Dagblaðið - 18.12.1980, Page 13

Dagblaðið - 18.12.1980, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980. Kjallarinn Pjetur Lárusson Látum afstöðu valdsmanna liggja milli hluta. Þeir hafa hvort eð er aldrei verið annað en leiguþý erlendra drottnara, ýmist suður við Eyrarsund eða vestur í Ameríku. Ég geri ekki þá kröfu til músarinnar, að hún fari allt i einu að hegða sér eins og ljón. Til þess hefur hún enga burði. En ég hélt að gera mætti þá kröfu til alþýðu þessa lands, að hún stæði ekki slef- andi af undirlægjuhætti og aðdáun þegar höfðingjapakkið sýnir hroka sinn með því að níðast á varnarlaus- um manni. Því miður byggðist þessi trú min á ofmati á alþýðunni margrómuðu, þó vissulega séu til undantekningar, sem ég met þeim mun meira eftir því sem aumingjaskapur alls þorra fólks færistíaukana. Megi smán þeirra alþýðumanna, sem borið hafa heimsku sína á torg í Gervasonimálinu, lifa meðan land byggist, þó ekki væri til annars en að forða fólki með óbrenglaða réttlætis- kennd frá þeim hraksmánarlegu örlögum að snobba fyrir þessum skríl. Pjetur Hafstein Lárusson rithöfundur. SÁLNAVEIÐAR Ýmsum aðferðum er beitt til þess að hafa áhrif á fjöldann. Vafalítið feta gróðapungar og trúboðar vegi dyggðanna í þeim efnum og forðast innrætingu, áróður og auglýsingar. Sálnaveiðar nú á dögum hljóta að vera hollar svo fremi þær gefi eitt- hvað í aðra hönd. Öðru hverju heyrast þó hvellir i fjölmiðlum. Þá eru gjarnan læri- meistarar í fræðslukerfinu bornir þeim sökum að ástunda innrætingu í starfi, spilla æskunni lfkt og Sókrates forðum, og þar með misnota aðstöðu sina í þjóðfélaginu. Auðvitað eru það einungis vinstrimenn sem bregðast með slíkum hætti og fjölmiðlalætin magnast um stund í borgarapress- unni. Að sjálfsögðu er innræting vinstri- sinrians jafnvond og annarra, um það þarf ekki að deila, en það reynist bara ekki auðvelt að bera af sér dylgj- ur af þessu tagi, sem oft og einatt eru úr lausu lofti gripnar og æði fárán- legar á stundum. Svo einfaldir menn geta því haft það fyrir satt, að sænska mafían hafi hreiðrað um sig i daglégu brauði voru eða nú séu fiðlu- kassar sinfóniuhljómsveitarinnar mjög grunsamlegir á að líta líkt og í vesturheimskri gángstermynd. Óhróður Ósjaldan hefur íslenzka fræðslu- kerfið verið talið skálkaskjól fyrir vonda menn og þar með gróðrarstia fyrir vonda innrætingu (öll vitneskja um þjóðfélagið er óholl). Ólíklegustu embættismenn hafa verið vændir um að beita innrætingu vondri. Það vill gleymast, að almennt eru lærimeist- arar ekki svo vinsælir að þeim líðist að viðra persónuleg viðhorf á sama tíma og þeir þurfa að halda nemend- um vakandi. Hitt er svo vitað mál, að slík ákæra, sönn eða ósönn, er oft nægi- leg til þess að koma meintum innræt- ingarþrjótum í hina mestu bölvun. Hérna hafa ófáir orðið að gjalda skoðana sinna. í upplýstum þjóð- félögum eru menn virtir fyrir skoð- anir sínar. Hve mörg eru þess ekki dæmin síðustu áratugi að menn hafa verið hraktir úr starfi, einungis skoð- ana sinna vegna og hve litla vörn hefur stjórnarskráin ekki veitt í slíkum tilvikum? Hér á landi virðist það ekkert til- tökumál að væna menn sem starfa að fræðslumálum um innrætingu; kennslubókahöfundar, námsstjórar og lærimeistarar alls konar hafa orðið að ganga með slíka miða utan á sér, stimplaðir af sótthræddum og háalvarlegum ruglhausum borgara- pressunnar. Hollar sjónvarps- auglýsingar Annars er það dálítið skrýtið að velta fyrir sér fyrirbæri eins og inn- rætingu. Yfirleitt finnst fólki innræt- ing vera fordæmanleg, jafnvel glæp- samleg, þegar reynt er að heilaþvo óharðnaðar sálir. Það skrýtna er að á sama tíma og innrætingaraðferðir eru almennt for- dæmdar, þá er innrætingu beitt af æ meira þrótti í þjóðfélaginu — af þeim sem fjármagn hafa undir höndum. Og slík innræting þykir feiknaholl. Hvað eru sjónvarpsauglýsingar annað en innræting? Sjónvarpsaug- lýsingar drottna orðið svo yfir ungum sem öldnum að þær eru farnar að miðstýra helztu neyzluvenjum þjóðarinnar. Og vart gefur að líta kaupfúsari hjörðeníslendinga. Siðareglutómið Að líkindum hafa auglýsingastofur einhverjar siðareglur en þessi þaul- hugsaði vitundariðnaður er oft engu að síður á mörkum þess sem gott getur talizt. Margar sjónvarpsauglýsingar skír- skota beint til barna. Þær eru jafnvel hafðar á sama tíma og dagskrárefni fyrir börn. Eru börn allt í einu orðin svo tekju- há að geta veitt sér það glingur sem á boðstólum er? Auðvitað ekki. Hér er verið að stíla á buddu foreldra og gera börnin að organdi þrýstihópi. Og því kaupa ófáir sér frið að lokum. Það er einkar athyglisvert að kaup- sýslumönnum er aldrei borið það á brýn í borgarapressunni, að þeir stundi innrætingu og hnoði saman óhörðnuðum barnssálum og geri þær að kaupóðri neyzluhjörð. Hér hlýtur því að vera um mjög holla innræt- ingu að ræða. Auðvitað er þessi fræðslu- og menningarstarfsemi sem kaupsýslu- menn veita íslenzkum börnum á mjög háu plani. Það eru uppbyggjandi £ „Hvaö eru sjónvarpsauglýsingar annaö en innræting?” Kjallaisnn \ r Ami Larsson auglýsingar sem veita Nonna litla 5 ára nákvæmar upplýsingar um nýja plastvélbyssu með alvöru-eldtungum út úr hlaupinu. Af 3 metra færi getur Nonni litli þrusað á koppinn hans afa síns og gert hann að gatasigti á 3 sek- úndum. Allt í plati,- Sjónvarpsauglýsingarnar garga á unga sem gamla. Þær breyta tiltölu- lega friðsömu fólki í heimskulega neyzluhjörð. Sjónvarpsauglýsingar eru sennilega afkastamestu peningaplokkarar sem inn fyrir þröskuld komast. Þær heila- þvo ekki aðeins krakkana heldur allt einfalt og hrekklaust fólk sem fellur unnvörpum fyrir þessu táli. Já, tvisvar verður gamall maður barn, það sannast stundum. Um daginn komu tveir ellilífeyrisþegar inn í verzlun. Karlinn bað um hálft kíló af tannlími. Þú ert nú ennþá með þínar tennur, góði, sagði sú gamla. Það er alltaf gott að eiga það, svaraði karl. Já, sjónvarpsauglýsingar eru holl innræting. Sjónvarpsauglýsingar eru mennt- andi. Það hefur maður nú haldið. Árni Larsson rithöfundur. S. °8 d„... nié r&ði ■ yrnd um Siðan 'eð ]A* Se8ir. pouj**** i'ssp* zlbi 'ngi öðrum staö $íeA$s]Uer ?nd> hijsk°sttiaður/^*~~* iega: „Stjórn stofnunannliSrv..’.. 1ð eða *^gðu,- ráðherra æðsta vald í málefnum stofnunarinn<urfífcjty Af þessari tilvitnun má ráða, að ráðuneytið sem slíkt I geti takmörkuð áhrif haft á gang mála í stofnun, sem heyrir beint undir ráðherra eins og Póstur og sími. Ætla mætti, að hér væri verið að reyna að búa til nýtt ráðuneyti. Hvaða mál er þá svona mikilvægt, að skrifræðis- menn þurfi að stunda gsndreið í smíði frumvarpa? HlutvprÞ Jiinna fyrirhuguðu laga kemur fram í fyrstu grein þess. Það er ahnenn óskhyggja og huggulegar hugleiðingar. „Lögum þessum er ætlað að skapa grundvöll til þess að tryggja landsmönnum svo heilnæm lífsskilyrði, sem á hverjum tíma eru tök á að veita’ ’. Ennfremur: ‘ ýeð markvissum aðgerðum skal vinna að b<*"r - af, V- Síðan koma næstu grein 1 fjalli þar um nýmæli. Svo er ekki. Honum sést næstum alveg yfir ný- mælin en dregur fram atriöi, sem lengi hafa verið í lögum. Hvaða „bákn"? Ritstjórinn hefur grein sína á því að taka fyrir sérstaklega ákvæði frumvarpsins um kostnað, dagsektir, lögtak og lögveðsrétt og segir þar anda lögregluríkis svlfa yfir vötnum. Telur hann að hingað til hafi þótt nægja að fara venjulegar dómstóla- leiðir, þegar eftirlitsskyldir aðilar hafi neitað að greiða reikninga frá hinu opinbera fyrir unnið verk á kostnað aðilanna, t.d. vegna hreins- unar lóða. Allt það sem talið er upp hér er að finna í gildandi lögum um hollustuhætti, þ.e.a.s. í lögum nr. 12/1969 um hollustuhætti og heil- brigðiseftirlit. í fjölmörgum öðrum lögum er hinu opinbera heimilaður sami réttur til innheimtu ýmiskonar skulda og þarf ekki að nefna dæmi svo mörg eru þau. Varðandi lög nr. 12/1969 skal þess getið að lögveðs- rétturinn var lögfestur í ákveðnu til- viki með breytingu á lögunum 1978 og var það fyrir tilstuðlan Alberts Guðmundssonar alþingismanns, vegna þess að Reykjavíkurborg hafði gengið erfiðlega að innheimta gjöld vegna sorptunnuleigu. Það hefur sýnt sig að sveitarstjórnum hefur oft gengið erfiðlega að innheimta reikn- inga, sem sveitarfélögin hafa sjálf verið búin að greiða, t.d. vegna hreinsunar á lóðum. Er þá nokkur sanngirni í því að þeim sé nauðugur einn sá kostur að stefna í málinu með öllu því brambolti sem slíku fylgir og tíma? Ég fæ ekki séð að svo sé fyrst við á annað borð viðurkennum íög- veðsréttinn og um hann gilda ákveðin lög. Hitt er annað mál, hvort menn eigi nokkuð að vera að því að ástunda hollustuhætti, svo sem lóðahreins- anir. Læt ég ritstjórann um að fjalla um slíkt í annarri ritstjórnargrein. Ritstjórinn heldur áfram og gerir þvi skóna, að fyrirmæli hollustu- nefnda eigi að teljast jafnrétthá landslögum. Ef vera mætti að rit- stjórinn fengi réttan skilning á þessu, þ.e.a.s. þann skilning, sem lagður hefur verið í þessi ákvæði áratugum saman, vil ég leyfa mér að benda honum á að lesa allt frumvarpið eins og það var gefið út í fjölriti því, sem blaði hans var sent í júlí sl„ en þar koma fram ítarlegar athugasemdir og greinargerð. Það sem um er að ræða er, að heilbrigöisráðherra er fengið vald til þess að skera úr um ágreining sem rísa kann vegna afskipta annarra en hollustunefnda af sömu málefnum og hollustunefndum er ætlað aö fjalla um. Slíkur úrskurður kann að ganga hollustunefndum í óhag. Þessi heimild er einnig í gildandi lögum. Ritstjórinn ræðir um það að hollustunefndir, sem eiga að vera og eru í dag jafnmargar og sveitarfélög landsins, verði fyrirhugað bákn. Erfitt er að skilja hvert hann er að fara því þegar málsgreinin er botnuð er greinilega átt við stofnun þá, sem ætlað er að starfa samkvæmt frum- varpinu, þ.e.a.s. Hollustuvernd ríkisins. Þetta „bákn” er nú ekki meira en svo, að lagt er til að fjórar stofnanir verði sameinaðar í eina, þ.e.a.s. Heil- brigðiseftirlit ríkisins, Matvælarann- sóknir ríkisins, Geislavarnir ríkisins og tóbaksvarnir. Ennfremur að sett verði upp sérstök deild innan stofn- unarinnar, sem fjalli um mengunar- varnir. Lagt er til að þrjár deildir starfi innan stofnunarinnar í stað fjögurra stofnana í dag og að forstöðumenn verði þrír í stað fjög- urra í dag. Ritstjórinn heldur því fram að ætla mætti að ráðuneytið sem slíkt geti eingöngu haft takmörkuð áhrif á gang mála innan Hollustuverndar ríkisins, þar sem hún sé sett undir sér- staka stjórn. Skýrt er tekið fram, að ráðherra • fari með yfirstjórn stofnunarinnar. Hins vegar mun ráð- herra ekki hafa afskipti af daglegri stjórn stofnunarinnar né innri málum. Margar stofnanir heyra undir svipaðar stjórnir og hér er nefnd og dæmið um Póst og síma hittir ekki í mark, þar sem þar er um að ræða frábmgðna stjóm. Ritstjórinn heldur áfram að ræða um báknið og telur að eina áþreifan- lega í frumvarpinu sé það að það fjalli um smíði stórfenglegs bákns, ótal hollustunefnda, hollustusvæðis- nefnda, nokkurra forstöðumanna hollustueftirlits eða Hollustuverndar ríkisins. Hins vegar fjalli frumvarpið ekki um hollustuna sjálfa. Frumvarp sem þetta hlýtur fyrst og fremst að fjalla um framkvæmd hollustueftirlitsins, sem er veigamik- ill þáttur hollustuhátta. Þannig hefur þetta verið að verulegu leyti frá önd- verðu. Ýmislegt annað kemur fram í grein ritstjórans og sætir furðu hversu mik- illi vitleysu er hægt að hnoða saman í ekki lengri grein. Einnig skal þess getið að þegar frumvarpið var tilbúið í fjölriti var send út fréttatilkynning, m.a. til rit- stjórans, þar sem fólk var hvatt til að kynna sér efni þess. Að því mér er sagt birtist þessi fréttatilkynning ekki í málgagni ritstjórans. Hefur því rit- stjórinn lítið gert í þessu máli annað en að stunda niöurrif og allt að því illkvittni í garð þeirra, sem eftir bestu samvisku reyndu að búa frumvarpið sem best úr garði miðað við fengna reynslu af þessum málum á undan- förnum ámm. Þökk sé ritstjóranum. Að lokum ráðlegg ég ritstjóranum að leggja niður lágtimbraða útúr- snúninga eins og þá sem hann sýndi á síðasta fullveldisdegi þjóðarinnar. Ingtmar Sigurflsson, lögfræðingur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.