Dagblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 36
„Sigurður var sjómaður, hrikalega laglegur, en núna er Siggi lam- aður hjólastólnum Með þrumugný og dúndurrokki léku' Utangarðsmenn ásamt hljómsveitunum Þey og Frœbbblunum fyrir fullu húsi áheyrenda í Gamla Bíói í tœpar 3 klukkustundir í gœr- kvöld. Var það mál manna, sem skemmtu sér konunglega í óheyri- legum tónstyrk, að Bubbi Morthens og sveit hans hefðu ekki í ann- an tíma verið frískari. Hljómsveitin Þeyr kom skemmtilega á óvart en það fór ekki á milli mála h ver var kóngurinn í geerk völd. - SSv / DB-myndir Einar Ólason. Alusuisse vegna súrálsins: HVORKISANNGJARNT TÆKIFÆRINÉ TÍMI —til að leggja fram upplýsingar og skýringar „Alusuisse var ekki gefið sann- gjamt tækifæri né nægilegur tími til þess að leggja fram upplýsingar og skýringar, áður en málið var birt al- menningi og Alþingi”, segir í frétta- tilkynningu frá Alusuisse vegna frétta frá iðnaðarráðuneytinu um athugun á verðlagningu súráls frá Svissneska álfélaginu hf. til islenzka álfélagsins hf. Ráðuneytið hefur fengið bráða- birgðaskýringar, „í þeim tilgangi að leiðrétta grundvallarmisskilning”, eins og segir í tilkynningunni. Þá hefur Alusuisse einnig tjáð ráðuneyt- inu vilja sinn til þess að afhenda frek- ari upplýsingar svo skjótt sem auðið er. í upplýsingum Alusuisse kom fram að fyrirtækið hefur langtíma samningsbundna skyldu til þess að sjá ÍSAL fyrir súráU. Þessi tilhögun verndar ÍSAL gegn truflunum á súr- álssendingum sem gætu leitt til stöðv- unar verksmiðjunnar og stefnt at- vinnuöryggi ISAL í hættu. Súrálsverð mUU ÍSAL og Alusuisse hefur ávallt verið og er enn innan þeirra marka sem gilda í alþjóða, langtíma súráls afhendingarsamning- um. Þá segir og að samanburður á hagskýrsluverðum ástralsks súrálsút- flutnings til tslands sé villandi. Ástr- alskar hagskýrslur tækju ekki til afturvirkra verðleiðréttinga, sem taka tillit tU kostnaðarhækkana. Auk þess segir að Alusuisse þurfi að greiða fjármagnskostnað af lánum sem tekin voru utan Ástralíu og einnig afskriftir sem ekki eru að fuUu bornar upp af hinu ástralska dóttur- fyrirtæki þess. - JH Farið að tillögum f iskif ræðinga um þorskaf lann: Steingrímur ákveður 400 þús. tonna ársafla Steingfrímur Hermannsson sjávar- „Fiskifræðingar hafa gert tillögur fyrir að með þeim ársafla verði tölu- Er þetta ekki í fyrsta skipti, sem útvegsráðherra ákvað í morgun eftir um, að þorskaflinn fari ekki yfir 400 verð aukning í stofninum. stjórnvöld fara aí tillögum fiski- fund með útvegsmönnum, að stefnt þúsund tonn,” sagði Steingrímur Hrygningarstofninn vaxi úr 275 fræðinga um þorskafiann? skuli að þvi, að þorskaflinn á næsta Hermannsson i viðtali við DB í þúsund tonnum í 613 þúsund tonn „Kannski þeir séu komnir til okk- ári fari ekki fram úr 400 þúsund morgun. „Þeirra spár eru nú allar árið 1986. Þetta er miklu betra en ar,” sagði ráðherrann. tonnum. bjartari en verið hefur. Þeir gera ráð áður hefursézt,” sagði ráðherrann. -HH. frjálst, úháð daghlað FIMMTUDAGUR 18. DES. 1980. Málshöfðun Dýraspítal- ans á hendur yfirdýra- lækni: Pálma skal líka stef nt Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra hefur nú dregizt inn í mál það sem stjórn Dýraspítalans höfðaði á hendur Páli Pálssyni yfirdýralækni. Páli var stefnt nú síðsumars fyrir það að fara út fyrir sitt verksvið. Hann hafði neitað að veita danska dýralækninum Garbus, sem starfaði á Dýraspítalanum, já- kvæða umsögn vegna þess að hann taldi ekki þörf á útlendum dýralæknum hér. Þetta taldi stjórn spitalans ekki vera á verksviði Páls að dæma um þar eð hann ætti aðeins að veita umsögn um hæfni Garbusar. Pálmi Jónsson veitti síðan Garbusi ekki starfsleyfi vegna þessarar umsagnar frá Páli. Verjandi Páls fyrir sakadómi viidi að Pálma yrði líka stefnt fyrir þetta en það vildu stjórnendur spítalans ekki. Úr- skurður féll í gær um það að Pálmi yrði tekinn fyrir líka. Stjórn Dýraspítalans hyggst skjóta þeim úrskurði til Hæsta- jréttar. Fyrr en Hæstiréttur hefur dæmt |i því máli gerist ekkert frekar í saka- dómi. -DS Áfram fundað með undir- mönnum farskipanna — stuttur fundur bensfnafgreiðslu- manna „Fundurinn með undirmönnum á farskipum og útgerðum skipafélaganna stóð í alla nótt og haldið verður áfram i dag,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari í morgun. „Við látum þá að mestu eina um þetta og þetta mjakast,” sagði Guðlaugur. Fundur með bensínafgreiðslumönn- um hófst í gærkvöldi og lauk honum kl. 1 i nótt. Annar fundur hefur ekki verið boðaður. Þá var gengið frá samn- ingi við starfsfólk Mjólkursamsölunnar í morgun klukkan 8 með fyrirvara um samþykki. Sáttafundur með leikstjórum í sjón- varpi hefst kl. 16 í dag, en þeir hafa boðað verkfall. Verkfall leikara hjá út- varpi og sjónvarpi hefur staðið nokk- urn tíma. Viðræður eru nú hafnar milli þeirra og menntamálaráðuneytisins. Ekki hefur enn verið boðaður sátta- fundur hjá sjómönnum á bátaflot- anum, en fundur er boðaður i ríkis- verksmiðjunum á föstudag. -JH. LUKKUDAGAR: 18. DESEMBER 16253 Sharp vasatölva CL 8145 Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.