Dagblaðið - 24.01.1981, Blaðsíða 16
Jónas R. Jónsson er á förum til Bandaríkjanna til langrár dvalar:
Langar til að
kynnastnýju
andrúmslofti
„Það er ekkert afráðið með
hversu lengi ég verð i burtu. Ég teldi
eitt til tvö ár ekki fjarri lagi,” sagði
Jónas R. Jónsson upptökumaður í
sanitali við blaðamann DB. Hann fer
nú um helgina með fjölskyldu sinni
til Bandaríkjanna og ætlar að eiga
þar langa viðdvöl að þessu sinni.
„Við förum til Los Angeles.”
sagði Jónas. ,,Ég hef vonir um að fá
vinnu þar i einhverju stúdíóinu, þeg-
ar ég verð búinn að fá atvinnuleyfi.
Satt að segja stóð mér til boða að
komast að hjá Warner Brothers í Los
Angeles, en mér þykir frekar ólíklegt
að þeir hafi geymt handa mér stöðu
þar í margar vikur.”
Jónas sagði að stúdíó Warner
Brothers byði upp á góð taeki, þar á
meðal 32ja rása digital upptökutæki.
„Þarna hljóðrita Doobie Brothers
plöturnar sínar, svo og James Taylor,
Rickie Lee Jones, Ry Cooder og
fleiri. Til dæmis var Bop til You
Drop tekin upp þarna. Það væri
vissulega mikill fengur í því að
komast að í stúdíói þar sem fólk á
borð við þetta vinnur,” sagði Jónas.
Jónas og fjölskylda eiga síður en
svo á hættu að verða vinalaus fyrstu
dagana í Los Angelesþvi að þar er nú
fyrir harðsnúinn kjarni íslendinga.
Má þar nefna Jakob Magnússon og
Önnu Björns, Sigurjón Sighvatsson
og fjölskyldu, Árna Egils bassa-
leikara og marga fleiri.
„Ég flyt mig um set aðallega til að
kynnast nýju andrúmslofti og
hugsanagangi,” sagði Jónas R.
Jónsson. ,,í Los Angeles úir og grúir
allt af upptökustúdíóum og sam-
keppnin er hvergi meiri í heiminum,
nema ef vera skyldi i New York.
Þarna búa og starfa heimsþekktir
listamenn á öllum sviðum. Tæknin er
ekki endilega svo mörgum skrefum á
Jónas R. Jónsson við upptöhuboröið I Hljóðrita. Samkeppnin er óviða meiri en i
Los A npeles, segir hann. DB-mynd: Einar Ólason.
undan því sem við þekkjum hér
heima, en þarna er ekkert til sparað
að gera allt sem bezt úr garði.”
Jónas er einn af stofnendum
stúdíósins Hljóðrita í Hafnarfirði.
Hlutur hans er 22 1/2 prósent. Hann
kvaðst mundu eiga hlut sinn i fyrir-
tækinuáfram. -ÁT-
A reiöhjólinu hansArrabals
Baldvin
og afmœliö
Að kvöldi nýársdags var haldinn
mikill fagnaður i Naustinu. Þar kom
saman fríður hópur fólks, sem Baldvin
Jónsson auglýsingastjóri ' Morgun-
blaðsins smalaði saman. Samkoman
þótti takast meðágætum og voru ýms-
ir með höfuðverk nokkra daga fram á
nýárið.
Segir nú ekki af fagnaði þessuni fyrr
en á fimmtudaginn var. Þá birtisl
auglýsing i Morgunblaðinu. þar sem
Baldvin Jónsson þakkaði þann hlýhug
og vinsemd sem honum var sýnd á af-
mælisdegi hans 1. janúar. Fóru þá
margir að leggja saman tvo og tvo og
fengu það út. að þeir hefðu óafvitandi
tekið þátt i dýrlegum afmælisfagnaði
Baldvins á Naustinu. Urðu þvi margir
til þess að hringja i Baldvin á
fimmtudaginn og færa honuni
siðbúnar afmæliskveðjur.
Auglýsingastjórinn hafði að vonunt
gaman af öllu saman. Hann átti
nefnilega ekki afmæli á nýársdag.
heldur Baldvin Jónsson hæstaréttar-
lögmaður, sem hélt upp á sjötugs-
áfniæli sitt á fyrsta degi ársins.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1981.
I
ÁSGEIR
TÓMASSON
Norskiforsœtis-
ráðherrann klæðist
íslenzkri ullarpeysu
Þepar norska sjónvarpið tók viðtal við Nordli á þingflokksfundi á döpunum, kom
jorsœtisráðherrann fram á islenzkri ullarpeysu.
DB-mynd: Siyurjón Jóhannsson.
Oddvar Nordli forsætis-
ráðherra, sem kom fram
íklæddur íslenzkri peysu.
Hann hefur oftsinnis komið
fram á opinberum vettvangi í
henni. Nordli og félagar hans
í norsku stjórninni eiga
annars í bannsettum erfiðleik-
um þessa dagana. Hægri
menn reyna að frysta stjórn-
ina úti, svo að ef til vill er full
ástæða fyrir hana til að vera
blýlega klædd.
I -ÁT'
Kolhrún Halldórsdóttir oy Siyrún Valberysdótur, tveir af aðstandendum
Alþýðuleikhússins. (DB-mynd Ein. tíl.l.
slysförum og Konu, — og umbreyta
bíóinu i leikhús um leið. Þær voru
ákveðnar i því, Kolbrún og Sigrún,
að umbreytingunni skyldi lokið nú
um helgina, þegar vígja á nýja
leikhúsið með sýningu á Kóngs-
dótturinni sem kunni ekki að tala, á
sunnudag kl. 15. Eftir helgina verða
leikrit Fos svo frumsýnd.
-AI.
Þegar á mæðir skellir for-
sætisráðherra Norðmanna sér
í islenzka ullarpeysu. Verka-
mannaflokkurinn norski hélt
á dögunum þingflokksfund á
skíðahóteli. Sjónvarpið kom^
á staðinn og ræddi við
og Dario Fo fyrir innan...
Þær létu það ekki-á sig fá,
Kolbrún Halldórsdóttir og Sigrún
Valbergsdóttir, þótt þær stæðu í
rusli upp í hnésbætur þarna í anddyri
Hafnarbíós — þær settust bara upp
á reiðhjól Arrabals leikskálds og
skellihlógu. Enda kannski full á-
stæða^il, þvi Alþýðuleikhúsið er nú
loks komið í gott húsnæði eftir
töluverða hrakninga hingað og
þangað, aðallega hokur í Lindarbæ.
Og þarna fyrir innan er verið að
æfa tvö ný stykki eftir Dario Fo,
Stjómleysingjann sem dó af
Kópavogstíöindi
áuppleiö
I Fleira fólki á laugardaginn var
birtist klausa. þar sem sagt var frá því
að Kópavogstiðindum hefði hrakað
mjög frá þvi að byrjað var að selja þau
i áskrift. Einnig var haft fyrir satt aö
kaupendur væru nú byrjaðir að segja
upp blaðinu. .Starfsmaður blaðsins
hringdi og kvað þessa fullyrðingu meö
öllu tilhæfulausa. Frá áramótum hefði
aðeins einn áskrifandi sagt upp
blaðinu enátta nýir bætzt i hópinn.
Starfsmaðurinn bætti því við að
nokkurs konar millibilsástand liefði
verið á Kópavogsliðindum um lima.
Verið væri að vinna að gagngerum
endurbótum 4 blaðinu. fjölga
blaðsíðum og bæta við efnisþáttum.
Að visu. sagði starfsmaðurinn. var
litið af fréttum i einu töl’ublaðinu. en i
þvi næsta var fréttaflutningurinn
orðinn eðlilegur miðað við |iað scm
áður var.
Icecream? Oh,
he lives there
Þessi gerðist, þegar Ásgrimur Hall-
dórsson (faðir Halldórs þingmannsl
var enn kaupfélagsstjóri á Höfn í
Homafirði.
Bandarikjamaður nokkuð kom á
Höfn að sumarlagi. Heitt var í ve'ðri.
svo að hann snaraði sér inn i kaup
félagssjoppuna og bað um icecream.
Afgreiðslustúlkan. sent ekki var sér
legá sterk I enskri tungu. hugsaði sig
vandlega um. Svo uppljómaðist andlit
hennar og hún svaraði um leið og hún
benti á íbúðarhús Ásgrims.
— Icecream! Oh. he lives there.
Andardráttur
og dauösföll
— Þessi fólksfjölgun í heiminum cr
alveg makalaus. Á hverri mínútu
fæðast hundruð ef ekki þúsundir af
börnum. og i hvert skipti sern ég dreg
andann deyreinhver.
— Hefurðu reynt munnskol?