Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981. DB á ne ytendamarkaði Bókhaldið áramótaheit: r MEÐALTAL FYRIR ARK) NAUDSYNLEGT Jóhanna Harðardótlir ritar okkur cftirfarandi línur með scðlinum sfnum: Ég óska ykkur gæfuríks árs og vona að þið eigið eftir að skila okkur áskrifendum mörgum góðum neyt- endasíðum. í leiðinni vil ég þakka ykkur fyrir allt gott á árinu sem nú er horfið þó bókhaldstölur desember- mánaðar séu enn í fersku minni. Það er núna liðið ár síðan ég byrjaði að senda ykkur þennan mánaðarlega pistil vegna áramóta- heits sem ég strengdi, en nú er ég Reglugerðin þverbrotin: Brómat í hveiti þrátt fyrir bann öll aukaefni, önnur en C-vítamín, eru samkvæmt reglugerð númer 250 frá 1976 bönnuð í hveiti á íslandi. Þrátt fyrir það er nær allt það hveiti sem flutt er inn með aukaefninu brómati sem margir halda fram að sé hættulegt sé þess neytt í ríkum mæli. Að sögn Odds Rúnars Hjartar- sonar dýralæknis og heilbrigðisráðu- nauts er eina undantekningin í reglu- gerðinni sú að brómat má vera í hveiti sem sérstaklega er flutt inn til kexgeröar. í hveiti sem ætlað er í brauð er eina efnið sem leyfilegt er, askóbínsýra eða hreint C-vítamín. RÍlsburys .8. m \xxxx.y s enricheð FLODR Á þessari algengu hveititegund frá Bandaríkjunum stendur stórum stöfum ,,all purpose bleached” sem á hinni hlið pokans er þýtt „fullhreinsafl”. Þetta þýðir I raun afl í hveitið hefur verið bætt brómati, 'sem er bannaö, til þess að það lyfti sér betur, auk þess sem það hefur verið klórþvegið sem einnig er bannaö. -DB-mynd Bj. Bj. Brómatið og askóbinsýran valda því að brauð úr hveitinu lyftist betur. Hveiti sem i hefur verið bætt brómati eða öðrum aukaefnum, svo sem benzóýiperoxíð, og klórdíoxið sem einnig eru bönnuð er almennt kallað bieikt. Það hveiti sem við fáum frá Bandaríkjunum er allt bleikt og sumt af því sem við fáum frá Svíþjóð. Hins vegar er hægt að fá óbleikt hveiti frá Sviþjóð, t.d. hjá Sambandinu. DB er kunnugt um nokkra bakara, sem flytja sérstaklega inn óbleikt hveiti til að baka úr. Andstæðingar brómatsins halda því fram að það safnist fyrir í líkamanum og valdi sjúkdómum í lifur, milta og rauðum blóðkomum og langvarandi notkun lömun og dauða. Oddur Rúnar sagði eitur- efnanefnd vera að kanna það mál núna. Bráðabirgðaskýrsla lægi fyrir en miklar rannsóknir væru enn eftir. Ástæða væri til að ætla að brómatið hefði ekki áhrif nema í mjög stórum skömmtum en í hveitinu væri það aðeins í hverfandi mæli. Manneldis- nefnd hefur einnig verið falið að kanna skaðsemi brómatsins en niður- stöður hennar liggja ekki fyrir enn sem komið er. í Danmörku og í Noregi er brómatið bannað sem og hér. Í Svíþjóð og Bandaríkjunum er það hins vegar leyfilegt og sést bezt af þessu að menn greinir á um hættuna af því. Víðast í Evrópu á fólk völ á bæði bleiktu og óbleiktu hveiti í mun meira mæli en hér og er hveitið jafnframt stimplað með síðasta söludegi. Hér er hins vegar ekki dags- stimplun á hveitipokum. -DS. orðin svo „rútíneruð” í bókhaldinu að mér dettur ekki annað í hug en að halda því áfram. Þetta hefur hjálpað mér geysilega við að fylgjast með eyðslunni, jafnt í nauðþurftir sem annað. Það gladdi mig að sjá að þið voruð búin aö draga út verðlauna- hafa fyrir þessa mánuði sem eftir voru og ég hlakka til að lesa viðtöiin við systur mínar í bókhaldinu þegar þar að kemur. Eiginlega mæli ég með að þið strengið þess áramótaheit að draga út verðlaunahafa reglulega, það væri muti skemmtilegra og eðlilegra. En nóg um það. Hér er uppgjörið fyrir desember og ég verð að viður- kenna að liðurinn „annað” er meira og minna í molum i þetta skiptið, ég meðaltal ársins í matarliðum fyrir hverja fjölskyldustærð, þar kemur út mjög raunhæf tala. Maður kaupir kannski í frystikistuna einn mán- uðinn rándýran mat og borðar hann næstu 3—4 mánuði. Minn reikningur hefði t.d. verið hærri í desember ef ég hefði ekki átt nokkuð af mat í kistunni. En ég véit að þið hafið í mörgu að snúast svo þetta gæti reynzt erfitt. Kær kveðja. Svar: Kærar þakkir fyrir bréfið, Jóhanna og gleðilegt ár. Alltaf er jafn gaman að heyra frá þér og þeim hinum, sem senda okkur reglulega línu. Okkur hér á Neytendasíðunni finnst við eiga orðið góða vini um allt ætluðum við sannarlega að vera með þetta fyrr á ferð og veita vinningana fyrr jól, sem nokkurs konar jóla- gjafir frá okkur. En þá þurfti endilega að verða ófært um allt landið með þeim afleiðingum að þetta dróst úr hömlu. Vitið er ekki meira en guð gaf segir annað máltæki svo ég sé nú virkilega spök. En okkur datt satt að segja ekki alveg strax í hug að auðvitað þyrftum við ekki að fara með gjafirnar sjálf til fólksins, þó það væri vissulega það sem okkur langaði mest til. Við eigum orðið af- bragðs fréttaritara í hverju plássi sem í þetta sinn tóku af okkur ómakið. Hafi þeir þökk fyrir. En þarna misstum við af samtals fjórum tækifærum til þess að hitta penna- vini okkar sem okkur finnst við hafa Anna Bjarnason reiknar þarna út meðaltal á fjölskyidustærð i landinu i heild. Bezt að gleðja Jóhönnu og fleiri með þvi að Anna cr komin heilu og höldnu til landsins eftir gott frí og er væntanleg til vinnu upp úr mánaðamótum. DB-mynd HV. er hér um bil viss um að þar hefur eitthvað gleymzt. Matarliðurinn er hins vegar réttur, og ég er bara ánægð með hann miðað við að jólin eru jú alltaf dýr. Mig langar að biðja ykkur, þ.e.a.s. ef það er hægt, að birta Raddsr neytenda Akranes: Búðimar með næsta svipað verðlag VERDKÖNNUN 24.11.80. Vörutegund: Vigt: Einars- búó Kaup- félag Laugar- bakki Skaga- ver Slátur- fálag Sykur, (Dansukker) 2 kg 1940 2128 1955 1945 1950 Flórsykur,(Dansukker) 1/2 kg 585 617 640 - 662 Sirkku molasykur 1 kg 1242 1377 1172 1155 1245 Pillsbury's hveiti 5 lbs 1160 - 2246 1160 1160 Robin Hodd hveiti 5 lbs - 1207 - - 1176 Pama hrísmjöl 350 gr 381 492 605 550 325 River Rice hrísgrión 454 gr 430 482 479 430 420 Solgryn haframjöl 950 gr 922 - 1001 915 925 Kellogs corn flakes 375 gr 1694 1657 1604 1595 - Coco Puffs 340 gr 1545 1477 1478 1555 1560 Islenskt matarsalt, Katla,fínt 1 kg 4 54 478 484 - - Nezo borósalt 750 gr - 489 - 515 - Royal lyftiduft 450 gr 930 941 945 930 870 7older. Lye 's sýr'óp 500 gr 1660. 2296 - 2505 2500 Roval vanillubúiingur 90 gr 260 255 244 255 228 Maggi sveppasúpa 65 gr 307 293 315 315 305 Vilko sveskjugrautur 185 gr 670 640 - - 627 Nesquick kakómalt 800 gr 3211 - - 3205 3205 Cuick kókómalt 906 gr 2335 - 2346 2250 - Melroses te 40 gr 494 432 509 460 495 Holts mjólkurkex 250 gr 390 - - - - Frón mjólkurkex 400 gr 639 703 654 540 690 land, suma þeirra höfum við þó aldrei séð. Þetta með áramótaheitin. Það vildi ég að fleiri strengdu slik heit sem þú, því svona þér að segja eru nokkrir af þeim sem lengi hafa sent okkur seðla farnir að slá örlítið slöku við. Annríkið í kring um jólin hefur þar uggiaust ráðið miklu svo og þær geigvænlegu tölur sem út komu þegar farið var að reikna allt saman. Vegurinn til heljar er varðaður góðum áformum segir máitækið. Og það vantar hvorki góð áform eða ára- mótaheit hér á síðunni með það að afhenda vinningana regluiega. En stundum er eins og allt leggist á móti manni. Tíminn flýgur áfram á slíkum ógnarhraða að áður en við vitum hvaðan á okkur stendur veðrið erum við í rassi með allt saman. í þetta sinn þekkt lengi án þess að hafa nokkru sinni séð þá. Það verður ekki á allt kosið í þessu lífi. Einhvern næstu daga förum við einmitt að reikna út meðaleyðslu síðasta árs. Við eigum ennþá von á nokkuð fleiri seðlum og ætlum að bíða svona framundir mánaðamót eftir þeim. En af þeim ástæðum, sem þú rekur, Jóhanna, er einmitt á- ríðandi að gera slíkt ársuppgjör. Því er hver seðill sem okkur berst færður inn á tveim stöðum tii þess að auðvelda ársuppgjörið. Annars vegar flokkum við þá eftir fjölskyldustærð og hins vegar eftir heimabyggð send- anda. Með þessu móti fæst einhver mynd af landinu öllu. Þakka þér að lokum fyrir bréfið og lifðu heil. Dóra. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega scndiö okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaöar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í desembermánuði 1980. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m uiíi\ i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.