Dagblaðið - 23.05.1981, Síða 1
7. ÁRG. — LAUG ARDAGUR 23. MAÍ1981-115. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVF.RHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
f 7
Kreditkortastríði Olís og biðskýlisins í Kópavogi lokið:
„MJOG OHRESS MED ÞESSA
EINOKUN OLÍUFÉLAGANNA”
—segir Jósteinn Krístjánsson sem dró kæru til Samkeppnisnef ndar til baka og fékk þá aftur bensín
„Samkeppnisnefnd hélt fund um
þetta mál og ákvaö að Verðlagsstofn-
un yrði falið að ná sáttum í málinu.
Áður en til þess kom frétti ég að
Jósteinn væri búinn að draga kæruna
til baka,” sagði Björgvin Guðmunds-
son formaður Samkeppnisnefndar í
gær er hann var spurður hvernig
gengi með kæru Jósteins Kristjáns-
sonar i biðskýlinu að Kópavogsbraut
115. Eins og DB skýrði frá á sínum
tima lenti Jósteinn í striði við Olíu-
félagiö vegna þess að hann seldi
bensín út á krítarkort. Olís hætti að
selja Jósteini bensin en hann kærði
málið til Samkeppnisnefndar.
„Því er fljótsvarað hvers vegna ég
dró kæruna til baka. Ég fékk upplýst
hjá einum aðila innan Samkeppnis-
nefndar að Olíufélagið gæti staðið á
þessu máli þar sem það á bensíntarik-
ana. Auk þess hef ég orðið fyrir
miklu fjárhagslegu tjóni þar sem
bensín hefur ekki fengizt hjá mér á
annan mánuð.
Ég á hvorki húsnæðið né bensín-
tankana og sé mér ekki fært að missa
tankana. En ég gerði þetta ekki með
glöðu geði. Ég er mjög óhress með
þessa einokun olíufélaganna,” sagði
Jósteinn Kristjánsson í gær. Er
kæran gekk til baka i fyrradag var
strax afgreitt til hans bensín.
-ELA.
Norræna landskeppni fatiaðra:
Ungen trimma samt
Norrœna trimmkeppnin er ifullum gangi þessa dagana enda fer að styttast i að henni Ijúki. Það eru ekki bara þeir eldri sem
taka þátt I keppninni. Hún er opinfyrir allan aldur. Börnin í sérdeildfjölfatlaðra i Múlaborgfara daglega igöngu og sund og
safna þannig stigum I keppninni þó ekki séu þau gömul. Hér eru tvö barnanna ásamt þroskaþjálfara sínum, Hrefnu Þórarins-
dóttur, að koma úrgöngu I gœr.
ELA-DB-mynd Sig. Þorri _ ^ ejnnjg á jjfc J
Óvíst þótti um þingslit um miðaftan
ígær:
Erfíöarfæð-
ingarhríðir
margra stjóm-
arfrumvarpa
— öllum stóru st jórnarf rumvörpunum
hefurverið breytt
Um miðaftan í gær þótti óljóst
hvort þingslit yrðu kl. 11 í dag, eins
og ráðgert hafði verið. Fæðingar-
hríðir stjórnarfrumvarpsins um raf-
orkuver voru erfiðar. Eftir að
stjórnarsinnar gerðu á því breytingar,
á þá leið að kveðið væri á um meiri
orkuvinnslu á Hrauneyjafoss- og
Sigöldusvæðinu en upphaflega var
gert ráð fyrir, var frumvarpið sam-
þykkt við 2. umræðu í neðri deild..
Voru breytingarnar sagðar það gjald
sem Eggert Haukdal hafði sett upp
til að tryggja frumvarpinu samþykki.
Frumvarpið „slefaði” því til 3.
umræðu og búizt var við atkvæða-
greiðslu um það eftir 3. umræðu
undir miðnætti sl.
Næturfundur var fyrirsjáanlegur,
þrátt fyrir mótmæli þingmanna um
kvöldfund fjórða kvöldið í röð.
Meðal umræðuefna áttu að verða
frumvörpin um steinullarverksmiðju
(2. umræða) og frumvarp um stál-
bræðslu sem efri deild hefur sam-
þykkt.
Bæði verksmiðjufrumvörpin eru
breytt orðin frá því að ráðherra lagði
þau fram. Er þátttaka ríkisins bundin
við að aðrir hluthafar leggi fram 30%
af kostnaðarverði verksmiðja áður en
ríkið kemur til. Fellt er og niður það
orðalag að ríkið geti á nokkurn hátt
haft forystu um uppbyggingu verk-
smiðjanna.
Frumvarpið um sjóefnavinnslu á
Reykjanesi hlaut samþykki neðri
deildar í gær. Þar var sú breyting á
frumvarpinu gerð að óheimilt er að
hefja byggingu 40 þúsund tonna
saltverksmiðju nema að fengnu nýju
leyfi Alþingis og að fengnum til-
boðum í framleiðsluna. Neðri
deildarmenn minntu á Kröflumistök-
in í sambandi við saltvinnsluna.
Þetta eru því ekki dagar Hjörleifs
ráðherra Guttormssonar á Alþingi.
-A.St.
Albert beðinn að mæta ekki
á þingfíokksfundi
— sjá baksíðu
Hjólað tilstyrktar fótiuðum
_ — sjábls.7
Enginn afíi á hefðbundnum
netaslóðum
sjábls.6
I