Dagblaðið - 23.05.1981, Side 2

Dagblaðið - 23.05.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1981. Skora á alþingis- menn að lögleiða ekki notkun bflbelta —bflbelti eiga fullan rétt á sér í þéttbýli en ekki f dreifbýli Birglr Jónsson (1124—2308) skrifar: Ég vil skora á alþingismenn að lög- leiða ekki notkun bílbelta. Fólk er orðiö langþreytt á þessum vitlausu lagasetningum, boðum og bönnum alls staðar. Hnefaleikar eru bannaðir, bannað er að drekka sterkan bjór og fyrir nokkrum árum var bannaö að reykja i leigubílum. Það er orðið óvært á þessum kletti fyrir alls konar bjánalegum laga- setningum. Já, þetta meö bílbeltin. í sambandi við þau gilda ekki sömu lögmál þegar ekið er i dreifbýli og í þéttbýli. Lögleiðing notkunar bílbelta i þétt- býli á fullan rétt á sér þar sem árekstrahætta þar er miklu meiri en þegar ekið er i dreifbýli. En þegar ekið er í dreifbýli er betra að vera óspenntur ef bíllinn hendist út af veginum, eins og dæmin sanna. Það er því fjarstæða af alþingis- mönnum að ætla að lögleiða notkun bílbelta án updantekninga. Segðupang íBreiðlioltsleikhúsinu: Þarft verk sem vekur upp margar spumingar — kærar þakkir fyrir góða skemmtun Úr sýningu Breiðholtslelkhússins á Segöu pang. Móðir við Vesturberg skrifar: Um síðustu helgi fór ég með dætur mínar tvær að sjá sýningu Breiðholts- leikhússins á barnaleikritinu Segðu pang. Ég verð að segja það að þaö er langt siðan ég hef skemmt mér jafnvel í leikhúsi. Það var ekki síður gaman að sjá hve gaman börnin höfðu af leikritinu. Mig langar til að senda Breiðholts- leikhúsinu þakkir mínar fyrir frá- bæra skemmtun og sérstakar þakkir færi ég hinum óþekkta höfundi fyrir vel samið og þarft verk sem á ekki síður erindi til okkar fullorðna fólksins. Leikritið vekur margar spurningar sem við foreldrar ættum að hugleiða við uppeldi barna okkar. Birgir skorar á alþingismenn að lögleiða ekki notkun bilbelta. Leiðrétting í lesendabréfi sl. miðvikudag skrif- aði Stafkerling um hættulegar tröppur sem væru e.t.v. á vegum fyrirtækisins Jöfurs i Kópavogi. Þessar tröppur hafa e.t.v. einhverntíma verið ábyrgð Jöfurs, en eru það a.m.k. ekki lengur þar sem fyrirtækið flutti fyrir ári frá Auðbrekku og er nú staðsett við Mýbýlaveg. Hringtö isíma \ Utsýnarferö — bezta fjárfestingin AUSTURSTRÆT117 SÍMAR 20100 OG 26611 SABBIAD0R0 LIGNANO NU SKIN SOLIN GLATT A GULLNU STRÖNDINNI OG HITINN ER ÞÆGILEGUR Forsjáll ferdamaður velur Útsýnarferð Blikandi sólskin — blátt haf — dimmgrænn furu'skógurinn. sem ilmar yndislega — idandi mannltf — góöar verzlanir — og ítölsk matar- gerdarlist — hvað er hægt að hugsa sér hetra í sumarleyfinu? RESIDENCE LUNA 2 3-4 Bjartar og rúmgóðar ibúðir alveg á ströndinni á bezla stað í Lignano. Íbúðirnar eru með I eða 2 svefnherbergjum, stofu, baði og eldhúsi. Cóðar svatir. Á jarðhæð er eigin skrifstofa Útsýnar og fjöldi þjónuslu- fyrirtækja s.s. matsölustaðir, verzlanir, kaffthús. hjólaleiga o.Jl. Sund- laug og garður. Diskótek. KYNNISFERÐIR Lignano er frábærlega vel staðsett með tilliti lil áhugaverðra ogfróð- legra kynnisferða til fornfrægra borga og staða i þessu sögufrægasta landi Evrópu. Möguleikarnir eru óþrjótandi eftir óskum farþega, s.s. Flórenz, Róm, Verona, Milano, Trieste. Örstutl er til Austurrikis og Júgóslavíu. Ógleymanleg ferð öllum sem reynl hafa er Feneyjaferðin. Sigling um síkin á gondól hefur lengi verið talin tákn rómantíkur. Það bezta eródýrtí Útsýnarferð

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.