Dagblaðið - 13.07.1981, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ1981.
DB á ne ytendamarkaði
Geysttegtúrvaí
aigriUumog
fy\g\h\U^U,n
GASGRILL SU NÝJUNG
SEM MEST BER A
Glóðarsteiking á mat hefur færzt
mjög í vöxt hin síðari ár. Á björtum
sumarkvöldum má finna nær hvar
sem er í Reykjavík ilm af glóðar-
steiktum mat, enda er matur, sem
eldaður er á glóð, einhver sá bezti
sem hægt er að fá. Hver fjölskylda,
sem mögulega getur komið því við, er
komin með grill eða hefur hugsað sér
að eignast það. Á þetta að minnsta
kosti við hér á höfuðborgarsvæðinu
þó þessi tízkustraumur hafi e.t.v.
ekki náð eins út á land.
En á ferð okkar um bæinn á dög-
unum komumst við að því að sitt-
hvað er grill og grill. Það eru til ótal
tegundir og þær sem fyrst náðu vin-
sældum eru nú sem óðast að hverfa í
skuggann fyrir nýjum. Það nýjasta
hér á landi eru gasgrill sem þekkt eru
erlendis. Þau hafa þá kosti að vera
fljótari að hitna og steikja matinn.
Þau eru einnig ódýrari í rekstri því
gasið er ódýrara en kolin. En margir
halda því fram að þau hafi jafnframt
þann galla að maturinn bragðist ekki
eins vel úr þeim og það sé atriðið sem
mestu máli skipti. Fylgismenn gas-
grilla benda hins vegar á að með réttu
Póstverzlunin Akrar flytur inn þessi grill. Þau eru amertsk og heita Weber. Þau
eru húóuö með postulinshúð sem ekld i að skemmast þritt fyrir mikla notkun.
Þeim fylgir Gmm ira ábyrgð og eiga þau að geta enzt von úr vití. En þau eru dýr.
Stóra grillið kostar 3.090 kr. hvitt og 3.190 kr. I öðrum Ut. Litla griIUð tíl vinstri
er eitthvað ódýrara en nikvæmt verð li ekki fyrir þegar þetta var skrifað. Sömu
sögu er að segja um ferðagrillið til hægri. Erlendis eru tii gasgrill með sömu upp-
byggingu en þau hafa ekki ennþi verið flutt hingað tíl lands.
I ÚtiUfl var langmest úrval af grillum af þeim stöðum sem við komum á. Varð að mynda þau I tvennu lagi, þau komust ekki
fyrir á einni mynd. Urðu þó nokkur útundan. Lengst tíl vinstri á þessari mynd er gasgrill sem kostar 620 krónur. Við hUð
þess er grill úr pottí á 271 krónu. Þá kemur lítið einnota grill á 25 krónur. Þetta er aðeins álform með hálmi og nokkrum
kolamolum. Við hUð þess er sprittkynt plata sem notuð er til að halda mat heitum. Hún kostar 125 krónur. Fyrir aftan hana
er pottgrill sem kostar 22 krónur. Yzt tíl hægri á myndinni er síðan gasgrill á 677 krónur.
Meira af grillum úr Ctílifi. Lengst tíl vinstri er mjög stórt grill úr járnblöndu. Merkið Lusifer, sem á þvi er, var lengi aðal-
merkið á markaðnum. Við hUð þess kemur grill með loki sem kostar 316 krónur. Þá kemur annað á 184 krónur og bak við
það grill I sérsmíðuðu borði. Þvf er haldið saman af 4 skrúfum og þvl þægilegt að setja það upp hvar sem er. Næst kemur grill
á 269 krónur og loks grill sem kostar 415 krónur.
Liðurinn „annað” upp úr
Klln wolrli Nýja krónan dugaralls ekki
OIIU VaiUI beturen súgamla
V
JÓ SVÍNAskrokkar I frystinn
T Verð kr. ' 45,00 pr. kg. l : i
'MIÐ STÖÐIN Laugalack 2.s.86511 ]
VBRZLIO VID FAGMENN
„Liðurinn „matur og hreinlætis-
vörur” var svipaður í maí og hann
var í apríl. Liðurinn „annað” er mun
verri, enda ýmislegt sem tínist til,”
segir m.a. í bréfi frá húsmóður á
Norðausturlandi.
Hún er með 650 kr. í meðaltal á
mann í mat og hreinlætisvörum.
Dálkurinn „annað” hljóðar upp á
14.453 kr. Þar er m.a. afborgun á
húsnæðisláni og vextir 5.341, loft-
klæðning í hluta hússins 6.824 kr.,
trygging og flutningur frá Reykjavík
og austur 428 kr. og skattur og útsvar
807 kr.
„Svo tínist alltaf ýmislegt smotterí
til. Ekki endist mér nýja krónan
betur en sú gamla, held bara að hún
blekki mann,” segir þessi húsmóður.
Vegna þess að nýlega vorum við
beðin um að segja frá upphæðum í
dálkinum „annað” ætluð við í
framtíðinni að tína til eitt og eitt bréf
þar sem einhver grein er gerð fyrir
þessum útgjaldalið.
-A.Bj.
kryddi megi fá „rétta” bragðið fram.
Hins vegar sé engin hætta á því að
brunabragðið, sem stundum kemur
af kjöti grilluðu á kolum, láti á sér
kræla.
En þó menn hyggist ekki fara svo
langt út í nýjungarnar, sem gasgrill
eru, er eigi að siður hægt að endur-
nýja og fá sér nýja gerð kolagrilla.
Þau fyrstu, sem voru hér á markaði,
voru langflest, ef ekki öll, úr þunnri
járnblöndu. Þau vildu því ryðga ef
þau náðu að blotna. Grill úr potti eru
hins vegar það nýjasta og eiga þau
ekki að ryðga. Þau eru þyngri en hin
griltin en að minnsta kosti sum þeirra
er hægt að leggja saman þannig að
IJtið meira fer fyrir þeim en gömlu
góðu ferðagrillunum. Potturinn á að
vera þægilegri að þrífa og auðveldari
í allri umhirðu. En hann er nokkuð
dýrari.
Gömlu, góðu grillin
Enn er hægt að fá gamaldags grill
úr járnblöndu í miklu úrvali allt frá
ferðagrillum sem nánast að segja
ekkert fer fyrir og upp í mjög stór
grill sem eiginlega verða að eiga sér
fastan samastað í garðinum eða á
svölttnum. í Útilifi rákumst við meira
að segja á eitt grill með áföstu borði
sem töluvert mikið fór fyrir en leit
óneitanlega út fyrir að vera anzi
hreint þægilegt.