Dagblaðið - 24.01.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 24.01.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981. 17 D I Menning Menning Menning Menning Nemasíöursé Breiðholtsieikhúsið: PLÚTUS eftir Aristófanes Pýðing: Hilmar J. Hauksson Leikstjóri: Geir Rögnvaldsson Búningar: Hjördto Bergsdóttir Það má nú segja — Breiðholtsleik- húsið nýja leitar langt yfir skammt að sínu fyrsta verkefni, 2500 ár, aftur til klassískrar fornaldar, og leikur gleði- leik eftir Aristófanes. Best að segja strax að sá gamli bregst engum vonum sem með sanngirni má binda við hann i Breiðholtinu. Það var bara notaleg kvöldstund á fyrstu frumsýn- ingu okkar fyrsta hverfisleikhúss í Fellaskóla. Um Plútus má lesa að hann sé síð- asti gleðileikur Aristófanesar og af honum megi ráða breytingar sem fóru í hönd á gerð og yrkisefnum gleðileikja, þróun til farsakenndra ærslaleikja i stað revíulegrar þjóð- félagsádeilu. Nú hef ég enga hug- mynd um hvernig sýningin stendur af sér við upprunalegan texta leiksins: það er að sönnu býsna löng leið úr Aþenu í Breiðholtið. En leiksagan, hið siðferðislega dæmi sem sett er á sviðið, er að vísu harla einföld. Leikurinn seg'r frá góðum og fróm- um manni i borginni, Kremylusi, sem tekur sér fyrir hendur hvorki meira né minna en gefa guði auðsins, Plút- usi, sjónina og koma þar með viti fyrir hann. Héðan í frá verður auði og hagsæld útdeilt til manna eftir sönnum verðleikum þeirra en ekki í blindni og fólsku eins og hingað til. Getur hver og einn gert sér í hugar- lund hvað af slíkri byltingu hagkerf- isins mundi leiða — til að mynda í okkar eigin bæjarfélagi, hérna og núna. Það held ég að gildi um Plútus rétt eins og aðra gleðilelki Aristófanesar, að sýningar þeirra á hverjum tíma eigi mest að vinna á sem ríkulegastri staðfærslu efnisins. Ef á að leika Plútus í Breiðholti stafar það af því að hann fjallar með einhverju móti um kjör og hagsmuni Breiðhyltinga sjálfra. Hitt er kannski varla von að óreyndur og sundurleitur leikflokk- urinn gangi ýkja langt í þessa átt, en þó hygg ég að þýðing Hilmars Haukssonar hefði átt til meira að vinna með slíkri viðmiðun en tókst í verki. Mér heyrðist textinn með ansi miklum þýðingarhnökrum en inn á milli komu setningar og heil atriði á þjálu og fyndnu hversdagsmáli, og slíkt málfar hefði auðvitað þurft að semja leiknum í heild sinni. En mér virtist sviðsetning Geirs Rögnvalds- sonar haganlega samin að kröftum leikenda og kringumstæðum sýn- ingar í Fellaskóla, þannig að nýttust fyndnisgáfur í leikhópnum og einföld skopefni leiksins. Aðeins einn fyrir- vari: leikendur eru Iátnir muldra ein- hver kórljóðaslitur að tjaldabaki og hefði þeim betur verið sleppt með öllu úr því ekki var unnt að skipa Úr Plútusi í meðförum Breiflholtsleikhússins. saman kór á sviðinu. Að vísu er hlutverkaskipun þannig háttað að broddinn vantar í sýning- una: Eyvindur Erlendsson megnar engri umtalsverðri túlkun hins rót- tæka smáborgara, Kremylusar, sem tekur sér fyrir hendur að koma viti í hagkerfi heimsins. Það er ansi mikil vöntun. Aftur á móti draga aðrir leikendur, Þórunn Pálsdóttir, Evert Ingólfsson, Kristin Bjarnadóttir og einkum og sér í lagi Kristín Kristjáns- dóttir og Sigrún Björnsdóttir, upp býsna glúrnar lýsingar manngerð- anna í leiknum, og af þeim stafar glens og gaman hans, sígildum farsa- manneskjum eins og t.a.m. konu Kremylusar i sælli vímu og gamalli konu í ástarbríma í einhverjum kát- legustu atriðunum. Það er mergurinn málsins, held ég, að hér er í boði dáskemmtileg lítil leiksýning, það sem hún kemst, og hún ætlar sér svo sem ekki lengra með efnið en hún kemst með góðu móti. Varla er þess að vænta að fólk leggi á sig langferðir úr öðrum bæjar- hverfum til að horfa á Plútus í Fella- skóla. Hitt er að vísu vonandi að Breiðhyltingar gefi honum gaum. Hér er sem sé verið að byrja merki- legri tilraun en sýningin er sjálf: að' færa leiklist úr steinsteypuköstulum í miðbænum til hversdagsnota heima fyrir, engin viðhöfn en alveg látlaus upplétting. Og svo mikiö er vist og satt að Plútus gerir mönnum ekki minna gagn í Breiðholti en Þorlákur karlinn þreytti í Kópavogi. Nema síður sé. G Þjónusta Þjónusta Þjónusta ) c Viðtækjaþjónusta LOFTNE l a(inunn annast uppsetninRU á TRI AX-loftnetum fvrir sjónvarp — FM stereo or AM. Gerum tilboö í loftnetskerfi, endurnýjum eldri launir, ársábvriíö á efni oj; vinnu. Greidslu- kjör. LITSJONVARPSÞJONUSTAN __________DAGSÍMI 27044 - KVÚLDSÍMI 40937. Sjón varpsviðgerðir Heima eða á verkstæði. Allar tegundir. 3ja mánaða ábyrgð. Skjárinn, Berustaóastra'ti 38. I)ai>-, kuild og helgarsimi 21940. FERGUS0N RCA amerískur myndlampi Varahluta- on viöneróaþjónusta. Orri Hjaltason Hagame! 8 — Sími 16139 c Jarðvinna-vélaleiga j Kjarnabomn! Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, glugga, loftræstingu og ýmiss konar lagnir. 2", 3", 4". 5", 6". 7" borar. Hljóðlátt og ryklaust. Fjarlægjunt múrbrotið. önnumst ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Förum hvert á land sem er. Skjót og góð þjónusta. KJARNBORUN SF. Símar: 28204—33882. T/EKJA- OG VELALEIGA Ragnars Guðjónssonar Skemmuvegi 34 - Símar 77620 — 44508 Loftpressur Hrærivélar Hitablásarar Vatnsdælur Slipirokkar Stingsagir Heftibyssur Höggborvélar Beltavélar Hjólsagir Steinskurðarvél Múrhamrar Traktorsgrafa til snjómoksturs mjög vel útbúin, til leigu, einnig traktor með loftpressu og framdrifstraktorar með sturtuvögnum. Uppl. í símum 85272 og 30126. s Þ Gröfur - Loftpressur Tek aö mér múrbrot, sprengingar og fleygun í húsgrunnum og holræsum, einnig traktorsgröfur í stór og smá verk. Stefán Þorbergsson Sími 35948 c Verzlun ) ri hilxi HILXI VÉLALEIGA Ármúla 26, Simi 81565, - 82715, - 44697 Leigjum út Hjólsagir Rafsuðuvólar Traktorspressur Haftibyssur og loftpressur Juðara Gröfur Vfbratora Dílara HILTI-naglabyssur Hrærivélar Stingsagir HILTI-borvélar HILTI-brotvólar Hestakarrur Slýpirokkar Kerrur Blikkklippur (nagarar) | Steinskurðarvél til að saga þensluraufar i gólf. HILTI MILfT-l C Önnur þjónusta ) Húsaviðgerðir, Klæði hús með áli og stáli, set harðplast á gluggakistur og borð, gluggaþéttingar, fræsi glugga og set í tvöfalt gler. annast almennar húsaviðgerðir. Uppl. í síma 13847. Annast almennar húsaviðgerðir. FIMLEIKAR - LEIKFIMI í Breiðagerðisskóla: „Old boys” mánud. og fimmtud. kl. 18.50—19.40 Kvennaleikfimi mánud. og fimmlud. kl. 19.40—20.30 Fimleikar fyrir börn or unglinga i Ármannsheimili v/Sigtún. Uppl. I síma 38I40 þriöjudaga kl. 16.30—17 og föstudaga kl. I8—18.30. Fimleikadeild Ármanns. Jaf nan á lager Þakrennur, þakrennubönd or rennuhorn. Þakgluggar, þakventlar, veggventlar, niöurfalls- og loftpípur, svalastútar. Niöurfalls- og loft- be.vgjur, steinrennustútar. Gaflþéttilistar, kjöljárn, kantjárn. BLIKKSMIÐJAN VARMI HF. SKEMMUVEG118 KÓPAVOGI, SÍMI 78130.. c Pípulagnir -hreinsanir ) Er stíflað? Fjarlægi stíflur úr vöskum, WC rörum. baðkerum og niður- föllum Hreinsa og sköla út niðurföll i hila- plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbil með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki. raf magnssnigla o.fl. Vanir menn. ■■Valur Helgason. sími 77028 Er stíflað? I jarlægi siiflur úr vöskum. wc rórum. baðkcrum og mðurfollum. nolum n\ og fullkonun laeki. rafmagnssmgla Vamr mcnn Uppljsingar i sima 43879 Stífluþjónustan Anton AðabtainMon. 23611 HUSAVIÐGERÐIR 23611 rökum að okkur allar viðgerðir á húseignum, stórum sem smáum, svo sem múrverk og trésmíðar, járn- klæðiíingar, sprunguþéttingar og málningarvinnu. Girðum og lögum lóðir, steypum heimkeyrslur. HRINGIÐ í SÍMA 23611 Nei takk ... ég er á bílnum 11»F™

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.