Dagblaðið - 13.07.1981, Síða 14

Dagblaðið - 13.07.1981, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1981. Kæru ættingjar og vinir. Ég þakka ykkur hlýjar kveðjur, heimsóknir og gjafir á níræðisafmæli mínu 20. júní sl. Þið gerðuð mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Gísfína Sigurðardóttir. TUkynning ti/ sö/uskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi söluskatts fyrir júnímánuð er 15. júlí. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ 6. júli 1981. Framkvæmdastjóri - Suðurnes Höfum verið beðnir að leita eftir fram- kvæmdastjóra fyrir Skipaafgreiðslu Suðurnesja í Keflavík. Starfsins vegna er nauðsynlegt að fram- kvæmdastjórinn sé búsettur á Suðurnesjum. Umsóknir með sem gleggstum upplýsingum sendist Gísla Erlendssyni, Rekstrartækni sf., Síðumúla 37 Reykjavík, fyrir 18. júlí nk. rekstrartækni sf. Síðumúla 37 - Sfmi 85311 HAPPDRÆTTI HEYRNARLAUSRA '81 Dregið var í happdrættinu þ. í. júlí sl. Vinn- ingsnúmer eru þessi: 1. 23.004 6. 27.047 11. 11.989 16. 28.973 21. 19.285 2. 22.401 7. 30.156 12. 49.113 17. 428 22. 194 3. 31.497 8. 25.917 13. 21.934 18. 19.500 23. 16.979 4. 21.167 9. 33.590 14. 35.444 19. 3.137 24. 5.782 5. 15.604 10. 40.608 15. 500 20. 48.748 25. 38.593 Þökkum veittan stuðning FÉLAG HEYRNARLAUSRA Skólavörðustíg 21. Simar 13560—13240 ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboði í lagningu hluta nýs Bláfjallavegar sem mun liggja af Krísu- víkurvegi um Undirhlíðar, meðfram Lönguhlíð og í Bláfjöll. Gera skal undirbyggingu og burðarlag á um 5,0 km kafla frá Óbrynnishólum að Lönguhlíð. Vegbreidd er 6,5 m. Verkinu skal að fullu lokið 30. okt. 1981. Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 5, frá og með mánudeginum 13. júlí, gegn 500 kr. skilatrygg- ingu. Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og breytingar skulu berast til Vegagerðar ríkisins skriflega, eigi síðar en 16. júlí. Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykja- Vík, fyrir kl. 14.00 hinn 20. júlí 1981 og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstödd- um þeim bjóðendum er þess óska. Reykjavik i júB 1981 VEGAMÁLASTJÓRI. „Ákvæðin um lágmarks- hvfld hluti af vio- tækari lögum” „Þetta eru ekki vökulög heldur eru ákvæðin um lágmarkshvild milli vakta hluti af lögum um aöbúnaö, hollustu- hætti og öryggi á vinnustööum sem gildi tóku 1. janúar sl. Lögreglan i Reykjavík fékk hins vegar sex mánaða frest til að hagræöa vöktum þannig að þær féllu að ákvæðum laganna,” sagði Vigfús Geirdal hjá Vinnueftirliti ríkis- ins vegna fréttar i DB á fimmtudag um fáskipaða næturvakt hjá lögreglunni. „Samkvæmt þessum lögum skal vaktavinnufólk fá a.m.k. átta klukku- stunda hvild milli vakta en hjá lögregl- unni hagar þannig til að aðra hverja nótt vinna lögreglumenn frá klukkan átta að kvöldi til þrjú að nóttu. Hina nóttina vinna þeir hins vegar til kl. sex. Dagvakt hefst kl. 12.30 og er til 20, þannig að þdr sem hafa unnið til sex um morgun fá ekki átta stunda hvild þurfí þeir aö mæta á dagvakt. Málið hefur verið leyst þannig i praksís að leyfa þeim lögreglumönnum aö mæta kl. 14, en þannig fá þeir tilskylda hvild,” sagði Vigfús Geirdal hjá Vinnueftirlit- inu. -SA. VEIÐIVON 4 Hofsá: Veiðin heldur dræm Hofsá i Vopnafiröi opnaöi 2. júlí. Hofsá, hvers vegna skyldu menn þekkja hana, þegar minnzt er á ána? Jú, ætli það sé ekki vegna þess að Karl Bretaprins hefur verið árlegur gestur í henni. En 1 sumar mun hann verða af þeim veiðum. Brúðkaupið ber upp á sama tlma og hann er vanur að veiða. En hvernig skyldi veiðin hafa verið það sem af er? Bragi Vagnsson sagði veiöina heldur dræma er við höfðum samband við hann i gærmorgun. Veiðzt höfðu á bilinu 10—20 laxar. Það eru eingöngu íslendingar sem veiða núna i ánni til 19. júlí. Veður var gott, hlýtt en kannski of bjart til að veiða. Sjórinn er ennþá kaldur og þess vegna gengur fiskurinn ekki. En þetta stendur allt til bóta. í fyrra var mjög lélegt sumar í ánni, það veidd- ust ekki nema um 600 laxar 1 stað 12—1300 eins og vaninn er. Þó veiðin byrji ekki vel núna mun vonandi fara að glæðast innan tíðar. -GB. Breiðdalsá: Veiðimenn hirða ekki um að gefa upp af lann Veiðin í Breiðdalsá fer yfirleitt ró- lega af stað. Sjórinn er oftast kaldur um 20. júní þegar áin er opnuð og þess vegna veigrar laxinn sér við að ganga. Þetta á reyndar við fleiri ár. Árferði skiptir höfuðmáli. En nú um mánaðamótin er laxinn vanur að koma og þá fer hann að veiöast. Við höfðum samband við Sigurð Lárus- son bónda á Gilsá til að afla frétta um Breiödalsá. Heldur var dauft í honum hljóðið. ,,Þvl miður lítil veiði vegna þess að sumir veiðimenn gera bara alls ekki grein fyrir veiðinni, skila ekki veiðiskýrslum og þá er ekki von til að fiskurinn sé bókaður úr ánni. Það hafa aöeins veiðzt 3 laxar sem vitaö er um, gætu hæglega verið fleiri. En töluvert hefur veiðzt af sil- ungi. Sumir hafa fengiö 30—40 fiska á dag, þetta er 1—3 punda fiskur.”- Veiðivon hvetur veiðimenn til þess að skila veiðiskýrslum. Það er til lítils að gefa upp aflamagn í á ef ekkert er að markatöluna. Náttúrufegurð er mikil i Breiðdal, óvenju fjölbreyttur og fallegur fjalla- hringur umlykur sveitina. Víða eru góðir veiðistaðir í ánni og oft má fá góöan fisk er liður á, enda nóg af hyljum í ánni: Ármótahylur, Gljúfra- hylur, Gunnlaugshlaup, Beljandahyl- urinn, Stapabreiðan, Móhylur og Heyhólshylur, svo einhverjir séu ÞAÐ ER FALLEGT VK> S0GK) — af latölur heldur óljósar Það er gaman að renna fyrir lax í fallegu umhverfi sé eitthvað af fiski, enda laðar náttúran menn til sín. Við Sogið er virkilega fallegt og reyna veiðimenn að ginna fiskinn eftir beztu getu. Hann er þó ekki alltaf til- búinn að gefa sig. Sogið er talið mesta bergvatnsá landsins og eitt af allrafegurstu vötnum þess. Það er 19 km langt, þegar mælt er frá upp- tökum að ósi, þar af um 12 km lax- gengir. En Sogið sjálft er þó ekki svo langt vegna þess að það er sundurslit- ið af tveimur allstórum vötnum, Úlfljótsvatni og Álftavatni. Veiði- staðir eru margir góðir og gjöfulii;. Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur næstum allt sogið á leigu. Er þvi skipt 1 fjögur svæði, Blldsfells-, Ásgarðs-, Syðri-Brúar- og Alviðrusvæði. Því má sjá rennt fyrir fisk um' alla ána. Áflatölur eru heldur óljósar en sumir hafa veitt ágædega. En þekkja verður ána vel til þess að vita hvar fiskurinn heldur sig. Sogið er frægt fyrir sína stóru laxa. Um siðustu helgi skruppum við austur og tókum nokkrar myndir. Veiðin var svona og svona. Flestir höfðu orðið varir við fisk, en hann var heldur tregur. Einn hafði misst góðan fisk eftir um tveggja tíma baráttu. Já, laxinn hefur stundum betur og veiðimaðurinn situr eftir með sárt ennið. Við munum birta aflatölur ef viö fréttum af þeim. Hefur þú frétt eitthvað? nefndir. Það má nefna að eftirspurn eftir veiðileyfum á vatnasvæöinu hefur aukizt mikið, enda gaman að renna fyrir fisk i ánni. Og þó þú fáir ekki lax færöu silung því af honum er vist nóg í ánni. Breiðdalsáin hefur sitt aðdráttarafl eins og reyndar fiestar ár á íslandi. -GB. Löng bflalestin truflar ekki veiðimanninn við Sogið. DB-mynd Gunnar Bender.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.