Dagblaðið - 29.11.1980, Page 24
Syf julegur þingheimur skundaði f kokkteil hjá Svavari
félagsmálaráðherra:
ÁSMUNDUR FÉKK
VEKJARAKLUKKU
Eftir þrætur, þref, mas, makk,
ráðabrugg, blóð, svita, tár, gleði og
sorg undanfarna daga á Alþýðusam-
bandsþingi létu menn eftir sér að taka
upp léttara hjal við slit þingsins síð-
degis í gær. Fulltrúar stríðandi fylk-
inga fluttu samherjum og and-
stæðingum þakkir og hrósyrði. Létt-
ist brúnin á syfjulegum þingheimi er
samkomunni var loks slitið um hálf
fimmleytið eftir langa og stranga
fundi og vöku í alla fyrrinótt. Klukk-
an hálf sex var Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra með kokkteilboð
fyrir þingfulltrúa og hugðust sumir
gera sér hressilegan dagamun. Aðrir
settu takmarkið ekki hærra en að
komast undir sæng og láta þreytuna
líða úr sér.
Pétur „sjómaður” Sigurðsson
kvaddi sér hljóðs fyrir þingslitin og
lýsti ánægju sinni með niðurstöðu
miðstjórnarkjörs þar sem alþýðu-
bandalags- og sjálfstæðismenn vorú
hönd í hönd. Sagði ræðumaður þó
ekki alla fuUtrúa jafnánægða með
niðurstöðuna og sendi krötum pillu:
„Þetta hefur kostað sársauka hjá
þeim sem tóku meira en þeir áttu i lok
—aðgjöffrá
Pétri
„sjómanni”
ogfélögum
síðasta ASÍ-þings.”
Pétur tilkynnti að hann og óskil-
greindir félagar hans hygðust færa
Ásmundi Stefánssyni stóra og mikla
vekjaraklukku að gjöf, „til að vekja
ráðherrana sína af værum blundi á
milli verðbótadaganna.” Er ekki að
efa að gjöfin sú kemur í góðar þarfir.
-ARH.
Alþýðusambandið:
ATJANINYRRI
SAMBANDSSTJÓRN
Átján manns voru kjörnir í sam-
bandsstjórn Alþýðusambandsins á
þinginu í gærmorgun. Sambands-
stjóm er æðsta vald ASÍ á milli
þinga. Eru í henni fimmtán mið-
stjórnarmenn, fyrrnefndir átján full-
trúar, sem kjörnir eru sérstaklega, og
nokkrir fulltrúar landssambanda.
Þeir átján sem kjömir voru eru:
Báður Jensson, Ólafsvík, Birgir Hin-
riksson, Vík í Mýrdal, Dagbjört
Höskuldsdóttir, Stykkishólmi, Einar
Karlsson, Stykkishólmi, Friðrik
Jónsson, Hafnarfirði, Guðrún Ölafs-'
dóttir, Keflavík, Gunnar Þórðarson,
ísafirði, Hákon Hákonarson, Akur-
eyri, Jóhanna Friðriksdóttir, Vest-
mannaeyjum, Jón Ingimarsson,
Akureyri, Jón Karlsson, Sauðár-
króki, Magnús Einar Sigurðsson,
HlP, Reykjavík, Kristján Ásgeirs-
son, Húsavík, Kristján Ottósson,
Reykjavík, Sigfinnur Karlsson, Nes-
kaupstað, Pétur Sigurðsson, ísafirði,
Sigurður Sigmundsson, Reykjavík,
og Skúli Guðjónsson, Vörubifreiða-
stjórafélaginu Mjölni. - ARH
Aníikmálið:
5 mánaða
skilorðs-
bundið
fangelsi
— oggreiðslaalls
sakarkostnaðar
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm
í Antikmálinu svonefnda, eða máli
ákæruvaldsins gegn Birni
Vilmundarsyni. Ákæran reis út af
meintu gjaldeyrismisferli í sambandi
við innflutning antikhúsgagna. Var
m.a. talið sannað að ákærði hefði
notað við gjaldeyrisumsóknir nöfn
fólks sem ekki stóð i neinum slíkum
innflutningi.
I undirrétti var ákærði dæmdur í 3
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Hæstiréttur þyngdi dóminn í 5
mánaða skilorð bundið við tvö ár og
ákærði var dæmdur til að greiða
allan sakarkostnað. -ÓV.
Þetta virðulega par var á dansleik sem haldinn
var fyrir aldraða að Norðurbrún 1 í fyrra-
kvöld. Hún heitir Ingibjörg Gísladóttir. 89
ára. fædd í Hvitanesi í Skilmannahreppi.
Dansherrann er Jón S. Steinþórsson, 88 ára.
frá Dalshúsum í Önundarfirði.
-KMU/DB-mynd Sig. Þorri.
Ekkert
bólar á
eldgosi
Land heldur áfram að rísa á
Kröflusvæðinu. Allt er enn rólegt,
engir skjálftar hafa mælzt síðustu
dagana og ekkert bólar á gosinu.
Land hefur þó risið verulega hærra
en það var fyrir síðustu hrinu.
Páll Einarsson jaröeðlisfræðingur
sagði í samtali við DB að enn gæti
liðið langur tími áður en gós yrði, t.d.
hefðu liðið tveir mánuðir frá því land
náði sinni fyrri hæö þar til ein
umbrotahrinan hófst. Væri þvi
ekkert óeðlilegt þó land héldi áfram
að rísa eitthvað áfram.
-KMU.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 29. NÓV. 1980.
Bláfjallamenn
langeygir eftir
snjónum
— enenn verðurbid
á honum
„Við bíðum bara í startholunum
eftir að snjói,”sagði Þorsteinn Hjalta-
son fólkvangsvörður í Bláfjöllum.
Lítill snjór er í fjöllunum núna. Ýmsar
framkvæmdir hafa verið á skiðasvæð-
inu í sumar, ma. unnið við það að slétta
brekkurnar. Þá hefur verið lögð 2,6 km
löng göngubraut, upplýst með staur-
um. Þá hefur íþróttafélagið Fram
komið upp nýrri diskaly ftu.
En það er enn nokkur bið eftir skíða-
snjónum, því allar líkur eru á rigningu
á Bláfjallasvæðinu. Um helgina er spáð
hlýrri sunnanátt og reikna má með
rigningu og súld á Suður- og Vestur-
landi, vestarlega á Norðurlandi og
sunnarlega á Austfjörðum. Þurrt
verður á Norðausturiandi.
- SÞS ELA
Skipulagðri
— mennimirtveir
taldiraf
Skipulagðri leit að Trausta ÞH-8 er
nú hætt. Leit flugvélar, 13 báta og 40
manna í gær bar engan árangur.
Haldið verður áfram að ganga fjörur.
Á Trausta voru tveir menn, báðir bú-
settir á Kópaskeri. Það voru þeir Krist-
inn Kristjánsson skipstjóri, 29 ára, sem
lætur eftir sig unnustu og böm, og
Barði Þórhallsson vélstjóri, 37 ára
gamall, sem lætur eftir sig konu og þrjú
böm. - A.St.
Undrahundurinn
íDagblaðsbíói
Dagblaðsbíó verður i dag laugardag
— og framvegis — i Borgarbíói í
Kópavogi klukkan þrjú. í dag verður
sýnd myndin Undrahundurinn sem
sýnd hefur verið í Borgarbíói undan-
farið við góðar undirtektir. Hér ér á
ferðinni bráðskemmtileg ævintýra-
mynd í litum og með íslenzkum texta.
Borgarbíó er á Skemmuvegi 1 i Kópa-
vogi. Hægt er að komast þangað úr
iReykjavík með því að taka Breiðholts-
strætó, annaðhvort númer II eða 12,
iog fara út á móts við bensínstöðina í
jneðra Breiðholti.
BLAffíB
Frá og með mánudeginum L.
desember hækkar áskriftarverð dag-
blaðanna upp í kr. 7000. Lausasölu-
verð hækkar upp í kr. 350 eintakið.
Gmnnverð auglýsinga hækkar frá
sama tíma í kr. 4.200 pr. dálksenti-
metra.
I