón Jónsson úr Kjósinni, varðmanninn sem gætir Jóns Hreggviðssonar. Snæfríður íslandssól vill koma Jóni Hreggviðssyni til hjálpar og mútar varðmanninum með píputóbaki svo leikritið hreinlega krefst þess að hann sé tottandi pípu,” segir Karl. ,,Ég ráðfærði mig við reynda pípu- reykingamenn og þreifaði mig svo áfram undir leiðsögn. Ég vildi ekki hætta á að fá hóstaköst uppi á sviði, að ekki sé talað um uppköst. Þau hefðu ekki aðeins eyðilagt sýninguna heldur líka atað út leiktjöldin,” segir Karl. ,,Ég hef einu sinni áður farið með rullu í skólanum sem krafðist þess að ég reykti. Þá lagði ég ekki á mig að læra kúnstina enda fór athygli mín öll i að halda eldinum í sígarettunni í staðinn fyrir leikinn. Nú er ég alveg afslappaður i þessu,” segir Karl. Og það eru engar ýkjur því á svið- inu hefur sérstaklega verið tekið til þess hvað hann reykir af mikilli inn- lifun. ,,Ég ætla nú ekki að fara að gagn- rýna kollegana en maður hefur stundum tekið eftir því að leikarinn á sviðinu er enginn reykingamaður þótt hann eigi að vera það. Drykkjumenn í leikritum geta drukkið rifsberjasaft en það hefur ekki ennþá verið fundið upp neitt leikhústóbak. Maður verður því að læra að nota það raun- verulega,” segir Karl og dregur nautnalega að sér reykinn. íslandsklukkan hefur heldur betur komið Karli á bragðið. Hann reykir ekki aðeins á sviðinu heldur er maðurinn, sem aldrei hafði reykt, nú farinn að grípa í sígaretturnar í tíma og ótima. ,,Ég vona að mér takist að hætta aftur. Ætli ég reyni ekki að nota ára- mótin til að venja mig af þessu.” Hlutverkin í íslandsklukkunni eru hátt í 30 svo Karl og skólafélagar hans sex, sem útskrifast í vor, verða að leika allt að 7 hlutverk hver. Auk Jóns úr Kjósinni leikur Karl 3 hlut- verk. íslandsklukkan hefur nú verið sýnd um 20 sinnum og nær undan- tekningarlaust fyrir fullu húsi. - JB Kart Ágúst ÚHsson i ainu hiutverka sinna i ísiandsklukkunni. Það verður ýnMagt að iaggfa i sig fyrir listina, meira að sogfa að byija að raykja. DB-mynd: JB. Karl Steinar ábak viö hurö Karl Steinar Guðnason þingmaður krata á Suðurnesjum og verkalýðs- leiðtogi lék dálítinn einleik á mið- vikudaginn þegar hann bauð alþýðu- bandalagsmönnum upp á samvinnu um miðstjórnarkjör upp á sitt ein- dæmi. Talaði bann ekki við kóng eða prest og þvi síður við Karvel flokks- bróður sinn áður en hann gaf alla- böllum undir fótinn. Karvel og kratar komu því af fjöllum þegar þetta spurðist og verkalýðsforingjar Sjálf- stæðisflokksins umhverfðust af vonzku enda höfðu þeir rétt áður staðið í makki við kratana um að ein- angra Alþýðubandalagið í kosning- um um forystusæti ASÍ. Verkalýðsforingi úr Sjálfstæðis- flokknum sagði mæðulegur á svip þegar fréttin spurðist: ,,Það er alltaf sama sagan með hann Karl Steinar, hvort sem um er að ræða kjarasamn- inga eða aðra samninga. Hann er alltaf á bak við hurð.” FÓLK ASGEIR TÓMASSON Frœbbbiamir eru nú vaknaðir úr dái sinu, þar eð þeim hefur éskotnazt söngkerfi. Þeir ætia þvi að láta meira kveða að sér á nœstunni en þeir hafa gert undanfama mánuði. DB-mynd: Gunnar örn. Svefnlausir og fullirmeö kjaftavaöal átján lög. Fimm þeirra eru erlend, hin eftir liðsmenn Fræbbblanna. „Við nálgumst það nokkuð hvernig við viljum að hlutirnir hljómi með þessari plötu,” sagði Valgarður. ,,Á næstu plötu ættum við að verða enn betri. Við sendum frá okkur litla plötu á síðasta ári, sem bezt er að minnast ekki mikið á. Við vorum búnir að spila fimm sinnum saman þegar hún var hljóðrituð. Á Viltu nammi væna? létum við fljóta með ýmis smámistök í söng og hljóðfæraleik. Það var ekki hægt að fínpússa hlutina, því að við notuöum -svo fáa upptökutíma.” í Fræbbblunum eru auk Valgarðs þeir Stefán Guðjónsson trommuleik- ari, Steinþór Stefánsson sem leikur á bassa og Tryggvi Þór Tryggvason gítarleikari. Bjami Sigurðsson sér um ljós og raddir þegar svo ber undir og hljóðstjóri er Gunnþór Sigurðarson. Að sögn Fræbbblanna eru þeir í fullu fjöri sem hljómsveit, þó að litið hafi heyrzt frá þeim upp á síðkastið. „Við höfum eiginlega verið í dái síðan í vor,” sögðu þeir. „Aðallega verið í plötustússinu og einnig hefur okkur vantað söngkerfi þangað til núna. Við ættum því að geta látið í okkur heyra af fullum krafti og ætlum að spila alls staðar þar sem tækifæri býðst.” Gulli Araí blaöa- mennsku Guðlaugur Arason fær einróma lof gagnrýnenda og annarra lesenda fyrir nýjustu bókina sína, Pelastikk. Þar segir frá níu ára gömlum strák sem fær að fljóta með á síldveiðar á bát frá Dalvík á gömlu góðu gullárun- um.Fyrri bækur Gulla Ara, Vindur vindur vinur minn, Eldhúsmellur og Víkursamfélagið, vöktu mikið umtal eins og menn muna, aöaUega tvær þær síðarnefndu. Voru menn hreint ekki á eitt sáttir um ágæti þeirra. Nú hefur rithöfundurinn ákveðið að leggja fyrir sig sjómennsku um nokkurra mánaöa skeið. Hyggst hann starfa fyrir Sjómannablaðið Víking og er ekki að efa að lesendur blaðsins eiga eftir að njóta vel starfs- krafta hans. Drengurinn er bæði rit- fær í betra lagi og þekkir til sjó- mennskunnar af eigin raun. Þú réttir bara upp höndina ef þú hættir að ná andanum og þá látum við þessu lokið, samanber Ijóðlinuna: „Og svona ætti að vera hvern einasta dag”. DB-myndir Sig. Þorri. Frœbbblarnir bjóöa upp á nammi Samtök herstöðvaandstæðinga efndu til landsráðstefnu á Akureyri í október. Hafa fjölmiðlar greint frá umræðum og samþykktum og ekki annað að skilja en þar hefði allt farið fram í ást og eindrægni. Verkalýðsblaðið lýsir samkomunni hins vegar þannig: „Það setti ljótan svip á ráðstefn- una síðari daginn að sumir komu til leiks svefnlausir og jafnvel undir áhrifum áfengis. Það gefur augaleið að menn í sliku ástandi eru ekki færir um að hugsa skýrt, hvað þá taka þátt í umræðum. Þó létu einstaka menn sig hafa það og töfðu þannig tímann með innihaldslausu kjaftæði.” Aðalheiður min, ég varö forseti og þú komst i miðstjórn. Föllumst nú í faðma i tilefni dagsins.. Hana, gleymdu nú einu sinni gleraugunum. Það er ekki skaðinn skeður þótt þau <l“tti af á svo hátiðlegum augnablikum.... „Fyrst ætluðum við að taka upp á tiu tímum og gefa lögin út á kassett- um en áður en við vissum af voru tímamir orðnir sjötíu. Það var því alveg eins gott að gera plötu,” sagði Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbbblanna, er rætt var við hann í tilefni af því að platan Viltu nammi væna? kemur út innan skamms. Reyndar átti platan að koma út nú í vikunni.En þegar búið var að pressa nokkur eintök kom í ljós að hátón- ana vantaði gjörsamlega á aðra hliðina. Því varð að skera þá hlið upp á nýtt erlendis. Fræbbblarnir vonast til þess að fyrstu gallalausu eintökin geti komið á markaðinn að viku lið- inni. Á plötunni Viltu nammi væna? eru

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.