Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 14

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 14
Iþróttir Iþróttir DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR I. DESEMBER 1980. Iþróttir Iþróttir Crijuff ráð- LétthjáKA gegn Þór — f 2. deildinni íhandknattleiknum KA hélt efsta sætinu i 2. deild i hand- knattleiknum á föstudag, þegar liðið vann auðveldan sigur á Þór á Akureyri. Lokatölur 23-16 fyrír KA. KA náði strax góðum tökum á leiknum og það var einkum góður leikur Gunnars Gíslasonar — bróður landsliðskappans Alfreðs hjá KR — sem lagði grunn að sigri KA. Hann skoraði 12 mörk i leiknum, þar af þrjú úr vitaköstum. KA hafði fimm mörk yfir i hálfleik, 12-7, og í siðari hálfleiknum jók KA muninn i sjö mörk. Liðið stendur vel að vigi i keppninni í 2. deild. Hefur aðeins tapað einum leik af fimm. Efst með átta stig. Eins og áður segir var Gunnar markahæstur hjá KA með 12/3 mörk. Fríðjón Jónsson skoraði 4/1 og landsliðsmaðurinn úr Viking hér áður fyrr, Eriendur Hermannsson, skoraði þrjú mörk. Hjá Þór — Akur- eyrar-Þór — var Sigurður Sigurðsson markahæstur með 5 mörk. Benedikt Guðmundsson og Sigtryggur Guð- laugsson skoruðu 3 mörk hvor. -GSV „Þetta verður væntanlega siðasti veturinn minn. Ég ætlaði að hætta síðastliðið vor en ákvað að verða með áfram fyrst Bogdan gat verið með okkur einn vetur ennþá. Hann er frá- bær þjálfari, sá Iangbezti sem ég hef kynnzt. Ég hef kunnað mjög vel við mig hjá Víkingi en nú er kominn tími til að breyta til, það hefur svo margt setið á hakanum vegna handboltans.” sagði Árni að lokum. hkuv gjaf i Ajax — og Wim Janssen leikurmeðliðinu. Urslit íHollandi AZ '67 frá Alkmaar heldur áfram sigurgöngu sinni i hollenzku úrvals- deildinni. í gær vann liðið sigur á Utrecht á heimavelli, 2-1. Þrettándi sigur liðsins I haust og það hefur enn fimm stiga forustu á Feyenoord, sem er í öðru sæti. Úrslit I öðrum leikjum urðu þessi: PSV — NACBreda 3-0 Excelsior — Wageningen 1-2 Gröningen — RODA 3-2 Den Haag — Deventer 1-0 PEC Zwolle — Tllburg 3-0 NEC Nijmegen — Feyenoord 2-4 Ajax — Twente Enschede 5-3 Sparta — Maastricht 0-2 Ajax, Amsterdam, náði sér loks á strik. Félagið hefur ráðið Johan Crijuff sem „tæknilegan” ráðnnaut með þjálf- ara liðsins Leo Beenhakker næstu þrjá mánuði. í marz heldur hann hins vegar aftur til Washington Diplomats. Wim Janssen, sem einnig leikur með Diplo- mats, áður Feyenoord, mun hins vegar leika með Ajax til loka þessa leiktima- bils. Stáðan I Hollandi eftir leikina i gær hjá efstu liðunum er þannig: AZ ’67 14 13 1 0 48-13 27 Feyenoord 14 10 2 2 32-14 22 PSV 14 7 3 4 28-16 17 Twente 14 7 3 4 27-20 17 Maastricht 14 7 3 4 24-23 17 V/KLV Árni Indriðason — leikmaður Vikings og kennari við MR og Háskóla tslands. Ath. blöðin eru keyrð heim og uppgjör sótt í næstu viku. Minnum á að bíóið er í BORGARBIÖ. SÍMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA muN iwuf Islandsmeistarar Vikings, sem á miðvikudag leika við Ungverjalandsmeistara Tatabanya. Víkingar hafa harma að hefna gegn Tatabanya! — Fyrri leikur Víkings og ungverska meistaraliðsins Tatabanya í Evrópubikarnum íhandknattleik, keppni meistaraliða, í Laugardalshöll á miðvikudag Ungverjar hafa alltaf verið okkur ís- lcndingum erfiðir. Ég tel að við eigum möguleika hér heima i leiknum við ung- verska meistaraliðið Tatabanya en úti- leikurinn gegn liðinu verður erfiður,” sagði Árni Indriðason, leikmaðurinn kunni hjá íslandsmeisturum Vikings i handknattleiknum og fyrrum fyrírliði islenzka landsliðsins, þegar rætt var við hann um fyrrl leik Vikings og Tata- banya i Evrópubikarnum, keppni meistaraliða, sem verður i Laugardals- höll á miðvikudag. Leikurínn hefst kl. 20.00. Þetta verður sjöundi leikur Vik- ings i Evrópukeppni og mótherjarnir þrautreyndir. f liði Tatabanya eru fjórir leikmenn, sem léku i bronsliði Úngverjalands á ólympiuleikunum i Moskvu sl. sumar og tveir leikmenn, sem voru valdir i „heimslið” gegn Gummersbach á dögunum. Haustið 1978 áttu Víkingur og Tata- banya að leika í þriðju umferð Evrópu- keppni bikarhafa eftir að Víkingur hafði slegið út sænska liðið Ystad i 2. umferð. Sigrað Svíana í báöum leikjun- um, en Víkingar voru dæmdir úr leik i keppninni á hæpnum forsendum, sem flestum er eflaust í fersku minni. En lítum á hvað Árni Indriðason hefur frekar að segja um ungverska hand- knattleiksmenn og frammistöðu Vík- ings i vetur. ,,Ég hef verið með í tveimur lands- leikjum gegn Ungverjum. í öðrum leiknum varð jafntefli en hinum töpuð- um við með miklum mun í B-keppninni á Spáni, 12 marka mun að því er mig minnir. Ég þekki ekki mikið til Ung- verjanna, þeir áttu 5 landsliðsmenn þegar við áttum að spila við þá um árið og tveir leikmanna liðsins voru nýlega valdir I heimsliðið. Það segir mikið um styrkleika liðsins. Ég reikna með því að Tatabanya leiki dæmigerðan ung- verskan handbolta, sem byggist á gegnumbrotum og hraðaupphlaupum.’ — Þegar þið Vikingarnir leikið við Tatábanya eruð þið I efsta sæti íslands- mótsins. Kemur það þér á óvart? „Já ég get ekki neitað því. Við misstum marga góða leikmenn áður en keppnistímabilið hófst og ég bjóst við því að Víkingur myndi hafna í 3—5. sæti. Ég taldi að hin liðin yrðu mun sterkari en komið hefur á daginn. En aðeins Þróttarar virðast ætla að spjara sig og þeir hafa verið sterkari en ég átti von á. Staða okkar Vikinganna er góð og auðvitað stefnum við að sigri í mótinu.” — Hvað hyggst þú iðka hand- knattleik lengi enn? BUÐSOUIBORN - REYKJAViK Blaðsölubörn óskast til að selja Vikuna í eftirtöldum hverfum í Reykjavík: Hltöar, Fossvogur, Kleppsholt, Heimar, Vogar, Skjólin, Hagar. Seljahverfi og Hólar.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.