Dagblaðið - 18.12.1980, Page 22
22
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980.
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSON
Björgvin Halldórsson syngur um Ný jól:
Höföum ekki tíma
til að taka
upp stóra plötu
Tólfára barn-
aöifimmtuga
Margt er sér til gamans gert og ekki
alltaf spurt um aldur. Á jólaföstu
árið 1980 les maður þvílíka furðu-
frétt:
„Fimmtug kona vestur í Breiða-
firði 61 barn, og er það sögulegast, að
hún kenndi það förupilti, tólf ára
gömlum, er gekk um og beiddist ölm-
usu.”
Sem sagt gott. Þessi ástarsaga er
orðin nokkuð gömul, gerðist árið
1530, og birtist í nýútkominni Öld-
inni sextándu. Nú á frjálslyndistím-
um þættu þetta tæpast tíðindi, öllu
heldur sjálfsögð sjálfsbjargarvið-
leitni. Og virðingarverð brúun kyn-
slóðabilsins.
Kirkjunnar menn voru ekki barn-
anna beztir í þessum efnum eins og
klausa úr sömu bók ber með sér:
„Systursonur ögmundar Pálssonar
biskups, Þorsteinn Þórðarson frá
Hvoli, hefur orðið uppvís að legorði
með systursinni.
Hann leitaði á náðir Jóns Hóla-
biskups, er skotið hefur yfir hann
skjólshúsi.”
Nafnbirtingar þeirra er gerðust
brotlegir við lögin hafa greinilega
ekki verið vandamál þeirra er fengust
við fréttaskrifin í gamla daga!
DáleiðirLax-
ness okkur
umjólin?
Ólafur M. Jóhannesson er firna-
merkilegur gagnrýnandi kvikmynda
og skrifar í Moggann. Hann var einn
þeirra er sá forsýningu á því ágæta
Laxnessverki í kvikmyndaformi,
Paradísarheimt, á dögunum. Og sú
sýning hlýtur að vera meira en lítið
mögnuð, því Óiafur M. segir i dómi
sínum:
„Efast undirritaður um að hann
hafi komizt eins nálægt miðilsástandi
og þegar líða tók á myndina. Fannst
honum persónurnar líkt og svífa út úr
bókinni og lenda dúnmjúkt á hvítu
tjaldinu eins og þær væru framliðnar
eðaástuðpúðum.”
Ljótt er ef það á fyrir okkar ágæta
nóbelsskáldi að liggja að dáleiða
þjóðina upp úr skónum þegar við
óbreyttir áhorfendur fáum að líta á
dýrðina um jólin.
Og um leikendurna í Paradísar-
heimt lesum við meðal annars í sömu
grein:
„Anna Björns kom á óvart sem
dóttir Borgyar. Frískleg enda auglýsir
hún sjampó í Ameríku. Arnhildur
Jónsdóttir, sem kona Steinars, vakti
athygli mína fyrir séríslenzkt höfuð-
lag. Svona eins og maður sá á göml-
um myndum. Gísli Alfreðsson var
sannfærandi fyllibytta . . .”
Þeir þenja dragspilin sín um land allt
Huröaskellir og dóttir hans
Jólasveinar eru á flakki um allar trissur þessa dagana, ýmist einir
sór eða nokkrir saman i hóp. Þeir eru áreiðanlega fáir sem taka dætur
sínar meó sór í vinnuna. Kristjana Helga, niu óra, fókk þó að fara með
Hurðaskelli föður sínum i jólagjafadreifinguna ó dögunum. — Undir
skegginu og búningnum er Hurðaskellir enginn annar en Þorgeir Ást-
valdsson útvarps- og sjónvarpsmaður.
„Ég hóf jólasveinaferil minn skitblankur á skólaárunum," sagði
Hurðaskellir/Þorgeir. „Við vorum tveir, Gísli Baldur Garðarsson lög-
fræðingur og óg, sem tróðum upp saman tH að hafa í okkur og á. Við
óttum báðir harmóníkur og höfðum þær að sjátfsögðu með. — fílú
orðið er óg að mestu hættur þessu nema að stöku sinnum kem óg
fram hjó heyrnardaufum og nokkrum öðrum, — og svo fer óg nóttúr-
lega ekki úr búningnum ó aðfangadag þegar óg heimsæki ættingjana.
Ætíi frumorsökin fyrir þessu jólasveinabröltí mínu só samt ekki
sú," sagði Hurðaskellir að lokum, „að innst inni er óg dólitíll jóla-
sveinn í mór. DB-mynd: Einar Óleson.
Útvarpsráðsmenn höfðu lúmskt
gaman af því að fyrir fund í útvarps-
ráði í liðinni viku voru áhrifamenn
frá dagblaðinu Vísi hringjandi í þá til
að mæla með ráðningu Sæmundar
Guðvinssonar blaðamanns á Visi í
fréttamannsstöðu hjá sjónvarpinu.
Ekki svo að skilja að Vísismenn vilji
endilega losna við Sæmund, heldur
telja þeir að ráðning hans hefði verið
ágæt meðmæli með fréttamennsku
VIsis!!
En allt kom fyrir ekki: Ólafur Sig-
urðsson fréttamaður hlaut 4 atkvæði
þegar kosið var um stöðuna en
Sæmundur 3. Betur má ef duga skal.
Björgvin Halldórsson
var meðal þeirra sem
skemmtu ó Jólakonsert
'80 ó dögunum. Þar
frumfluttí hann meðal
annars lagið Ný jól.
DB-mynd: Gunnar örn.
„Upphaflega ætluðum við að taka
upp stóra plötu en það er svo mikið
að gera hjá okkur í hljómsveitinni
Brimkló að við máttum hreinlega
ekki vera að því,” sagði Björgvin
Halldórsson. Nýkomin er á markað-
inn með honum tveggja laga jóla-
plata, Ný jól. Titillagið er eftir
Jóhann G. Jóhannsson. Hitt nefnist
Ég vaki þér hjá. Það er eftir Björgvin
og textinn eftir Jón Sigurðsson.
„Bæði þessi lög áttu að vera á LP
plötunni. Við vorum einnig búin að
velja öll hin lögin. Ég veit ekkert
hvað verður um þau, hvort þau verða
gefin út á næsta ári eða ekki,” sagði
Björgvin.
Á næstunni fer hann í stúdió og
hljóðritar þar fimmtán eða sextán lög
eftir Jóhann G. Jóhannsson, Magnús
Kjartansson og sjálfan sig við erlenda
texta.
„Við ætlum að fullvinna þessar
Nikkarahljómsveitín sem kom fram & Borginni. Fremri röð fró vinstri:
Ásgeir Þorleifsson, Ágúst Pótursson og Eyþór Guðmundsson. Aftari röð:
Kristin Kalmansdóttir og Bjarni Marteinsson. Bob Dylan faftastur) kom
fram sem gestur með hljómsveitinnil
DB-mynd: Einar Ólason fró Húsavík.
„í vínarkrus og vals og ræl, hann
vindur sér á tá og hæl”, er sungið há-
stöfum um Sigurð sjómann. Hann
eins og fleiri kann vel að meta gamla
dansa við harmóníkuundirleik. Og
meira að segja á diskóöldinni er auð-
velt að finna sér dansiböll þar sem
nikkan er í hávegum höfð. Ekki nóg
með það: Nikkarar og nikkuáhuga-
fólk á höfuðborgarsvæðinu myndaði
félagsskap fyrir þremur árum, Félag
harmónikuunnenda, sem starfar
síðan af krafti til að gera veg þessa
ágæta hljóðfæris sem mestan.
Félagið heldur fundi á Hótel Borg
fyrsta sunnudag hvers mánaðar og
Dagblaðsmenn litu inn á siðustu sam-
komu þeirra þar. Fór ekki fram hjá
gestunum að tími nikkaranna er
hreint ekki liðinn. Hann er öllu
heldur að byrja!
Á Borginni var kynnt glæný hljóm-
plata sem Félag harmóníkuunnenda
var að gefa út. En einnig tróðu menn
upp með dragspilin sín: Grétar
Sívertsen með frumsamin lög og Þor-
leifur Finnsson og Sigurður
Alfonsson. Sásíðastnefndi hefur lært
harmóníkuleik en hinir teljast til
áhugamanna. Siðast kom fimm
manna harmóníkuhljómsveit og
flutti nokkur lög. f henni er meðal
annarra Bjarni Marteinsson, for-
maður Félags harmóníkuunnenda.
Hann sagði við Dagblaðið að stofn-
endur félagsins árið 1977 hafi verið
um 20 en þeim fjölgaði ört og eru nú
um 200! Félagsstofnunin verkaði eins
og vítamínssprauta á nikkuunnendur
á landsbyggðinni. Stofnuðvoru félög
víðar, svo sem í Borgarfirði, á Akur-
eyri, Norðfirði, Seyðisfirði og í Þing-
eyjarsýslum.
„Nú vantar bara að tengja þessi
félög saman, það er stutt í landssam-
bandið!” sagði Bjarni.
„Aðalbaráttumál okkar var að fá
harmóníkuleik viðurkenndan sem
námsgrein í ríkisstyrktum tónlistar-
skólum. Árangurinn er sá að nú
kennir Grettir Björnsson á
harmóníku i Tónskóla Sigursveins,
Karl Jónatansson („guðfaðir” Félags
harmóníkuunnenda) kennir í Tón-
listarskólanum á Akureyri og einnig
mun byrjað að kenna á harmóníku í
Tónlistarskólanum á Hellu.”
Félag harmóníkuunnenda er með
fasta æfingatíma fyrir sitt fólk í
Edduhúsinu á hverju miðvikudags-
kvöldi. Þar skiptast menn í hópa í
samræmi við hve langt þeir eru
komnir á tónlistarbrautinni. Og þeir
sem lesa nótur eru í sérstökum hóp.
Annars er ekkert skilyrði fyrir inn-
göngu í félagið áð menn kunni yfir-
leitt eitthvað fyrir sér í harmóníku-
leik. Það er nóg að vera einlægur að-
dáandi hljóðfærisins til að fá inn-
göngu í félagsskapinn!
-ARH
upptökur,” sagði Björgvin. „Það
verður ágætt að eiga þetta ef eitthvað
gerist með erlenda markaðinn.
Maður hefur þá eitthvað í höndun-
um.” — Lögin sem verða tekin upp
eru sum ný. önnur hafa komið út á
plötum með íslenzkum textum.
Nóg verður að gera hjá Björgvini
og Brimkló við dansleikjahald út
þetta árið. Um næstu helgi verður
hljómsveitin í Sigtúni. Á annan og
þriðja í jólum skemmtir hún í Hnífs-
dal og á gamlárskvöld í Stapanum.
- ÁT
ASGEIR
TÓMASSON
r, —— Flei ra„ Pfll M
IHJL l\ J
Fram-
bjóðandi
Vísis
tapaði