Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981. I ErJent Erlent Erlent Erlent „FIDE verður að eflast til muna”: ff Mig langaði til að gefa Karpov tækifæri ff —segir Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, í samtali við Sovetski sport Nýlega var Friðrik Ólafsson, for- seti FIDE, á ferð 1 Sovétríkjunum. Hann hefur oftar en einu sinni teflt í Sovétríkjunum en var hér síðast á ferðinni sumarið 1979 og var við- staddur Spartakíödu sovézku þjóð- anna sem forseti FIDE. Þá var hann nýtekinn við hinni ábyrgðarmiklu stöðu og byrjaður að gera framtíðar- áætlanir. Síðan eru liðin tvö ár og blaðamaður tímaritsins „Sovetski sport” spurði hann hverju hann hefði fengið framgengt á þeim tíma. „Það fyrsta sem ég tók mér fyrir hendur var ferð til Parisar til þess að koma á sambandi við UNESCO. FIDE hefur gert áætlun til að- stoöar þeim löndum sem standa aftarlega í skákmenningu. Skák er óaöskiljanlegur þáttur i almennri menningu og þess vegna er þróun á skáksviöinu lyftistöng fyrir menn- ingu landsins, menntun og félagslega þróun. UNESCO hefur lýst þvi yfir að árið 1981 sé alþjóðaár fatlaöra. Við teljum að fólk sem er haldið einhverj- um líkamsgalla geti náö sér upp í skáklistinni. Þetta er okkar álit og þess vegna reynum við að koma á samstarfi við UNESCO. I þessu samstarfi vonast FIDE eftir Karpov og Kortsnoj i einvigi sinu árið 1974. Kortsnoj og Friðrik við Hótcl Esju í fyrra.. vald.” ,Nýjar rcglur gcfa dómurunum meira fjárhagslegum stuðningi frá UNESCO. FIDE hefur ætíð verið í fjárþröng. Þess vegna er gott að hafa svo sterk samtök innan vébanda sinna sem sovézka skáksambandið. Meginmarkmiö mitt er að gera FIDE að enn sterkari samtökum en þau eru.” „Þér eruð kallaður „forsetinn tefl- andi” . . . ? „O, ég tefldi meira hér áður fyrr. Núna reyni ég að gera eins mikið og ég get til eflingar skáklistinni og hef engan tíma til að tefla sjálfur. Ég tók þátt í ólympíuskákmótinu á Möltu og tefldi þar alls þrjár skákir. En það hefði verið eins gott að sleppa því. Þegar setið er á daglöngum þingfund- um FIDE, hvenær á þá að tefla? En mér fannst ég verða að setjast við skákborðið á móti heimsmeistaran- um. Ég sigraði hann í Argentínu og langaði að gefa honum tækifæri til að svara fyrir sig. Auðvitað sigraði hann.” „Á síðasta þingi FIDE var rætt um hvernig hagað skyldi undanúrslitum í keppninni um heimsmeistaratitilinn, hvort haldin skyldu mót eða einvígi. Hvernig standa þau mál? ” „Já, við vorum að hugsa um að skipta yfir um og halda mót. Mót er hægt að halda á skömmum tíma og án svo mikils tilkostnaðar. Einvígin eru dýrt spaug fyrir FIDE. En meiri- hluti skákmanna var fylgjandi ein- vígishaldinu svo að við urðum að halda okkur við gamla kerfið.” „Nú nálgast heimsmeistaraein- vígið. Þegar það var síðast háð á Fil- ippseyjum átti fyrirrennari yðar, dr. Éuwe, við ýmis vandamál að etja og gat ekki ráöið fram úr þeim öllum. Hafiö þér tryggt yður fyrir slíku?” „Eftir einvígið fórum við vandlega yfir reglurnar um hald ein- vigisins um heimsmeistaratitilinn. Við vonumst til þess að það muni koma okkur að gangi við lausn þeirra vandamála sem áður hafa komið upp. f kviðdómi munu sitja þrír hlut- lausir fulltrúar og svo eru komnar nýjar reglur sem gefa dómurunum meira vald. Þeir munu sjálfir geta leyst úr mörgum vandamálum. Nú, auðvitað er ekki hægt að sjá allt fyrir en ég vona það bezta.” „Þér náðuð í endann á alþjóða- skákmótinu í Moskvu. Hvað fannst yður um samsetningu mótsins, skipu- lagningu þess og árangur?” „Þetta var afar sterkt mót og skemmtilega skipulagt. Ég varð ekki undrandi á sigri Karpovs. Ég gladdist yfir frammistöðu Smyslovs. Það er gaman að hann skuli enn tefla í sínum gamla stíl og vera í svo góðu formi. Ég hef ekki litið á allar skák- imar enn en hreifst af fjölbreyttum leik Polugajevskys, Petrosjans, Portish og Timmans. Kasparov, sá ungi skákmaður, sýndi i þessu móti að hann tekur sífellt framförum og það er ekki útilokað að við eigum eftir að sjá hann í hópi þeirra sem berjast um réttinn til að skora á heimsmeistarann. Allar aðstæður á mótinu voru framúrskarandi góðar, bæði fyrir keppendur og áhorfendur. Ég hafði mikinn áhuga á tölvukerfmu sem sýndi skákirnar. Ef sérfræðingar ykkar eru reiðubúnir að hjálpa verður hægt að koma upp slíku kerfi á þeim mótum sem FIDE heldur.” — apn — Sovézkar jarðf ræðirannsóknir á Islandi: ISLAND ER OVIDJAFNAN- LEGT RANNSÓKN ARSVÆÐI segir Mikail Akmetiev við jarðf ræðistof nun sovézku vísindaakademíunnar Árið 1970 fór fyrsti hópur sovézkra jarðfræðinga til íslands til að dveljast þar um sumartíma. Á eftir komu níu aðrir rannsóknarleið- angrar. Fréttaritari APN sneri sér til Mikail Akmetiev, Ph.D. (jarðfræði og bergfræði), meðlims jarðfræði- stofnunarinnar við sovézku vísinda- akademíuna, og spurði hann um niðurstöður síðasta rannsóknarleið- angursins. ísland, sem er aðallega myndað af basaltgrjóttegundum, býr yfir fjöl- mörgum, verömætum upplýsingum um vísindalega jarðfræði, sem er aöalviðfangsefni vísindastofnunar okkar. ísland er eini staöurinn í heiminum þar sem stórt svæði hins sokkna Mið-Atlantshafshryggs rýfur sjávarflötinn. Jarðskorpumyndun- inni er ekki lokið hér og landið er vettvangur jarðskjálfta og eldgosa. Ég verð hér að minna lesendur á að í náinni fortíð hafa hin gjósandi eld- fjöll íslands verið einn þriðji af öllum eldgosum í heiminum. Þarna eru engar jarðfræðilegar hliðstæður við Sovétríkin. Basalt- fjöllin í Úral eru mikið eldri en fjöll íslands af því að sjórinn yfírgaf þessi landsvæði fyrir milljónum ára. Kam- chatka, sem er virkt eldfjallasvæði, er aðeins brík á þessu meginlandi og gefur okkur enga hugmynd um for- sögulegt ferli. ísland er óviðjafnanlegt rannsókn- arsvæði, sem dregur til sín jarðfræð- inga frá öllum hlutum heims. Við hittum þarna rannsóknarleiöangra frá Bandaríkjunum, Vestur-Þýzka- landi, Japan og nokkrum fleiri lönd- um. Með alþjóðlegri samvinnu og verkaskiptingu á jarðfræðirannsókn- um er hægt að fá mjög fullkomnar upplýsingar um jarðskorpumyndun- inaoghafsbotninn. Sovétríkin hafa sent mjög marg- samsetta visindaleiðangra til islands. Sérfræðingarnir hafa verið fulltrúar mismunandi greina jarðfræðivisind- anna, þar hafa verið jarðeðlisfræð- ingar, jarðefnafræðingar, vatnsefna- jarðfræðingar og sérfræðingar í jarð- myndunarfræði. Allir starfa þeir inn- an ramma áætlunar rannsóknarleið- angursins, sem tekur fyllsta tillit til óska Rannsóknaráðs íslenzka ríkis- ins. Á þeim tveim til þrem mánuðum sem rannsóknirnar standa yfir er safnað upplýsingum, sem síðan er farið með til Moskvu og unnið úr þeim þar. Við efnagreinum bergteg- undir, ákvörðum samsetningu þeirra og gerum á þeim litrófsgreiningu. Jarðfræðirannsóknir á íslandi hafa aðallega fræöilegt aðdráttarafl, en þó er langt frá að sagt verði að þær hafi enga praktíska þýðingu. Sovézkir jarðfræðingar safna miklum auðæfum vísindalegra stað- reynda með því að bera upplýsingar um myndun íslenzku basaltkápunnar saman við upplýsingar sem fyrir hendi eru um hina gömlu basalt- myndun í Sovétríkjunum og það færir okkur nær lausn á gátu um myndun ýmissa náttúruauðlinda og staðsetningu þeirra. Á meira en tíu ára rannsóknarferli sínum á íslandi hafa sovézkir jarð- fræðivisindamenn undirbúið og gefið út kringum 70 greinar um íslenzka jarðfræði, i ýms visindatímarit í Moskvu um einstök efni jarðfræð- innar. Hið merkilegasta þeirra er fimm binda verk sem ber nafnið ís- land og Mið-Atlantshafshryggurinn og er unnið af nokkrum höfundum. Mörg þessara verka hafa verið þýdd á ensku til að gefa islenzkum jarðfræð- ingum tækifæri til að kynna sér niðurstöður sovézku rannsóknanna. Við álítum nána samvinnu við is- lenzka jarðfræðinga lykilinn að árangri okkar. Meiri hluti þeirra sýnir okkur skilning og veitir okkur verðmæta aðstoð við dagleg störf okkar. Við trúum því að starf okkar sé framlag til rannsókna íslenzkra vís- indamanna. Árið 1976 héldum við tveggja hliða fund í Reykjavik þar sem gerð var samantekt á niður- stöðum sovézku rannsóknanna í landinu á fyrsta stigi þeirra. Niður- stöðumar voru ánEegjulegar. Það kom fram í bréfi frá Guðmundi Pálssyni, formanni íslenzku jarðfræðivísinda- nefndarinnar, til varaforseta sovézku vísindaakademíunnar. Hann sagðist álíta sovézku rannsóknirnar á fslandi hafa skilað góðum árangri með því að þær innihéldu mjög þýðingarmikl- ar upplýsingar um jarðskorpuna á Mið-Atlantshafshryggsvæðinu. Hann var þeirrar skoðunar að halda bæri áfram sameiginlegum rannsókn- um á öðrum jarðfræðilegum — og jarðeðlisfræðilegum efnum, þeim sem ísland hefur lykilinn að. Hvað okkur áhrærir erum við allt- af reiðubúnir til að aðstoða íslenzka starfsbræður okkar við að kynna sér jarðfræðileg fyrirbæri í landi okkar. íslenzkir jarðfræðingar hafa nú þegar heimsótt Baikalvatnið og Ar- meníu. Við vildum gjarnan sjá ís- lenzka starfsbræður okkar meðal þátttakenda á hinni alþjóðlegu jarð- fræðingaráðstefnu sem halda á í Moskvuárið 1984.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.