Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 28
Verkakonur senda atvinnumálanef nd Suðumesja tóninn vegna samþykktar hennar
um batnandi ástand í atvinnumálum á svæðinu:
„KOLD KVEÐJA TIL
ATVINNULAUSRA”
fiýálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 28. JAN. 1981.
Verðbólga
sfðasta árs
varð 59,75%
Verðbólgan varð 59,75 prósent á
árinu 1980, að sögn Klemens
Tryggvasonar hagstofustjóra. Þetta
varð hækkun á vísitölu fram-
færslukostnaðar frá ársbyrjun til árs-
loka. Verðbólgan árið 1979 var með
sams konar reikningi öllu meiri, eða
60,78 prósent.
Verðbólgan sedcli áfram með
gifurlegum hraða slðustu tvo mánuði
siðasta árs. Hækkun vlsitölu fram-
færslukostnaöar frá 1. nóvember til
1. janúar var 12,49 prósent. Slik
hækkun á tveim mánuðum sam-
svarar 102,6 prósent hækkun á ári, ef
húnhéldi áfrarn.
Saiukviumt bréðahirgðalögunum
um áramótin verða verðhækkáhir
siðustu tvo mánuði ársins 1980 ekki
bættar i veröbótum 1. marz, he|dur
var vísitalan sett á 100 um áramótin.
f>ó segir í bráðabjrgðalögunum, að
skerðing veröbóta 1. marz skuti ekki
vera meiri en 7 prósent, miðað viö
það semellahefðiverið. -HH.
Mikið vatn á vegum
eftir leysingar í gær
Vlða um land urðu skemmdir á venum eða þeir iokuðust veftna vatnavaxtu í
ieysinnunum i gcer. Í Borgarfirði, þar sem þessar myndir voru teknar, var mikið ratn
á vegum. Við llvítárvelli fór vegurinn nœr á kaf. í Norðurárdai flwddu tvær ár yfir
yeginn, þannig að hann tepptist um tíma og Borgarfiarðarhraut lokaðist fyrri partinn
I gterdag skammtfyrir neðan Hest, þar sem Grímsáflæddi inn á veginn og skildi eftir
jukahrunnir. Seinni hluta dags sjatnaðiflóðið í Grtmsá og þá var stærri myndin tekin.
DB-myndir: Sig. Þorri.
Reykjavík
íþróttamaður Norðurlanda
verður útnefndur hér í Reykjavík um
hádegisbilið á föstudag. Er þetta i
fyrsta skipti sem kjör hans fer fram
hérlendis. Formenn samtaka í-
þróttafréttamanna á öllum Norður-
iöndunum munu koma saman á
föstudagsmorgun og verður kjörinu
síðan lýst um hádegið.
Það er Volvo-fyrirtækjð. sem
stendur fyrir kjöri þessu og hefur svo
verið um nokkurra árá skeið.
Undanfarin ár hafa skíðajöfurinn
Ingemar Stenmark og tennis-
snillingurinn Björn Borg skipzt á um
að hirða verðlaunin. Volvo-
umboðið, Veltir hf., er fram-
kvæmdaaðili kjörsins hérlendis. -SSv.
FunduríVerðlagsráði:
Átta hækkun-
arbeiðnir
ræddar
Á fundj Verðlágsráðs kl. 15 i dag
verða teknar fyrir ýmsar hækkanir,
sem fjalla átti um á gamlársdag, en
var frestað. Þar á meðal er brauð-
verðið, en það hefur verið mikið um-
fjöllunarefni siðustu vikur. Bakarar
hafa farið fram á 23,8% hækkun á
brauðum er heyra undir verðlags-
ákvæði og er það hækkun frá aug-
lýstu brauðverði. Hins vegar hafa
bakarar ákveðið sitt brauðverð sjálfir
og fara fram á 9,2—13% hækkun á
sínuólöglega verði.
Þá hafa ölgerðir farið fram á
24,2% hækkun ágosi og20,9% á öli.
Kvikmyndahúsin hafa farið fram á
að miðaverð á almennum sýningum
hækki úr 1600 krónum gömlum i
2000 kr. Þá hcfur einnig verið óskað
eftir hækkunum á innanlands-
fargjöldum, smjörliki og miðaverði
sérleyfishafa og Landleiða á milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Björgvin Guðmundsson sagði í
samtali við DB í morgun að ljóst væri
að strangri stefnu yrði fylgt i af-
greiðslu þessara mála og aðhalds
gætt.
Þá verður einnig á fundinum rætt
um stefnu rikisstjórnarinnar í
verðlagsmálum vegna bráðabirgða-
laganna 31. des. Hvaða áhrif þau lög
hafa á Verðlagsráð og hvernig beri að
vinnaéftirþeim. -ELA.
Atvinnumálanefnd Suðurnesja lét
frá sér fara plagg í fyrradag þar sem
dregið er úr að atvinnuástandið á
svæðinu sé eins slæmt og af er látið.
Þannig hafi 49 manns verið á at-
vinnuleysisskrá í Keflavík föstu-
daginn 23. janúar, en í vikunni
þar áður 88 manns. Útlit sé fyrir að
atvinnuleysið verði úr sögunhi að
mestu eða öllu leyti, þegar vertíð
hefst. Þá upplýsir nefndin að 9 séu
skráðir atvinnulausir í Njarðvík, 2 í
Garðinum, 4 í Vogum en enginn í
Grindavík, Sandgerði og Höfnum.
-............
Sérstaklega er tekið fram að margir
vörubílstjórar séu i hópi at-
vinnuleysingja.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkakvennafélags Keflavíkur og
Njarðvíkur tók óstinnt upp þennan
boðskap atvinnumálanefndar Suð-
nesja og „lýsir furðu sinni” á
honum. Forysta verkakvennafél-
agsins ræddi málið á fundi í fyrra-
kvöld og segir fundarsamþykkt að
þetta þyki „heldur köld kveðja til
þess fólks sem gengið hefur at-
vinnulaust undanfarnar vikur”.
Vitnað er í skýrslur Vinnumiðlunar
um að 30% meirá atvinnuleysi sé í
Keflavik í upphafi ársins en var árið
1980. Skýringu á fækkun at-
vinnulausra milli vikna í janúar sé að
finna í því að fólk hafi leitað í önnur
byggðarlög eftir atvinnu. Einnig hafi
konur fengið synjun um at-
vinnuleysisbætur vegna þess að
tekjur maka reyndust of háar
(tekjumarkið er 67 þús. nýkrónur,
6.7 milljónirgkr. síðustu 12mánuði).
Konur sem urðu af bótum vegna
þessa skráðu sig ekki næstu viku á
eftir — og af þeim sökum lækkaði
tala atvinnulausra á pappirnum en
var sú sama í raunveruleikanum.
Stjórn og trúnaðarráð Verka-
kvennafélags Keflavíkur og
Njarðvíkur bendir ennfremur á, að í
atvinnumálanefnd Suðurnesja, sé
enginn fulltrúi verkalýðsfélaganna og
fulltrúi Keflavíkur sé einn, Steinþór
Júlíusson bæjarstjóri.
„Atvinnumálanefndin kom þrisvar
saman á liðnu ári og hefur aldrei gert
tillögur í atvinnumálum á Suðurnesj-
um,”segjaverkakonur. -ARH.
INFLUENSA LEGGUR
LANDSMENN í RÚMIÐ
-1-
Margir landsmenn verða að þola
það þessa dagana að liggja í rúminu
nótt sem nýtan dag með háan hita,
höfuðverk og beinverki. Þykir ýmis-
legt benda til að hér sé á ferðinni
inflúensa. Farsóttir af því tagi gera
okkur lífið leitt reglulega á 2ja—3ja
ára fresti, gjarnan kenndir við fjar-
læga staði og lönd: Rússland,
Ástralíu, Hong Kong.
Rannsóknarstofa Háskólans er
með sýni í ræktun til nákværnrar
greiningar á veikinni og ættu niður-
stöður að liggja fyrir síðar í vikunni.
Veikin hefur lagt fjölda manna í
rúmið á höfuðborgarsvæðinu, Akur-
eyri og víðar um landið. Heimir
Bjarnason aðstoðarborgarlæknir
sagði í samtali við Dagblaðið i
morgun að yfirgnæfandi líkur væru á
að hér væri komin inflúensa, veikin
lýsti sér þannig. Einkenni veikinnar
er að meðgöngutiminn er stuttur.
Aðeins líða 1—2 dagar frá því menn
smitast þar til þeir veikjast og tekur
flesta 3—6 daga að ná hreysti á ný.
„Aðalatriðið er að láta sér batna
og taka það róléga,” sagði Heimir.
Hann sagði ennfremur að veikin væri
þegar orðin útbreiddari en svo að
ónæmisaðgerðir næðu tilgangi sínum
nema að takmörkuðu leyti.
Ólafur H. Oddsson héraðslæknir á
Akureyri sagði heimilis- og vakt-
lækna þar um slóðir verða vara við
„veiki sem líkist því sem er í Reykja-
vík”. Ólafur hafði ekki frétt af mikl-
um forföllum á vinnustöðum i
bænum, en að veikin hafi herjað tals-
vert áskólanema. -ARH
—atvinnuleysingjum fækkar á pappímun en ekki í raunveruleikanum