Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 12
í BIABIB írjálst, óháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritsfjón: Jónas Kristjánsson. Aflstoflarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: ómar Valdknarsson. Skrffstofustjóri ritstjómar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Sfmonarson. Menning: Aöalsteinn Ingótfsson. Aflstoflarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Asgrfcnur Pólsson. Hönnun: Hilmar Karfsson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Haldórsson, AtJi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elln Albertsdóttir, GisB Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigurflur Sverrisson. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson, Einar ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Þorri Sigurflsson og Sveinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Haddórs- son. Dreifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhohi 11. AOaisfcni blaflsins er 27022 (10 Ifnur). Setning og umbrot: Dagbfaflifl hf., Sfflumúla 12. Myndin og" plötugerfl: Hilmir hf„ Sfflumúla 12. Prentun: Árvakur hf./Skshunni 1p. Ammoníak á togarana Allt stendur og fellur með eldsneyti, hér á landi sem í öðrum þróuðum lönd- um. Án þess kæmi nær enginn fiskur á land og nær ekkert hey í hlöðu. Án þess væru nær engir vöruflutningar, hvorki til landsins né um það. Við hljóitum því að fylgjast náið með orkukreppunni í heiminum og tilraunum manna til að bæta úr henni. Sérstaklega er okkur nauðsynlegt að draga úr ofurvaldi olíunnar i rekstri nútíma þjóðfélags á íslandi. Talið er, að olíur og bensín muni að verulegu leyti ganga til þurrðar á fyrri hluta næstu aldar. Þetta hefur þegar komið fram í verðhækkun hráolíu úr 3 dollurum í 32 dollara áratuginn 1970—1980. Og 1985 verður olían komin í 80 dollara. Efnahagskreppa Vesturlanda á síðasta áratug byggðist langmest á þessum verðhækkunum olíu. Vax- andi hluti verðmætasköpunarinnar hefur farið í elds- neytiskostnað. Og við sjáum fram á enn þyngri róður á næstu árum. Hér á íslandi hefur jafnan verið talað um, að orkan í fallvötnum og hverasvæðum landsins muni verða okkur til bjargar. En samt höfum við enn sem komið er aðeins nýtt þessa orku á afmörkuðum sviðum, einkum til ljósa og hitunar. Við erum komin svo langt í raforkumálum, að fram- leiðsla rafmagns með olíu er nánast að verða úr sög- unni. Þá hafa á síðustu árum verið stigin stór skref til minnkunar á notkun olíu til hitunar, einkum með gerð jarðhitaveitna. Á öðrum sviðum stöndum við nánast á upphafs- punkti. Samgöngutæki okkar ganga fyrir olíum og fiskiskipafloti okkar gengur fyrir olíum. En svo þarf alls ekki að verða um aldur og ævi. Við eigum nefni- lega hráefni til eldsneytis. Flestir kannast við tilraunir Gísla Jónssonar prófess- ors til að vekja athygli á rafmagnsbílum, sem ættu með vaxandi orkugeymslutækni að henta vel til innan- bæjaraksturs og á öðrum stuttum vegalengdum. Þá hefur Bragi Árnason prófessor bent á, að nota megi innlenda orkugjafa til að framleiða vetni, metanól og jafnvel bensín til notkunar á aflvélar sam- göngutækja almennt. Orkugjafarnir yrðu þá vatnsafl og mór. Og nú hefur Bragi í viðtali í Dagblaðinu bent á sér- staka lausn,/sem gæti hentað fiskiskipaflota okkar. Það er að láta hann brenna ammoníaki, sem unnið yrði úr lofti og vatnsafli, alveg eins og þegar er gert í Áburðarver ksmiðjunni. Ammoníak er hægt að nota á bensínvélar með litlum breytingum og á dísilvélar með því að setja í þær kerti. Orkunýting ammoníaks er meira að segja betri en bensíns. Og loks er tiltölulega auðvelt að geyma fljót- andi ammoníak í skipum. Þessi aðferð mundi síður henta kaupskipum, sem yrðu að taka eldsneyti í erlendri höfn, þar sem ammoníak yrði mun dýrara en það, sem hér væri hægt að framleiða. En fiskiskipaflotinn mundi nýta 750 megavött af vatnsorku landsins. Bragi telur, að um þessar mundir sé ammoníak 50— 75% dýrara eldsneyti en gasolía. En það ætti fljótlega að verða samkeppnishæft, ef olía hækkar meira en tvöfalt í verði á næstu fimm árum. Við erum því þegar á þröskuldi mikilla möguleika. Allar þessar hugleiðingar eru liður í nauðsynlegri viðleitni okkar til að tryggja hag okkar í erfiðri og óvissri framtíð, viðleitni okkar til að láta innlenda orkugjafa koma í stað takmarkaðra, erlendra orku- gjafa, sem sífellt hækka í verði. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981. Réttlausir sjó- menn í eigin stéttarfélagi Minn ágœti formaöur i Sjómanna- félagi Reykjavikur, Guðmundur Hallvarðsson, helgar mér stóra grein i Dagblaðinu 31. mars sl. Tilefni skrifa Guðmundar er grein'min um Sjómannafélagið sem birtist i Dag- blaðinu 20. mars sl. Guðmundur vill ekki deila við mig um ágæti greinar minnar eða tilgang. Um það er ég honum sammála, til- gangur greinar minnar eöa ágæti skiptir ekki öllu máli úr þessu. Tilgangur greinar minnar var þó m.a. sá að fá verkalýðsrekendur Sjó- mannafélagsins tii þess að ræða til- tekin atriöi opinberlega og það tókst. Ef grein min hefur orðið meðal annars til þess að fá verkalýðsrekend- ur Sjómannafélagsins til þess að tjá sig um tiltekin atriði á opinberum vettvangi, þá hefur hún þó borið árangur og þvi má segja að tilgangur- inn helgar meðalið. Misskilningur afla hvafl? Um félagsgjöldin til Sjómannafé- lagsins virðumst við Guðmundur vera sammála og þá staðreynd að sjó- maður ófróður um félag sitt og rétt sinn kann að hafa greitt félagsgjald til Sjómannafélagsins (i Reykjavík og/eða viðar) árum saman án þess að eiga nokkurn rétt í hvorki einu félagi né öðru. Viðkomandi sjómaður gerir sér ekki grein fyrir þvi, að hann verður að ganga frá inntökubeiðni i viðkomandi stéttarfélag til þess að njóta félagslegra réttinda. Þannig er aðalatriði annars hluta gagnrýni minnar rétt. Nú er fjöldi sjómanna bæði á farskipum og fiski- skipum réttindalaus félagslega vegna þess að þeir þekkja ekki eða gæta ekki þeirrar skyldu sinnar að ganga frá inntökubeiðni i tiltekið sjó- mannaféiag. Um þetta atriði er eng- inn misskilningur milli min og Guð- mundar Hallvarðssonar formanns Sjómannafélags Reykjavíkur. Skey tifl sem hvarf Það skip sem ég hef starfaö á og Guðmundur veit vel hvert er, var á siglingu við Vestur-Evrópu um sl. áramót. Bátsmaöurinn, Sigurður Valgeir Sveinsson, fékk skeyti frá Sjómannaféiagi Reykjavíkur. 1 þvi var hann beðinn um aö annast at- kvæðagreiðslu um borð um tillögu i kjaradeilu félagsins (hvort það var sáttatillaga eða samningstilboð veit ég ekki). Vitanlega veit og sér Guð- mundur formaður að það skiptir engu máli 1 umræddu tilviki. Staðreyndin er sú, aö það vita allir um borð i umræddu skipi, að báts- maöurinn fékk skeyti og i því var hann beðinn um að annast atkvæða- greiðslu fyrir Sjómannafélag Reykja- vikur. Bátsmaðurinn taldi útilokað, eftir ítarlegar umræöur um máliö, að annast umrædda atkvæðagreiðslu án þess að hafa tillöguna við höndina. Þar með var ákveðið að hann sendi skeyti til Sjómannafélags Reykjavik- ur með beiðni um að tillagan yrði send okkur til Seixal í Portúgal. (Timi var nægur.) Hvort bátsmaðurinn sendi skeytið veit ég ekki. (Hann sagðist mundu gera það). Alla vega kom engin tiUaga um borö og að sjálfsögðu fór þvi engin atkvæðagreiðsla fram. Það skrýtUega I þessu sambandi var þó það, sem ég hefi ekki nefnt fyrr, að bátsmaðurinn, sem aldrei hefur verið i Sjómannafélagi Reykja- víkur, taldi rétt og löglegt að alUr undirmenn um borð gætu tekið þátt i þessari atkvæðagreiðslu. Aðspurður hvort aðrir en fuUgildir félag- ar í Sjómannafélagi Reykjavikur gætu greitt atkvæði um samninga þess félags sagði hann: „Við höfum aUtaf gert það.” — Sé þetta rétt Uggur fyrir að vegna þátttöku utanfé- lagsmanna hafa undanfarnir samn- ingar Sjómannafélags Reykjavíkur verið ólöglegir. Taki einn utanfélagsmaður þátt i atkvæðagreiðslu um samninga félags þá eru úrslit þeirrar atkvæðagreiðslu marklaus. Þessi túlkun bátsmannsins ásamt miklum umræðum um máUð, hvar ég benti á, að aðeins tveir menn um borð hefðu rétt til atkvæðagreiðslu um málefni Sjómannafélags Reykja- víkur, kann að .hafa leitt tU þess að bátsmaðurinn sendi aldrei skeyti með beiðni um að tUlagan yrði send okkur tU Seixal. Ég sýndi félögum minum um borð fram á að það væru aðeins fiflskap- armál félagslega ef aðrir greiddu at- kvæði um tUlöguna en fullgUdir fé- lagar i Sjómannafélagi Reykjavíkur. Og enn vU ég taka fram að í þvi efni skiptir engu máU hvort um sáttatU- lögu eða samningstiUögu er að ræða. Misskilningurinn er enginn, Guð- mundur. Bátsmaðurinn fékk skeytið, en vissulega verður viðurkennt að mér tekst ekki að fullyrða að hann hafi sent svarskeyti, þvi bátsmaður- inn er ekki hér um borð nú og mér umhendis að ná i hann. Kjallarinn Kristinn Snæland Ekkert samband Það sem mér þykir slæmt og Guð- mundur tekur illa upp er þetta: Sjó- mannafélag Reykjavikur hefur allar götur frá því fyrir 1973 vanrækt að hafa samband við sjómenn sina og upplýsa þá um réttindi sin og skyldur. Guðmundur vill snúa út úr máli mínu og þykist, með þvi að benda mér á að Sjómannafélag Reykjavikur eigi ekki erindi um borð i skip allra landsmanna, hafa heldur betur neglt mig. Guðmundur Hallvarðsson! Var ekki Eimskipafélag íslands i eina tíð kallað óskabarn Islendinga og eru ekki Sambandsskipin eign' allra landsmanna og eiga ekki landsmenn um allt land hluti i öðrum skipafélög- um, eru ekki farskipin t.d. Rikisskip eign og hluti allra landsmanna? Þótt útgerð skipa sé ekki endilega miðuð við Reykjavík þá er Sjó- mannafélag Reykjavíkur samnings- aðili vegna sjómanna sem starfa á skipum allra landsmanna. Svona orðaleikur er ekki sæmandi þegar við af alvöru tölum um hagsmuni og fé- lagslega stöðu sjómanna. Guðmundursegir að ég nefni ekki Æk „Jafnvel þó ekki gerðist annað en það, að ^ þegar við kæmum um borð, lægju fyrir í messanum rit, bæklingar eða blöð frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, það væri gam- an. að hafa séð fréttabréf frá Sjómanna- félaginu útgefið í september né fé- lagsblað útgefið í desember. Ástæð- an er einfaldlega sú að þessi gögn hefi ég alls ekki séð um borð i skipi minu. Ég viðurkenni að félagsblaðið sá ég á skrifstofu félagsins er ég kom þar i mars sl. en siðan ég hóf siglingar i ágúst sl. hefi ég ekkert séð um borð i skipi minu frá Sjómannafélagi Reykjavikur. öll gögn og upplýsing- ar sem ég hefi aflað mér með heim- sóknum til hins ágæta fólks á skrif- stofu Sjómannafélags Reykjavíkur hefi ég þó limt upp á veggi um borð og reynt að berja inn i hausinn á fé- lögummínum. Svo áhugasamur um mitt félag sem ég er þá finnst mér hart að manni utan mins félags sé falið að annast at- kvæðagreiðslu í alvariegu málefni er varðar enga (nema óbeint) aðra en fé- laga i minu félagi. Svona vinnubrögð kalla ég ekki annað en það að félag mitt hafi of lit- ið samband við menn sina og lái mér hver sem vill. Heimsókn um borfl Eitt atriði sem ég benti á og taldi æskilegt var að fulltrúi frá Sjó- mannafélaginu kæmi öðru hvoru i heimsókn um borð. Þessu svarar Guðmundur með þvi að nefna að 95 skip séu gerð út frá Reykjavík og engu félagi sé ætiandi að koma á svo marga vinnustaði. Með þessu gefur Guðmundur í skyn að um borð í hvert skip þurfi eða ég ætlist til að komi fulltrúi frá fé- laginu hverju sinni sem skipið kemur í höfn, og loks það að liggi skip i höfn þá séu sem betur fer fáir við vinnu um borð. Vissulega hefur Guðmundur „stjómmálalega” rétt fyrir sér, ekk- ert félag gæti mætt um borð hverju sinni sem skip væri i höfn, en mikið óskaplega væri ánægjulegt ef fulltrúi frá Sjómannafélagi Reykjavíkur kæmi um borð i skip mitt svona einu sinni á ári og kæmi þá svona einum eða tveimur timum áður en lagt er úr höfn. Ég hlýt að reikna með þvi að formaður Sjómannafélagsins viti að þá eru flestir úr áhöfninni komnir um borð. Jafnvel þó ekki gerðist annað en það að þegar við kæmum um borð, lægju fyrir I messanum rit, bæklingar eða blöð frá Sjómannafé- lagi Reykjavíkur, það væri gamaú. Ég skal vissulega reyna að berja „mina stráka inn í Sjómannafélag Reykjavikur” en mér þætti vænt um örlitla hjálp. Að lokum Ég þakka þér, Guðmundur, fyrir hve drengilega þú tókst undir niður- lag greinar minnar og sannarlega vii ég og mun vinna heiishugar með þér að þvf að fá sjómenn til þess að ganga I sitt rétta félag. Viðkvæmni þinni hins vegar gagnvart því að ég skyldi velja að vekja mál þetta upp á siðum Dagblaðsins vísa ég alfarið á bug. Ég hygg að skrif min og þin á síðum Dagblaðsins verði til þess að margir sjómenn munu lesa þessi skrif og ekki nóg með það, þessi skrif munu jafnvel jafnast á við margar heimsóknir fulltrúa frá Sjómannafé- lagi Reykjavíkur um borð i skip „landsmanna”, því Dagblaðið er yfirleitt vel lesið þar. Loks varðandi það er þú, Guð- mundur, reynir að snúa útúr fyrir mér og segir mig taka stökk aftur á bak. Mitt álit, hvort sem þú skilur það eða ekki, er það að félagið á að hafa gott samband við sjómenn al- mennt, hvort sem þeir eru i félaginu eða ekki. Þegar um trúnaðarmál, svo sem atkvæðagreiðslu í samningsmál- um, er að ræða, þá á Sjómannafélag Reykjavíkur einungis að hafa sam- band við löglega féiaga. Snúðu út úr þessu ef þú getur. Samt með vinsemdar- og félags- kveðju, Kristinn Snæland dagmaður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.