Dagblaðið - 29.11.1980, Side 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980.
23
<1
Útvarp
Sjónvarp
D
Útvarp kl. 11,20:
Bamaleikritið
Morgunsárið
eftir Herborgu
Friðjónsdóttur:
VERDLAUNA-
LEIKRIT UM
TVENNA TÍMA
í dag kl. 11.20 verður flutt barna-
leikritið „Morgunsárið” eftir Her-
borgu M. Friðjónsdóttir. Atburðir
leiksins eiga sér stað á ólíkum
tímum. Annars vegar í nútímanum á
biðstöð strætisvagna óg í einum
vagninum, hins vegar í fortíðinni.
Þar segir frá bömum við blaðaútburð
og fólkinu sem þau kynnast. Sigga,
18 ára, rifjar upp það sem gerðist
fyrir 10 árum, þegar lífið og tilveran
litu allt öðruvísi út.
Höfundur leikritsins, Herborg
Friðjónsdóttir, hefur áður skrifað
fyrir börn og unglinga og þýtt
nokkuð af bókum, nú síðast ,,Húsið
á sléttunni” eftir Lauru Ingalls
Wilder. Morgunsárið var eitt þeirra
leikrita sem barst í barnaleikrita-
keppni útvarpsins á sl. ári. Leikstjóri
er Guðrún Ásmundsdóttir, en með
helztu hlutverkin fara Margrét
Blöndal, Sólveig Hauksdóttir, Leifur
Björn Björnsson, Bríet Héðinsdóttir
og Sigurður Karlsson. Flutningur
leiksins tekur rúman hálftíma.
Tæknimenn eru þeir Georg Magnús-
son og Friðrik Stefánsson.
-GSE.
Guðrún Ásmundsdóttir leikstvrir leikritinu „Morgunsárið”.
DB-mynd: Hörður.
Smásagan Fulltrúinn
—útvarp kl. 21.40:
„HANN ER í KAFFI,
HANN ER í MAT,
HANN ER A FUNDI-
HANN ER FARINN”
—utanbæjarmaður íkerfinu
„Sagan greinir frá gömlum bókara
sem vinnur hjá kaupfélagi úti á landi,
enginn veit hvar. Kaupfélagsstjórinn
ræður sér fulltrúa sem á að vera hans
hægri hönd. Þetta er ungur strákur, ný-
búinn í skóla og gamla manninum
finnst vera fram hjá sér gengið. En til
þess að sýna honum hvert starf full-
trúans er, sendir kaupfélagsstjórinn
hann til Reykjavíkur og biður hann að
tala við fjóra menn,”sagði Einar Logi
Einarsson um sögu sína Fulltrúinn sem
hann les í útvarpinu í kvöld.
„Skemmst er frá því að segja að
leitin að þessum mönnum reynist
enginn dans á rósum. Ýmist eru þeir i
kaffi, mat, á fundum, farnir heim eða
ekki til viðtals.
Ég hef reynslu af þessu sjálfur. Ég
hef unnið úti á landi og ætlað að koma
til Reykjavíkur til að gera eitthvað ægi-
lega mikiö. Reyndin er alltaf sú að mér
verður ekkert úr verki því ég næ ekki í
neinn,” sagði höfundurinn.
Einar Logi hefur undanfarin ár verið
að mestu úti á landi en ætlar að vera í
Reykjavík í vetur. „Annars er ég eins
og kötturinn, ég fer mínar eigin leiðir,”
sagði hann og hló.
Síðasta árið hefur Einari gefizt litill
Einar Logi Einarsson rithöfundur.
tími til skrifta. Hann sagði þó alltaf
vera að brjótast í kolli sínum sitthvað
sem kæmist á pappír þegar tími ynnist
til. Muna vafalaust margir eftir barna-
bókum Einars, svo sem bókunum um
Nikka og Rikka. Hann hefur einnig
skrifað fyrir fuUorðna auk þess að
hafa verið tónlistarkennari i 8 ár.
-DS.
Laugardagur
29. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10
Bæn. 7.15 Leikfimi.
7.25 Tónieikar. Þulur velur og
kynnir.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleik-
ar.
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir).
11.00 ABRAKADABRA, — þátt-
ur um tóna og hljóð. Umsjón:
Bergljót Jónsdóttir og Karólína
Eiriksdóttir. Endurtekning á
þættinum 23. þ.m.
11.20 Barnaleikrit: „Morgunsár-
ið” eftir Herborgu Friðjónsdótt-
ur. Leikstjóri: Guðrún Ás-
mundsdóttir. Persónur og leik-
endur: Sögumaður: Sólveig
Hauksdóttir, Sigga: Margrét
Kristín Blöndal, Lalli: Leifur
Björn Björnsson, dúfukona: Bri-
et Héðinsdóttir, stýrimaður:
Sigurður Karlsson, Steini: Jón
Gunnar Þorsteinsson. Aðrir leik-
endur: Friðrik Jónsson, Guð-
mundur Klemenzson, Guðrún
Ásmundsdóttir og Valgerður
Dan.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tiikynningar. Tónleikar.
13.45 Iþróttir. Hermann Gunnars-
son segir frá.
14.00 í vikuiokin. Umsjónarmenn:
Ásdis Skúladóttir, Áskell Þóris-
son, Björn Jósef Arnviðarson og
Óli H. Þórðarson.
15.40 íslenzk! mál. Dr. Guðrún
Kvaran talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistarrabb; — VIII. Atli
Heimir Sveinsson kynnir blokk-
flaututónlist frá endurreisnar-
tímanum.
17.20 Hrimgrund. Stjórnendur:
Ása Ragnarsdóttir og lngvar
Sigurgeirsson. Meðstjórnendur
og þulir: Ásdís Þórhallsdóttir,
Ragnar Gautur Steingrímsson og
Rögnvaldur Sæmundsson.
18.00 Söngvar í léttum dúr. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Heimur í hnolskurn”, saga
eftir Giovanni Guareschi.
Andrés Björnsson íslenzkaði.
Gunnar Eyjólfsson leikari les
(10).
20.00 Hlöðuball. Jónatan Garðars-
son kynnir ameríska kúreka- og
sveitasöngva.
20.30 Siddharta prins, — svip-
myndir úr lifi Búdda. Ingi Karl
Jóhannesson þýddi þátt um
höfund Búdda-trúar, upphaf
hennar, einkenni og útbreiöslu,
gerðan á vegum UNESCO. Les-
arar með þýðanda: Guðrún Guð-
laugsdóttir og Jón Júlíusson.
21.00 Fjórir piltar frá Liverpool.
Þorgeir Ástvaidsson rekur feril
Bitlanna — „The Beatles”; —
sjöundi þáttur.
21.40 „Fulltrúinn”, smásaga eftir
Einar Loga Einarsson. Höfund-
urinn les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: Reisubók Jóns
Ólafssonar Indiafara. Flosi
Ólafsson leikari les (12).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
30. nóvember
8.00 Morgunandakt. Séra Sig-
urður Pálsson vigslubiskup flyt-
ur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit
Hans Georgs Arlts leikur.
_ 9.00 Morguntónleikar. a. „Pétur
Gautur”, hljómsveitarsvíta eftir
Edvard Grieg. Fíladelfíuhljóm-
sveitin leikur; Eugene Ormandy
stj. b. „Æska Heraklesar”,
tónaljóð op. 50 eftir Camille
Saint-Saéns. Colonne-hljóm-
sveitin leikur; Louis Fourestier
stj. c. Pianókonserl op. 20 eftir
Sigismund Thalberg.
10.05 Fréttir. Tónleikar. 10.10
Veðurfregnir.
10.25 Út og suður. Jóhann J.E.
Kúld rithöfundur segir frá ferð
sinni yfir Snæfellsnesfjallgarð út
í Breiöafjarðareyjar árið 1917.
Friðrik Páll Jónsson stjórnar
þættinum.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Grensássóknar. Prestur: Séra
Halldór Gröndal. Organleikari:
Jón G. Þórarinsson.
12.10 Dagskráin.Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Þættir úr hugmyndasögu 20.
aldar. Sveinn Agnarsson há-
skólanemi flytur fjórða og síð-
asta hádegiserindið i þessum
flokki: Samanburður á frjáls-
hyggju Hayeks og Keynes.
14.10 Friðrik Bjarnason: 100 ára
minning i frásögn og fónum í
samantekt Páls Kr. Pálssonar.
Lesari með honum: Páll Pálsson.
15.00 Hvað ertu að gera? Böðvar
Guðmundsson ræðir við Helgu
Jóhannsdóttur um þjóðlagasöfn-
un.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýjum
bókum. Kynnir: Dóra Ingvadótt-
ir.
17.40 ABRAKADABRA, — þátt-
ur um tóna og hljóð. Umsjón:
Bergljót Jónsdóttir og Karólina
Eiríksdóttir.
18.00 Létt tónlist frá austurríska
útvarpinu. ,,Big-Band”-hljóm-
sveit útvaipsins i Vín leikur;
Erich Kleinschuster stj. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Veiztu svarið? Jónas Jónas-
son stjórnar spurningaþætti, sem
fer fram samtímis í Reykjavík og
á Akureyri. í þriðja þætti keppa
öðru sinni: Brynhildur Lilja
Bjarnadóttir og Jón Viðar Sig-
urðsson. Dómari: Haraldur
Ólafsson dósent. Sam-
starfsmaður: Margrét Lúðviks-
dóttir. Aðstoðarmaður nyrðra:
Guðmundur Heiðar Frímanns-
son.
19.50 Harmonikuþáttur. Bjarni
Marteinsson kynnir.
20.20 Innan stokks og utan.
Endurtekinn þáttur, sem Árni
Bergur Eiríksson stjórnaði 28.
þ.m.
20.50 Frá tónlistarhátiðinní „llng
Nordisk Musik 1980” i Helsinki í
maí sl. Kynnir: Knútur R.
Magnússon. a. „Brot” eftir
Karólínu Eiriksdóttur. b. „Blik”
eftir Áskel Másson. c „Worlds”
eftir Anders Hillborg.
21.25 Þjóðfélagið fyrr og nú.
Spjallaö verður m.a. um kenn-
ingar Einars Pálssonar um þjóð-
félagið forna og nýútkomna bók
eftir Richard F. Tomasson
prófessor. Umsjónarmaður:
Hans Kristján Árnason hag-
fræðingur.
21.50 Að tafll. Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð
kvöldsins á jólaföstu. Guöfræði-
nemar flytja.
22.35 Kvöldsagan: Reisuók Jóns
Ólafssonar Indiafaru. Flosi
Ólafsson leikari les (13).
23.00 Nýjar plötur og gamlar.
Runólfur Þórðarson kynnir tón-
listogtónlistarmenn.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
pM.l.TOl
Laugardagur
6. desember
16.30 Íþróttir.
18.30 Lassie. Áttundi þáttur. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Frétlaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður. Gamanþáttur. Þýð-
andi Ellert Sigurbjörnsson.
21.05 Jass. Bob Magnússon, Guö-
mundur Ingólfsson, Guðmundur
Steingrimsson, Rúnar Georgsson
og Viðar Alfreðsson leika jass.
Upptakan var gerð í september
sl. og henni stjórnaði Egill Eð-
varðsson.
21.35 Keppnin um Ameríkubikar-
inn. Bresk heimildamynd um
Ameríkubikarinn og viðbúnað
nokkurra siglingakappa til að
heimta hann úr höndum meistar-
anna, Bandarikjamanna. Þýð-
andi og þulur Guðni Kolbeins-
son.
22.20 Heiður herdeildarinnar.
i (Conduct Unbecoming). Bresk
biómynd frá árinu 1975. Leik-
stjóri Michael Anderson. Aðal-
hlutverk Michael York, Rich
ard Attenborough, Trevor Ho-
ward, Stacy Keach, Christop-
her Plummer og Susannah York.
Myndin gerist í afskekktri,
breskri herstöð á Indlandi seint á
nitjándu öld. Ungur undirforingi
er ásakaður um ósæmilegt at-
hæfi, og flest bendir til að hann
sé sekur. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. desember
16.00 Sunnudagshugvekja. Bergur
Felixson kennari flytur hugvekj-
16.10 Húsið á sléltunni. Sjötti
þáttur. Ógnvaldur bæjarins.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.10 Leitin mikla. Sjötti þáltur.
Grísk-kaþólska kirkjan. Þýðandi
Björn Björnsson guðfræði-
prófessor. Þulur Sigurjón Fjeld-
sted.
18.00 Stundin okkar. Sýnd verður
mynd frá síðastliðnu sumri um
reiðskólann i Saltvík og fylgst
með ungu fólki á æfingu á Kjóa-
völlum. Þóra Steingrímsdóttir
segir söguna um Rauðhettu og
leikur og syngur frumsamin lög.
Heiðdís Norðfjörð les frum-
samda sögu. Þóra Sigurðardóttir
myndskreytti söguna. Þá verður
mynd frá heintsókn spænska
iistafólksins Els Comediants á
síðastliðnu sumri. Einnig eru i
þættinum Barbapabbi, Binni og
karlinn sem ekki vildi verða stór.
Umsjónarmaöur Bryndis
Schram. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Önnur rödd. Ljóð úr ljóða-
bálknum Raddir i daghvörfum
eftir Hannes Pétursson. Lesari
dr. Kristján Eldjárn.
21.05 Maður er nefndur Lárus í
Grimstungu. Undir Grimstungu-
heiði er Grimstunga i Vatnsdal.
Þaöan liggur gömul þjóðleið
milli landsfjórðunga að Kal-
manstungu í Borgarfirði. Lárus
Björnsson er landskunnur bóndi
og fyrrum gangnaforingi. Hann
á að baki ótaldar ferðir inn á
heiðina við fjárleit og veiðislark.
En þótt Lárus sé orðinn 91 árs og
hættur þess háttar ferðum er
hann enn ungur i anda. Hann lét
sig litið muna um að bregða sér
inn á heiði og ríða í réttirnar,
þegar sjónvarpsmenn sóttu þenn-
an siunga öldung heirn á liðnu
hausti. Grímur Gíslason á
Blönduósi ræðir við Lárus.
Stjórn upptöku Valdimar Leifs-
son.
21.50 Landnemarnir. Fjórði þátt-
ur. Efni þriðja þáttar: Levi
Zendt, ungur maður i Pennsylva-
níu, er að ósekju rekinn úr sö’fn-
uði sínum. Hann fer burt ásamt
ungri stúlku, Ellý, sem hann
kvænist. Þau haida vestur á bóg-
inn ásamt öðrum og koma ioks
til John-Virkis, þar sem McKeag
býr ásamt eiginkonu sinni, Leir-
Körfu, og dóttur. Þýðandi Bogi
ArnarFinnbogason.
23.20 Dagskrárlok.