Dagblaðið - 28.01.1981, Side 6
Sovétmenn saka Bandaríkjaforseta um gáfnaskort:
„Dansleiknum erlokið”
HEWLETTjh^ PACKARD HEWLETT ^ ; PACKARD HEWLETT j MPACKARD HEWLETT PACKARD HEWLETTjh^PACKARD
Einkaumboð á Islandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjónusta STALTÆKI, Bankastr»ti8 ami 27510
Mikil skelfing íbúa Esbjerg í Danmörku:
—fjórtán ára gömul stúlka var f immta fómarlambið hans
Hettumaðurinn svokallaði, sem
valdið hefur mikilli skelfingu í Es-
bjerg og nágrenni, lét til skarar skríða
í fimmta sinn í síðustu viku. Að þessu
sinni varð fjórtán ára gömul stúlka
fyrir barðinu á honum.
Kynferðisglæpamaður þessi hefur í
öllum tilfellum brotizt inn í íbúðir
eftir að hafa kynnt sér aðstæður
áður, að því er virðist, og ógnað
fórnarlömbum sínum með hnífi áður
en hann nauðgar þeim. Hann hefur
hettu yfir höfðinu, þannig að hann
þekkist ekki.
Aðfaranótt síðastliðins föstudags
brauzt hann inn í einbýlishús í útjaðri
Esbjerg og nauðgaði þar fjórtán ára
gamalli stúlku.
,,Ég vaknaði við, að kveikt var ljós
i herberginu mínu. Ég blindaðist af
ljósinu en sá þó mann með hettu.
Hann skipaði mér að leggjast á mag-
ann og tók mig síðan úr náttfötun-
um. Hann beindi hnífi að andliti
mínu og sagði, að ef ég gerði ekki
eins og hann segði þá mundi hann
stinga hnífnum í magann á mér.
Síðan nauðgaði hann mér aftan frá,”
sagði stúlkan.
Eftir að hafa komið fram vilja
sínum skipaði maðurinn stúlkunni að
hafa hægt um sig og láta ekki í sér
heyra. Síðan hvarf hann jafnhljóð-
lega og hann kom. Það var ekki fyrr
en hálftími var liðinn að stúlkan
þorði að hlaupa upp til foreldra sinna
sem hringdu þegar í stað á lögregl-
una, sem stendur enn sem fyrr ráð-
þrota gagnvart kynferðisglæpamanni
þessum.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í fúa-
varðar þverslár fyrir dreifilínur.
Útboðsgögn nr. 81003 verða seld á skrifstofu
okkarfráog með miðvikudeginum 28. janúar
1981.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu okkar 27.
febrúar 1981 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
Rafmagnsveitur ríkisins, Innkaupadeild
„Nú er dansleiknum lokið”, segir í
sovézka blaðinu Literatunaja Gazeta
um hátíðarhöldin kringum innsetningu
Reagans forseta. Blaðið varar lesendur
sína við bjartsýni varðandi forseta-
skiptin og minnir á að dýrðir voru
einnig miklar við innsetningu Carters í
embættið. „Og allir muna fögur orð
Jimmy Carter er hann tók við emb-
ætti”, segir í blaðinu. Ummæli Sovét-
manna í garð Carters hafa sífellt orðið
neikvæðari eftir versnandi sambúð
ríkjanna við innrás Sovétmanna í
Afganistan. Nú keppast fjölmiðlar í
Sovétríkjunum við að taka saman þau
málefni sem Carter hefur mistekizt við.
„Ekki einn einasti forseti Bandaríkj-
anna á seinni tíma hefur haft gáfur til
að fást við vandamál 20. aldar”, segir í
blaðinu. „Og á þetta þó sérstaklega
við um Carter. Hann var ekki viðbúinn
að gegna þessu embætti og ekki bætti
baptistatrú hans úr skák.”
Stjórnartíð Carters er sögð ein mis-
tök frá upphafi til enda varðandi
framkomu Bandaríkjanna við Sovét-
ríkin.
Sovétmenn segja að einnig hafi verið mikið um dýrðir við innsetningu Carters i emb-
ætti, og blaðið Literatunaja varar við bjartsýni varðandi hinn nýja forseta Bandarikj-
anna, Ronald Reagan, sem hér sést dansa við konu sina.
Friðarráðstefna í Helsinki:
SÆNSK STÚLKA REK-
INAF RÁÐSTEFNUNNI
—vegna þess að Rússar hótuðu að ganga út
Sænskri stúdinu, Austra Krastins,
var neitað um þátttöku í ráðstefnu
sem haldin var i Helsinki í Finnlandi í
síðustu viku. Ráðstefna þessi er
alþjóðleg friðarráðstefna sem ung-
menni úr ýmsum löndum halda.
Austra Krastins er formaður lett-
neskrar hreyfingar sem lætur til sín
taka málefni lettnesks fólks, sem er í
útlegð. Rússneskir þátttakendur hót-
uðu að ganga út af ráðstefnunni ef
stúlkan fengi að taka þátt í henni.
Hún ætlaði að taka þátt i
ráðstefnunni sem fulltrúi þessarar
hreyfingar og hafði verið sent bréf á
ráðstefnuna frá þessum samtökum,
þar sem sú áskorun var sett fram að
Rússar færu burt með her sinn frá
Eystrasaltslöndunum, þar sem þessi
svæði ættu rétt á frelsi sínu.
Forstöðumaður hreyfingarinnar
neitar því að rússneskir þátttakendur
hafi haft áhrif á brottvísun
stúlkunnar af þinginu og ástæðan
fyrir brottvísuninni hafi ekki verið sú
að hún veitir þessari hreyfingu
forystu, heldur hafi það verið orð-
sendingin, sem réði úrslitum.
m---------►
Austra Krastins
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Hettumaöurinn
enn á ferðinni
Varaforsetinn trimmar
Heilsurækt er í hávegum höfð i Bandaríkjunum og þar trimma menn sér til heilsu-
bótar enda sýna opinberar skýrslur að færri látast nú þar úr hjartasjúkdómum en
fyrir nokkrum árum. Hér sést hinn nýi varaforseti Bandarikjanna, George Bush, á
hlaupum ásamt hundi sínum.
HREVFlLL
Simi
8 55 22
TRÉSMIÐIR -
VERKAMENN
Trésmiðir óskast strax í innréttingasmiði. Einnig verka
menn vanir byggingavinnu. Uppl. í síma 71730 — 71699
Kvöldsími 23398.
Reynir hf., byggingafélag
Smiðjuvegi 18, Kóp.