Dagblaðið - 23.05.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. MAÍ1981.
5
Tillögur Jan Mayen sáttanef ndarinnar opinberaðar:
Sameiginleg nýting ís-
lendinga og Norömanna
—áauðlindumá
landgrunninumilli
íslandsogJan
Mayen. ísland
fengifjórðung
olíuhagnaðar
Tillögur sáttanefndarinnar í Jan
Mayenmálinu voru kynntar íslenzkum
blaðamönnum í gærmorgun og á sama
tíma voru þær kynntar norskum blaða-
mönnum. Svo sem fram hefur komið í
fréttum var formaður sáttanefndar-
innar, Bandaríkjamaðurinn Elliot L.
Richardsson, hérlendis á dögunum og
kynnti íslenzkum stjórnvöldum niður-
stöður nefndarinnar. Hann er nú í
Osló, þar sem hann hefur kynnt
norskum stjórnvöldum sömu niður-
stöður.
Auk Richardsson voru fulltrúar
íslands og Noregs i nefndinni. Hans G.
Andersen sendiherra og Jens Evensen
sendiherra.
Tillðgur nefndarinnar eru á þá lund
að Norðmenn og íslendingar nýti í
Hans G. Andersen sendiherra, fulltrúi
íslands I sáttanefndinni.
DB-myndir: Einar Ólason
sameiningu auðlindir á landgrunninu
milli íslands og Jan Mayen. Ekki er
dregin skiptilína milli landanna og er
með því farið inn á nýja braut í slíkri
skiptingu.
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra sagði á fundinum í gær að sátta-
tillögur þessar væru ekki bindandi fyrir
ríkisstjórnir landanna. Koma þyrfti
þessum tiilögum í samningsform og
væri ekki ljóst hvenær það yrði. Ráð-
herrann sagði að ríkisstjórnin væri
mjög jákvæð gagnvart tillögunum og
hefði fallizt á þær sem viðræðugrund-
völl. Tillögur nefndarinnar hefðu
einnig verið bomar undir þingflokkana
og eru menn sammála um að með þeim
sé fengin niðurstaða sem rétt sé að
byggjaá.
Hans G. Andersen sagði að tiltölu-
lega lítið væri vitað um þetta svæði.
Nefndin hefði kallað saman jarðeðlis-
fræðinga frá Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Þýzkalandi, Noregi og íslandi og
báru menn saman bækur sínar í
Columbia-háskóla í Bandaríkjunum.
Aðallega var rætt um tvær spurn-
ingar. í fyrsta lagi, hvort iita mætti á
Jan Mayen hrygginn sem framhald af
íslandi og síðan hvar væri vænlegast að
finna auðlindir, aðallega olíu og gas, á
svæðinu milli íslands og Jan Mayen.
Niðurstaðan er sú að Jan Mayer.
hryggurinn er ekki framhald af land-
grunni íslands heldur sneið frá Græn-
landi, fráskilin vegna Iandreks. Líkur
eru á því að olíu og gas megi finna á
ákveðnu svæði og aukast líkurnar eftir
þvi sem nær dregur Jan Mayen.
Norðmenn vildu fyrst binda sig við
miðlínu milli fslands og Jan Mayen en
féllu slðan frá þvi og tekið var tillit til
sanngirnissjónarmiða. Megnið af þvi
svæði sem talið er að finna megi olíu og
gas á er utan 200 mílna markanna
austur af íslandi, en þó teygir angi sig
inn fyrir mörkin.
Tillögur nefndarinnar eru þær að
Norðmenn annist frumrannsóknir á
svæðinu í samráði við íslendinga. Ef
ekkert finnst borga Norðmenn.
Ef olía eða gas finnst er gert ráö
fyrir því að samið verði við olíufélag.
Olíufélagið leggi út kostnáðinn og fái
síðan 50% fyrir að finna og hagnýta
olíuna og gasið. Hinum 50% verði
siðan skipt jafnt milli fslands og
Noregs.
í skýrslu nefndarinnar er þó tekið
fram, að dýpið, þar sem hugsanleg
auðæfi sé að finna, sé það mikið að
nútímatækni ráði ekki við vinnslu á því
svæði. Þá er bent á- að fjarlægð frá
mörkuðum sé mikil, þannig að finna
verði mikið olíu- og gasmagn til þess að
arðvænlegt sé að vinna það. Svæðið
sem hér um ræðir er 45.475 ferkíló-
metrar að stærð. Megnið er á Jan
Mayen hryggnum en 12.725 ferkíló-
metrar innan 200 mílna markanna við
fsland.
Gert er ráð fyrir því að tilraunabor-
anir á svæðinu standi yfir í 5—9 ár.
Það sem bendir til þess að þarna sé olíu
og gas að finna er að ekki er úthafs-
skorpa á þessu svæði.
Ólafur Jóhannesson sagði að gerðir
hefðu verið fyrirvarar um mengunar-
varnir og umhverfisvernd er málið var
kynnt fyrir þingflokkunum á dögun-
um. Aðstaða væri sérstök í norðurhöf-
um. Norðmenn ættu mikið undir því
að lífríki raskaðist ekki en við íslend-
ingar enn meira vegna fiskveiðanna.
Utanríkisráðherra sagði að þegar
Richardsson hefði kynnt skýrslu sátta-
nefndarinnar í Noregi hefði Knut
Frydenlund utanrikisráðherra sagt að
tiliögurnar gætu orðið grundvöllur
fyrir samninga.
Tillögur nefndarinnar kynntar á fundi i gær. Hans G. Andersen sendiherra, Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra og
Hannes Hafstcin skrifstofustjóri utanrikisráðuneytisins.
DANIR MUNA HANN JÖRUND
— Litla leikfélagið í Garðinum í Danaveldi
„Danirnir héldu að ég ætti við
Anker Jörgensen forsætisráðherra,
þegar ég nefndi „Kong Jörgensen”,
og hlógu dátt,” sagði Sigurjón
Kristjánsson, túlkur Litla leikfélags-
ins úr Garðinum, sem þessa dagana
sýnir Þið munið hann Jörund eftir
Jónas Árnason, í Danaveldi, „Það
var fyrir fyrstu sýninguna, þegar ég
rakti efnisþráðinn fyrir áhorfendur,
en „Jörundur” er leikinn á
íslenzku,” bætti hann við.
Gestgjafarnir, leiklistaráhugafólk i
Jellerup á Jótlandi, tók á móti Litla
leikfélaginu meö kostum og kynjum,
þjóðdönsum og söng. Einnig var
farið með hópinn í skoðunarferð um
nágrennið, en leikararnir bjuggu á
einkaheimilum. „Þeir i Jellerup voru
mjög hrifnir af Jörundi og vildu fá
aðra sýningu en því varð ekki við
komið vegna fyrirhugaðra sýninga í
Kaupmannahöfn. Hins vegar sungu
leikararnir alla söngvana úr Jörundi í
kveðjuhófinu, þar sem þeir voru
hljóðritaðir fyrir þá sem ekki
gátu séð leikritið,” tjáði Sigurjón
okkur f gegnum símann.
Um helgina verða þrjár sýningar á
Jörundi í Theater Katten í miðborg
Kaupmannahafnar en heimleiðis
heldur hópurinn fljótlega eftir helg-
ina. -emm
Kort af svæðinu milli íslands og Jan Mayen. Island sést neðst 1 vinstra horninu og
Jan Mayen ofarlega fyrir miðju. Það svæði sem líkur eru taldar á að geymi oliu og
gas er dekkt með örsmáum punktum.
Verði gerður samningur upp úr
tillögum sáttanefndarinnar verður að
leggja hann fyrir þing beggja þjóð-
anna. Líklegt er að slíkur samningur
verði lagður fyrir Alþingi í haust.
-JH.
MAJOR GEOLOGICAL PROVINCES
JAN MAYEN RIDGE AREA
N MAVEN F 2. CNUST
[-------MAJ*SUN0E!l»1InÍ4«TNUCr
EE3
Lionsmenn gefa heila skurðstof u á
HNE-deild Borgarspítala:
YFIRLÆKNIR TAL-
AR UM „BR0STINN
HLEKK” í STJÓRN
HEILBRIGDISMÁLA
—þegar þróun heillar sérgreinar
grundvallast að verulegu leyti á
gjöfum Lions-manna
„Staöreyndin er að uppbygging og landi meðan svo er. Læt ég ósvarað
þróun heillar sérgreinar læknisfræð- þeirri spurningu hvort sá hlekkur
innar við sjúkrastofnun á íslandi, í fyrirfinnst i yfirstjórn heilbrigðis-
þessu tiifelli háls-, nef- og eyrna- má]a þeSsa iands eða innan vcggja
læknisfræðinnar, hefur að verulegu þessa spítala, eða hvort tveggja,”
leyti grundvallazt á stórgjöfum vel- sagði yfirlæknirinn.
viljaðrar fjöldahreyfingar I landinu,” Lionsmenn um iand allt söfnuðu i
sagði Stefán Skaftason, yfirlæknir fyrravor um 72 milijónum króna til
Háls-, nef- og eyrnadeildar Borgar- styrktar áðurnefndum lækningum.
spítalans, er hann sýndi blaðamönn- Voru tækin þegar pöntuð og greidd
um stórgjöf Lionshreyfingarinnar á 0g hefur nýtízku skurðstofa nú verið
fslandi, fullkomna tækjasamstæðu sett á laggirnar meö tækjum þeim
til sérhannaðrar skurðstofu fyrir sem keypt voru fyrir afrakstur
háls-, nef- og eyrnalækningar að fjaðras.ölunnar. Eru tækin í dag virði
verðmæti um 160 milljónir gkr. rúmlega 100 milijóna króna en ríkis-
„Hversu má það ske að sjúklingar sjóður gaf eftir aðfiutningsgjöld og
haldnir þessum sjúkdómi eiga heiisu söluskatt að upphæð um 60 millj.
sina verulega að þakka félögum sem gkr. Gjöf þessi mun vera sú stærsta
að líknarmálum vinna. Óneitanlega sem líknarfélag og þjónustuklúbbur
er einhvers staðar brostinn hlekkur í hefur gefið til þessa til liknarmála.
uppbyggingu sjúkrahúsmála á ís- jbP.