Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.01.1981, Qupperneq 7

Dagblaðið - 03.01.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 Allir borga með nýju krónunni „Það borga allir með nýju krónunum. Já, já, ég kann alveg á þetta. Annars lærðum við ekkert um þessa nýju péninga í skólanum,” sagði Rúnar Óskarsson 10 ára, sem seldi Dagblaðið fyrir 4 nýkrónur í Austur- stræti 1 gær. Við sáum að hann var nokkuð vel að sér í myntbreytingunni. Þegar viðskiptavinir réttu honum 10 krónur gafa hann til baka 6 krónur, þegar i stað. -ELA. Ekki meiri ösen venjulega — segir Jón Stefánsson starfsmaður íLandsbankanum „Mér finnst ösin ekkert hafa verið meiri en venjulega um mánaðamót þeg- ar laun eru borguð út,” sagði Jón Stefánsson sem vinnur á biðstofu bankastjóra í Landsbankanum. Hann gekk um salinn i gær og afhenti viðskiptavinum seðla til að fylla út. „Sumir eru ekkert hrifnir að taka við þessum seðlum. Fólk heldur að það sé verið að hnýsast í hvað mikla peninga það sé með en þetta er aðeins gert til að létta undir með starfsfólkinu,” sagði Jón. Hann sagði að þótt ekki væri óvenjulega mikið að gera þá væri óvenjulegt að sjá allt þetta fólk með svona mikið reiðufé að skipta. -ELA. Gunnar Sigurbjömsson verkstjóri: Ekkert mál Gunnar Sigurbjörnsson verkstjóri sat við borð í aðalbanka Landsbankans með peningabunka fyrir framan sig og taldi. „Þetta er ekkert mál. Ég legg þetta vel fyrir mig, fylli hér út seðilinn og fer svo og skipti,” sagði Gunnar. Allir þeir sem komu inn í Lands- bankann fengu seðla til að fylla út til að auðvelda gjaldkerum störf. „Ég man vel eftir aurunum þegar þeir voru í notkun hér svo þetta er ekki svo erfið breyting fyrir mig. Hins vegar gæti ég trúað að yngra fúlkið ætti erfitt með að venjast þessu,” sagði Gunnar. -ELA. Jóhaim Ágústsson afgreiðslustjóri: Einsoggóður föstudagur „Ég mundi segja að þetta væri eins og góður föstudagur. Afgreiðslan hefur gengið vonum framar. Gjald- kerarnir hafa að sjálfsögðu farið varlega og viðskiptavinirnir einnig. Það er óhætt að segja að gjaldkerarnir hafi staðið sig með miklum sóma,” sagði Jóhann Ágústsson afgreiðslustjóri í Landsbankanum í Austurstræti í gær- dag. „í bankanum eru starfandi 21 gjaldkeri og þeir hafa allir haft nóg að gera í dag, svo er auðvitað mikið í úti- búunum líka,” sagði Jóhann. -ELA. Sigríður Birgísdóttir bankamær: Bankafólk hefurfengið góða fræðslu „Það hefur verið mikið að gera hér í dag. Sérstaklega finnst mér það vera eldra fólk sem kemur. Það virðist hugsa mikið um þessa breytingu,” sagði Sigríður Birgisdóttir starfsstúlka í Búnaöarbankanum er við ræddum við hana í gær. „Ég held að við banka- fólkið séum nokkuð örugg á þessari nýju mynt. Það hafa verið haldnir fundir með okkur og við höfum fengið góða fræðslu,” sagði Sigríður Birgis- dóttir. -ELA. SAGA ER EKKI SJÓNVARP Sjónvafp: PARADlSARHEIMT Kvikmynd vftlr Rotf HHdrich garð attir aðgu HaBdóra Laxnasa. Þriðji hkrd. Klementínuþáttur í Paradísar- heimt, þar sem segir frá vesturför systkina undan Hlíðunum ásamt Þjóðreki biskupi, finnst mér einhver átakanlegasti kafli í ritum Halldórs Laxness fyrr og síðar. Þar vaknar unga stúlkan í sögunni einn verður- dag á hafinu frjáls kona í fyrirheitna landinu. „Að vakna við að maður hefur misst allt og veit að maður á ekki lengur neitt, er það þá að vera manneskja? segir stúlkan. . . Var það þá þetta, sem hann faðir minn lofaði mér?” Þarna eru i rauninni sögulok. Það sem á eftir fer er ekki nema eftirmáli, til að hnýta saman endana á frá- sögninni, ráðstafa sögufólki, láta söguna um síðir bita í sporðinn á sjálfri sér við fornan vallargarð í Hlíðum. Eins og fyrr var sagt: skáldleg undirmál i Paradísarheimt verða ekki ráðin í eða við sjónvarpið. En ósköp varð lítið úr þessu frásagnarefni sem nú var greint í kvikmynd Rolf Hádrichs eftir sögunni. Þar var ekki lengur um að ræða nema blábera endursögn atburða í sögunni í lifandi myndum — sem af sjálfu sér standa sjálfri henni langt að baki. Og svo fannst mér að færi um þriðja þáttinn í heilu líki. Þar var eins og förlaðist sjóngáfan í myndinni, frásögnin gliðnaði sundur í eintóma endursögn frásagnarefnisins, án þeirrar sjálf- ráðu sjónar á fólk og atburði sem umfram allt bar uppi og hélt saman fyrri hlutunum tveimur. Kannski var ekki annars von: mynd er ekki orð, sjónvarp er ekki saga. í öllu falli fannst mér þriðji hluti sjónvarps- myndarinnar eftir Paradísaheimt á- berandi sísti hluti hennar. Þetta breytir auðvitað ekki því að eftir sem áður horfði maður á myndina með eftirtekt og áhuga, og margt virtist þar vel og fallega af hendi leyst með sama eða svipuðum hætti og í fyrri hlutunum. Auðvitað eru það einstakar mannlýsingar, er bera uppi myndina og umfram allt þvert á móti ætlað sér að koma sögunni fram í mynd þannig að öll hin skáldlegu launmáJ og dulmál draga til sín eftirtekt áhorfandans, Steinar í Hlíðum, Steina dóttir hans, Þjóðrekur biskup , og raunar fjöldi fólks í öllum hlutum myndarinnar, og þær ganga ekki úr greinum þótt tökin slakni á frásögninni í þriðja hluta. Eftir að horfa á myndina til enda á nýársdag finnst mér eins og áður langmest til um þau feðgin undan Hlíðum, Jón Laxdal og Fríðu Gylfa- dóttur í hlutverkum Steinars og Steinu. Ekki var Steina síðri en áður þegar hún um síðir fór að brosa og hlæja um borð í útfiytjendaskipinu Gideon. Það var ekki hennar sök þótt misheppnaðist í myndinni að koma fram þeim óhugnaði og skelfingu sem sjóferðin að endingu geymir — né tækist þá heldur að lýsa að lokum þeim fjarska, sem verður á milli tveggja hjartna þegar þau finnast í fyrirheitnu landi. Sú paradís sem hún hreppir i helgum hjúskap með Þjóðreki biskupi er að vísu allt annar handleggur en huldulandið sem faðir hennar ætlaði að kaupa henni við hesti og kistli. Það kemur enginn með fyrirheitna landið til þín, þú verður að finna það sjálfur. Samkvæmt þeirri dapurlegu lífsvisku sem Para- dísarheimt geymir er það Steinar kútur einn sem finnur fyrirheitið land í sögunni. Og það var alla tíð heima hjásjálfum honum í Hlíðum. Sjálfsagt mætti hugsa sér endur- gerð og umsköpun frásagnarefnis úr Paradísarheimt sem reyndi til að not- færa sér eðli og eiginleika kvikmynd- ar til að koma sjálfráðum skilningi og túlkun fólks og atburða í sögunni. Líklega yrði slík kvikmynd umfram allt raunsæislegs eðlis, sögulegs og þjóðfélagslegs efnis og fjallaði um misrétti, ofbeldi, kúgun og tilraun öreiga til undankomu og uppreisnar um síðir. Vel má vera fyrir mér að þetta sé þrátt fyrir allt kjarni máls í sögunni. En Steinar bóndi og hans fólk er að vísu ekki þessháttar öreigar. Og það virðist alls ekki hafa vakað fyrir Rolf leikstjóra Hádrich að leggja söguna með einu móti eða öðru út fyrir áhorfendum sínum. Hann hefur >2 Leiklist ÖLAFUR JÖNSSON W+i. Halldór Laxness ræðir við nokkra leikara í Paradisarheimt á Þingvöllum, þar sem Steinar komst fyrst 1 kynni við trú Mormóna. Frá vinstri eru Jón Laxdal, Flosi Ólafsson, Halldór Laxness og Róbert Arnfinnsson. Friða Gylfadóttir i hlutverki Steinu: „Að vakna við að maður hefur misst allt og veit að maður á ekki lengur neitt, er það þá að vera manneskja? Var það þá þetta, sem hann faðir minn lofaði mér?” skáldsögunnar héldust óskert i myndinni, öll hennar tvíræða og bölvísa lífspeki í mannskilningi og frásagnarmáta. En hræddur er ég um að þriðji hluti Paradísarheimtar hafi sýnt að þetta sé ekki hægt. Saga er ekki mynd. Augað sér ekki það er eyrað heyrir. Kann að vera u.imaðhalda til haga mannlýsingu, mannskilningi í líkingu sögunnar í einstökum hlut- verkum. En ekki að koma til skila heilum hugarheimi hennar, með þessu móti. Því verður sjónvarps- gerðin um síðir ekki nema endursögn bókarinnar, misvel heppnuð í ein- stökum atriðum fyrir alla muni, en í heilu lagi ósjálfstætt og ófullnað verk sem þarf í vaxandi mæli að styðjast við þekkingu áhorfandans á sögunni. Sem um leið veldur vonbrigðum hans um myndina. Á við þetta skipta smekkdómar um einstök hlutverk og atriði frá- sögunnar út af fyrir sig litlu. En mér fannst Þjóðrekur biskup í sjálfu sér tilkomumikil mannlýsing í myndinni — þótt Róbert Arnfinnsson væri sem vænta mátti annar maður en sá hraunkarl með hatt sem sagan lýsir. Aftur á móti felldi ég mig ekki við sýslumann Benediktsen: Gunnar Eyjólfsson sem dálítið spilltan, úr- kynjaðan heimsmann. Mannlif Jútabyggð komst aldrei fram myndinni í líkingu við heimafólk á íslandi — þótt hlutverkum Runólfs prests og lúterstrúarmannsins og þeirra mæðgna, Borgíar og dóttur heunar.sem bóndinn hljóp frá, rétt eins og Steinar bóndi frá sinu kven- fólki, var dável til skila haldið. Þar er skáldleg undirferli í frásögninni, inni á milli orða og atburða, sem úti varð í myndinni. Eins og fleira. Eftir þriðja hluta Paradísarheimt- ar var sýnt einhvers lags aukamynd með henni úr þýska sjónvarpinu þar sem saman var hrært auglýsingu um myndina, heldur svo simpilli land- kynningu og viðtali við höfundinn með miklum reykjarbólstrum. í bólstrinum sagði að Paradisarheimt fjallaði um innsta eðli mannsins. Vera má . En engu spillti að verða af þessari aukagetu.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.