Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 8

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1980. I Eríent Erlent Erlent Erlent I Tvö Arabaríki komin í hár saman: Styrjöld Sýríands og Jórdaníu vofirnúyfir — Herlið beggja þjóðanna í viðbragðsstöðu við landamærin Hersveitir Sýrlands og Jórdaníu Ítanda nú auglitis til auglitis á landa- riærum þjóðanna og virðast bíða nerkis um að gera árás. Saudi- Arabía gerir nú tilraun til að draga úr þeirri spennu sem komin er upp á milli þjóðanna og virðist svo alvarleg að líklegast er talið að til styrjaldar komi. Vitni segja, að herlið beggja þjóð- anna komi sér nú upp skotgröfum og annars konar virkjum og Jórdaníu- menn hafa kallað út 30 þúsund manna varalið og sent til landamær- anna. Ágreiningur þjóðanna hefur mjög magnazt að undanförnu vegna mis- munandi afstöðu til styrjaldarinnar við Persaflóa og ekki dró úr honum þegar Sýrland beitti sér fyrir því að nokkrar Arabaþjóðir sniðgengu fund Arabarikja í Ámann í Jórdaníu í síðustu viku. Sýrlenzka útvarpið hefur einkum tengt ósætti þjóðanna þeirri fullyrð- ingu að Jórdanía hafi skotið skjóls- húsi yfir Bræðralag múslima sem er leynilegur félagsskapur, talinn bera ábyrgð á ofbeldisverkum gegn ríkis- stjórn Sýrlands. Hið opinbera dagblað í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, hótaði í gær hernaðaríhlutun í Jórdaníu: ,,Svar Sýrlands verður öflugt og ákveðið gegn þeim sem hilma yfir samsæris- mönnum. . . Þessum mönnum skal verða eytt.” Hussein konungur hefur neitað þessum ásökunum og segir að Jódaníumenn muni verjast, verði á þá ráðizt. Háttsettur fulltrúi sovézku ríkisstjórnarinnar átti að koma til Damaskus í dag til að staðfesta vin- áttusamning við Sýrland sem hefur meðal annars að geyma gagnkvæman varnarsamning. í síðustu viku barst sú yfirlýsing frá Bandaríkjastjórn, að hún liti á Jórdaníu sem vin og öryggi þjóðarinnar væri Bandaríkjunum þýðingarmikið. Khalid konungur Saudi-Arabiu sendi í gær bréf til Hafez Al-Assad forseta Sýrlands og er talið, að þar reyni hann að koma i veg fyrir styrjöld Sýrlands og Jórdaníu. Hussein konungur Jódaniu. I Erf iðleikar hjá Ronald Reagan: efni skorast undan William Simon, sem gegndi embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn Gerald Ford, hefur hafnað boði Ronalds Reagan um sæti í ríkisstjórn hans þar sem honum bauðst að gegna sama embætti og í stjórn Fords. William Simon bættist þar með í vaxandi hóp manna sem sagðir eru hafa hafnað boði um aðild að ríkisstjórn Ronalds Reagan. Anne Armstrong, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í London, sem þótti koma mjög til álita sem við- skiptaráðherra sagði í síðustu viku, að hún vildi helga sig einkalífi sínu. Einnig er því haldið fram að George Shultz, sem hefur þótt mjög líklegt utanríkis- ráðherraefni, sé kominn á fremsta hlunn með að lýsa því yfir að hann muni ekki taka sæti í ríkisstjórn. Breytingar í röðum forystumanna Búizt er við að tilkynnt verði um breytingar í röðum forystumanna kommúnistaflokks Póllands alveg á næstunni. Það væri í fimmta skiptið á þessu ári sem slíkar breytingar eru gerðar vegna deilnanna við hin öflugu og sjálfstæðu verkalýðsfélög í landinu. Miðstjórn flokksins kemur saman til fundar í dag. Baptisti send- urágeð- veikrahæli Vladimir Khailo, baptisti sem und- anfarin sex ár hefur reynt að fá leyfi til að flytjast frá Sovétríkjunum, hefur nú verið sendur á geðveikrahæli og hans bíða nú réttarhöld. Maria Khalio sagði í símtali frá Krasny Luch í Úkrainu, að hinn 48 ára gamli maður hennar hefði verið sendur á geðveikrahæli 22. september síðastliðinn og ætti hann að koma fyrir rétt í dag. Hún kvaðst ekki vita hvað honum væri gefið að sök. Vladimir Khailo á bróður sem er búsettur i Bandaríkjunum og hafði hugsað sér að flytjast til hans. Þrjátíu saka- menn blindaðir Lögreglan í ríkinu Bihar á N- Indlandi blindaði nýverið 31 meintan sakamann, að því er forsætisráðherr- ann Jagannath Mishra sagði um helgina. Mishra sagði fréttamönnum í Patna, höfuðborg Bihar, að fimmtán lög- reglumenn hefðu verið handteknir og sakaðir um „vanrækslu”. Fréttamenn segja að lögreglumennirnir hafi plokkað augun úr föngunum með skrúfjárni og síðan hellt sýru í sárið. Forsætisráðherrann neitaði fullyrðing- um um að 87 fangar hefðu verið blind- aðir. Stjórnarand- stæðingar sendir úr landi Jean-Claude Duvalier, forseti Haiti, hefur sent sendimenn sína til Argentínu, Brasilíu og fleiri landa og óskar eftir að þessi lönd taki á móti fimmtíu stjórnarandstæðingum, sem hann lét handtaka um helgina. Hinir handteknu eru einkum stjórn- málamenn, baráttumenn fyrir auknum mannréttindum og blaðamenn. Kirkjuturninn i Baivano stendur enn uppi en kirkjan hrundi til grunna og undir rústunum grófust um hundrað manns. Aðeins presturinn komst lifs af. Gömul kona i hjólastól fyrir framan heimili sitt i San Angelo di Lombardi. Gamla konan er i hópi um þrjú hundruð þúsund Ítaia sem misstu heimili sfn I jarðskjálftunum. Aframhaldandi hörmungar á jarðskjálftasvæðunum — snjór, kuldi, rok og nýir jarðskjálftar gera hörmungar hinna heimilislausu á S-Ítalíu að hreinustu martröð Þúsundir þeirra sem lifðu af jarð- skjálftana miklu á Suður-ltalíu fyrir viku streymdu í gær í skelfingu frá hrundum heimabæjum sínum. Fólkið var í mörgum tilfellum viti sínu fjær af skelfingu er nýrra jarð- skjálfta varð vart og snjór og slag- viðri gerði lif þess að hreinustu martröð. Brottför hinna heimilislausu hófst í gær eftir að opinberir aðilar höfðu lagt hald á fjölmörg hótel á strönd Suður-Ítalíu í þeim tilgangi að koma hinum heimilislausu þar fyrir. Flótta- fólkið hafði í flestum tilfellum lítið með sér og kvaddi heimaþorp sin með tárin í augunum, greinilega stað- ráðið í að snúa aftur þrátt fyrir það sem á undan er gengið. Meira en 300 þúsund manns í 126 borgum og bæjum á S-Ítalíu urðu heimilislaus í skjálftunum. Ennþá eru nefndar mjög mismunandi háar tölur yfir hina látnu. Opinberir aðilar segja að 2915 lík séu fundin, 1547 sé saknað og 7069 séu særðir. Aðeins 112 manns hafa verið grafnir lifandi úr rústunum. Óttazt er að þessar tölur eigi eftir að hækka mikið. Arnaldo Forlani forsætisráðherra, sem horfizt í augu við vaxandi reiði yfir því hversu hjálparstarfið hefur gengið illa, sagði í blaðaviðtali um helgina: ,,Viku eftir jarðskjálftann er sú hryllilega mynd sem við höfum fyrir augum ekki spegilmynd ófar- anna, fjölda fórnarlamba eða þjáninga fólksins.” Gaf Forlani í skyn, að ástandið kynni enn að versna. í Santa Angelo Dei Lombari, sem varð einna verst úti allra staða í jarð- skjálftanum, sögðu björgunarmenn að þeir væru enn að grafa eftir 160 manns, sem grafizt hefðu undir diskóteki er hrundi í skjálftanum. Giuseppe Zamberletti, stjómandi hjálparstarfsins, hefur sagt, að vegna hættu á að farsóttir brjótist út geti reynzt nauðsynlegt að setja mörg þorpanna sem hrunið hafa í sóttkví. Hungraðar geitur, kindur og kýr hafa vegna snjóanna leitað í rústir þorp- anna og þannig aukið á hættuna á sjúkdómum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.