Dagblaðið - 12.08.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 12.08.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981. 2 [( Erlent Erlent Eríent Erlent - - 1 REUTER D ( : GUNNLAUGUR A. JÓNSSON Í- r- Argentína: Hafnarverka- menn hand- teknir Margir hafnarverkamenn voru hand- teknir í Argentínu í gær er þeir báru kröfuspjöld við höfnina í Buenos Aires þar sem krafizt var frjálsra verkalýðs- félaga. Verkföll eru bönnuð af her- stjórninni í Argentínu. Alexander Haig staðf estir ágreining f ríkisstjórninni: HAIG VAR EKKIFYLGJANDI NIFTEINDASPRENGJUNNINÚ —telur ákvörðunina munu torvelda endurnýjun meðaldrægra kjarnorkueldf lauga íEvrópu Alexander Haig, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gær efast um réttmæti þeirrar ákvörðunar að hefja framleiðslu nifteindasprengju en þær efasemdir ættu þó fyrst og fremst við tímasetningu þessarar ákvörðunar. Á ráðstefnu í New Orleans stað- festi Haig blaðafréttir þess efnis að hann hefði látið í ljósi efasemdir sínar er þetta mál var til umfjöllunar í Hvíta húsinu. Samkvæmt þessum fréttum lét Haig í ljósi þá skoðun að ákvörðun- in, sem örugglega myndi leiða til mótmæla andstæðinga kjarnorku- vopna, yrði til þess að torvelda endurnýjun Atlantshafsbandalagsins á meðaldrægum kjarnorkueldflaug- um í Evrópu. Haig sagði að áróðursvél Sovét- ríkjanna hefði ekki stöðvazt frá því að ákvörðun Bandaríkjastjórnar var tilkynnt um helgina. Hann sagðist óska þess að þeir sem nú gagnrýndu ákvörðun Bandarikja- manna beindu spjótum sinum af sömu grimmd að hinum sovézku SS- 20 eldflaugum sem nú þegar ógnuðu Vestur-Evrópu og Kína. Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í fyrrakvöld að framleiðsla nifteindasprengjunnar væri þegar hafin og bætti því við að nifteindasprengjan gerði Atlantshafs- bandalaginu mögulegt að verjast öflugri skriðdrekainnrás Sovétríkj- annaíMið-Evrópu. Friöargöngumenn mótmæltu í sendi- ráðum í Hollandi Um þrjú hundruð friðarsinnar stóðu fyrir mótmælum í sex sendi- ráðum i Haag í Hollandi í gær. Mótmælin í gær voru skipulögð af friðarsamtökunum IPMO sem hófu fjórtán daga baráttu 2. ágúst er um sjö hundruð friðarsinnar frá mörgum Vesturlöndum settu upp búðir í Beilen í Norður-Hollandi. Lögreglan fjarlægði um 20 mót- mælendur úr spænska sendiráðinu eftir að þeir höfðu setzt að í tveimur herbergjum þar í nokkrar klukku- stundir og krafizt þess að fá að tala við spænska sendiherrann. Meirihluti þeirra var Spánverjar sem vildu mótmæla þeirri fyrirætlun spænskra stjórnvalda að gerast aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Lögreglan fjarlægði einnig mót- mælendur sem hindruðu fólk í að komast inn í sendiráð Bandarikjanna og vildi þannig andmæla þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að hefja smiði nifteindasprengju. Einnig voru mótmæli við sendiráð Frakklands, Sovétríkjanna, Ítalíu og Vestur-Þýzkalands. KINVERJAR SAKAÐIR UM ÖGRANIR Vietnamar hafa sakað Kínverja um að vera með ögranir á landamærum þjóðanna sem leitt hafi til átaka að undanförnu. Segjast Víetnamar hafa handtekið nokkurn fjölda kínverskra hermanna er haldið hafi uppi skotárás- um á landamærunum. Mótmæli eru hafin við Berlínarmúrinn Um hundrað manns stóö í gærkvöldi fyrir minningarathöfn um þá sem látið hafa lífið við að reyna að fiýja yfir Berlínarmúrinn. Athöfnin fór fram vestan við múrinn í gærkvöldi að því er talsmaður Alþjóðlegu mannréttinda- stofnunarinnar skýröi frá í gær. Þeir er tóku þátt í athöfninni báru 76 trékrossa, einn fyrir hvern þeirra Austur-Berlínarbúa sem látið hefur lífið við tilraunir til að komast yfir til Vestur-Berlinar frá því að múrinn var reistur í ágúst 1961. Margir fyrrverandi íbúar í A-Þýzka- landi hófu um leið hungurverkfall á út- sýnispalli í sömu götu. Vildu þeir með því mótmæla múrnum og leggja áherzlu á kröfur um að ættingjar þeirra fái að flytjast frá A-Þýzkalandi. Hvort tveggja var liður í aðgerðum Alþjóðlegu mannréttindasamtakanna í Frankfurt til að minnast tuttugu ára af- mælis múrsins. Kristilegfriðarráðstefna íPrag: Fordæmir ákvörðun Bandaríkjaforseta aðeins torvelda afvopnunarviðræður stórveldanna. Sprengingar í Kaupmanna- höf n í gær Tvær sprengjur sprungu á skrifstofu svissneska flugfélagsins Swissair i Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Einn maður særðist. Ekki var vitað hver bar ábyrgð á sprengingunni. Kristilega friðarráðstefnan í Prag fordæmdi í gær þá ákvörðun Reagans Bandaríkjaforseta að láta hefja fram- leiðslu á nifteindasprengjunni og sagði í yfirlýsingu frá ráðstefnunni að ákvörðun þessi yrði til að auka vig- búnaðarkapphlaupið. Yfirlýsingin var birt af Ceteka-frétta- stofunni sem er hin opinbera frétta- stofa Tékkóslóvakíu. Þar sagði að framleiðsla sprengjunnar myndi ekki á neinn hátt auka öryggi Bandaríkjanna eða bandamanna þeirra og myndi -*• • ~ **- • . Þegar fréttist að Thomas Mclwee hefði iátizt af völdum mótmælasveltis um helgina héldu konurnar I kaþólsku hverfunum i Belfast út á göturnar og tóku að slá sorptunnulokum i götuna. Þannig hafa fréttirnar um dauða fanganna i Maze-fangelsinu jafnan verið fluttar út frá því Bobby Sands varð fyrstur þeirra til að láta lifið af völdum mótmælasveltis. Er þetta háttemi kvennanna orðið að táknrænni sorgarathöfn þar í borg. Alls hafa nú níu fangar látizt af völdum mótmælasveltis í Maze. ’9R ÚTSALA ÁHÚSGÖGNUM Við rýmum fyrir nýjum vörum 40% M.A.: VEGGSAMSTÆÐUR, SÓFABORÐ, BÓKAHILLUR, HLJÓMTÆKJASKÁPAR, FORSTOFUSPEGLAR, BARNA OG UNGLINGASKRIFBORÐ O.M.FL. • Góðir greiðsluskilmálar • Sendum um attt land NOTIÐ ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI HUSGOGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.