Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 16
Jóhannsf" FÓLK M" „Það var fremur dæm aðsókn. (íangað til sagt var frá sýningunni í sjónvarpsþættiníim Á döfinni. Siðan hefur fólk streymi hingað," sagði Hans Jóhahnsson er blaðamaður DB liitti hann að máii i Ásmundarsal. Þar sýnir hahn handverk sitt, fiðlur og efni og áhöld seih þarf tií að srtilða slika gripi. Hans nam fiðlusmíði I Englandi og er liltölulcga nýkominn heim. Hafliði Hallgrímsson sellóleikarí benti mér á skólann scm ég nam síðan í. Þaðsóttu 150 manns um inngöngu og lólf komust inn,"sagði Hans. Að þriggja ára smíðanámi loknu ákvað hann að koma frekar heim en aðfá sér vinnu viðfiðluviðgerðir. „Ég er með þessari sýningu að kynna sjálfan mig og verkið. Einnig ætla ég að reyna að vinna upp markað í Evrópu og Ameríku," sagði Hans. „Nei, ég hcf enga fiðlu scll ennþá. cn fengið margar fyrirspurnir og vanga veltur. Það tekur dálítinn tíma að komast á markaðinn. Fiðlurnar fjórar. sem ég sýni hér. hef ég verið að Ijúka við síðan ég kom heim í sumar.” — Hafa fidluleikarar liiid á sýntnguna? „Já, það liafa margir komið. Guðný Guðmundsdóttir var til dæmis viö stödd opnun sýningarinnar og prófaði allar fiðlurnar. Ég held að henni liafi líkað þær vel. Þá hafa trésmiðireinnig luiðinn og alls konar fólk sem hefui áhuga á smlðum. — i’urfa /idlusmldlr ad kunna ad splla áfldlu? „Já. ég lel nauðsynlegt að fiðlu smiðir geti náð tón." svaraði Hans. „Þeir þurfa ckki að vcra tæknilcga færir en hafa einhvcrja gctu. Við smíðarnar þarl' maður að fikra sig á fram. Hans Jóhannsson sagði. að fiðlur hans kostuðu um 15.000 krónur hvcr. Ein. barrokfiðla. er þó aðeins dýrari. — Hann var að lokum spurður hvort námið gcrði honum kleift að smíða önnur hljóðfæri, til dæmis gítara. „Já. ég ætti að gcta það.” svaraði hann. „Það cru sömu handlökin og við gitarsmiðarnar. Ég hef smíðað lág fiðlur og sclló og verið bcðinn um að smíða gigiu. Ég er ekki endilcga bundinn við fiðluna cina, en hef mesl gaman af henni. Hún krefst mcsts al' smiðnum." -ÁT- DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981. Rock ’n’ roll danskeppni að hefjast í Hollywood: „ Vildum prófa eitthvað annað en diskókeppni * * — segir Vilhjálmur Ástráðsson plötusnúður Þeyr slær upp hljómleikum á Sögu Gestur kvöldsins verður Jói á Hakanum Afraksturinn af te/inpum HAsmanna h/Jómsveitarinnar Þeys undanfarnar vikur kemur I ijós á hljómleikum I Súlnasal Hótels Sögu i kvöid. Þetta er I fyrsta skipti sem hljómsveitin kemur fram eftir að Þorsteinn Mugnússon gltarlcikari gekk til liðs við hana. — Auk Þeys kemur fram spunahljómsveitin Jói á hakanum. Hans Jóhannsson prófar eina affiðlum slnum, þá nœstyngstu. Við smlðarnar eru notuð sömu handtök og verkfœri ogfyrirþrjú hundruð árum. DB-mynd: Einar Ólason. Litt sveifla á dansgól/inu i llollywood. Aðsögn Vilhjálms Astráðssonar á rock 'n'roll tónlist vaxandifylgiaðfagnaþar. l.jósm.: Arinbjörn Sigurgeirsson. ,,Ég get satt að segja enga grein gert mér fyrir þvl hvort við fengjum nokkra þátttakendur. Nú hafa ein tiu pör skráð sig og ennþá eiga einhverjir vonandi eftir að bætast í hópinn,” sagði Vilhjálmur Ástráðs- son plötusnúður í diskótekinu Hoilywood, er hann var spurður um rockn ’n’ roll danskeppnina, sem hefst þar annað kvöld. — En hvers vegna rokk-keppni? „Jú, ég held að allar þessar diskókeppnir séu orðnar dálítið þreyttar og okkur fannst rétt að breyta til. Kveikjan að þessari hug- mynd fæddist þegar ég sá myndir frá svona rokk-keppni í sjónvarps- fréttunum fyrr í vetur. Þarna voru teknar heljarmiklar sveiflur, ekki síður en í diskóinu,” sagði Vilhjálmur. „Eftir að ákveðið var að efna til rokkkeppninnar byrjuðum við að spila sífellt meira og meira af rokktónlist í diskótekinu. Hún fékk hálfdræmar viðtökur fyrst i stað, en nú er fólk farið að dansa af krafti, svó1 að það má allt eins búast við því að rokksyrpur veröi fastur liður á al- mennum dansleikjum í framtíðinni.” Fyrsti hluti rock ’n’ roll dans- keppninnar verður annað kvöld, sá næsti á sunnudagskvöldið, þriðji hlutinn á fimmtudaginn þar á eftir. Parið sem sigrar fær að launum ferð til New York. önnur, þriöju og fjórðu verðlaun verða fatnaður frá verzluninni Karnabæ. Dómarar í keppninni verða allir þjóðkunnir rokkarar. Fyrst skal fræg telja Sæma rokk og Diddu. Þá verður iGuðlaugur Bergmann í dómarasæti ásamt Brynju Nordquist og Erlu iHarðardóttur. Fatauppboð Auk danskeppninnar á sunnudaginn kemur verður fitjað upp á sérstæðri nýjung í Hollywood. Þá sýnir flokkur frá Model 79 föt frá Karnabæ. Að sýningunni lokinni verða fötin boðin upp og seld hæst- bjóðendum. Uppboðinu stjórnar Þorgeir Ástvaldsson. -ÁT Flokks- brotið fjarlœgt Gárungarnir þreytast seint á að gera sér mat úr ferð Gunnars Thor- oddsens forsætisráðherra til Noregs, þar sem hann leitaði lækninga á auga hjá læknum sjúkrahússins í Bergen. Þannig hittust tveir menn á förnum vegi og tóku tal saman: „Heyrðu, hvað var hann Gunnar Thór. að gera til Bergen?” „Veiztu það ekki? Hann fékk flis í hægra augað og þurfti að láta fjar- lægja hana.” „Það var leiðinlegt. Var þetta ekki heilmikil aðgerð?” „Neeei, flísin var víst svo ósköp litil og ómerkileg. Þetta reyndist vera flokksbrotið hans Geirs þegar betur varaðgáð.” Ersjálfur hálf slappur „Ástandið hjá þessum poppurum er greinilega ekki alltaf mjög gott.” sagði Finnbogi Kjartansson bassaleikari á blaðamannafundi. sem efnt var til vegna minningartónleikanna um John Lennon i Austurbæjarbiói i næstu viku. „Jimi Hendrix er látinn, Janis Joplin er látin. John Lennon myrtur og sjálfur er ég hálf slappur.” Deila Þjóðleikhússins og Helgar- póstsins um ókeypis frumsýningar- miða — og þá einkum handa Jóni Viðari Jónssyni — hefur vakið nokkra athygli sem vonlegt er. Telja’ sumir ákvörðun þjóðleikhússtjóra býsna undarlega og enn aðrir líta á kvartanir Helgarpóstsins (og raunar Sigmars B. á vettvangi sömuleiðis) sem kellingarlegt væl. En það er viðar cn í Þjóðleikhús- iriu, sem leikarastéttin leggst gegn Jóni Viðari. f Reykjavík er starfandi leynifélagsskapurinn Loki, sem hefur það háleita markmið að skapa félög- um sínum afsökun til að komast að heiman og drekka sig fulla einu sinni i mánuði. Eru í þessu félagi um fjöru- tíu manns, flestir tengdir listum og menningarlífi á einn eða annan hátt. Nýir félagar geta ekki gengið í klúbb- inn nema allir félagar séu því með- mæltir. Nýlega var stungið upp á tveimur mönnum sem nýjum Loka- limum, en svo nefna félagsmenn sjálfa sig. Annar var Ellert B. Schram, ritstjóri Vísis, sem var um- svifalaust samþykktur, en hinn var Jón Viðar Jónsson leiklistarkrítiker og óvinur Þjóðleikhússins númer eitt. Þá gerðist það i fyrsta skipti í sögu Loka, að umsækjandi var felldur. Mótatkvæðin komu öll úr horni þar sem sátu meðal annarra Gísli Al- freðsson formaður Leikarafélagsins, Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri og Erlingur Gíslason leikari. Jón Viðar ekki gjald- gengur Lokalimur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.