Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 6
42240) BILATEPPI 6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1980. Tiíboðs- verð á kinda- bjúgum KJÖTBÚÐ SUÐURVERS STIGAHLÍÐ - SÍMI35645 Áskríftarsími Eldhúsbókarinnar 24666 ELDHÚSBÓKIN I- ri-\ juuolu 14 BÍLATEPPI Amerisk teppi i eiie Wla. SJéum um isetningu eða sniflum eftir máli. Vönduð vinna — Vanir menn. 7 litir fírúrtt Svart Rauóbrúnt Rautt Blútt Gult Rústrautt Tilbúin teppi í Range Rover. Bronco, Lada Sport o.fl. Sendum í póstkröfu. Höfum einníg teppi í báta. Erum i sama húsi og Bílasala Eggerts. Teppa- þjónustan hf. Auðbrekku 44—46. Simi 42240 Bremsu- klossar Og borðar flestal*3 bila Límum og rennum diska og skálar Límum á kúplingsdiska o. fl. ólímingor sf Ármúla 22 Símar 84330 og 84181 L. J STAGID SUTNAÐI VIÐ FYRSTA ÁTAK — mörgu ábótavant í eftirliti með stóru togurunum, segir Ólaf ur Bjarnason, sem slasaðist um borð í Viðey —mesta mildi að ekki fór verr, þar sem f imm menn voru á dekki með belti um mig, sem ég tel að hafi bjargað lífi minu. Ég hékk í henni þannig að ég fór ekki í sjóinn. Ég lærbrotnaði en missti ekki meðvit- und. Það var guðs mildi að ekki fór verr, því við vorum fimm þarna undir þegar stagið slitnaði. Hinir sluppu alveg, utan hvað einn háseti fékk rispu á ennið. Dagblaðið ræddi við Ólaf í vik- unni, en hann liggur nú á Borgarspít- alanum. Hann var skorinn upp og sett 43 cm stálstöng í lærið og sagði hann ljóst að hann ætti eftir að dvelj- ast í margar vikur á sjúkrahúsinu. Ólafur sagði að eftir slysið hefðu félagar hans tekið hann og búið vel um hann í sjúkraklefa skipsins meðan siglt var til lands. Hann sagði að skipstjórinn hefði tjáð sér að stagið sem slitnaði hefði verið sett í skipið fyrir aðeins 11 mánuðum. „Mér er dálítið óljóst hvað gaf sig,” sagði Ólafur, „hvort það var hólkur- inn sem þrýstir augunum saman. Sjó- vinnustofa Ingvars og Ara setur þessi stög saman,” sagði Ólafur. „Það hefur ekki komið fyrir, svo ég viti, að þessi stög hafi slitnað. Þessi búnaður er ekki í öllum skuttogurum, en að minnsta kosti í stóru pólsku togurun- um eins og Viðey. „Við vorum djúpt út af Reykjanesi á svonefndu Skerjadýpi sl. laugar- dag. Það var norðaustan stinnings- kaldi og töluverður sjór. Við vorum að hífa inn trollið og voru bobbing- arnir komnir inn fyrir. Töluverð kvika var þegar við tókum upp fyrstu færuna, snörluðum með gilsi, sem gengur upp í blökk, sem er með stagi og gengur eftir miðju skipinu. Við fyrsta átak slitnaði stagið niður,” sagði Ólafur Bjarnason, netamaður á skuttogaranum Viðey RE-6. „Stagið eða blökkin kom niður í dekkið og tók síðan flugið aftur eftir dekkinu og í mig. Ég var í líflinu, Ólafur Bjarnason sjómaður liggur nú lærbrotinn á Borgarspitalanum eftir slys um borð i togaranum Viðey. Ólafur telur eftirlit ekki nógu gott með stóru togur- unum. DB-mynd Sigurður Þorri. Það er því mín spuming hvort skipaeftirlitið og öryggiseftirlitið sjái til þess að slík stög og annar siíkur þúnaður sé þolreyndur, a.m.k. einu sinni á ári, eða hvort útgerðaraðilum og skipstjórnarmönnum sé treyst fyrir þvi. Ég tel að þreyta hafi komið ótrúlega fljótt fram í þessu stagi. Annað atriði er að ekkert öryggi er á þessu ef það gefur sig, t.d. keðja, sem tekur við ef stagið slitnar niður. Hver ber ábyrgð á þessu og fá þessi skip haffærisskírteini árlega? Ég tel að mörgu sé ábótavant í eftirliti með stóru togurunum. Ástandið er mun betra á þeim minni. Ástæðan er sú að mikið er um mannaskipti á stóru togurunum. Á þeim minni er sami mannskapurinn og þar fyigjast menn miklu betur með. Frekar gleymist að lagfæra og endur- nýja það sem þarf á þeim stóru. Þegar skipið kom í land, aðfara- nótt sunnudags, tók útgerðarmaður- inn gallaða stagið og afhenti það sjó- vinnustofu Ingvars og Ara. Honum hafði verið tjáð að þeir bæru ekki nokkra ábyrgð. Það finnst mér ekki nógu góð skýring. Togarinn hélt síðan strax út aftur og var stagið lag- fært á útleiðinni,” sagði Ólafur. - JH „Bezt að bíða sjóprófanna” — segir Þórhallur Helgason hjá Hraðf rystistööinni, sem gerir Viðey út „Ég veit ekki hvað skeði, það verða haldin sjópróf þegar skipið kemur inn,” sagði Þórhallur Helga- son hjá Hraðfrystistöðinni í Reykja- vík hf., en hún gerir skuttogarann Viðey út. „Slíkur búnaður er á fjölda skipa og þetta stag hafði verið um borð í skipinu í 18—19 mánuði. Ég hef ekki heyrt um það áður að slíkur búnaður hafi gefið sig. Ég veit því ekki annað en þetta hafi verið talið fullgilt, enda væru menn ekki með þennan búnað ef hann væri talinn hættulegur. Stykkið sem raunverulega gaf sig hefur ekki fundizt, þannig að lítið er hægt að segja. Það er því langbezt að bíða sjóprófanna,” sagði Þór- hallur. - JH „RÆÐUM EKKERT VIÐ BLAÐAMENN” — sagði Ari Jónsson hjá sjóvinnustofu Ingvars og Ara „Við ræðum ekkert við blaða- menn,” sagði Ari Jónsson hjá Sjó- vinnustofu Ingvars og Ara. Eins og fram kemur í viðtalinu við sjómann- inn sem slasaðist var búnaðurinn sem gaf sig fluttur til Ingvars og Ara þegar skipið kom í höfn. DB heim- sótti sjóvinnustofuna og fór fram á viðtal um atvikið og myndatöku af þeim búnaði sem gaf sig. Ari Jónsson þverneitaði hins vegar öllum við- ræðum og myndatökum. -JH Skuttogarinn Viðey RE-6. Skuttogar- inn er af stærri gerð pólskra skuttog- ara, en þó nokkrir slíkir voru keyptir hingað til lands. „Skipin eru skoðuð einu sinni á ári” — búnaðurinn yf irleitt ekki þolprófaður, en ákveðinn styrkíeiki hafðurá vírum, segir Sigurður Þórarins- son skipaskoðunarmaður „Skipin eru skoðuð einu sinni á ári,” sagði Sigurður Þórarinsson skipaskoðunarmaður hjá Siglinga- málastofnun ríkisins. „Síðan verða skipsmenn að halda búnaði við. Þótt við skoðum þennan búnað og hann sé í lagi við skoðun þá getur allt bilað,” sagði Sigurður. „Þá er ekki vitað hvaða álag hefur verið á þessu. Þetta eru gífurleg átök þegar verið er að hífa pokann inn. Slíkur búnaður er yfirleitt ekki þol- prófaður en ákveðinn styrkleiki er hafður á vírum. Skoðanir eru ekki aðrar en þær árlegu, nema sérstak- lega sé beðið um þær,” sagði Sigurður. -JH

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.