Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981. Þórunn Ólafsdóttir frá Fossum, sem lézt 17. janúar, fæddist 31. marz 1890. Foreldrar hennar voru Málfriður Jóns- dóttir og Ólafur Þórarinsson. Frá árinu 1922 bjó Þórunn í Reykjavík og vann einkum við sauma. Árið 1950 fluttist hún til Selfoss og bjó þar þangað til 1979 er hún vistaðist á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði. Þórunn var gift Jóni Guðjónssyni. Gart ar ráð fyrir heogri braytíiagri átt mað vcegu frostí norðan til á land- inu an frostíausu á Suðuriartdi. Viðast varða smáál an sannilaga þurrt á Suð- austurlandi. Klukkan 6 var haogviðri, snjókoma og 0 stíg ( Reykjavfc, hœgviðri, skýjað og —1 stíg á Gufuskálum; norðvestan 2, ál og —4 stíg á Galtar-, vita, heagviðri, skýjað og 2 stíg ó, Akuroyri, suövostan 3, skýjað og 0' stíg á Raufarhöfn, norðaustan 3, slydda og 2 stíg á Dalatanga, suö- vestan 5, skýjað og 4 stíg á Hðfn og suðvestan 2, slydda og 1 stíg á Stór- hðfða. I Þórshðfn var skýjað og 9 stíg, súld og 4 stíg í Kaupmannahðfn, þoka og —6 stíg ( Osló, skýjað og 1 stíg í Stokkhóimi, þoka og 6 stig ( London, þoka og 2 stíg ( Hamborg, súld 09 8 >Ug I Parfs, HelAskfrt og -4! stíg (Madrid og haiðskírt og 10 stíg (. Llssabon. Stefán Jónsson frá Höskuldarstöðum, sem lézt 31. desember, fæddist 8. júlí 1892 á Höskuldsstöðum. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Jóhanna Eiríksdóttir. Veturinn 1911-12 var hann við nám í Hvítárbakkaskóla. Árið 1915 tók Stefán við búsforráðum á Höskuldsstöðum. Stefán sinnti mörg- um opinberum störfum fyrir sveit sína, m.a. var hann í hreppsnefnd 1919—31 og 1938—50, formaður sóknarnefndar 1925—32. Formaður lestrarfélagsins og i stjórn 1918—38, ferjumaður vjð Héraðsvötn 1918—22, einnig var Hann í stjórn sjúkrasamlagsins frá stofnun 1945. Stefán var einn af stofnendum Búnaðarsambands Skagafjarðar. Hann var líka fulltrúi á aðalfundum Kaup- félgs Skagfirðinga. Stefán lagði lika stund á ritstörf, m.a. átti hann sæti í nefnd til söfnunar og undirbúnings út- gáfu Skagfirzkra fræða og í útgáfu- nefnd að Skagfirzkum æviskrám. Stefán var jarðsunginn frá Miklabæ 10. janúar. Þorkell Ármann Þórðarson fulltrúi, sem lézt 20. janúar, fæddist 27. marz 1912 að Vatnskoti í Þykkvabæ. For- eldrar hans voru Þórður Tómasson og Guðrún Brynjólfsdóttir. Þorkell stundaði nám við Héraðsskólann að Laugarvatni. Árið 1914 flutti hann til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Árið 1948 hóf Þorkell störf hjá Reykjavíkur- borg, fyrst sem skrifstofumaður hjá Framfærsluskrifstofu Reykjavikur- GENGIÐ 1 , GENGISSKRÁNING Ferflamanna- j NR. 18-27. JANUAR 1981 gjaldeyrir Einingkl. 12.00 ■-Kaup Sala Sala 1 Bandarfkjadollar 6,230 6,248 6,873 1 Starlingspund 15,042 15,086 16,595 , 1 Kanadadollar 5,238 5,253 5,778 | 1 Dönskkróna 0,9836 0,9865 1,0852 1 Norsk króna t 1,1620 1,1654 1,2819 ' 1 Sœnsk króna I 1,3773 1,3813 1,5194 1 Finnskt mark I 1,5852 1,5898 1,7488 1 Franskur franki l 1,3119 1,3156 1,4472 1 Belg.franki 0,1884 0,1890 0,2079 1 Svissn. franki • 3,3468 3,3564 3,6920 1 Hollonzk florina | 2,7880 2,7960 3,0756 1 V.-þýzktmark ; 3,0260 3,0348 3,3383 1 (tölsk Ifra 0,00637 0,00639 0,00703 1 Austurr. Sch. 0,4273 0,4285 0,4714 1 Portug. Escudo 0,1141 0,1144 0,1258 1 Spánskur peseti 0,0763 0,0765 0,0842 1 Japansktyen 0,03074 0,03083 0,03392 1 (rsktpund 11,318 11,351 12,486 SDR (sórstök dráttarróttindi) 8/1 7,8463 7,8690 ■ * Breyting frá slóustu skróningu. Simsvari vegna gc>ngisskróningar 22190. | 1 FULL SEINT í RASSINN GRIPK) Fréttastofa sjónvarps hefur fengið ýmsar ákúrur undanfarin misseri og líklega verðskuldað. Fréttamennska þar hefur staðnað. Nánast einu sprettimir sem maður man eftir eru þegar Ómar Ragnarsson bregður sér á Frúnni og tekur myndir af náttúru- hamförum ýmiss konar. Slíkan sprett tók Ómar í gær, þegar hann brá sér að Lundi í Lundarreykjadal. Vel sást sú ömurlega aðkoma á bænum eftir að skriða hafði rutt burt útihúsum og drepið búpening. En ekki litist mér á fréttastofuna ef Ómar og Frúin væru ekki til taks. Nýr klippimyndaþáttur fyrir börn tók við af þeim félögum Tomma og Jenna. I sjálfu sér er ekki mikið út á hann að setja og sjálfsagt er hann hollari ungviðinu en barsmíðar þeirra félaga en ég er þó svo ómenningarleg- ur að ég sakna þeirra. Mál Svíans Wallenbergs er nú á allra vörum en fullseint virðist manni í rassinn gripið. Sé maðurinn enn á lífi, þá er væntanlega ekki mikið eftir af honum, andlega eða líkamlega, eftir 35 ára setu í sovézku tugthúsi. Það er hins vegar sjálfsagt að veita manninum nóbel hvort sem hann er lífs eða liðinn. Hann er betur að slíku kominn en flestir aðrir. Óvænt endalok voru óvenju lítið óvænt í gærkvöldi. Þessi annars ágæti þáttur endaði engan veginn. Ingvi Hrafn er yfirleitt með góðar þingsjár. Þó koma þættir hans betur ut ef þingmönnum er ekki sleppt í langar kappræður. Það situr yfirleitt lítið eftir þegar upp er staðið frá slíku spjalli. - JH Hvítabandskonur Aðalfundurinn verður haldinn í kvöld, miðvikudag 28. janúar. á Hallveigarstöðum kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf og myndasýning. Kvenfélag Árbæjarsóknar Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 2. febrúar kl. 20.30. i Safnaðarheimilinu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þorraniatur á mjög vægu verði. Mætið vcl og stundvislega. Alþýðubandalagið Kópavogi — Bæjarmálaráð Fundur verður haldinn i kvöld. miðvikudaginn. 28. janúar, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun Kópavogs. 2. önnurmál. Allir félagar í ABK eru velkomnir. Stjórn bæjarmálaráðs ABK. Frétt frá Vínarborg Austurrísk-íslenzka félagið i Vinarborg opnaði upplýsingaherbergi þar þann 9. jan. 1981. Dr. Björn Sigurbjörnsson flutti erindi um landgræðsluna á Islandi og sýndi myndir. Frú dr. Cornelia Schubrig. ekkja fyrri aðalræðis manns lslands. í Austurríki. gaf allar innréttingar í upplýsingaherbergið. Hr. Helmut Neumann. for maður félagsins. veitti henni húsnæði i tónlistarsKóla sinum. Franz Schubert Konservatorium. Komu um 50 manns og var fólkið mjög hrifið. Er meiningin sú að safna bókum og öðrum hlutum frá íslandi. svo og myndum og blöðum. Upplýsingaher bergið er i 1020 Wiem. Karmeliterplatz I 1/2 og er opiðá fimmtudögum frá kl. 17 til 19. Áskorun til ríkis- stjórnar íslands Á almennum félagsfundi hjá Vörubifreið^stjórafélagi Suðurnesja. sem haldinn var 20. janúar 1981. var einróma samþykkt svohljóðandi ályktun: ..Eins og nú horfir stefnir í verulegt atvinnuleysi hjá vörubifreiðastjórum á Suðurnesjum. í framhaldi af þeirri þróun mála átelur fundurinn harðlega seinagang vegna undirbúnings framkvæmda við byggingu nýrr ar flugstöðvar á Keflavikurflugvelli og mannvirkja gerð varðandi oliubirgðastöð i Helguvík og lifs nauðsynlegra flutninga á oliugeymum varnarliðsinsaf Nikkolsvæðinu rétt við neyzluvatnssvæði Njarð vikinga. Fundurinn beinir þeirri áskorun til rikisstjórnar Lslands að hún hlutist til um að hafizt verði þegar i stað handa við ofangreindar framkvæmdir. Þá varar fundurinn sérstaklega við þeim aðilum. sem hafa reynt aðdrepa málum þessum á dreif og villa fólki sýn varðandi þessi þjóðhagslegu nauðsynjamál. Þar sem framkvæmdir þessar eru sérstakt hags munamál fyrir okkurSuðurnesjamenn lýsir fundurinn yfir stuðningi við áðurgerðar samþykktir bæjar og sveitarstjórna á Suðurnesjum varðandi málefni þess." Ný árgerð af Toyota Toyota. Nýbýlavegi 8 i Kópavogi. sýndi um síðustú helgi nýjustu árgerðirnar af Toyotabilunum. Fjölmenni kom aðskoða bilana. Tónleikar í Norræna húsinu Simon Vaughan heldur Ijóðatónleika i Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30. ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Á efnisskrá verða lög eflir Gricg. Hugo Wolf og Beethoven. aðalkvenhlutverkinu. Freyju, sem hún tók við af Sveinbjörgu Alexanders. sem dansaði fyrstu sýningarnar. Komið hafði til tals að taka upp þessa sýningu i sjónvarp og geyma þannig fyrir áhorfendur frani tiðarinnar. en nú hefur sjónvarpið fallið frá þeim á formum af tæknilegum ástæðum. Sýningarnar nú i vikunni á miðvikudag. laugardag og sunnudag verða þannig siðasla tækifærið fyrir þá. sem ekki vilja láta þennan menningarviðburð fram hjá sér fara. 2. sýning á Plútusi Hið nýstofnaða Brciðholtslcikhús frumsýndi sl. mið vikudag silt fyrsta vcrk og cr það Plúlus cflir Arislóf anes. l.eikstjóri sýningarinnar cr Gcir Rögnvaldsson. Aðsókn var nokkuð góð og voru áhorfendur ánægðir mcð sýninguna. Næsta sýning á Plútusi verður ú sunnudagskvöld og hefst kl. 20.30. Miðapantanir crti i síma 73838 alla daga. sýningardaga frá kl. 17. Brcið holtslcikhúsiðcr i Fellaskóla og ætli ekki að vcra crfiti fvrir fólk að komast |iangað þó cnginn sé billinn þvi lcið 12 frá Hlcmmi stan/ar bciht lyrir ulun skólann og lcið 13 fer frá 1 ækjartorgi og stan/ar liku beint fyrir utan skólann. m I GÆRKVÖLDI Tónleikar Spilakvöld Kvenfélag Fríkirkjusafn- aðarins í Reykjavík Spila- og skemmtikvöld verður haldið fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30 að Hótel Sögu. Lækjarhvanimi og er það fyrir allt safnaðarfólk og gesti þess. Næsti1 félagsfundur kvenfélagsins verður mánudaginn 2. febrúar í Iðnó uppi. Leiklist Síðustu forvöð að sjá Blindisleik Núna um helgina verða síðustu forvöð að sjá hina rómuðu sýningu Þjóðleikhússins á Blindisleik eftir Jón Ásgeirsson og Jochen Ulrich. Blindisleikur. sem var jólaverkefni leikhússins að þessu sinni. hefur hlotið frábærar viðtökur og þykir þessi fyrsti hcilskvölds ballett okkar magnað leikhús verk. Sýningarnar hafa verið mjög vel sóttar. en geta hins vegar ekki orðið fleiri. þar eð gestirnir tveir. Michael Molnar og Conrad Bukes. sem fara með aðal karlhlutverkin verða þá að hverfa af landi brott vegna annarra verkefna.sem biða þeirra. Islenzk dansmær. Ingibjörg Pálsdóttir ..sló í gegn" i borgar og síöar sem fulltrúi. Hafði hann lengstan starfsferil að baki allra starfsmanna Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Árið 1950 kvæntist Þorkell Ólöfu Kristjánsdóttur og áttu þau einn son. Árni Þórir Hall, Flókagötu 11, sem lézt 21. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. janúar kl. 13.30. Magnús Magnússon verkfræðingur, sem lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 21. janúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. janúar kl. 13.30. Ferdaiög Útivistarferðir Flúðir, Hrunamannahreppi á föstudagskvöld. Góð gisting. hitapottar. Göngufcrðir. kvöldvaka. þorra blót. Fararstj. Jón 1. Bjarnason. Farseðlar á skrifst. Lækjarg. óA.simi 14606. ttgagk ^tiíií fciiiiiÉyáfytfjitTíiHg

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.