Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1981. 27 Utvarp Sjónvarp ij ÚR SKÓLALÍFINU - útvarp kl. 20: OPNISKÓLINN í FOSSVOGI frábrugðinn öðrum skólum Fossvogsskóli verður kynniur í þætti Kristjáns E. Guðmundssonar, Úr skólalifinu, sem er á dagskrá útvarps i kvöld. Fossvogsskóli var allt fram á siðasta vor rekinn sem tilraunaskóli. Var þar gerð tilraun með hinn svokallaða opna skóla en það er skólakerfi ólikt hinu fastbundna bekkjakerfi. Opni skólinn er ekki eins fastbund- inn og bekkjakerfið. Kennsla fer aðal- lega fram í hópum og er aðalmark- miðið að fá sem mest út úr hverjum nemanda. Er reynt að miða kennslu hvers einstaklings fyrst og fremst við getú hans og reynt að laða það bezta fram hjá honum. Að sögn Guðlaugar Þórðardóttur skólaritara í Fossvogsskóla er mikil áherzla lögð á að nemendur geti tjáð sig. Er hver nemandi reglulega látinn koma fram fyrir stóran hóp nemenda og flytja eitthvað sem gjarnan tengist námsefninu. Sem fyrr sagði er Fossvogsskóli ekki lengur tilraunaskóli en hann er eftir sem áður opinn skóli. - KMU AFANGAR - útvarp kl. 20,35: „ÓTVÍRÆTT í HÓPI MERKUSTU ROKK- HUÓMSVEITA BRETLANDS” — segir Guðni Rúnar Agnarsson um hljómsveitina Wire sem kynnt verðuríkvöld Guðni Rúnar og Ásmundur, umsjónarmenn Afanga. Áfangar, þáttur þeirra Guðna Rúnars Agnarssonar og Ásmundar Jónssonar, eru á dagskrá útvarps í kvöld. Að þessu sinni verður fjallað um hljómsveitina Wire sem einnig var kynnt í síðasta þætti. ,,Það hefur lengi verið á döfinni hjá okkur að kynnaþessa hljómsveit og ástæðan fyrir því að við gerum það núna er ekki sizt sú að söngvari hljómsveitarinnar Colin Newman, er nýbúinn að gefa út sólóplötu,” sagði Guðni Rúnar Agnarsson í samtali við DB. „Hljómsveitin Wire er ótvírætt í hópi merkustu rokkhljómsveita Bret- lat.ds síðustu ára. Hún kom fyrst fram árið 1976 en ekkert hefur heyrzt frá henni í heilt ár. Engu að síður er húnekkihætt,” sagðiGuðni. í samtali við hann kom einnig fram að Wire hefur gefið út þrjár stórar hljómplötur. „Þær sýna allar mjög mikla þróun í tónlistinni, í átt frá fyrri rokktónlist sem má að ýmsu leyti kenna við pönk. Þó er ekki hægt að segja að Wire hafi nokkurn tím- ann verið pönkhljómsveit því hug- inyndir þeirra og viðhorf fara ekki saman við pönkið,” sagði Guðni Rúnar Agnarsson. - KMU Mikil áherzla er lögö á að nemendur geti Ijáð sig frammi fyrir öðrum í opna skólakerfinu í Fossvogsskóla. DB-mynd: Höröur. Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi ASÍ. VINNUSLYS — sjónvarpkl. 21,55: Orsakir og afleið- ingar _ vinnuslysa — rættvið aðila sem tengjast málinu Síðast á dagskrá sjónvarps i kvöld er fyrri myndin af tveimur sem sýndar verða í sjónvarpinu um vinnuslys. Verður síðari myndin sýnd 11. febrúar nk. en þær voru áður á dagskrá í maí 1979. Fjallað verður um orsakir vinnuslysa og afleiðingar þeirra og rætt við fólk sem slasazt hefur á vinnustað. Einnig verður rætt við öryggismálastjóra, trúnaðarlækni, lögfræðing, verkstjóra og trúnaðarmenn á vinnustöðum. Haukur Már Haraldsson, ritstjöri Vinnunnar, er umsjónarmaður þáttar- ins. Nýlega gaf Alþýðusamband íslands út bækling um vinnuvernd og sá Haukur Már um útgáfu hans. Bæklingurinn er ætlaður til kynningar á lögum sem Alþingi setti í fyrra um að- búnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. ÍS STILL Esslingen lyftarar uppgerðir frá verksm. Til afgreiðslu nú þegar. Rafmagns: 1,5 t, 2 t, 2,51 og 3, tonna. Disil: 3,51,41 og 6 tonna. Greiðslukjör. STILL einkcumboð á íslan Ji 1^1 K JÓNSSON & CO. HF. Hverf igötu 72, sími 12452 og 26455. Breiðholts- leikhúsið Gleðileikurinn PLÚTUS í Fellaskóla 3. sýning í kvöld kl. 20.30. Miðapantanir alia daga kl. 13 til 17 í síma 73838. Miðasalan opin sýningardaga kl. 17 í Fellaskóla. 20" 8.700 8.265 22" 9.450 8.978 26" 11.225 10.660 OONVARPSBUÐIH 1X2 1X2 1X2 21. leikvika — leikir 24. janúar 1981 Vinningsröð: X1Í-Xlf-1l2-XlX 1. vinningur: 12 réttir - kr. 69.415.- 6711 2. vinningur: 11 réttir - kr. 3.305. 3827 10390 12810 35959(2/11)+ 3839 12162 25526+ 41003 Kærufrestur er til 16. febrúar kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrif- stofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, e/ kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK -KMU

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.