Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAl 1981. i Erlent Frlent Erlent Erlent I Bobby Sands. Brezka stjómin mun iðrast þessa, segir IRA: DAUDASTRÍbl SANDS LAUK SNEUUA f NÓTT — Miklar óeirðir brutust út á Norður-írlandi jaf nskjótt og f réttist að 66 daga hungurverkfalli Sands hefði lokið með dauða hans Erlendar fréttir Tilraunir Mannréttindaráðs Evrópu og sendimanns Jóhannesar Páls páfa annars, auk fjölmargra annarra aðila til að finna málamiðlunarlausn á máli Sands urðu allar án árangurs. Hinn 27 ára gamli Bobby Sands, sem dæmdur hafði verið í fjórtán ára fangelsi fyrir að bera skotvopn, féll i dauðadá síðastliðinn sunnudagsmorg- un og kom aldrei aftur til meðvitund- ar. Bæði ættingjar Sands og stuðnings- menn hungurverkfalls hans höfðu hvatt lýðveldissinna til að bregðast við dauða hans af rósemi. Ráð lýðveldis- sinna sem stjórnaði baráttu Sands opinberlega birti yfirlýsingu í nótt þar sem sagði að IRA óskaði eftir öguðu andsvari hinna reiðu ungmenna úr hópi þjóðernissinna. Danny Morrisson, talsmaður Sinn Fein, hins pólitíska arms IRA; sagði: „Brezka stjórnin er alltaf að hvetja fólk til að leggja mál sín undir dóm kjósenda. Bobby Sands gerði það en engu að síður höfnuðu Bretar máli hans. Þeir munu iðrast þess.” Lögreglan sagði að verstar hefðu óeirðirnar orðið í nótt þegar öflug árás var gerð á lögreglustöð í vestur Bel- fast, meðal annars með bensínsprengj- um. Ekki hefði þó komið til skotbar- daga og enginn látið lífið enn sem komið væri. Ungur Iri býr sig undir að varpa bensinsprengju og brezkir hermenn taka á móti. Óeirðir brutust út í Belfast í nótt strax og fréttist af dauða Bobby Sands. Bif- reiðum var velt um, eldur var kvciktur í húsum og ráðizt var að lögreglumönnum og hermönnum. írski IRA-skæruliðinn og þingmaðurínn Bobby Sands lézt laust eftir síðastliðið miðnætti í Maze-fangelsinu á Noröur-ír- landi. Hafði hungurverkfall hans þá staðið samfleytt 66 daga en hungurverkfallið var tilraun hans til að knýja brezku stjórn- ina til að veita skæruliðum IRA í brezkum fangelsum réttindi pólitfskra fanga. Þeirri kröfu hafnaði brezka stjórnin þrásinnis. Aðeins nokkrum mínútum eftir að Sands var allur söfnuðust hundruð manna saman á götum Belfastborgar, einkum í hverfum kaþólikka. Lögregl- an sagðist hafa orðið fyrir hörðum árásum á mörgum stöðum í borginni. Bifreiðum var velt um og götuvígi reist, líkt og gerzt hefur svo oft frá því yfirstandandi ólga hófst með nýjum krafti á Norður-írlandi árið 1969. Lögreglan kvaðst hafa skotið hundruðum leðurkúlna að óeirðar- seggjunum í viðvörunarskyni eftir að eldur hafði verið borinn að verk- smiðju, málningarvöruverzlun og banka í Belfast. Hungurverkfall Sands, sem vakti heimsathygli eftir að hann var kosinn sem þingmaður á brezka þingið í auka- kosningum sem fram fóru á Norður- Irlandi, hafði þegar leitt til mikillar ólgu og spennu á milli kaþólska minni- hlutans á Norður-lrlandi og meiri- hluta mótmælenda, sem að mestu styðja stjóm Breta. Fréttin um dauða Sands barst út eins og eldur í sinu. Flautur voru þeyttar og fólk þyrptist út á götur Bel- fastborgar, einkum í hverfum kaþól- ikka. Ungir menn gerðu aðsúg að lög- reglumönnum og herliði, meðal ann- ars með því að varpa mólótovkokk- teilum að þeim. Óeirðirnar komu engan veginn á óvart. Við'þeim hafði verið búizt I kjölfar dauða Bobby Sands þrátt fyrir óskir ýmissa aðila um að menn sýndu stillingu. Fjórtán þúsund lögreglu- menn og ellefu þúsund brezkir her- menn hafa því verið í viðbragðsstöðu á Norður-írlandi undanfarna daga þar sem meira en tvö þúsund manns hafa látið lifið síðan 1969 af völdum óeirða og ofbeldisverka. Brezka stjórnin hafði staðfastlega neitað kröfum Sands um að fangels- aðir félagar í IRA (írska lýðveldishern- um) fengju réttindi pólitiskra fanga. REUTER Utanríkisráðherrar NATÓ þinga íRóm: Vilja endumýja kjamorkuvopnin —en jaf nf ramt hef ja viðræður við Sovétmenn Utanrikisráðherrar Atlantshafs- bandalagsins munu i dag lýsa yfir þeirri ákvörðun sinni að endurnýja kjarn- orkuvopnabúnað bandalagsins í Evrópu um leið og þeir óska eftir samn- ingaviðræðum við Sovétmenn um tak- mörkum vígbúnaðar, að því er emb- ættismenn segja. Þeir sögðu jafnframt að ráðherrar aðildarríkjanna mundu lýsa yfir fullum stuðningi við tilraun Reagan-stjórnarinnar til að fá Sovét- menn til að setjast að samningaborð- inu. Alexander Haig, utanríkisráðherra Bandarikjanna, skýrði frá þvi í gær að Bandarfkjastjóm hefði í hyggju að hefja viðræður við Sovétmenn síðar á þessu ári um takmörkun kjarnorku- vopna í Evrópu. Brady enn skorinn upp James Brady, blaðafulltrúi Hvíta hússins, sem var skotinn í höfuðið í morðtilræðinu við Reagan forseta, gekkst enn undir skurðaðgerð i nótt eftir að blóðkökkur fannst í hægra lunga hans. Talsmenn sjúkrahússins þar sem Brady var skorinn upp sögðu hann ekki í lífshættu. REUTER Olíuhreinsunarstödin í Bólivíu: Hersveitir frels- uðu gíslana 36 Hersveitir Boliviuhers réðust i gær- kvöldi inn í bandarísku oliuhreins- unarstöðina í Tita i Bóliviu, sem verið hefur á valdi skæruiiða hægri manna sem krefjast afsagnar Luis Garcia Meza, forseta Bólivíu. 1 yfirlýsingu stjórnarhersins sagði að tekizt hefði að bjarga gislunum án þess að þá sakaöi. Sjö skæruliðar vom handteknir. Gary Brado ofursti, sem stjórnaöi árásinni, fékk slysaskot i bakið frá einum manna sinna. Ekki var vitað hversu alvarlega hann særðist en vinir fjölskyldu hans héldu þvi fram, að hann hefði verið fluttur til Houston i Texas til aðgerðar. Að öðm leyti kom ekki til blóðsúthell- inga við töku stöðvarinnar. Yfir 500 einstaklingar hafa á sl. tveim árum sótt námskeið Stjórnunarfélags ís- lands um hvernig má verjast streitu Stjórnunarfélagið mun halda enn eitt námskeið um þetta efni og verður það í Norræna húsinu dagana 12. og 13. maí nk. frá kl. 13.30—18.30. Leiðbeinandi á námskeiðinu er dr. Pétur Guðjónsson forstöðumaður Synthesis Institute í New York, en það er stofnun sem sér um fræðslu á þessu sviði, og hefur Pétur haldið námskeið sem þessi víða í fyrirtækj- um vestanhafs. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. Stjómunarfélag íslands Síðumúla 23105 Reykjavík. Sími 82930.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.