Dagblaðið - 05.05.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáSsgötu 49 — Sími 15105
REYKJAVÍKURHÖFN
Reykjavíkurhöfn vinnur að því að gera byggingarhæfar
lóðir á tveim athafnasvæðum við höfnina:
I. Á fyllingu utan Grandagarðs:
Lóðir þarna eru ætlaðar fyrir fyrirtæki sem tengd
eru sjávarútvegi, fiskvinnslu og þjónustu við útgerð.
II. Svæði við Skútuvog við Kleppsvik:
Þar eru lóðir hugsaðar fyrir fyrirtæki, sem áherslu
leggja á skipaviðgerðir.
Þeir sem áhuga hafa á að koma til greina við lóðaúthlut-
anir á svæðum þessum sendi skriflegar umsóknir til Hafn-
arskrifstofunnar, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, fyrir 20.
maí n k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Hafnarstjórinn í Reykjavík
Dvöl í
orlofshúsum
Iðju
Iðjufélagar sem óska eftir að dvelja í orlofshúsum félags-
ins í Svignaskarði sumarið 1981 verða að hafa sótt um hús
eigi siðaren föstudaginn 15. maí nk. kl. 16.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins,
Skólavörðustíg 16.
Dregið verður úr umsóknum, sem borizt hafa, á skrif-
stofu félagsins 16. maí nk. kl. 17.00 og hafa umsækjendur
rétt á að vera viðstaddir.
Þeir félagar sem dvalið hafa í húsunum á 3 undanförn-
um árum koma aðeins til greina ef ekki er fullbókað.
Leigugjaldið verður kr. 400,00 á viku.
Sjúkrasjóður Iðju
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt orlofshús til ráðstöfunar
handa Iðjufélögum sem eru frá vinnu vegna veikinda eða
fötlunar og verður það endurgjaldslaust, gegn framvísun
læknisvottorðs.
Stjórn Iðju.
Er atvinnuöryggi stefnt í voða? -
Stöðnun í góðæri
Dóra
Gis8urardóttir
Asgeir Hannes
Eiríksson
Kriatján
Guðbjartsson
Geir
Hallgrímsson
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræðir
stjórnmálaviðhorfið, atvinnu- og efnahagsmál á almennum
fundi að Seljabraut 54 fimmtudaginn 7. maí kl. 20.30.
Fundarstjóri: Kristján Guðbjartsson.
Fundarritarar: Dóra Gissurardóttir og Ásgeir Hannes
Eiriksson.
Fundurinn er öllum opinn.
, Félag sjátfstæðismanna í
Fella- og Hó/ahverfi í Breiðholti.
Sænska ríkisstjórnin er fallin:
—samvinnu borgaraf lokkanna þriggja lauk vegna
ágreinings um skattamál
Ljóst er nú aö samsteypustjóm
borgaraflokkanna þriggja í Svíþjóf er
fallin. Ráðherrar Hægriflokksins
ákváöu i gær að segja af sér eftir að
sýnt var að ekki væri unnt að leysa
ágreining stjórnarflokkanna um
skattamál.
Thorbjöm Fálldin forsætisráð-
herra frestaði því i gærkvöldi að leysa
stjórnina upp og sagði að þrir mögu-
leikar væru fyrir hendi: Stjómin gæti
sagt af sér, kosningar mætti boða eða
að hann gæti haldið áfram sem for-
sætisráðherra með óbeinum stuðn-
ingi Hægriflokksins.
Hann gaf ekki tíl kynna hvaða leið
yrði fyrir valinu. ,,Né get ég sagt um
hve langan tima þaö tekur mig að
komast að niðurstöðu. ”
Samkomulagsumleitanir stjómar-
flokkanna hafa staðið án árangurs í
hálfan mánuð og lauk þeim tílraun-
um i gærkvöldi með þvi að Gösta
Bohman, fjármálaráðherra og for-
maður Hægriflokksins, lýstí því yfir
að hann og sjö flokksbræður hans í
rfkisstjórninni hefðu ákveðið að
segja af sér vegna hins umdeilda
samkomulags sem hinir stjórnar-
flokkarnir tveir hefðu gert við
stjórnarandstöðuflokk jafnaðar-
manna um skattamál. „Við áttum
ekki annarra kosta völ,” sagði
Bohman i gærkvöldi og bætti því við
að hinir stjómarflokkamir hefðu
snúið baki við upphaflegum mark-
miðum stiórnarinnar.
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Frá vinstri eru Gösta Bohman fjármálaráðherra, sem nú hefur sagt af sér, ásamt
flokksbræðrum sinum, Thorbjörn Fálldin forsætisráðherra og Ola Ullsten utanrikisráðherra.
Erlent
Erlent
Hægriflokkurinn
hefur sagt sig
úr stjóminni
Kvenstúdentar —
Kvenstúdentar
Við höldum árshátíð fimmtudaginn 7. maí, kl. 19.30, í
Lækjarhvammi. 25 ára stúdínur sjá um skemmtiatriði að
vanda. Girnilegur kvöldverður — glæsilegt happdrætti.
Aðgöngumiðar verða aðeins seldir í gestamóttöku Hótel
Sögu miðvikudaginn 6. maí kl. 16—19, verð kr. 150, og
gildir hver miði sem happdrættismiði.
Takiðbekkjarsysturnar með!
Stjórnin.
fVinnuskóli
Reykjavfkur
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um
mánaðamótin maí - júní nk.
í skólann verða teknir unglingar fæddir 1966
og 1967 og/eða voru nemendur í 7. og 8. bekk
grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 1980—1981.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar Borgartúni 1, sími 18000, og
skal umsóknum skilað þangað eigi síðar en 21.
maí nk.
Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki hægt
að tryggja skólavist. Vinnuskóli Reykjavíkur.
Frakkland:
Sjónvarpsein-
vígi Giscard
og Mitterrand
Valery Giscard d’Estaing Frakk-
landsforsetí og keppinautur hans,
sósíalistinn Francois Mitterrand,
mætast i kvöld í sjónvarpseinvígi sem
talið er að geti ráðiö úrsUtum um það
hvor þeirra verður forseti Frakklands
næstu sjö árin.
Erlendar
fréttir
Kínverjar
ánægðir með
Nató-fundinn
FréttastofanNýja Kína sagði í gær að
fundur utanríkisráðherra Nató í Róm
væri mjög þýðingarmikill fyrir banda-
lagiö og möguleika þess á að halda
aftur af útþenslustefnu Sovétríkjanna.
Fréttastofan birtí tvær langar fréttír af
fundinum sem endurspegluðu þá
skoðun Kínverja að Atlantshafsbanda-
lagið sé nauðsynlegt ef halda eigi aftur
af Sovétmönnum, erkifjendum Kín-
verja.