Dagblaðið - 24.01.1981, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981.
Bokassa með hinni rúmönsku Gabriella
Roumaine árið 1975, einni af
fjölmörgum hjákonum sinum.
sem talið er að fram komi í febrúar,
þegar Roger Delpey, einn af nánustu
samstarfsmönnum Bokassa, birtir
endurminningar sinar, þar sem
fjallað er nákvæmlega um
demantana 200.
í útlegð
Bokassa dvelur nú 1 útlegð á Fila-
beinsströndinni. Honum var steypt
af stóli árið 1979 með aðstoð út-
lendingahersveitarinnar, þegar
d’Estaing sjálfum fannst mælirinn
orðinn fullur. Fall keisarans má rekja
aftur til ársins 1977 þegar hann að
fyrirmynd Napóleons kiýndi sjálfan
sig til keisara í Bangui. Hin hátiðlega
athöfn fór fram í Bokassa-íþrótta-
höllinni við Bokassa-breiðstrætið rétt
hjá Bokassa-háskólanum, steinsnar
frá styttunni miklu af einni af fyrir-
myndum keisarans, hinum steypta
lifstíðarforseta i Uganda, Idi Amin
Dada.
Fyrir krýningarathöfnina keypti
Mið-Afríkukeisaradæmið frá
Frakklandi 5100 viðhafnarbúninga,
35 hersýningahesta, 100 tonn af flug-
eldum, heilan flugvélarfarm af
blómum og hálft annað tonn af
heiðursmerkjum handa boðsgestun-
um við krýninguna. Keisaraskrúði
Bokassa líktist mjög skrúða Napóle-
ons og örlög hans á Fílabeins-
ströndinni minna líka á dvöl franska
keisarans á eynni Elbu á sínum
tíma.
Dauðadómur
bíður keisarans
Bokassa hefur fengið fyrirmæU
um að láta ekkert á sér bera. Óvist er
hvort hann verður framseldur tU hins
nýja Miö-Afríkulýðveldis þar sem
dauðadómurinn biður hans. Þar
skUdi hann eftír sig sárafátæka þjóð,
sem hann sinnti í engu. Fílarnir 60
þúsund, sem í landinu eru, voru
meira virði að hans mati.
„Fílana er að minnsta kosti hægt
að veiða til hágnaðar,” á Bokassa að
hafa sagt einhverju sinni. (Politiken).
✓
Ef íslenskir stjórnmálamenn gerðu
meira að því að kynna sér einföldustu
undirstöðuatriði hagfræðinnar og
blöðruðu aðeins minna þá byggi hér
velmegandi þjóð.
Það var nógu slæmt á sinum tíma
þegar alþýðuflokksmenn höfðu for-
göngu um stórkostlegar vaxtahækk-
anir, að því þéir sögðu til að minnka
ásókn í lánsfé. Þetta erlenda töfra-
bragð átti að draga úr verðbólgunni
og auðvitað átti full atvinna að
haldast. Þaö að Seðlabankinn getur
stjórnað peningaútstreymi bankanna
— og þá gildir einu hve háir vextirnir
eru — virðist hafa farið fram hjá
þessum ágætu krötum. Þeir virðast
heldur aldrei hafa áttað sig á að verð-
bólga hjaðnar ekki við tilkomu okur-
vaxta nema til atvinnuleysis komi.
Nú hefur rikisstjórnin gengið einu
skrefi lengra í vitleysunni og boðað
stranga verðstöðvun. Hvernig sú
ráðstöfun á samleið með okurvöxtum
og fullri atvinnu getur að sjálfsögðu
enginn skilið nema stjórnmálamenn
sem ekki hafa kynnt sér misheppn-
aðar verðstöðvanir víða um heim
síðustu 700árin.
Eðli vaxta
Vextir eru peningar sem ekki eru
fyrir hendi þegar lán er veitt. Þeir eru
væntanlegir peningar í umferð. Ef
þeir koma ekki i umferð þá verður
einhver gjaldþrota þvi vextir kalla á
sífellt meiri þenslu. Bankakerfið er
eina uppspretta peninga og því
verður að sækja þessa nýju peninga í
bankana, þeir koma í umferð í formi
láns sem ber vexti — og þannig koll
af kolli. Því hærri vextir sem þarf
að borga þeim mun hærri upphæðir
þarf að borga í bankakerfið til að
borga til baka.
Hugsum okkur að Viðey sé sjálf-
stætt ríki með 10 ibúa og einn maður
hafi einkarétt á að búa tU peninga og
lána. Segjum að hann láni þessu fólki
1000 krónur svo það geti stundað við-
skipti sín á mUU. En þessi lánardrott-
inn leggur á vextí og krefst þess að fá
1400 krónur til baka. Og vegna þess
að hann er eina uppspretta peninga í
Viðey þá verður fólkið að koma til
hans og fá lánaðar þær 400 krónur
sem upp á vantar. Þær fara í umferð í
formi láns sem ber vexti. Það er alveg
sama hvemig fólkið streöar — allir
peningar í umferð eru skuld. Ef þess-
ir nýju peningar koma ekki í umferð
er augljóst að einhver verður gjald-
þrota og eignir veröa teknar eignar-
námi. Þar á eftír kemur atvinnu-
leysið. Þetta er nákvæmlega það sem
gerist i hvaða þjóðfélagi sem er.
Verðbólga
Verðlag ræðst af hlutfalli vöru og
þjónustu annars vegar og peninga-
magni í umferð hins vegar. Ef pen-
ingamagnið eykst hraðar en vara og
þjónusta skapast verðbólga því fólk
hefur fleiri seðla til að bjóða í svipaö
magn vöru og þjónustu.
Ein öruggasta ieiðin tíl að auka
peningamagn i umferð er að skrúfa
upp vexti og þvinga þjóðina til að
sækja sífellt meira peningamagn í
bankana til aö geta staðið í skiium.
Fyrirtæki og einstaklingar neyðast til
að reikna okurvextina sem kosmað
og verðbólgan magnast. Með öðrum
orðum, það er ekki hægt að ná verð-
bólgu niður með okurvöxtum nema
til hálfgerðs hruns atvinnuveganna
komi.
Víða erlendis, þar sem háir vextir
eru notaðir í baráttunni við verðbólg-
una (með þvi aö gera peninga
„dýra”), er bdnllnis verið að stíla
upp á aukið atvinnuleysi svö ÍÓ!.k
hafi minni fjárráð (peningamagn í
umferð minnkar). Þetta er í sjálfu sér
N
Kjallarinn
JóhannesB.
Lúðvíksson
fáránleg leið til að sigrast á verðbólgu
því færri vinnandi hendur orsaka
rýmun vöru og þjónustu. Þetta er því
aðeins kapphlaup að rýra lifskjörin
hraðar en nemur samdrætti vöm og
þjónustu. Það væri nær að lækka
vexti og auka framleiðsluna og ná
þannig jöfnuði á milli peningamagns
í umferð og vöm og þjónustu,
Verðstöðvun
Þegar stjórnmálamenn segja að
þeir getí gert einhverjum gagn með
verðstöðvunarlögum þá eru þeir ann-
aðhvort iygarar eða börn. Að lög-
leiða verð er svipað og heíla bensíni á
vél og skipa því svo að brenna hægt.
Hækkun á vöru og þjónustu er
aöeins síðasta skreftð i langri þróun.
öll verðbólga byrjar á skrifstofu
bankastjórans og þegar rikisstjórn-
inni er lánað. Vaxtaprósentan segir
til um hve mikið fé þarf að taka út úr
þessum stofnunum í framtiðinni til
að standa i skilum og hvaða áhrif það
hefur á verðlagið. Ef fyrirtæki og
einstaklingar fá ekki þessa verð-
bólgupeninga til að borga okurvext-
ina þá blasir við gjaldþrot og at-
vinnuleysi.
Verð á einstökum vöruflokkum og
þjónustu ræöst af framboði og eftír-
spurn. Þegar stjórnmálamenn ákveða
hvað einhver hlutur á að kosta er
verðið venjulega of hátt eða iágt.
Lambakjöt er niðurgreitt (og því of-
borgað) og lambakjöt er offramleitt.
í Rússladi og Póllandi ákveöa stjórn-
málamenn of lágt verð á kjöti og fólk
verður að standa klukkustundum
saman i röðum tii aö fá nokkur
grömm skömmtuð. Þetta er lögmál,
sem engin ríkisstjórn getur umflúiö.
Jóhannes Björn LúöVÍÍSÍP11
^ „Veröbólga hjaðnar ekki viö tilkomu
okurvaxta nema til atvinnuleysis komi.”
nefnd um skipulag Keflavíkur —
Njarðvíkur og Keflavíkurflugvallar,
Brunamálastofnun, skipulagsstjóra
ríkisins og Jóni Jónssyni jarðfræð-
ingi. Jón hefur manna mest kannað
vatnsforða á Suðurnesjum og segir i
umsögn um „Olíustöð í Helguvík”
eftir að hafa lýst aðstæðum: „Sam-
kvæmt ofansögðu verður ekki séð að
frá þessari fyrirhuguðu oliustöð stafi
nokkur hætta á mengun vatnsbóla
eða grunnvatns, sem notað verði nú
eðaí framtiðinni”.
Að sjálfsögðu er hér reiknað með
að allur umbúnaður yrði í samræmi
við nútíma kröfur. Þá er rétt að
árétta einu sinni enn að allir bæjar-
ráðsmenn í Keflavík og Njarðvík, þar
með talinn Oddbergur Eiríksson sem
Karl Sigurbergsson vitnar til að hafi
aðra skoðun, hafa margítrekað gert
kröfu um að olíuhöfn verði byggð í
Helguvík. Hvað Oddberg varðar má
einnig tninna á að hann hafði meira
að segja bein í nefinu til þess að
standa uppi í hárinu á fiokksforkólf-
um á landsfundi Aiþýðubandalagsins
í svokölluðu Helguvikurmáli.
Afgreiðsla
Helguvíkurmálsins
í báðum bæjarstjómunum var
málið afgreitt mótatkvæðalaust
þegar Helguvík var endanlega valin, f
bæjarstjórn Njarðvíkur með öllum
atkvæðum, þar með talinn fulltrúi
Alþýðubandalagsins. í bæjarstjóm
Keflavikur var tillaga bæjarráðanna,
sameiginlega tíags. 20. marz 1978,
bori.'í. upp með fleiri málum sem
bæjarráo hafði fjallað um. Fundar-
gerðir bæjarráðs frá 20/3, 21/3 og
31/3 voru samþykktar á fundi bæjar-
stjórnar 4. apríl með 9 samhljóða at-
kvæðum. Karl G. Sigurbergsson
gerði fyrirvara um fundargerð frá
20/3 (Helguvík). Hann greiddi ekki
atkv. á móti málinu og gerði enga
bókun sem hann er óspar á að gera i
málum þótt smærri séu. í júli 1980
var haft eftír núverandi utanríkisráð-
herra að hann myndi hefja undirbún-
ing olíustöðvar í Helguvík. Þessi yfir-
lýsing oili miklum úlfaþyt í Þjóðvilj-
anum. Á bæjarstjórnarfundi í Kefla-
vík þann 29/7 var málið rætt og sam-
þykkt samhljóða með 9 atkv. að fela
bæjarráði i samráði við bæjarráð
Njarðvíkur að lýsa stuðningi við
ákvörðun utanríkisráðherra og
ánægju með mikil og góð störf
„tankanefndar”. Á þennan bæjar-
stjórnarfund mæííi fvrir Alþýðu-
bandalagið varafulltrúinn Gylfi Guð-
mundsson.
Stœrð og landgæði
Helguvfkur
Á yíírbórðinu hafa alþýðubanda-
lagsmenn (kommar) néfr.t fyrst og
fremst tvennt sem mælir á mótí olfu-
stöð við Helguvik:
1) að hér sé um stór hernaðarmann-
virki að ræða,
2) að Kefiavík missi dýrmætt bygg-
ingarland.
Varðandi fyrra atriöið mættí
spyrja hvort Alþýðubandalagið
myndi ekki telja olíustöð fyrir NATO
hernaðarmannvirki hvar sem hún
væri staðsett. Stærð Helguvíkur
getur hver og einn sannreynt með því
að leita að henni á íslandskortínu.
Varðandi síðara atriöið þá eru
staðreyndir þær að varnarliöið fengi
aftur 1 km’ af öllu því landi sem ríkið
tók aftur af vamarliöinu 1971 og
seldi Keflavíkurbæ. Þarna er Bergið
hæst, eintóm klðpp og hallar
Kjallarinn
Ólafur Bjömsson
verulega frá sjó. Það er því mjög
óheppilegt til byggingar, holræsalögn
óheyrilega dýr og byggö nakin fyrir
NA-næðingnum sem við þekkjum
svo vel hér. í staðinn losnaði mikið
stærra land og mjög auðvelt til bygg-
ingar, halli aö sjó hæfilegur fyrir
iagnir og’nánast ekki annað en fram-
lengja þær sem fyrir em. Að vísu yrði
skipt á landi i Keflavik fyrir land í
Njarðvík. Flestum er löngu ljóst að
aðeins þrjózkan aðskilur þessi tvö
sveitarfélög og aðeins tímaspursmál
hvenær þau verða sameinuð. Þegar
er meirihluti í bæjarstjórnunum fyrir
áð skipuleggja svæðið sem iosnaði
fyrir sameiginlegan miöbæ. Eftir
sameiningu yröi ekki litið við að
brjóta hábergið undir byggingar
heldur yrði byggt áfram milli byggða
og í átt til Grindavikur. Þar er bezta
byggingariand á Suöurnesjum og í þá
áttina er að vænta flestra atvinnu-
tækifæra, rætist vonir manna um
nýtingu jarðhitans i Svartsengi og á
Reykjanesi. Þetta byggingarland vili
Karl G. Sigurbergsson hringleggja
með olíuleiöslu.
Fjórfjöldun
tankarýmis?
Fram hefur komið að land það sem
NATO á aö fá norðan Helguvíkur er
1 km!. Það var talið hæfilegt land-
rými fyrir tanka sem rúma um 200
þúsund tonn af olium. Hvort talin er
J;örf fyrir að byggja alla þá tanka og
hvenær þeir yróu bySJÖir er að sjálf-
sögðu samningsatriði milli sijó'Pr
valda og forsvarsmanna NATO. Á
það er þó rétt að benda að allt tal um
að hér yrði um fjórföldun á olíu-
birgöum að ræða er villandi f meira
lagi. Vamarliðið geymir hér olíu
viðar en á flugvallarsvæðinu og víðar
eru gamlir tankar sem mikið vantar á
að gengið sé frá að nútímakröfum.
Ekkert hefur verið athugað hverslags
vanda þeir tankar gætu valdið né á
hverjum það kynni að bitna. Með því
að tryggja sér landrými fyrir tanka
sem rúma 200 þúsund tonn er ef tíl
vill hugsað fyrir að geta einnig lagt
það dót niður. Á því verður vafalaust
þörf innan þess tíma sem tekur að
byggja olíustöð í Helguvik og þó fyrr
hefði verið. Hver veit og getur upp-
lýst hver aukning yrði þá á olíu-
birgðarými varnarliðsins?
Erum viö í NATO
eöa ekki?
Ekki fer milli mála að ríflegur
meirihluti íslendinga styður aðild að
NATO og ætla verður að þeim sem
þaö gera sé ljóst að aðildinni fylgja
nokkrar kvaðir. Um þær eigum við
að semja uppréttir. Til þessa hafa
kvaðir Íslendinga fyrst og fremst
bitnað á næstu nágrönnum flugvall-
arins, í Keflavik og Njarðvík. Þar ber
hæst yfirvofandi eyðilegginguvatns-
bóla og hættuástand af löngu úr-
eltum og ónýtum oliutönkum og
leiðslum. Þegar loksins fékkst að
ræða þetta vandamál við ráöamenn
NATO reyndust þeir reiðubúnir til
þess að leysa málið. Sveitarstjórnar-
mönnum í Keflavik og Njarðvík var
og er ljóst aö varnarstöð getur ekki
án oiíu verið. Með einni undantekn-
ingu eru þeir sammála um að olíustöð
i HeiguvíiC iausn sem báöum er sú
hagkvæmasta. Undanték'.’i;.,!®in er
Karl G. Sigurbergsson, sannfærður
kommúnisti.
Hefur nokkrum sem styður NATO
dottið í hug að Karl eða aðrir trúar-
bræður hans ættu að ákveða hvað
séu hæfilegar birgðir af olíum fyrir
NATO á íslandi? Eöa er svo komið
að kommar ráöi öllu hér á landi? Þeir
hafa hirt öll völd í löndum þar sem
þeir hafa átt minna fylgi að fagna.
Árangurinn birtist daglega í fjölmiðl-
um.
Ólafur Björnsson
bæjarráðsmaður, Keflavik.