Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 20
20
(í
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUÐAGUR 5. MAÍ 1981.
Menning
Menning
Menning
Menning
I
SUMARMALA-
TÓNLQKAR
Tónlaikar Þóru Johanaen samballeikara og
Wim Hoogawarf gítariaikara f Norrœna húsinu
á sumardaglnn fyrsta.
Efnlsskrá: Antonlo Vivaldl: Concerto In Ra
magglora; Jónas Tómasson: „Ballett II"; Qott-
frado Patrassl: „Allas"; Porkall Sigurfojöms-
son: FJÓlur; Haitor Vllla-Loboa: Etýður nr. 1, 6,
8, 10; Qarard van WoHaran: Mada in Lapland;
Atll Halmir Svalnsson: OutJook.
Eftir drjúglangt hlé eru aftur
haldnir tónleikar í Norræna húsinu.
Vonandi tákna forstjóraskiptin ekki
að tónlistin verði í næstu framtíð af-
skipt á þeim bæ. En alltaf eru ein-
hverjir til að halda þar tónleika á
eigin vegum, oftast ungir listamenn,
sem halda tryggð við húsið. Tveir
slíkir listamenn, sem einmitt komu
fyrst fram í Norræna húsinu í fyrra-
sumar, Þóra Johansen og Wim
Hoogewerf, fundu hjá sér köllun til
að boða sumarkomuna í tónum.
Semball og gitar eiga glettilega vel
saman. Nú mákannski segjasemsvo
að upphaflega hafi það verið semb-
allinn og lútan sem gjarnan hafi verið
saman spyrt, en gítarinn gefur ekkert
eftir, ef vel er á haldið. Það er líka
gaman að hlýða á efnisskrá, sem
samsett er úr öldnum og nýjum verk-
um.
Ballett II eftir Jónas var bráðlag-
legt verk og langtum fremra því
verki, sem hann samdi handa Wim
Hoogewerf i fyrrasumar. Ballett II
byrjar á skemmtilegum synkoperuð-
um svörunum sembalsins og gítarsins
en endar svo í glitrandi vef af tóna-
þráðum beggja.
Um Fjólur Þorkels Sigurbjörns-
sonar var fjallað þegar þær voru
frumfluttar í fyrra. Þær standa enn
sem eitt eðlilegast skrifaða stykki
fyrir þessi hljóðfæri og ef nokkuð er,
þá vinna þær frekar á í endurflutn-
ingi.
Það er mikillgróanði og kraftur I
Outlook Atla Heimis. Mér fannst
hann beita sembalnum öllu betur en
gítarnum og ekki vera jafn opinn
fyrir sjarma gítarsins. Grunnt er á
prakkaranum í Atla Heimi, en hann
kann að hemja prakkarann í sér við
tónsmíðar, svo úr verður húmoristi
og verkin hæfilega krydduð.
Litið fann ég sem minnti á Lapp-
land i stykki Gerard van Wolferen,
en þetta var ágætis músík og vel flutt
eins og annað á tónleikum þessum.
Samleikur Þóru og Wim er góður og
þau eru jafnvíg á gamalt og nýtt. Þau
ráðast ótrauð í frumflutning verka og
buðu vissulega gleðilegt sumar með
tónleikum sínum í Norræna húsinu.
-EM.
Þóra Johansen og Wim Hoogawerf.
1 ?
Tónlistl
1 Lmelsted AZJ9 \