Dagblaðið - 24.01.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981.
i
Snorri Hjartarson fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
„Snorri er sannkallaður
meistari forms og stíls”
Formaður dómnefndar vegna bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs,
Norðmaðurinn Leif Maehle, var eins
og örlítið undirfurðulegur þegar hann
stóð upp í Lækjarhvammi á Hótel
Sögu síðdegis í gær til að tilkynna hver
hlyti bókmenntaverðlaunin í ár, bað
svo um þriggja mínútna hlé og hvarf á
bak við rennihurð. „Þetta kalla þeir
dramatisk pause,” varð Árna Berg-
mann ritstjóra Þjóðviljans að orði.
Stuttu síðar kom Maehle aftur og var
þá með Snorra Hjartarson Ijóðskáld
með sér. Var mönnum þá ljóst hvert
stefndi því bók Snorra, Hauströkkrið
yfir mér, hafði verið lögð fram fyrir
íslands hönd ásamt bók Sigurðar A.
Magnússonar, Undir kalstjörnu.
Maehle leiddi Snorra til sætis og lýsti
því svo yfir að dómnefndin hefði orðið
ásátt um að veita Snorra hin eftirsóttu
verðlaun sem nema nú 75.000 dönskum
krónum (um 78.000 nýkr.) fyrir ljóða-
bók hans. „Hauströkkrið yfir mér
lætur uppi tæra persónulega náttúru-
skynjun sem ummyndast í víða verald-
arsýn,” segir i umsögn dómnefndar-
innar.
,,Við erum afskaplega glaðir yfir
þessum úrslitum,” sagði Hjörtur Páls-
son, annar fulltrúi íslands i dómnefnd-
inni, „og teljum verðlaunin hafa farið
á góðan stað. Snorri Hjartarson er
sannkallaður meistari forms og stils.”
Per Olof Sundman, rithöfundur og
annar fulltrúi Svía, lýsti einnig yfir að-
dáun sinni á ljóðum Snorra og sagði að
þýðandi þeirra, Inge Knutson, hefði
unnið verk sitt svo snilldarlega að nær
allir dómnefndarmeðlimir hefðu lesið
Ijóðin eins og móðurmál sitt. „Við
urðum okkur allir meðvitandi um
kynngi islenzkrar tungu,” sagði Sund-
man.
Nú eru fimm ár liðin síðan Ólafur
Jóhann Sigurðsson hlaut bókmennta-
verðlaunin fyrir tvo ljóðabálka og
vakti Maehle athygli á þvi hve vel
Ijóðið stæði að vigi á Norðurlöndum
því meirihluti verðlaunahafa væri ljóð-
skáld. -AI
Þeir voru fljótir að nálgast Snorra Hjartarson. þeir Helgi H. Jónsson frá hljóðvarpinu (t.v.) og Helgi Helgason frá sjónvarpi.
þegar formaður dómnefndar, Leif Maehle sem er vzt til vinstri á mvndinni, hafði tilkynnt um úrslit. -DB-mvnd S,
„Myndvís skynjun andstæðna”
EKKIAFKASTAMIKIÐ,
EN VANDAÐ SKÁLD
— segir Ólaf ur Jónsson um Snorra H jartarson og verðlaunabókina
Snorri Hjartarson er fæddur á
Hvanneyri í Borgarfirði 22. apríl 1906.
Hann ólst upp í Andakíl og í Stafholts-
tungum, nam síðan við Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði og Menntaskólann í
Reykjavík tvo vetur. Listnám stundaði
hann siðan í Kaupmannahöfn og Osló
1930—32 og hefur æ síðan verið mikill
unnandi myndlista. Bókavörður var
Snorri við Bæjarbókasafnið í Reykja-
vík (nú Borgarbókasafn) 1939—1943
og yfirbókavörður 1943—1966.
Eftir Snorra liggja bæði frumsamin
verk og ýmsar sýnisbækur Ijóða og
prósa. M.a. gaf hann út íslenzk ástar-
Ijóð 1949, Ljóðmæli Sveinbjarnar Egil-
sonar 1945 og þýðingar Matthíasar
Jochumssonar á Sögum herlæknisins
eftir Topelius. Fyrsta ljóðabók hans
nefndist einfaldlega Kvæði og kom út(
árið 1944, síðan komu Á Gnitheiði
1952, Lauf og stjörnur 1966 og loks
Kvæði 1940—1952. Hauströkkrið yfir
mér kom út 1979, þannig að langt er á
milli bóka Snorra. 1 umsögn sinni um
verðlaunabók Snorra segir Ólafur
Jónsson (DB 29. des. 1979) og byrjar á
því að vitna i titilljóð bókarinnar:
„Hauströkkrið yfir mér
kvikt af vængjum
yfir auðu hreiðri
í störinni við fljótið.
Andstæðurnar sem þetta ljóð lætur
uppi svo látlausum orðum geyma, held
ég, það sem mestu skiptir í hugarheimi
hinna nýju Ijóða Snorra Hjartarsonar:
þar er vissulega haust, rökkur, auðn en
jafnframt því vitund skáldsins um
vængjað líf loftsins, fljótið sem
streymir hjá, sífellt samt og sífellt nýtt.
Og það er til marks um skýrasta auð-
kenni hinna nýju ljóða: sjóngildi
þeirra, hið ofur-einfalda orðfæri þar
sem ekkert er aukreitis lengur, öll við-
höfn afnumin í máli, brag, hugmynd-
um, myndvísa skynjun andstæðna sem
skapar líf ljóðanna.”
- Al
Leiðrétting:
Faðirístað
sonar
Með kjallaragrein í DB á fimmtu-
daginn var í misgripum notuð mynd
af Sveini B. Valfells (eldra) í stað
myndar af syni hans, Sveini Valfells
verkfræðingi. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðingar á þvi.
Sveinn Valfells verkfræðingur. ^
S STILL Esslingen lyftarar
uppgerðir fré verksm. Til afgreiflslu nú þegar. Rafmagns: 1,5 t, 2 t,
2,51 og 3, tonna. Disil: 3,51,41 og 6 tonna. Greiðslukjör.
STILL einkcumboð á íslan ii
M
K JÓNSSON&CO. HF § "mn^W
|BMW 728 árg.1978 Renault 20 TL árg.1978
IbMW 525 árg.1974 Renault 20 TL árg.1977
BMW 520 árg.1978 Renoult 12TL árg. 1971
|BMW 320 árg.1979 Renault 5 GTL árg. 1980
IbMW 320 árg.1978 Renault 5 TL árg. 1975
BMW 318 autom. árg.1979 Renault 4 TL árg. 1979
. BMW 316 árg. 1980 Renault 4 VAN F6 árg. 1977
BMW 320 árg. 1980 Renault 4 VAN F6 árg.1978
<$> KRISTBNN GUÐNAS0N HF SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Reykjavíkur
Kæri félagi.
í tilefni 90 ára afmælis félagsins bjóðum
við þig hjartanlega velkominn til afmælis-
fagnaðar að Hótel Sögu, sunnudaginn 25.
janúarn.k., kl. 14 til 17.
Dagskrá verður í stórum dráttum þannig:
Safnast saman í Súlnasal.
Hljómsveit hússins leikur létt lög.
Ávörp.
Félagsmenn heiðraðir.
Tvöfaldur kvartett Söngskólans í Reykjavík syngur.
Manúela Wiesler og Snorri öm Snorrason
leika saman á flautu og gitar.
Ég vona að þú og sem flestir vinnufélaga
þinna sjáið ykkur fært að taka þátt í þessari
afmælishátíð félagsins og þiggja veitingar.
Með félagskveðju,
f.h. VERZLUNARMANNAFÉLAGS
REYKJAVfKUR
HEWLETT jip, PACKARD HEWLETT Jtp, PACKARD HEWLETT JlD. PACKARD HEWLETT Jip PACKARD HEWLETT JlD, PACKARD
Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKI, Banka.trætis simi27sio