Dagblaðið - 13.07.1981, Page 5

Dagblaðið - 13.07.1981, Page 5
5 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ1981. Skeljongur á Suöurlandsbraut 4 selur þessi grill. Lengst til vinstrí er þýzkt grill úr járnblöndu. Það kostar 179 krónur. Lengst til hægrí á mvndinni er annað sömu gerðar en með hjóium og vindhlif og kostar það 296 krónur. Við hiiðina á fyrr- nefnda þýzka grillinu er ferhyrnt pottgríll sem hentar til ferðalaga. Það kostar 344 krónur. Kringlótt pottgríll kostar 271 krónu. Fyrir framan er verulega sniðugt gasgrill sem kostar 844,70 krónur. Hægt er að grilla á þvi undir gasloga, hita á þvi matinn og jafnvel nota sem ofn með þvf að snúa gashellunni á ýmsa vegu. Gaskútur með 11 kilóum af gasi kostar 200 krónur og endist hann meira en sumarlangt. Kolapoki með 2 1/2 kg af kolum kostar 63,75 og endast kolin svona 2—3 skipti. Sumarhúsamálið: „EITTHVAÐ SAGT EF ATVINNUREKENDUR KÆMU SVONA FRAM” —segir framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna um framkomuBSRB — Það er alveg furðulegt hvernig BSRB hefur staðið að þessu máli. Þetta virðist hafa verið eins konar hug- myndasamkeppni hjá þeim, en ekki venjuleg tilboð eins og þó er skýrt tekið fram i útboðsgögnum, sagði Þorleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands iönaðarmanna, er hann var spurður álits á „sumarhúsamáiinu” svokallaða. Sem kunnugt er þá óskaði BSRB eftir tilboðum í gerð sumarhúsa fyrir bandalagið en eftir að tilboðin höfu borizt var þeim öllum hafnað og teknar upp viðræður við umboðsmann danskra húseininga. — Ég get ekki séð annað, sagði Þor- leifur, — en að þarna sé verið að koma aftan að mönnum. Þarna er verið að bjóða út sumarhús og er venjan sú að leita eftir sem lægstum tilboðum. í þeirri trú hafa islenzkir framleiðendur skilað inn tilboðum sinum, bara til að sjá þeim hafnað og viðræður teknar upp við fulltrúa ibúðarhúsaframleið- enda i Danmörku. Þorleifur sagði að þessi framkoma BSRB væri enn ámælisverðari fyrir þær sakir að með þessu heföu margir framleiðendur einingahúsa á íslandi verið sama sem útilokaðir frá þvi að gera tilboð í verkið. Ef BSRB var að óska eftir vönduðum heilsárshúsum þá átti að taka þaö fram i útboðsgögnum, sagði Þorleifur. Þorleifur sagði annars að þetta dæmi sýndi að byggingariðnaðurinn væri að verða meiri og meiri samkeppnisiðn- aður. Samkeppnisaðstaðan væri hins vegar hrikalega slæm og mætti nefna að ef sumarhús væru keypt erlendis frá væru þau tollfrjáls og sumum fylgdu meira að segja toilfrjáls hreinlætistæki og eldavélar. — Þetta er bara eitt dæmi um samkeppnisaðstöðuna, sagði Þor- leifur og bætti þvi við að hann væri undrandi á að launþegasamtökin skyldu haga sér svona. — Það væri eitthvað sagt ef það væru atvinnurekendur sem kæmu svona fram, sagði Þorleifur Jónsson. -ESE. «1 Þessi grill fundutn við í Hagkaupi (eða Hagkaupum). Lengst til vinstri er ferhyrnt ferðagrili, sem hægt er að leggja saman, úr potti á 339 krónur. Næst í röðinni er kringlótt grill úr járnblöndu sem kostar 179 krónur og fremst til vinstri lítið ferða- griil sem kostar 89 krónur. Sams konar grill er til með loki og kostar það 129 krónur. Loks er kringlótt pottgrill á 269 kr. Litið var til í Ástund af griilum þegar við litum þar inn. Þessi tvö eru úr járn- blöndu og kostar það minna 195 krónur og það stærra 280 krónur. DB-myndir: Gunnar örn. Dýrustu grillin, sem til eru I bænum, eru jafnframt nýstárlegust ásamt gasgrillunum. Þessi grill eru bandarísk og uppsett eins og kúla i laginu. Kúluna er siðan hægt að opna til að koma kolum og mat fyrir en siðan er henni lokað á meðan hann steikist. Á lokinu er lofttúða sem á að nægja sem loftræsting. Okkur er tjáö að útilokað eigi að vera, jafnvel fyrir byrjendur, að eyðileggja mat í þess- um griilum. Úrvalið er geysilegt. Nær allar bensínstöðvar, íþróttavöruverzlanir og fjöldi annarra búða selja grill og allt mögulegt sem þarft til glóðar- steikingar. Eru það jafnt kol sem ýmiss konar áhöld. Einn kaupmanna sem við hittum orðaði það svo við okkur að það borgaði sig varla lengur að vera með grill, allir væru komnir með þetta þannig að þó mikið væri selt seldi hver einstakur engin ósköp. -DS. ^S Snæfellsnesið: Bflamir liðast í sundur á óf ærum vegum — aldrei verið eins slæmir og núna, segir Bæring Cecilsson „Vegirnir hér eru hreint út sagt hræðilegir. Bílarnir, sem hér fara um, hristast í sundur og ekkert er gert. Mér finnst að það ætti að bjóða ráðamönn- um hingað og leyfa þeim sjálfum að aka á vegunum,” sagöi Bæring Cecils- son fréttaritari DB í Grundarfirði er hann hringdi hingaö til okkar. Bæring var afar óhress yfir að vegagerðin skuli ekki hefla vegina. Sagði hann að gjör- samlega allt Snæfellsnesið væri ófært. „Vegavinnuverkstjórar hér fyrir vestan virðast alveg máttlausir og geta ekkert gert nema með leyfi æðri valda úr Reykjavík. Þeir fyrir sunnan vita bara ekkert hversu slæmir vegirnir eru,” sagði Bæring og vonaðist eftir aðgerðum sem fyrst. .p, . SOUND INNOVATOR MESTA URVALIÐ BESTA VERÐIÐ MESTU GÆÐIN

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.