Dagblaðið - 29.11.1980, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980.
Harðfengi og
hetjulund
eftir Alfred Lansing
Út er komin hjá bókaútgáfunni Skugg-
sjá, Hafnarfirði. bókin Harðfengi og
hetjulund eftir Alfred Lansing 1 þýðingu
Hersteins Pálssonar Þetta er 7. bókin í
bókaflokknum „Háspennusögurnar".
Harðfengi og hctjulund fjallar um
ótrúlega hrakningaför Sir Erne$t
Shackletons til Suðurskautsins. Skip
hans og samfylgdarmanna hans festist i
ísnum. sem að lokum braut skipið og
það sökk. Þá voru leiðangursmenn
staddir á ísbreiðu, sem var um 2 milljón-
ir ferkílómetra að flatarmáli. Um þessa
endalausu breiðu urðu þeir að draga
báta sína, vistir og persónulegar eigur, ef
þeir ætluðu að halda lífi. Fimm léleg
tjöld vörðu þessa 28 hrakningsmenn
fyrir næðingnum, og þeim var stöðugt
ógnað af háhyrningum og sæhlébörð-
um. Samt kom þeim aldrei til hugar að
gefast upp — og sizt af öllum foringj-
anum Sir Ernest Shackleton. Forystu-
hæfileikar hans mótuðu sundurleita
sveit I einhuga fylkingu, sem heppnaðist
það, sem öllunt virtist óframkvæman-
legt.
Harðfengi og hetjulund var bundin i
Bókfelli hf. og Prenttækni sá um Ijós-
ntyndun, filmuvinnu og offsetprentun.
Auglýsingastofa Lárusar Blöndal gerði
kápu.
Enn af Jóni Oddi
og Jóni Bjarna
eftir Guðrúnu Helgadóttur
Út er komin bókin Enn af Jóni Oddi
og Jóni Bjarna eftir Guðrúnu Helga-
dóttur. IÐUNN gefur út. Þetta er
þriðja bókin um þá tvíburabræður, en
hinar fyrri hafa verið mikið lesnar og
komið út í nokkrum útgáfum, síðast á
þessu ári. Þá er þess að geta að fyrsta
bókin um bræðurna er nú komin í
danskri, finnskri og sænskri þýðingu og
er væntanleg á norsku, hollensku og
þýsku. — Auk þessara þriggja bóka um
Jón Odd og Jón Bjarna hefur Guðrún
Helgadóttir sent frá sér tvær sögur
handa börnum, 1 afahúsi og Pál Vil-
hjálmsson, og leikrit hennar. Óvitar.
komiðútíbók.
Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna er
myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn. Hér er
tekinn upp þráður í frásögn af fjölskyldu
bræðranna og daglegu lifi hennar.
Reyndar fer fjölskyidan stækkandi því
að afi „sem aldrei var til” skýtur nú upp
kollinum. Bræðurnir fara i sumarbúðir
og sú dvöl verður ekki tíðindalaus. —
Bókin er I þrettán köflum, 112 blaðsíður.
Prisma prentaði.
Frá Bókaklúbbi AB
Eyðimerkur-
stríðið
eftir Richard Collier
Jóhann S. Hannesson og Sigurður
Jóhannsson íslenzkuðu.
Nýlega hefur Bókaklúbbur AB sent
frá sér sjöundu bókina I ritröðinni um
heimsstyrjöldina 1939—45
Eyðimerkurstríðið eftir breska stríðs-
fréttaritarann og rithöfundinn Richard
Collier. Fjallar hún um hin erfiðu stríðs-
átök I Norður-Afríku sem hófust nteð
innkomu Itala í styrjöldina, og ósigrum
þeirra fyrir breskum herjum i ársbyrjun
1941. Þá skerast Þjóðverjar í leikinn og
senda „Eyðimerkurrefinn" Rommell á
vettvang. Hann hrekur Breta austur til
Egyptalands og lá við að Súezskurður
félli Þjóðverjum i.hendur. Þá kemur
Bernard Montgomery fram á sjónar-
sviðið og striðsgengið snýst við með
hinni frægu orustu við El Alanten i
október 1942.
Bókin er 208 bls. að stærð með
miklum fjölda merkilegra mynda, eins
og önnur bindi þessara rita. Jóhann S.
Hannesson og Sigurður Jóhannsson
íslenzkuðu.
Jóhanna ÁlfheiÖur Steingrlmsdóttir
VEROLDIN
ERAUTAF
Veröldin er
alltaf ný
— barnabók eftir Jóhönnu
Álfheiði Steingrímsdóttur
Veruldin er alltaf ný heitir ný íslenzk
barnabók sem komin er út hjá Máli og
ntenningu. Höfundur bókarinnar er Jó-
hanna Álfheiður Steingrimsdóttir.
Árnesi i Aðaldal. og er þessi barnabók
fyrsta verk hennar sem kemur fyrir al-
menningssjónir.
Um efni bókarinnar segir á bókar-
kápur: „1 þessari bók kynnuntst við
Gauki. sent er sveitastrákur og Perlu
frænku hans og jafnöldru og ýntsuni
ævintýrum sent þau lenda i santan.
Meðal annars lesunt við unt fyrstu
kirkjuferð þeirra, sent fólkið I sveitinni
ntan áreiðanlega vel eftir enn. fyrsiu
veiðiferðGauks þar sent litlu ntunaði að
hann færi sér að voða og frá fuglinunt
sent hann fann I snjónunt og hjúkraði.
Og ekki ntá gleyma sandkassaheintinum
þar sent ýmislegt spennandi og dularfullt
á heima. Við kynnumst daglegunt hvers
dagsstörfum I sveitinni nteð augum
barnanna. ásantt þeim fjölskrúðugu
hugmyndum sent þau gera sér sjálf unt
heiminn I kringunt sig.
Haraldur Guðbergsson ntyndskreytti
bókina og teiknaði kápuntynd. Veröldin
er alltaf ný er 104 bls„ setningu og prent
un annaðist prentsmiðjan Guðjón Ó hf„
Prentþjónustán hf. sá unt Ijósntyndun
og skeytingu. en Bókfell hf. batt bókina.
Ný fjölfræðibók
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hefur
sent frá sér bókina Tækniheimurinn, er
er fyrsta bókin í bókaflokknum: Heimur
þekkingar. Bækur þessar hafa komið út,
víða um lönd og fengið hinar bestu
viðtökur, enda I þeim brugðið upp
greinargóðri mynd af afrekum manna
bæði á tæknisviði og eins I hugvísindum.
1 fyrstu bókinni: Tækniheimurinn, er
varpað Ijósi á tækniafrek mannsins, upp-
götvanir og þrotlausar tilraunir frá örófi
alda fram til okkar daga. Öll fjöskyldan
getur haft ánægju af bók þessari. Á
hverri blaðsíðu er myndefni og lesefni
komið fyrir með þeim hætti að nota má
bókina hvort sem menn vilja til
skemmtilestrar eða til fróðleiks. Um
250 litmyndir eru í bókinni og auk þess
fjöldi svart-hvitra mynda, sem skýra efni
hennar.
Bókin Tækniheimurinn skiptist I 15
kafla, og gefa kaflaheitin nokkra mynd
af hve yfirgripsmikið efnið er, en þeir
eru: Upphaf tækninnar, Jarðyrkju-
maðurinn, Tákn og tölustafir, Menning
og tæknin, Vísindabyltingin, Læknar og
gullgerðarmenn, Uppfinningar og
iðnaður, Nútímaheimur I mótun, Stríðs-
kerrur og vagnar, Úthafssiglingar, Bílar.
Skipaskurðir. Járnbrautir, Flug,
Svifnökkvar og skiðabátar
Tækniheimurinn er eftir Ron Taylor
og Mark Lambert. en þýðing er eftir
Boga Arnar Finnbogason. Filmusetning
og umbrot texta annaðist Texti hf„ en
prentun og bókband New lnterlitho.
Italíu.
Heimsmetabók
Guinness
— stóraukið íslenskt efni
Bókaútgáfan Örn og örlygur hf. hefur
nú sent frá sér Heimsmetabók Guinness.
Er þetta í annað sinn sem bókin kemur
út á íslensku, hún var fyrst gefin út hér
lendis árið 1977 og seldist þá upp á
skömmum tíma og hefur verið með öllu
ófáanleg síðan. Efni hinnar nýju útgáfu
bókarinnar er að verulegu leyti nýtt, þar
sem alltaf er verið að setja ný met og
aðstæður að breytast, en það sem setur
þó fyrst og fremst svip sinn á útgáfuna
að þessu sinni er það að íslenskt efni
bókarinnar hefur verið stóraukið. Er
getið íslenskra hliðstæðna við met þau er
bókin telur upp, í mjög mörgum til-
fellum, og einnig íslenskra sérstæðna.
Heimsmetabók Guinness er bók sem
nýtur gífurlegra vinsælda víða um lönd.
og hafa nú komið út 27 útgáfur bókar-
innar á fjölmörgum tungumálunt.
Ástæðan fyrir þessum vinsældum bókar-
innar er fyrst og fremst sú að hér er unt
að ræða fjölfræðibók, þar sem ótrúlega
mikill fróðleikur er settur fram á skýran
og afdráttarlausan hátt. Hefur oft verið
sagt að Heimsmetabók Guinness svari
fleiri spurningum en nokkur önnur
einstök bók.
Lewis og Clarke; Kapteinn Skott;
Magellan og Nelson.
Bókin um Kólumbus er eftir þekktan
sagnfræðing: Felipe Fernández
Armesto, en ritstjóri bókaflokks þessa
er Sir Vivian Fuchs og ritar hann
inngang bókarinnar.
Bókin um Kólumbus fjallar um eitt
mesta landkönnunarafrek sögunnar, og
er I bókinni rakið hversu Kólumbus
ieitaði bakhjarls konunga við hirðir
Portúgals og Spánar, sagt frá siglingum
hans, m.a. til íslands, en hingað
mun Kólumbus hafa komiðárið 1477.
Bókin um Kólumbus er prýdd fjölda
mynda, bæði litmynda og svarthvítra,
en kápumynd bókarinnar er þekkt
andlitsmynd af Kólumbusi, eftir
málverki sem er I Uffizi listasafninu í
Flórens.
Þýðing bókarinnar er eftir Kristínu R.
Thorlacius, en umsjón með islensku út-
gáfunr.i hafði Örnólfur Thorlacius.
Bókin er sett og filmuunnin I Prentstofu
G. Benediktssonar, en offsettprentun
texta og mynda er unnin hjá Fakenham
Press Limited, Fakenham, Norfolk.
Heimsmetabók Guinness skiptist I tólf
kafla og eru kaflaheitin eftirtalin: I.
Maðurinn, 2. Lífheimurinn, 3. Jörðin, 4.
Heimur og geimur, 5. Heimur visind-
anna, 6. Listir og dægradvöl, 7. Mann-
virki, 8. Tækniheimurinn, 9. Heimur
vísindanna, 10. Mannheimur, 11.
Afreksverk manna, 12. íþróttir, leikir og
tómstundaiðkanir.
Ritstjórar íslensku útgáfunnar eru
þeir örnólfur Thorlacius og Steinar J.
Lúðvíksson.
Heimsmetabók Guinness er 362 bls.
Bókin er sett, umbrotin og filmuunnin I
Prentstofu G. Benediktssonar, en
prentuð hjá Redwood Burn Ltd. í Bret-
landi.
Litla hvíta lukka
ný bamasaga eftir Helen
Bannerman
Litla hvíta Lukka heitir ný bók eftir
Helen Bannerman sem út er komin hjá
ÍÐUNNI. Höfundur sögu og mynda er
bresk kona, og er kunnasta verk hennar
Litli svarti Sambó sem margir þekkja frá
gamalli tíð. Sú saga var endurútgefin I
fyrra og ennfremur bókin Sambó og
tvíburarnir. Litla hvíta Lukka er I sömu
sniðum og þær tvær bækur og er ætluð
litlum börnum, letur stórt og línur
stuttar. — Vilborg Dagbjartsdóttir
þýddi bókina. Myndir á annarri hverri
síðu eru I litum. Bókin er 66 blaðsíður.
Oddi annaðist setningu en bókin er
prentuð I Portúgal.
Dœguriagasöng-
konan dregur
sig í hlé
eftir Snjólaugu Bragadóttur
Bókaútgáfan Örn og' Örlygur hf. hefur
nú gefið út nýja skáldsögu eftir
Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk.
Nefnist sagan: Dægurlagasöngkonan
dregur sig I hlé og er sjöunda skáldsaga
Snjólaugar. Síðast kom út eftir hana
bókin Lokast inni i lyftu árið 1977. Snjó-
laug Bragadóttir hefur alltaf átt stóran
lesendahóp, sem beðið hefur nýrrar
bókar frá henni meðóþreyju.
Hin nýja saga Snjólaugar, Dægur-
lagasöngkonan dregur sig I hlé, er sem
fyrri sögur hennar viðburðarík, fjörleg
og skemmtileg og þeim kostum gædd að
vera við hæfi allra aldursflokka. Hún
segir frá ungri Reykjavikurstúlku. sem
er I senn fegurðardrottning, tískusýn-
ingastúlka og dægurlagasöngkona, en
margar ungar stúikur dreymir um að
verða eitt af þessu. En aðalsöguhetja
bókarinnar er samt sem áður ekki sæl
með hlutskipti sitt. Þáttaskil verða I lífi
hennar þegar hún þarf skyndilega að
taka að sér heimili og börn systur sinnar
úti á landi, en þar mætir hún öfund og
illgirni, vegna „fortíðarsinnar”.
Bókin Dægurlagasöngkonan dregur
sig í hlé er sett, umbrotin, filmuunnin og
prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar, en bundin í Arnarfelli hf. Kápu-
teikning er eftir Birgi Andrésson.
Kólumbus
Ný bók í bókaf lokknum:
Frömuðir landafunda
. Bókaútgáfan örn og Örlygur hf.
hefur nú sent frá sér bókina: Kólmubus
— og sigurinn á hinu ósigranlega. Bók
þessi er í bókaflokki er fjallar um
frömuði landafunda og frömuði
sögunnar, og hafa áður komið út hjá
Erni og Örlygi hf. sex bækur í þeim
bókaflokki: Francis Drake; Livingstone.
Á ystu nöf
Njósnasaga
eftir Ada n Hall
Út er kontin á vegum Iðunnar skáld-
sagan Á ystu nöf eftir breska höfundinn
Adam Hall. Þetta er njósnasaga og er
söguhetjan Quiller sá sem frá var sagt i
bók höfundar, Njósnir í Berlín, sem út
kom á íslenzku í fyrra.
Um efni sögunnar Á yztu nöf, Quiller
í eyðimörkinni, segir svo á kápubaki:
„Hröpuð flutningaflugvél liggur grafin í
eyðimerkursandinn, áhöfnin orðin hræ-
gömmum að bráð. Óhugnanlegur farm-
ur vélarinnar er gildra hverjum sern
nálgast hann. Ásetningur Quillers er að
kanna hann nákvæmlega... "
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi Á
ystu nöf. Sagan er i tuttugu köflum, 240
bls. Oddi prentaði.