Dagblaðið - 01.12.1980, Blaðsíða 32
Stjórnarandstæðingar lögðu stjómarsinna íglímu um afstöðu til ríkisstjómar
innar á f lokksráðs- og formannaráðstef nu sjálf stæðismanna:
„STEFNAN HEFUR
BEDIÐ SKIPBROF
—fordæmt að „leiða kommúnista til æðstu valda á íslandi”
Flokksráðs- og formannaráðstefna
sjálfstæðismanna um helgina
„itrekar andstöðu við núverandi
ríkisstjórn og stefnu hennar, sem
brýtur í veigamiklum éfnum í bága
við yfirlýsta stefnu flokksins. Við
myndun ríkisstjórnarinnar var stefnu
Sjálfstæðisflokksins hafnað en
úrræði vinstri flokkanna í þeim
efnum valin. Þessi stefna ríkis-
stjórnarinnar hefur beðið skipbrot.
Ráðstefnan gagnrýnir harðlega
þau vinnubrögð sem viðhöfð voru
við myndun ríkisstjórnarinnar þar
sem skipulagsreglur Sjálfstæðis-
flokksins voru brotnar. Þau hafa leitt
til ófarnaðar og sundrungar.
Ráðstefnan harmar hið tímabundna
ástand í innanflokksmálum Sjálf-
stæðisflokksins. Þjóðarheill krefst
þess að endi verði bundinn á þá
sundrungu.”
Atkvæði voru greidd um framan-
greindan kafla úr ályktun fundarins
sem lauk í gærkvöldi og voru 120
fundarmenn honum samþykkir en 40
á móti
Þá var önnur klausa úr ályktuninni
borin undir atkvæði og sömuleiðis
samþykkt með lOmótatkvæðum:
„Ráðstefnan fordæmir þá aðferð
að leiða kommúnista til æðstu valda
á íslandi með þeim hætti er raun ber
vitni.”
Stjórnarsinnar lögðu fram 5 breyt-
ingartillögur við ályktunina og voru
þær allar felldar.
Rétt til setu á flokksráðs- og for-
mannafundinum höfðu um 300
manns, en hann sóttu um 200.
Þess má geta að fyrr á árinu, 10.
febrúar, þegar greidd voru atkvæði
um stuðning viðafstöðu miðstjórnar
og þingflokks sjálfstæðismanna til
ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens
voru 103 fylgjandi en 29 andvígir
andstöðu við stjómina. 3 seðlar voru
auðir. -ARH.
„Loksins,
loksins”
— sagði sigurvegari
einstaklingsdans-
keppninnar 1980,.
Ævar Birgis Olsen
er lírslitin voru kynnt
„Loksins, loksins,” sagði Ævar
Birgis Ólsen sigurvegari í einstakl-
ingsdansi er úrslit voru kynnt í
Klúbbnum í gærkvöldi. Þetta er
þriðja árið sem Ævar tekur þátt í ein-
staklingsdanskeppni. Fyrsta árið
lenti hann í þriðja sæti, í fyrra háði
hann harða samkeppni við Steinar
Jónsson en varð að láta sér nægja
annað sætið. Það kom því ekki á
óvart að hann skyldi segja „loksins”.
í öðru sæti keppninnar var Ingrid
Jónsdóttir og í þriðja sæti Sigmar
Vilhelmsson. Undanúrslit hafa verið í
Klúbbnum á sunnudagskvöldum í
þessum mánuði. 11 voru valdir á
þeim kvöldum til að taka þátt í
úrslitakeppninni sem fram fór í gær-
kvöldi.
Sigurvegari keppninnar fær í verð-
laun þátttökurétt í heimsmeistara-
keppni í einstaklingsdansi E.M.l.
sem haldin verður í London 12. og
13. og 14. desember nk. Auk þess
uppihald í London í eina viku.
Dómnefnd sátu Heiðar Ástvalds-
son. Bára Magnúsdóttir, Sigvaldi
Þorgilsson, Björg Jónsdóttir og
Steinar Jónsson, sigurvegari i fyrra.
-ELA.
H
Æ var Birgis Oisen trúði ekki lengi vel
tíðindunum er þulurinn las upp nafn
sigurvegarans. Sipurður Grettir. einn
af keppendunum. fagnar hér sigri með
félaga sínum með því að bera hann. í
baksýn má sjá ungfrú Island. Elisabetu
Traustadáttir. sem var meðal gesta.
DB-mynd Gunnar Orn.
GRISK YF1RV0LD ST0DVUÐU
SALTHSKFARM VEGNA 0RMA
stjórnarmenn SÍF björguðu málinu með Grikklandsferð
„Þarna er um gamalkunnugt
vandamál fiskframleiðenda á
ferðinni, ormamál,” sagði Friðrik
Pálsson framkvæmdastjóri
Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðenda er BB spurðist fyrir um
ástæðu Grikklandsfarar nokkurra
stjórnarmanna SÍF nú nýverið.
„Heilbrigðisyfirvöld i Grikklandi
fóru að skipta sér af hringormum í
saltfiski, það voru engar kvartanir,
hvorki frá kaupendum, né
neytendum, heldur þurftum við
aðeins að aðstoða kaupendur við að
koma heilbrigðisyfirvöldum í
skilning um að hér væri ekki á nokk-
um hátt um skemmda vöru að
ræða.”
Friðrik Pálsson sagði að grisk
yfirvöld hefðu upp á síðkastið verið
að herða og setja nýjar reglur, aðal-
lega um merkingar og ytri umbúnað
matvæla. Taldi hann þetta
hugsanlega hluta af öldu sem gekk
yfir Efnahagsbandalagslöndin eftir
að sala var stöðvuð á kjöti sem
framleitt var með aðstoð hormóna-
lyfja.
Friðrik tók skýrt fram að ekkert
fjárhagslegt tjón hefði hiotizt af
þessu, þetta hefði aðeins verið
spuming um það hvort grísk yfirvöld
fengjust til að leyfa innflutninginn.
Það leyfi væri nú fengið.
„Hingað til hafa saltfisk-
framleiðendur sloppið tiltölulega vel
við það mikla vandamál sem hring-
ormar eru í fiski hér við land,” sagði
Friðrik aðlokum.
-KMU.
frjálst, nháð dagblað
MÁNUDAGUR 1. DES. 1980.
iísland meðal efstu
þjóðaáÓLá Möltu:
Karpov hefndi
sín á Friðrik
Eftir stórsigur yftr índverjum 3,5—
0,5 á ólympíuskákmótinu á Möltu var
íslenzka sveitin komin í 5. ræti og hafði
ennþá aðeins tapað einni viðureign,
gegn Búlgörum. í gær voru and-
stæðingarnir hins vegar ekki af lakara
taginu eða Sovétmenn, sem eru sem
kunnugt er margfaldir ólympíumeist-
arar. Fóru leikar enda svo að þeir unnu
yfirburðasigur á íslendingum. Heims-
meistarinn Karpov hefndi sín á Friðrik
Ólafssyni og sigraði á 1. borði, á 2.
borði er Helgi Ólafsson með tapaða
biðskák gegn Geller. Jón L. Árnason
hélt jöfnu á 3. boði gegn Balashov og á
4. borði tapaði Margeir Pétursson fyrir
skáksnillingnum unga, Kasparov, en
hann er yngsti stórmeistari heimsins,
sautján ára gamall. Þrátt fyrir tapið er
íslenzka sveitin í hópi efstu sveita á
mótinu. Baráttan um sigurinn virðist
ætla að standa á milli Sovétmanna og
Ungverja eins og á síðasta ólympiu-
móti. -GAJ.
Flokksráðs-og
formannaráðstefna
sjálfstæðismanna:
Sáttatillögu
vísað f rá
Fjórtán fulltrúar „frjálslyndari
armsins” á flokksráðs- og formanna-
ráðstefnu sjálfstæðismanna um helgina
báru upp sáttatillögu í deilum flokks-
manna. Tillögunni var vísað frá, það er
vísað til þingflokks og miðstjórnar.
í tillögunni sagði, að ráðstefnan
skyldi fela miðstjórn flokksins að
kjósa 3—5 manna nefnd, sem skyldi
leita „allra hugsanlegra leiða” til sátta
og samkomulags í flokknum.
• Formaður flokksins, Geir Hallgríms-
son, Iagðist gegn því að tillagan yrði
samþykkt á fundinum og beitti sér fyrir
frávísun sem var samþykkt. -HH.
■■ rm | ■ ■
höfuðhögg
Tollvörður sem var að koma úr
vinnu á Keflavíkurflugvelli slasaðist
mikið er varnarliðsbíll ók inn í hliðina á
Volkswagen bifreið er hann ók.
Áreksturinn var á gatnamótum
Norðurgötu á Keflavikurvelli. Volks-
wagen bifreiðin hentist út í skurð og er
bíllinn mjög mikið skemmdur. Toll-
vörðurinn mun hafa fengið slæmt
höfuðhögg og misst meðvitund. Hann
var fluttur á sjúkrahúsið f Keflavík. Að
sögn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli
mun tollvörðurinn hafa verið i fullum
rétti. -ELA.
LUKKUDAGAR:
30. NÓVEMBER 1342
Henson æfingagalli
1. DESEMBER 2360
SHARP vasatölva með klukku
og vekjara.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.