Dagblaðið - 07.03.1981, Qupperneq 1
7. ÁRG. — LAUGARDAGLR 7. MARZ 1981 - 56. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMl 27022.
Sjö mönnum bjargaö
í roki og sandbyl
skipbrotsmenn
fluttiraöSkóg-
um — lekikom-
inn að skipinu,
vélóvirkog
rafmagnfóraf
Vestmannaeyjabáturinn Sigur-
bára VE 249 strandaði skömmu fyrir
hádegið í gær á Skógasandi, skammt
austan Jökulsár á Sólheimasandi. Á
bátnum var sjö manna áhöfn og tókst
björgunarsveitinni Víkverja frá Vík í
Mýrdal að bjarga áhöfninni í land.
Allir voru komnir heilir á húfi í land
á fimmta tímanum í gær.
Að sögn Hannesar Hafstein í gær
tilkynnti Vestmannaeyjaradíó Slysa-
varnafélaginu kl. 10.50 í gær að
Sigurbáran væri strönduð vestan
Dyrhólaeyjar. Jafnframt var tilkynnt
að úti fyrir væru fjögur skip ásamt
varðskipinu Tý.
Björgunarsveitin Víkverji í Vík í
Mýrdal var þegar ræst út. Sveitin
lagði af stað kl. 11.35 og fór veghefill
fyrir, þvi ófærð var mikil. Ferðin
sóttist vel og var sveitin komin á
strandstað kl. 13.05. Aðstaða á
strandstað var mjög erfið, mikið rok
á norð-austan og varla sást út úr
augum végna sandroks.
Skipverjar á Sigurbáru gátu skotið
linu i land, en skipið hafði strandað í
grjóturð, um 200 metra frá landi.
Leki var kominn að skipinu, vélin
orðin óvirk og rafmagn farið af því.
Samband náðist við skipið um kl.
13.30.
Skömmu eftir að línan náðist
færðist skipið vestar og nær landi.
Ákveðið var að koma togvírum frá
Sigurbáru í land og voru þeir settir
fastir í veghefilinn til þess að reyna
að halda í við skipið. Mjög braut á
skipinu á þessum stað.
Sigurbára VE 249. Skipið er nýlegt
stálskip, smíðafl á Seyöisfiröi 1978.
Fyrsti skipverjinn náðist í land kl.
15.43 og síðan hver af öðrum unz
allir voru komnir í land kl. 16.13. Hlé
varð þó að gera meðan verstu
hryðjurnar gengu yfir. Þegar allir
voru komnir í land voru skipbrots-
menn fluttir að Skógum.
Að sögn Hannesar Hafstein gekk
björgunin með miklum ágætum,
enda björgunarsveitin Víkverji mjög
reynd í björgunum. sem þessum.
Sigurbára VE er stálskip, 127
lestir að stærð, smíðað á Seyðisfirði
árið 1978. -JH.
BÍÐA AF SÉR VEÐ-
UR í ÓBYGGÐUM
,, Vatnamælingainennirnir eru í bíl-
um sinum á stikuðu leiðinni upp með
Þjórsá og hafa verið síðan á þriðju-
dag. Um leið og veðrið stillist halda
þeir áfram sínum störfum,” sagði
Sigurjón Rist vatnamælingamaður i
viðtali við DB i gærkvöldi.
„Það er einföld formúla þegar
svona veður skellur á. Hún er sú að
vera um kyrrt,” sagði Sigurjón.
Mælingamennirnir eru í bílum
sínum sunnan við vaðið á Svartá.
Nöfn eins og Eyvafen og Norðlinga-
alda hafa fyrir misskilning komizt
inn í frásögn af staðsetningu mæl-
ingamannanna.
Þeir eru, eins og Sigurjón Rist
segir, um kyrrt í bílum sinum með
vistir til nokkurs tíma, ekki minna en
svo sem vikuforða. ,,Ef eitthvað
þrengir að og veðrið stendur lengi
fara menn eins og Halldór Eyjólfsson
frá Rauðalæk og Sigurpáll í Sigöldu-
virkjun til mælingamannanna. Þess
gerist þó naumast þörf,” sagði Sigur-
jón Rist. -BS
Garðyrkjuskóli ríkisins:
Trúnaðarmaðurinn fékk reisupassann
— sjá bls.6
— Sjá FÓLK-síðuna á bls. 16
Allir á skíði
á Miklatúni
—liðkum stirða
limikL 14ídag
—sjá nánar á bls. 5
Leikur í sól og srtjó á Seltjarnarnesi. / daf’ veróur vœntanlef’a mikill leikur, nlens og t’aman á
Miklatúni í Reykjavík þar sem DB efnir til skíóadays fjölskyldunnar — ef veöur leyfir.
DB-mynd Einar Ölason.