Dagblaðið - 05.05.1981, Side 1

Dagblaðið - 05.05.1981, Side 1
7. ÁRG. —ÞRIÐJUDAGUR 5. MAl 1981 - 99. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-ADALSÍMI 27022. ' ......... Stulka sem missti hægri hönd á skurðarborði í allan gærdag og f ram á nótt: Einstæð tilraun gerð til ágræðslu handar á stúlku —horfur óvissar en gengur eftir áætlun að sögn Rögnvalds Þorleif ssonar skurðlæknis „Það er alltaf hætta á ferðum og horfurnar þvl óvissar en þetta gengur eftir áætlun eins og er ef svo má segja,” sagði Rögnvaldur Þorleifsson skurölæknir á Borgarspitalanum i viötali við DB i morgun. Sextán ára stúlka lenti meö hægri höndina i hausingarvél i söltunarstöð Miðness hf. i Sandgerði rétt eftir kl. 10 i gær- morgun. Vélin tók höndina nær af. Kjartan Ólafsson héraðslæknir, sem staddur var i Sandgerði kom þegar á staðinn. Bjó hann um meiðslin og var stúlkan flutt f sjúkrabil til Reykja- vikur þegar í staö. Rögnvaldur Þorleifsson skurð- læknir gerði þá einstæðu tilraun að græða höndina á aftur. Lauk aðgerð- inni kl. að ganga þrjú f nótt. Ekki er vitað til að hliðstæð tilraun hafi verið gerð hér á landi áður. Eins og læknir- inn sagði i morgun, eru horfur óviss- ar en nokkur ástæða til bjartsýni um árangurinn. Um það verður ekki frekar hægt að segja fyrr en eftir tíu til tólf daga. Hausingarvélin er í rauninni hrað- geng vélsög, sem sagar umsvifalaust allt sem að henhi kemur. Stúlkan sem við vélina vann, Ragnhildur Guð- mundsdóttir, Melteigi 20 Keflavik, er ;■.... s Brezka stjórnin mun iðrast þessa, segir IRA: Dauða- stríði Bobby Sands lauk ínótt — Miklar óeirðir brutust þá út íBelfast — sjá erlendar fréttír bis. 6-7 Hafnarfjörður: Kveikt f op- inni timbur- i geymslu Mikið tjón varð er eldur kom upp í geymslu timburverzlunarinnar Dvergs i Hafnarfirði um miðjan dag í gær. Tók slökkvistarf um tvær stundir og þurfti mikið lið til að ná fyrir eldinn. Vart þykir annað koma til greina en kveikt hafi verið i timbri í geymslunni. Timburgeymslan er opin og óvarin og hafa unglingar gengið þar um að vild og jafnvel leitað þar skjóls. Hafa ikveikjur áður átt sér þar stað, m.a. nú fyrir skömmu, að sögn lögreglumanna. Tjónið i gær er talið nema hundruð- um þúsunda króna, en um þriöjungur timbursins i geymslunni er talinn ónýt- ur. -A.St. Framseldi fanginn (lengst til vinstri) leiddur inn á lögreglustöðina i Reykjavik I gærkvöld til yfirheyrslu. DB-mynd: S. FRAMSELDUR TIL ÍSLANDS MEÐ 6 MÁN- AÐA FANGELSISDÓM í gær var 23 ára gamall íslendingur framseldur frá dönskum yfirvöldum í hendur dómstóls i fikniefnamálum hér á landi. Hér mun fara fram rann- sókn á þætti hans i umfangsmiklu fikniefnamáli hér á landi, en þegar fs- lendingurinn var handtekinn i Kaup- mannahöfn 19. marz sl. var það gert að beiðni fíkniefnadómstólsins is- lenzka. Við handtökuna i Höfn fundust á honum pokar sem innihéldu 280 grömm af amfetamini, sem ætlað var að ætti að fara til fslands eða Svi- þjóðar. Söluverðmæti þess magns er um 180 þúsund. Þar sem hann hafði aldrei gerzt sekur i Danmörku er lik- legt að hann hefði sloppið i gegn þar ef ekki hefði legið fyrir beiðni frá ís- landi um handtöku hans. Var hann einnig eftirlýstur af Interpol. f Danmörku var íslendingurinn dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir innflutning amfetamíns. Óskaði hann eftir að fá að afplána dóminn þar, en var sem fyrr segir sendur til Islands ígærog framseldur. -A.St. aðeins sextán ára. Rannsóknarlög- reglan í Keflavík var kvödd á staðinn kl. 10.25 í gær. Vinnueftirliti ríkisins var einnig gert viðvart. Skýrslur vegna slyssins voru teknar af þessum aðilum, að sögn Víkings Sveinssonar rannsóknarlögreglumanns í Keflavík. -BS ..... Sænska ríkisstjórnin erfallin Heimdellingar blása íherlúðrana — sjá bls.ll Flýja heimilin vegnaofbeldis — sjá fróðleik um fangelsismál og annað á bls. 17 Belgískur togaristrandar íEyjum — sjá baksíðu American Hell Drivers hingað —siá bls. 11 \

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.