Dagblaðið - 03.01.1981, Side 10

Dagblaðið - 03.01.1981, Side 10
DAGBLAtílÐ. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981 10 frjálst, óháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Svoinn R. Eyjótfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí ritstjómar Jöhannes Reykdal. Iþróttir: Hallur Simonarson. Menning: Aöalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elin Albertsdóttir, Gísli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndir Bjarnleifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorri Sigurðsson og Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorloifsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs son. Droifingarstjóri: Valgerður H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Síöumúla 12. Áfgreiðsla, áskríftadeHd, augtýsingar og skrifstofur Þvorholti 11. Aðalsími blaðsins er 27022 (10 Onur). Sotning og umbrot Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Arvakur hf., Skeifunni 10. Áskríftarverö á mánuði kr. 70,00, Verð i lausasölu kr. 4,00. Sovétmenn gagnrýna Pólverja á ný eftir nokkurt hlé: REIKNAÐ MEÐ ÁFRAMHALDANDI VÖRUSK0RTI Alþýðubandalagið réð ferðinni, þegar ríkisstjórnin afréð efnahagsað- gerðir sínar. Útkoman er, sem vænta mátti, að aðgerðirnar eru alls ófull- nægjandi. Sumt í þeim er býsna vafasamt. Fáein atriði horfa til bóta. Fyrsti þáttur efnahagsáætlunarinnar er, að gengis- sigi verði hætt og gengi krónunnar haldið stöðugu næstu mánuði. Þetta gæti sýnzt horfa til bóta, en svo er ekki, þegar betur er gáð. Ætlunin er að bæta útflutningsgreinum það tap, sem þær hljóta af of háu gengi, með gífurlegum styrkjum af opinberu fé. Gamla millifærsluleiðin ryður sér til rúms að nýju. Afleiðingin verður fölsuð gengisskráning. í stað þess, að gengis- skráningu verði breytt, þegar gengi krónunnar fellur í reynd við versnandi afkomu útflutningsatvinnuveg- anna, skal nú á pappírnum halda genginu föstu. Raunin verður vafalaust sú, að um verður að ræða „margs konar gengi”. Gengislækkun eykur verðbólgu, en millifærsluleiðin veldur einnig aukinni verðbólgu. Til lengdar stoðar ekki að halda genginu uppi á pappírnum, þegar það er fallið í raun. Annar þáttur aðgerðanna er það, sem stjórnarliðar kalla ,,algera verðstöðvun” frá 1. janúar til 1. maí. Verðstöðvun hefur löngum átt að vera í gildi hér á landi. Menn renna blint í sjóinn um, hvað þetta ákvæði efnahagsáætlunarinnar þýðir. í þriðja lagi er visitalan sett á 100 1. janúar. Verð- bætur verða ekki greiddar fyrir verðhækkanir, sem hafa orðið frá 1. nóvember til áramóta. Þetta á að þýða um 7 prósent skerðingu verðbóta og þar með launahækkunar 1. marz næstkomandi. Alþýðubanda- lagsmenn leggja áherzlu á, að með þessu verði ekki um kjaraskerðingu að ræða, þegar á árið sem heild sé litið. í staðinn verði skerðingarákvæði Ólafslaga felld niður, skattar lækkaðar á lág laun og stefnt að lækkun vaxta. Útkoman eigi því að vera, segja alþýðubandalags- menn, að kaupmáttur verði nær hinn sami á árinu, þrátt fyrir efnahagsaðgerðirnar. Vafalaust leiðir af þessu, að verðbólga verður næstu mánuði minni en ella hefði verið. Síðar á árinu mælir vísitalan hraðar en ella, þar sem skerðingarákvæði Ólafslaga falla burt. Því mun hætta að draga úr verð- bólgu af þessum sökum, þegar á árið líður. Eigi að veita vísitölubætur á laun, er æskilegast, að miðað sé við vísitölu þjóðarhags. Þannig fengju laun- þegar kauphækkanir við batnandi þjóðarhag en ekki bara sífellt verðminni krónuhækkanir, sem jafnóðum eyðast í verðhækkunum, sem fylgja á eftir. Það er því síður en svo til bóta að afnema það ákvæði Ólafslaga, að verðbætur fari að nokkru eftir viðskiptakjörum okkar við útlönd. Framangreint eru aðalatriði efnahagsáætlunarinnar. Um þau verður að segja, að þau ná yfir alltof tak- markað svið og eru alltof veik. Til dæmis stoðar lítið að halda gengi stöðugu um tíma, ef afleiðingin verður einungis þeim mun meiri gengisfelling að því tímabili loknu. Sama má segja um verðstöðvun. Einnig er haldlítið að draga úr kauphækkunum um tíma, ef þær verða síðar meiri en ella. Aðgerðirnar nú bera svip fyrri aðgerða margra ríkisstjórna, sem hafa krukkað í kaupið til að „redda” málum um skamma hríð. í aðgerðunum er það helzt til bóta, að heimild er gefin til minnkunar ríkisumsvifa, skattalækkana, leng- ingu lána og bindingu verðtryggðra sparireikninga í aðeins sex mánuði. Ef nahagslíf pólsku þjóðaríimar mjög bágþorið. Tfu milljónir dollara fara í af borganir og vexti á þessu árí Pólverjar hafa farið sér hægt að undanförnu eftir margra mánaða óróa á vinnumarkaði og stjórnmála- sviði í landinu enda er þeim ljóst að erfiðir tímar eru framundan. Þeir fögnuðu nýju ári á rólegan hátt. Pólska útvarpið sagði að færri dansleikir og samkvæmi hefðu verið haldin í landinu um þessi áramót en venja er og þeir fáu veitingastaðir sem höfðu opið fengu færri viðskiptavini en venjulega þar sem flestir héldu nú upp á áramótin heima við. Hætt var við fjölmarga dansleiki um áramótin og ástæðan er án efa hinn mikli vöruskortur í landinu. Margir Pólverjar urðu við þeirri hvatningu kaþólsku kirkjunnar að nota áramótin til að biðja fyrir einingu þjóðarinnar. Pólverjar þreyttir En fjölmargir Pólverjar segjast einfaldlega hafa verið dauðþreyttir eftir atburði undangenginna mánaða, sem leiddu meðal annars til stofnunar fyrstu sjálfstæðu verkalýðsfélaganna í Austur-Evrópu og ýmissa breytinga á æðstu stjórn landsins. Áramótin hafa verið kærkominn hvíldartími fyrir húsmæður, sem undanfarnar vikur hafa mátt standa í biðröðum við matvöruverzlanir allt upp í átta klukkustundir á dag. Ekki er líklegt að ástandið í landinu batni á næstunni. Almenn- Hver er framtíð afmælisbamsins? Hálfrar aldar afmæli Ríkisút- varpsins varð tilefni mikilla upprifjana, en tiltölulega lítilla hug- leiðinga um framtíðina. Þó leikur litill vafi á því að þessarar stofnunar bíða ákaflega breyttar aðstæður, e.t.v. ekki á allra næstu árum, en strax og líða tekur á þann áratug, sem nú er að hefjast. Sérstaklega á þetta við um sjónvarpið: stóráföll hljóð- varpsins, sem voru tilkoma sjónvarps og innreið plötuspilara og snældu- tækja á hvert heimili, eru um garð gengin. Sambærileg áföll , bíða nú sjónvarpsins. Sendingar sjónvarps- efnis milli landa um gervihnetti beint til almennings eru nú fyrirsjáanlegar og munu, þegar þar að kemur, kippa fótunum undan einokunaraðstöðu íslenska sjónvarpsins. Engin leið er að segja með vissu fyrir um afleiðing- ar þessa, en hætt er við að ýmislegt heimaunnið efni, bæði til afþreying- ar og fróðleiks, muni eiga mjög undir högg að sækja. Einnig má telja fullvíst, að til lítils verði fyrir íslenska sjónvarpið að taka til sýningar nokkurraára gamla framhaldsþætti á sömu forsendum og nú er gert. Niðurstaðan getur því orðið sú að íslenska sjónvarpið verði fyrir verulegum áhorfendaflótta frá ákveðnum tegundum heimaunnis efnis og einnig, að alvarleg þurrð verði fljótlega á frambærilegu erlendu efni sem áhorfendum sé nýnæmi að. Ofangreint áfall er ekki alveg yfir- vofandi. Ef til vill dynur það yfir við það að Nordsatáætluninni verður hrint i framkvæmd. Fari svo (og margt bendir til þess) er tæpur ára- tugurtilstefnu. En þetta er ekki eina breytingin sem við blasir. Á undanförnum miss- erum hefur myndsnældutækjum verið ýtt út á íslenskan markað af töluverðum ákafa. Ekki er mér kunnugt um fjölda slíkra tækja i notkun hér á landi, en ólíklegt má telja að fleiri en 1% heimila hafi aflað sér þeirra. Til samanburðar má nefna að talið er að slik tæki sé að Það má telja víst að þeir áratugir sem eftir eru til aldamóta eigi eftir að hafa í för með sér gífurlegar breyting- ar á lífi okkar og kjörum. Örtölvubyltingin sem nú er i sjón- máli mun gjörbreyta högum okkar og lífsviðhorfum og jafnvel þjóðfélags- gérðinni allri. Eitt er víst að bylting er í nánd þar sem tölvur og vélmenni munu taka við störfum okkar, sem síðan leiðir til atviiínuleysis og þverr- andi kaupgetu og kreppu verði ekki rétt brugðist við þessum nýju viðhorfum. Fyrstu tölvurnar voru smíðaðar á heimsstyrjaldarárunum síðari. Þær voru stórar og þungar og mikla þjálfun þurfti til að vinna með þær. Fyrsta tölvan kom til íslands úm ,1960, til Skýrsluvéla rikisins og Reykjavíkurborgar. Síðan hafa orðið stórstigar framfarar á þessari tækni. Skömmu fyrir 1970 kom til sögunnar ný tækni, svokallaðar dvergrásir, sem hafa gert kleift að gera þetta ,Nær ekkert hefur veriö minnst á áhrif tölvutækninnar fólks.” á störf okkar verka-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.