Dagblaðið - 13.07.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1981.
Andstæðingar útitaf Isins héldu f und á laugardag:
Krefjumst þess að grasbrekkan
verði aftur sett á sinn stað
— segir í undirskriftalistum sem dreift var á f undinum
„Okkur fannst nú bara vel mætt, ég er ekki góður að gizka á hversu
miðað við hinn stutta boðunartima, en margir voru á fundinum,” sagði Þor-
Mjög mikil ölvun á Akureyri:
Fjörutíu manns gistu fanga-
geymslur lögreglunnar
— og tíu teknir grunaðir um ölvun við akstur
Mjög mikil ölvun hefur verið á
Akureyri um helgina samfara lands-
mótinu sem þar stendur yfir. Höfðu 40
manns gist fangageymslur á Akureyri i
gærmorgun. Þá voru 10 teknir, grun-
aðir um ölvun við akstur. Að sögn lög-
regiunnar eru þetta mest allt unglingar
18 ára til tvítugs og ailt niður f 16 ára.
Tvöföld vakt hefur verið hjá lögregl-
unni á Akureyri um helgina vegna ólát-
anna og hafa þeir samt ekki haft við.
Að öðru leyti hefur helgin gengið stór-
slysalaust á Akureyri.
-ELA.
steinn ö. Stephensen, en hann var einn
þeirra sem stóðu fyrir útifundi við
Bernhöftstorfuna á laugardag til að
mótmæla fyrirhuguðu útitafli viö torf-
una. „Fundurinn stóð i um klukku-
stund og ávörp fluttu Siguröur A.
Magnússon, Edda Þórarinsdóttir og
ég,” sagði Þorsteinn.
„Meðal annarra sem stóðu að fund>
inum má nefna ritstjórana Jónas
Kristjánsson og Matthias Johannessen,
Svein Skorra Höskuldsson, Tómas
Guðmundsson, Stefán islandi og Ragn-
ar Jónsson i Smára,” sagði Þorsteinn.
Á fundinum var lesinn upp texti sem
er i haus undirskriftalista og er hann
svohljóðandi: „Við undirrituð mót-
mælum eindregið þeim skemmdarverk-
um, sem nú er verið að vinna á Bern-
höftstorfu, með því að útrýma þar
grasi og gróðurmold, en setja í staðinn
taflborð úr steinsteypu. Við krefjumst
þess, að ásýnd Bernhöftstorfunnar,
grasbrekkan framan við húsin, verði
aftur sett á sinn stað, og öilu grjótí
verði útrýmt þaðan nú þegar.” að sögn
Þorsteins var um 100 undirskriftalist-
um dreift á fundinum., ,Þá verður opið
hús hjá mér aö Laufásvegi 4 þar sem
fólk getur komið og fengið undir-
skriftalista eða skrifað nöfn sin á lista.
Hins vegar verða allir listar að vera
komnir tíl mín fyrir þriðjudagskvöld
því þetta á að ganga hratt fyrir sig,”
sagði Þorsteinn ö. Stephensen að
sfðustu.
-SA.
Sigurður A. Magnússon ríthöfundur
flytur ávarp sitt. Að baki hans stendur
Þorsteinn Ö. Stephensen leikarí.
DB-myndir Jónas Haraldsson.
Orlofshús BSRB:
ATHUGASEMD VEGNA
UMMÆLA STARFS-
MANNA ÞAKS H.F.
Vegna ummæla Heiðars Elimarsson-
ar hjá Þaki hf. 1 Dagblaðinu 10. þ.m.
skal eftirfarandi tekiö fram:
Eins og allir félagsmenn B.S.R.B. og
margir fleiri vita, eru orlofshús samtak-
anna ekki aðeins notuö á sumrin,
heldur allan ársins hring. Það er þvi
full ástæða til að B.S.R.B. miði upp-
byggingu næsta áfanga orlofsheimila
sinna við þessa staðreynd.
Þegar borin eru saman hinar ýmsu
gerðir húsa samkvæmt tilboðum, sem
bárust, kemur í ljós, að verulegur
munur er á þeim á margan hátt, sem
eðlilegt er.
Við höfum mjög góða reynslu af
húsum frá Húsasmiðjunni hf., en þegar
vandað er til hlutanna hækkar verö
þeirra, og ekkert við því aö segja.
Húsasmiðjan reisti 13 hús í Munaðar-
nesi fyrir B.S.R.B. Þau hafa verið
notuð i 10 ár. Þetta eru mjög vönduð
hús og Húsasmiðjan, fyrirtæki Snorra
FILMUR OG VÉLAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Halldórssonar, í alla staði traust. Ekki
unnt að hugsa sér betri og ánægjulegri
viðskipti en þau, sem B.S.R.B. áttí við
Snorra Halldórsson, syni hans og
starfsmenn.
Hús Þaks hf. eru vafalaust góð. Á
þau skal enginn dómur lagður hér, en
þau voru ekki talin henta nægilega vel
fyrir þá notkun, sem um er að ræða hjá
B.S.R.B.
Það er rangt hjá Heiðari Elimars-
syni, að B.S.R.B. sé að taka hæsta til-
boði. Hæsta tílboð var kr. 503.602,- á
hús (60,3 m1) eða kr. 8.351,- á fer-
metra.
Sú hússtærö, sem verið er að ræða
um við fyrirtækið Hosby hús sf. Akur-
eyri, er 63,8 m1 og verð á hús rétt innan
við 300 þúsund kr. uppsett eða um kr.
4.670,-áfermetra.
Það er einnig alrangt að norsku
húsin frá Trybo, sem reist voru í Mun-
aðarnesi 1973—74, „haldi hvorki vatni
né vindum”, eins og Heiðar Elimars-
son hjá Þaki hf. segir í Dagblaðinu.
Norsku húsin i Munaðarnesi eru
skemmtileg, vel einangruð og hafa
aldrei lekið dropa.
Umboðsmenn norsku húsanna sendu
ekki tilboð.
Auðvitað verður Þak hf. að hugsa
um sina hagsmuni, það er auðskilið.
Sama gildir um aðra iönrekendur.
Á sama hátt munu menn skilja, að
B.S.R.B. verður að haga samingum
sinum um byggingu orlofshúsa með
hliðsjón af hagsmunum samtakanna.
Þess ber að lokum aö geta, að öll
vinna við þetta verk er innt af hendi af
íslendingum, nema framleiðsla eining-
anna.
Kristjón Thorlacius.
T
®ör
SKATTEKLASSEH
THÖR
RANDERS
Á
Hinn
vinsœli
THOR
pilsner
aftur
kominn
á
narkaðinn
Heildsölubirgðir: XCO h/f. Sími27979
slt.HIM I IM IXt.tiBSIONS,
Fundarmenn stóðu hrínginn i kringum sirið fyrir framan Bernhöftstorfuna.
DB-vinningur í viku hverri:
SÓL SJÓR, LÍF 0G
FJ0R A P0RT0R0Z
— hvaða áskrifandi verður heppinn í þessari viku?
DB-leikurinn heldur áfram og í þess-
ari viku eru það engin smáverðlaun sem
i boði eru. Þú, áskrifandi góður, getur
átt von á þvi að flatmaga í sólinni í
Portoroz áður en langt um líður verðir
þú svo heppinn aö nafnið þitt verður
dregið upp. Einhvern dag 1 þessari viku
birtast spumingar tengdar smáauglýs-
ingum á baksíöu blaðsins.
Daginn eftir að spurningarnar birtast
er að finna einhvers staðar i smáauglýs-
ingunum nafn heppins áskrifanda. Sá á
kost á að svara spurningunum og fyrir
rétt svör fæst ferð tíl Portoroz, sem
stundum er kölluð júgóslavneska Rivi-
eran.
Allir áskrifendur blaösins eiga
jafnan möguleika á að nafnið þeirra
verði dregiö, svo betra er fyrir þig að
fylgjast vel með og vera viðbúinn þegar
nafniö þitt kemur upp.
Það er ferðaskrifstofan Útsýn sem
sér um Portoroz ferðina fyrir okkur og
enginn verður svikinn af slikri ferð.
Portoroz er í skjóli hæðanna við Piron-
flóann á vesturströnd Istriaskagans.
Staðurinn er frægur heilsubaðstaður
með röð nýtlzku hótela og veitinga-
staða við strandgötuna. i kring eru
skógi vaxnar hæðir og vínakrar.
Askrifendur DB geta þegar farið að
láta sig dreyma og jafnvel þú gætir
sólað þig á Portoroz á næstunni. -ELA.
i