Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.05.1981, Qupperneq 17

Dagblaðið - 05.05.1981, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981. 17 1» 'ismm fMÆ FRÓDLEIKUR UM FANG- ELSISMÁL OG ANNAÐ —sagt f rá kvennaráðstefnu Vemdar 26. apríl Bjarlci Eliasson yflrlögregluþjónn sagöi frá þvi hvernig margt fólk, sem hvergl annars staflar væri hleypt Inn, kaemi til lögreglunnar, ekld sizt 6 köldum vetrarkvöldum, og bæfli um gistingu. Voru skr&flar 1060 slikar gistingar árífl 1980. 1100 á ári — af sömu ástæöu aö því er viröist, þótt þær beri oft Ööru við. Þessar konur koma úr öllum stétt- um, og er talið aö þörf á athvarfi sem þær geta flúið til meö börn sín sé mjög brýn. „Það kostar mikla pen- inga,” sagði Kristin. Hún undirstrik- aði hvað það væri niðurlægjandi fyrir konur að búa við högg og meiðingar og skaðlegt fyrir andlega heilsu barnanna. Skattheimta ríkisins drepur unglinga- skemmtistaði Laufey Jakobsdóttir vakti athygli á þvi að það vantar einnig athvarf fyrir unglinga, sem eru reknir burt af heimilum sinum. Hjá mörgum fundarmanna kom fram sú skoðun að með því að hlúa að unglingunum i dag fækkum við ógæfufólki morgun- dagsins. En nú er fátt á boðstólum fyrir þá í Reykjavík nema Hallærisplanið. Baldvin Jónsson sagði að skemmti- staðir fyrir unglinga eldri en 16 ára hefðu allir lagzt niður vegna óhóf- iegrar skattheimtu rikisins, sem heimtaði 40—50% af hverjum að- göngumiða. Hann harmaði aö unglingahátíðir í Saltvik hefðu lagzt niður vegna skammsýni yfirvalda. Vildi hann gefa unglingunum sjálfum tækifæri til að byggja upp aðstöðu til að skemmta sér i, með hjálp og aðstoð góðra manna. Þá átaldi hann hvað auðvelt væri að náigast brugg- efni — með nákvæmum leiðbeining- um. -IHH „Afbrotamenn hafa fengið minni aðhlynningu i bemsku, eru verr menntaðir og veröa skammlifari en aðrir þegnar þjóðfélagsins,” sagði Pétur Jónsson á ráöstefnu fanga- hjálparinnar Verndar, sem haldin var að Hótel Sögu að kvöldi þess 26. apríl sl. Þar kom margt fróðlegt fram. Meðal annars það, að fang- elsislöggjöf er aldarfjórðungs gömul og úrelt, geðlæknir hefur ekki komið á Litla-Hraun i tvö ár þótt stór hlutí fanganna eigi við geðræn vandamál að striða og kvennafangelsið á Akur- eyri er liklega verri vist en fangelsi fyrir sunnan. Ræður fluttu fjölmargir úr stjóm Verndar og starfsliði lögreglunnar, tveir fyrrverandi fangar, forsetí Islands og fleiri. Hilmar Helgason, formaður Verndar, settí ráðstefnuna og sleit henni. Fundarstjóri var Jóna Gróa Sigurðardóttir. Tvö heimili opnuð í vetur Fangahjálpin Vemd var stofnuð að tilhlutan Kvenréttíndafélags íslands fyrir 22 ámm síðan og fyrstí for- maður var Þóra Einarsdóttír. Vernd hefur allan timann rekið vistheimili fyrir útigangsfólk og var það fyrsta að Stýrimannastig. I vetur hefur hún opnað heimili með nokkuð nýju sniði, vistheimili fyrir fanga sem eru á leið út i samfélagið að nýju. Eru þau að Ránargötu 10 og við Skóla- vörðustíg og geta þar samtals búið um fimmtán manns. Þannig er reynt að forða þvi að fangar iendi beint i rennusteininn um leið og þeir koma af Litla-Hrauni sem aftur leiðir til þess að þeir fara fljótlega á Hraunið aftur. Talið er að um 300 manns séu i þessum vítahring. Jóhanna Sigurflardóttir var eini þing- maðurinn sem steig i ræflustól á fundinum. Hún gat ekld stlllt sig um að benda á afl meflan ákaft var hðffl- að til göfuglyndls og fórnfýsi kvenna á fundinum, þá sætu i framkvæmda- stjórn Verndar sjð karlar og ein kona. Hilmar Helgason lofaðl úrbót- um hið snarasta. DB-myndlr Einar Ólason. Mikið af fátœku fólki f borginni Að Ránargötu 10 annast Vernd fatamiðlun og er hún, eins og árlegur jólafagnaður félagsins, ölium opin. , ,Það er ótrúlegt hvað til er af fátæku fólki í Reykjavík. Það kemur á öllum aldri, frá átján upp i áttatlu,” sagði Sigríður Óiáfsdóttir. Hún sagði að þessa stundina vantaði tilfinnaniega föt á feitar konur en þó væri húsnæði það sem sárast skortí. ,,Við erum I skúr sem lekur svo mikið að það kemur fúkkalykt af fötunum ef þau ganga ekki út strax,” sagði hún. Fatamiðlunin er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 2—4. Björk Bjarkadóttír fangavörður og Baidur Álfsson, fyrrverandi fangi: „Ég hef verið átta sinnum á Litla-Hrauni og fannst orðið eins og ég væri að koma heim tíl min þegar ég kom þangað,” sagði Baldur. En nú hefur hann fundið sér annan lífs- stil og gengur vel. DB-mynd: Einar Ólason. Geðveikir fá ekki lœknishjálp í fangelsum Mikið var rætt um fangeisismál. Sr. Jón Bjarman fangelsisprestur vitnaði í nýlega skýrslu frá land- lækni, þar sem fram kom að af 72 föngum i Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og fangelsinu við Siöumúla árið 1979 virtust um 18% eiga við geðræn vandamál aö stríða. Engin ástæða er tíl að ætla að hlut- fallið sé iægra á Litla-Hrauni. Þar eru nú þrir fangar sem ekki eru sak- hæfir vegna geðveiki. Þeir fá enga iæknismeðferð, aöeins róandi lyf. Tveir þeirra voru i marz fluttír í ein- angrunarálmu fangeisisins. Við það hefur ástand þeirra andlegt versnað mjög, og lagði sr. Jón Bjarman áherzlu á að slíkir menn ættu að vera undir læknishendi en ekki i fangeis- um. Það var lika afar erfitt fyrir fangaverði að horfa upp á slikt. Björk Bjarkadóttir fangavörður tók undir þetta, óskaði eftir aukinni drukkna fanga i sama húsi og litill svefnfriður um helgar.” (Fulltrúar yfirvalda telja að hjá Hilmari hafi verið um nokkrar rang- færslur að ræða. Heimsóknartimi sé rýmri og útivist meiri en hann hélt fram á fundinum. Það sé þó af ýmsum ástæðum, m.a. staðsetningu, ekki heppilegt sem langdvalarfang- elsi). Þrjár konur á dag koma barðar á slysa- varðstofuna Um eitt mál var fjallað á fundinum sem ekki snertir fanga fremur en aðra. Kristin Ástgeirsdóttir blaða- maður sagði að i undirbúningi væri að stofna athvarf fyrir konur sem þurfa að flýja heimili sfn vegna of- beldis. Mánaðarlega þurfa 18—20 konur að biðja lögregluna að fjar- lægja menn af heimilum sinum vegna barsmiða. Á slysavarðstofuna koma að meðaltaii þrjár konur á dag — Einu sinni var Stjórnarráðshúsið fangelsi en nú er Hegningarhúsið við Skóla- vörðustig elzta fangelsi landsins, yfir 100 ára gamalt. Hanna Johannessen sagði frá til- högun jólafagnaðar, sem haldinn er árlega i húsnæði Slysavamafélagsins á Grandagarði. Er þar opnað kl. 3 e.h. á aðfangadag og boðið upp á góðar veitingar, gjafir og guðsorð fram undir miðnættí, allt i sjálfboða- iiðsvinnu.-Flest hafa komið um 140 manns í jólafagnaðinn. ,,En í fyrra aðeins um 50, sem eru góöar fréttir,” sagði Hanna. menntun fangavarða. ,,Við fáum viku námskeið en á Norðurlöndum læra fangaverðir i tvö ár,” sagði hún. (Fmmvarp um aukna menntun fangavarða liggur nú fyrir Alþingi.) Nýjasta ffangelsið verat? Hilmar Helgason, sem heimsótt hefur flest fangeisin telur þau gömlu þrátt fyrir ailt notalegri verustaði en nýja kvennafangelsið á Akureyri. „Eftír nokkrar klukkustundir þar var mér orðið hálfillt af Ioftíeysi. Þar er enginn opnanlegur gluggi og engir ofnar en upphitun i góifinu. Konurnar hafa enga vinnu, fá litíð að vera úti og em mjög einangraðar, heimsóknartimi aðeins hálf önnur klukkustund (á Litla-Hrauni sex stundir) á viku. Þar að auki er geymsla fyrir Jóhann Viglundsson var um skeið frægur fyrir að brjótast út úr hvaða fangelsi sem var og gengu af honum miklar ævintýrasögur. Hann á nú hvorki sökótt við guð né menn. DB-mynd Einar Ólason.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.