Dagblaðið - 23.05.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 23.05.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1981. 3 Um Sunnudagsgátuna: Ymsir byrjunarörðug- leikar hafa komið í Ijós —fyrsta myndin verður endursýnd og verður á skjánum í fullar 30 sek. Guðmundur Gunnarsson skrifar f.h. fjáröflunarnefndar Kórs Langholts- kirkju: Sl. fimmtudag skrifar einhver, sem ekki þorir að segja til nafns, pistil þar sem hann sér ástæðu til að reka horn í síðu Kórs Langholtskirkju vegna svonefndrar Sunnudagsgátu. Nafnlaus bréf eru frekar lágkúru- legur tjáningarmáti en fyrst hafin eru á annað borð blaðaskrif þá er rétt að nota tækifærið og gera örlitla grein fyrir fyrirbrigðinu Sunnudagsgát- unni. Kór Langholtskirkju hyggur sem kunnugt er á söngför til Kanada og Bandarikjanna. En kór samanstend- ur af mörgum einstaklingum og þegar svona ferð kemur til álita er ekki þar með sagt að allir geti pakkað niður og arkað af stað með það sama. Ræður þar misjafn fjárhagur mestu. Þá er gjama brugðið á það ráð að leita til almennings til stuðnings við fyrirtækið og eru notaðar til þess ýmsar leiðir, sumar meira en aðrar, og sumar svo að fólki er farið að leið- ast þófið. Vesturheimsferð er dýrt fyrirtæki og því nægði ekki að selja kökur og syngja á skemmtunum. Við bjuggum því út þennan leik, Sunnu- dagsgátuna, og vonuðumst til að þetta nýja happdrættisform (dregið verður úr réttum lausnum) ásamt sæmilega veglegum vinningum fengi góðar viðtökur hjá almenningi. Sú varð og raunin. En Sunnudagsgátan er nýtt fyrir- brigði sem aldrei hefur verið reynt áður og því hafa ýmsir byrjunarörð- ugleikar orðið á vegi okkar. Til dæmis hefur komið í ljós að sölukerf- ið hefur ekki verið nógu vel útfært þannig að menn, því miður, hafa jafnvel átt erfitt með að útvega sér miða sem augljóslega er slæmur galli svo ekki sé meira sagt. Ennfremur kom í ljós að við höfðum áætlaö sýn- ingartíma gátunnar of knappan óg hefur því verið ákveðið að endursýna myndina úr fyrstu Sunnudagsgátunni þann 31. maí á undan 3. og siðustu gátunni. Verður hver mynd kyrr á skjánum í fullar 30 sek. Hafa nú allir möguleika á að ganga úr skugga um hvaða þjóðfrægur staður á landinu skartar þessu umrædda fjalli. Hvað varðar fyrrgreint bréf þá sjáum við ekki ástæðu til að gera efni þess að umtali frekar en orðið er. Margir urðu til að hringja í okkur og benda okkur kurteislega á hvað betur hefði mátt fara og sögðu að sjálf- sögðu til nafns. Við kunnum þessu fólki þakkir fyrir ábendingarnar og sömuleiðis landsmönnum öllum fyrir ................... Nýbylgjurokkari hafði gaman af kveðjutónleikum Utangarðsmanna þrótt fyrir að þeir hafi ekki komið ó óvart. Kveðjutónleikar Utangarðsmanna: Skemmti- legirtón- leikar — mörg laga Utangarðs - manna þannigadþau verða skemmtilegri eftirþvísem maður heyrirþauoftarflutt Nýbylgjurokkari skrifar: Ég rakst um daginn á lesendabréf í DB þar sem auglýsingabrella Einars „umba” i sambandi við kveðjutón- leika Utangarðsmanna var gagnrýnd. Einar sagði fyrir tónleikana að á tón- leikunum myndi ýmislegt koma á óvart. Þetta stóðst ekki. Þvi tek ég undir gagnrýnina, í áðurnefndu lesendabréfi, á þetta atriði. Hins vegar hafði ég gaman af umræddum tónleikum. Utangarðs- menn eiga það til að breyta útsetning- um og textum við lög sín á milli hljómleika. Á kveðjutónleikunum vöktu þeir t.d. mikla kátínu fyrir nýja útfærslu á Rækjureggae (ha, ha, ha). Þá eru mörg laga Utangarðs- manna þannig að þau verða skemmti- legri eftir því sem maður heyrir þau oftar flutt. Eitt gleggsta dæmið um slíkt er lagið hans Mike Pollocks, Where Are The Bodies, af plötunni 45 rpm. „HJÁLPARHELLAN" í ELDHÚSINU Loksins er komin lítil þægileg hræri-, hakkavél og kvörn. Allt fylgir með frá byrjun. Vélin gerir ótrúlegustu hluti, en verðið er enn ólrúlegra: aðeins kr. 792,00 Þetta eru aðeins nokkur dæmi um hvað „hjálparhellan” frá Husqvarna gerir, hún getur miklu meira ... r \mriai S^ó^eitóóan h.f. SUÐURLANDSBRAUT 16, SÍMI35200 annars ágætar undirtektir við þessari liðsbón okkar. Að lokum viljum við ítreka að hver miði Sunnudagsgát- unnar gefur þátttakendum fjóra vinningsmöguleika og í þessu happ- drætti ganga allir vinningar út. BLANDAR SÚPU HAKKAR KJÖT SNEIÐIR GÚRKUR OG KARTÖFLUR HNOÐAR DEIG RÍFUR GULRÆTUR ÞEYTIR RJÖMA SAXAR HNETUR RÍFUR HVÍTKÁL SAXAR STEINSELJU OG DILL RÍFUR 0ST Spurning dagsins Hvað mundir þú gera ef þú eignaðist 10 þús. kr. í dag? Guðvarður Mór Gunnlaugsson af- greiðslumaður: Ég hef ekki hugmynd um það. Kristin Eggertsdóttir, vinnur i Arnar- holti:Ég hugsa að ég mundi bara kaupa mér föt. Vigfús Jónsson, atvinnulaus: Ég mundi leggjaþæribíi. Einar Guðmundsson, atvinnulaus: Ég mundi kaupa Spánarferð. Brynja Viðarsdóttir, atvlnnulaus: Ég mundi leggja þær í bil.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.