Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 29

Dagblaðið - 01.12.1980, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1980. 29 slóttunni eftir Lauru Ingalls Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá sér barna- og unglingabókina Húsið á slétt- unni, en höfundur er Laura lngalls Wilder. Samnefndar kvikmyndir sem sýndar eru i íslenska sjónvarpinu eru byggðar á þessum bókum. Þetta er önnur bókin í bókaflokknum „Láru- bækurnar”, en í fyrrahaust gaf Setberg út fyrstu bókina, Húsið í Stóru-Skógum, sem strax hlaut frábærar viðtökur hér á landi. „Láru-bækurnar” má hiklaust flokka undir sigildar barnabókmenntir, enda hafa þær verið þýddar á fjölmörg tungumál og verið endurútgefnar hvað eftir annað. Bókin er 240 blaðsíður I þýðingu Her- borgar Friðjónsdóttur, en Ijóðin í bók- inni þýddi Böðvar Guðmundsson. Þá ber þess að geta að bókin er prýdd 90 undurfögrum teikningum eftir ameríska listamanninn Garth Williams. Manntal á íslandi 1801 Norður og Austuramt Ættfræðifélagið hefur gefið bók þessa út með aðstoð Þjóðskjalasafns og styrk úr ríkissjóði og Þjóðhátíðarsjóði. Þetta er 3. og síðasta bindi af Mann- talinu frá 1801, en fyrsta bindið (Suður- amt) kom út 1978. Þetta bindi nær yfir svæðið frá Hrútafjarðará að Lónsheiði, en þar bjuggu þá 16.128 menn, og eru þeir allir greindir með nafni og aldri og stöðu á heimili og getið um hvort þeir séu ógiftir eða í l. eða 2. hjónabandi eða ekkjur eða ekkjumenn eftir l. eða 2. hjónaband. Getið er nákvæmlega um bjargræðisveg manna. Manntalið veitir að sjálfsögðu mikil- vægar upplýsingar er að gagni mega koma við ættfræðirannsóknir, en líka er þar að finna margvíslegar hag- sögulegar upplýsingar, allt eftir því hvers menn vilja leita. Það veitir meðal annars merka fræðslu um nöfn íslend- inga í heild og I einstökum sveitum á þessum tíma. Manntalið sjálft er 472 blaðsíður. Auk þess eru i bindinu eins og I fyrri bindunum stuttur orðalisti og bréf kon- ungs og fyrirmæli um framkvæmd manntalsins og enn fremur greinargerð fyrir útgáfunni og sýnishorn af frumrit- inu, mynd af síðu úr manntalinu úr Grenjaðarstaðasókn, rithöfund séra Tómasar Skúlasonar. Júníus Kristinsson skjalavörður bjó öll bindin til prentunar, en hann og Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður hafa annazt lestur prófarka. Prentsmiðjan Hólar hefur prentað bókina og bundið. Bókin kostar 25.000 kr. til félags- manna, en búðarverð er töluvert hærra. Fyrri bindin eru fáanleg enn og kostar hvort þeirra 16.500 kr. til félagsmanna. Æviþættir Aust- firðings eftir Eirík Sigurðsson Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði. hefur gefið út bókina Æviþættir Austfirð- ings eftir Eirík Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóra á Akureyri. Fáir hafa skrifað meira um Austurland, Austfirðinga og austfirzk málefni en einmitt hann. Hjá Skuggskjá hafa áður komið út eftir Eirik bækurnar Af Héraði og úr Fjörðum, Af Sjónarhrauni og Með oddi og egg, ævi- minningar Ríkarðs Jónssonar, mynd- höggvara. Æviþættir Austfirðings er ekki ævi- saga i venjulegri merkingu þess orðs. fremur minningaþættir þar sem stiklað er á veigamestu atburðum lífs hans, allt frá bernskuárunum I Hamarsfirði og á Djúpavogi til fjölþættra starfa hans á Akureyri sem skólamanns, bindindis- frömuðar og afkastamikils rithöfundar. Hann segir hér frá fjölda manna, sem hann hefur kynnzt og átt skipti við á langri lífsleið, mönnum, sem margir höfðu sterk áhrif á lifsviðhorf hans og lífsstefnu. Æviþættir Austfirðings var sett í Acta hf„ filmuvinnu og prentun annaðist Prenttækni og bókin var bundin í Bók- felli hf. Kápu gerði Auglýsingastofa Lárusar Blöndal. HEYGÐD MIYT HDARTA vm _ UNDAD HNÉ SAGA AMERÍSKA VESTURSINS FHA SJÓNARHÓU INDfÁNA Heygðu mitt hjarta við undað hné er titill bókar sem nýlega er komin út hjá Máli og menningu. Þetta er saga ameríska vestursins frá sjónarhóli indiána, og er höfundur hennar Dee Brown, þekktur sagnfræðingur. Bók hans „Bury My Heart at Wounded Knee” kom fyrst út árið 1970 og hafa fáar bækur sem komist hafa á metsölu- lista I Bandaríkjunum þótt sæta þvílík- um tíðindum og hún og sló bókin öll fyrri sölumet. Hér var gerbylt viðtekn- um hugmyndum um margrómað tíma- bil i bandariskri sögu, sjálft landnám ríkisins. I formála sínum að bókinni segir höfundurinn m.a.: „ .. . Þótt þeir indíánar sem lifðu þessi ragnarök menn- ingar sinnar séu horfnir af jörðinni hafa orð þeirra varðveist milljónum saman i opinberum skjölum. Skýrslur um margar þýðingarmestu ráðstefnurnar voru gefnar út af hinu opinbera. Ég hef reynt að setja saman frásögn um landvinninga í ameriska vestrinu eftir þessum hálfgleymdu heimildum munnlegrar sögu, frásögn þolend- anna... Þetta er ekki upplífgandi lesn- ing, en staðreyndir sögunnar hafa til- hneigingu til að þröngva sér upp á nútíð- ina og máski öðlast einhverjir lesend- anna betri þekkkingu á hinum ameríska indíána eins og hann er í dag ef jjeir kynnast fortíð hans... Lesandinn gæti líka lært ýmislegt um tengsl sin við jörð- ina af þjóð sannra náttúruverndar- manna. Bókin er prýdd fjölda Ijós- mynda af helstu indíánaforingjum sem koma við sögu og henni fylgja rækileg kort og nafnaskrá. Heygðu mitt hjarta við undað hné er þýdd afJóniRafnssyni.Bókin er 4:3bls. prentuð i Prentsmiðjunni Odda. Umhverfis jörö- ina á 80 dögum — eftir Jules Veme Bókaútgáfan örn og Örlygur hf. hefur nú sent frá sér bókina: Umhverfis jörð- ina á 80 dögum. Er hér um að ræða teiknimyndasögu byggða á hinni heimskunnu sögu Jules Verne. Sú saga hefur notiö mikilla vinsælda allt frá því að hún kom út, en upphaflega birtist sagan sem framhaldssaga í franska blaðinu Le Temps, og fylgdist fólk með ferðlagi , og ævinýrum þeirra Fíleas Fogg og þjóns hans Passepartout, sem um raunveruleika væri að ræða. Teikningar bókarinnar eru eftir Ramon de la Fuente, og þykja þær listi- lega gerðar og á margan hátt öðru vísi en gerist og gengur með teikningar í slik- um teiknimyndabókum. íslensku þýðingu bókarinnar annaðist Sonja Diego, en teiknun texta gerði Pétur Rögnvaldsson. Bókin Umhverfis jörðina á 80 dögum er filmuunnin I Prentstofu G. Benediktssonar, en prentuð og bundin hjá AFHA International á Spáni. Gleym mér ei eftir Danielle Steel Setberg hefur gefið út skáldsöguna Gleym mér ei eftir amerísku skáldkon- una Danielle Steel, en hún hefur getið sér gott orð sem höfundur ástar- sagna. I heimalandi hennar, Bandaríkj- unum, seljast sögur hennar i miklum mæli og hafa bækur hennar verið þýddar á mörg tungumál. í Gleym mér ei lítur Díana, aðalper- sóna bókarinnar, um öxl eftir 18 ára hjónaband. Hana hafði dreynit um frama á listabrautinni. En eftir að hún hitti Marc hélt hún sig öðlast þá ást og öryggi sem hún saknaði svo sárt eflir föðurmissinn — og óskaði þess eins að ala honum son. En óvæntir atburðir leiddu til þess að Díana stóð frammi fyrir örlagariku uppgjöri. Bókin er 190 blaðsíður. Þýöandi Arngrímur Thor- lacius. Gleym mér ei er fyrsta skáld- sagan eftir Danielie Steel sem kemur úi á íslensku, og fleiri munu fylgja á eftir. 300 DRVKKIR Kokkteilar, langir drykkir, toddý.bollur óáfengir... 300 drykkir Setberg hefur sent frá sér handbókina 300 DRYKKIR. Þar er að finna kokkt- eila, langa drykki, toddí, bollur og óáfenga drykki, ásamt fjölda íslenskra verðlaunadrykkja. Sem sagt drykkir við öll tækifæri. Þessi bók er tilvalin hjálpar- hella fyrir heimabarþjóninn. Allar tegundir drykkja er hægt að laga með lit- illi fyrirhöfn: stutta og langa, sterka, létta og óáfenga, kalda og heita, sigilda og draumórafulla. Auk uppskriftanna 300 eru í bókinni litmyndir og teikningar. Simon Sigurjónsson barþjónn í Nausti annaðist útgáfu bókarinnar. Gvlfi Grondal eftlr Gylfa Gröndal Setberg hefur sent frá sér bókina 99 ár eftir Gylfa Gröndal. Hér segir Jóhanna Egilsdóttir ævisögu sína, sem spannar nærri heila öld. Þessi óvenjulega bók er hvort tveggja i senn: persónusaga vinnu- manns og vinnukonu, sem komu fót- gangandi til Reykjavíkur árið 1903 og byrjuðu að búa með tvær hendur tóniar, og sagan af fyrstu baráttuárum verka- lýðsins, þegar fátæk alþýða reis upp og krafðist bættra lifskjara. 1 bókinni er jafnframt lýst mörgum þjóðkunnum mönnum og konum: Jóni Baldvinssyni. Ólafi Friðrikssyrii, Haraldi Guðmunds- syni, Ólfi Thors, Héðni Valdimarssyni. Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, Jónínu Jóna- tansdóttur, Jóni Ólafssyni bankastjóra. Jóni Axel Péturssyni, Vilhjálmi S. Vil- hjálmssyniogfleirum. Jóhanna Egilsdóttir er ennþá kvik í hreyfingum og hnyttin í tilsvöruni, enda þótt hún hafi lifað nærri heila öld. Jóhanna Egilsdóttir verður 99 ára þriðjudaginn 25. nóvember næstkom- andi. Bókin 99 ár er 185 blaðsíður auk fjölda mynda. asamt fjölda annarra muna úr steinleir. HÖFÐABAKKA 9. SIMI 85411r Það er ekki hægt aö hugsa sér neitt skemmtilegra, en að dekka hátíða- borðið, með stellinu frá Glit, því það gefur ótal möguleika með liti og skreytingar. úrva| aukah|uta. Greiðslukjör Meö síldinni og hákarlinum. Jóla- hald 1980 Margar geröir hangipotta og boröblómapotta Studio og steinieir

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.