Dagblaðið - 23.05.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. MAÍ1981.
13
I
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Woody Allen með þelrrl fyrrverandl og
hinni núverandi — eða öfugt — báðar
gætu jafnvel verið núverandi.
Hvað er með
WoodyAllen?
— er hann með Míu
eða Jean?
Undanfarið virðist ástin hafa
blómstrað milli þeirra Miu Farrow og
Woody Allen en hvað er nú að gerast?
Fyrrverandi vinkona hans, Jean
Doumanian, hefur allt í einu skotið
upp kollinum á nýjan leik. Ekki nóg
með það, heldur sást hún með þeim
hreint um alla Parísarborg núna
nýverið.
Hefur þetta undarlega háttalag
þrenningarinnar valdið miklum heila-
brotum. Til dæmis velta menn fyrir sér
hvort hún hafi komizt upp á milli
Woody og Miu, eins bókstaflega og
þessi mynd bendir til, þvi Woody er þó
tæplega að búa sig undir fjölkvæni.
Anthony Quinn hélt heldur betur
upp á 66 ára afmælisdaginn sinn um
daginn, enda fjallhress og lífsnautna-
maður hinn mesti.
Uppruninn á sennilega ekkert lítinn
þátt í því máli því Quinn er írskur
Mexíkani, eða mexíkanskur íri — allt
eftir hvernig maður lítur á hlutina. Ætli
leyndarmálið í sambandi við úthaldið
gæti ekki verið einhver hugguleg
blanda af viskíi og tequila? Einhver vís-
indalega sinnaður áhugamaður um
efnið ætti að drífa sig í að rannsaka
það mál — og láta okkur fyrir alla
muni vita hið bráðasta — ef niður-
staðan reynist jákvæð.
En áfram með afmælið. Það hélt
Quinn í Manhattan einhvers staðar, í
ekta Zorba-stil. Hann hvatti gesti sína
eindregið til þess að borða, drekka og
skemmta sér sem bezt og tilkynnti að
síðar um kvöldið ættu allir að fækka
fötum og dansa. { þessu sambandi er
rétt að geta þess strax að fötum var
ekki fækkað svo mikið að til
vandræða horfði, bara smá. Hins vegar
var svo sannarlega dansað af hjartans
lyst. Afmælisbarnið var til mikillar
fyrirmyndar í þeim efnum. Einn gest-
anna lét hafa eftir sér að Quinn hefði
dansað við allar konur nema sína eigin.
Við höldum að tvær hafi orðið
útundan, eiginkonan og siðan sú sem
þetta sagði. Eitt er þó öruggt, nefnilega
að söngkonu, Mercedes að nafni, lét
hann ekki afskipta og kemur það mjög
greinilega fram á myndinni af þeim.
Anthony Quinn heidur upp á 66 ára
afmælið sitt af lifi og sál.