Dagblaðið - 12.08.1981, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981.
FÓLK
Nýr fréttamaður sjónvarps:
Mér lízt vel á mig héma
— segir Bolli Héðinsson sem hóf störf á laugardag
Fræbbbiamir koma fram á hljórrUeikum í Fólagsheimili Kópavogs
á fimmtudag. DB-mynd Ragnar Th.
„Mér lízt vel á mig hér. Gott
andrúmsloft og góð vinnuaðstaða,”
sagði Bolli Héðinsson, nýr frétta-
maður á fréttastofu sjónvarps, í
stuttu spjalli við blaðamann DB.
Bolli hóf störf á fréttastofunni sl.
laugardag.
Hann er ekki óvanur fjölmiðlun.
Starfaði á DB við stofnun þess og
hefur síðan verið sumarafleysinga-
maður. En er fréttastofustarfið ólíkt
blaðamennskunni? „Nei, þetta er
mjög svipað, enginn eðlismunur
heldur einungis stigsmunur.”
Við ráðningu Bolla varð talsverð
umræða í blöðum, þar sem annar
umsækjandi hlaut fleiri atkvæði i út-
varpsráði en hann. Settur útvarps-
stjóri ákvað að veita BoIIa stöðuna
enda hafði hann bæði meiri menntun
og reynslu í blaðamennsku. Hvernig
leið þér meðan þessi umræða stóð
yfir?
„Mér þótti leitt að hún þyrfti að
fara fram. Ég hefði kosið að hlutirnir
gengju öðruvísi fyrir sig. En sjálfur
stóð ég utan við deiluna. í kjölfar
ráðningar minnar var skipuð nefnd
af útvarpsráði til að setja upp
ákveðnar viðmiðunarkröfur við
ráðningu fréttamanna,” sagði Bolli.
Hann var spurður hvort möguleiki
væri á að hann starfaði lengur á
fréttastofunni en til áramóta. „Ekki
eins og málin standa í dag,” svaraði
Bolli, ,,ég hef ekkert ákveðið hvað
tekur við en það kemur í ljós,” sagði
hann. Bolli Héðinsson er viðskipta-
fræðingur að mennt, auk þess sem
hann stundaði nám í fjölmiðlun í
Þýzkalandi. Hann er 27 ára, kvæntur
Ástu Thoroddsen og eiga þau tvö
börn.
-ELA.
Þær voru brosmikiar oftír harða keppni konurnar og bUu eftírvæntíngarfullar eftír að komast i partí þar sem
verðlaununum var útdeift DB-myndBjamleifur Bjamleifsson.
Allt er fimmtugum fœrt:
Keppt í golfi og síðan haldið partí
— hressar konur í Golfklúbbi Reykjavíkur
Konur ekki síður en karlar hafa
golf sem áhugamál. Þessar hressu
konur sem allar eru á fimmtugs-
aldrinum, að eigin sögn, eru miklir
golfspilarar og láta ekkert tækifæri
ganga sér úr greipum til að komast á
golfvöllinn.
A fimmtudag í síðustu viku fór
fram keppni á Grafarholtsvelli þar
sem þessar föngulegu konur kepptu
til úrslita. „Allt er fimmtugum
fært”, var kjörorð þeirra, enda
reyndist þeim keppnin auðveld.
Bjarnleifur ljósmyndari DB átti
leið um völlinn þennan dag og lét sitt
ekki eftir liggja með myndatöku.
Hann stillti konunum upp en fljótur
varð hann að vera þvi þeirra beið
heljarinnar „partí” þar sem útdeila
átti verðlaunum.
Einn keppandinn, Margrét Árna-
dóttir frá ísafirði, var farin er
myndin var tekin og er hún því ekki
með. Úrslitin urðu þau að í keppni án
forgjafar varð Herdís Sigurðardóttir
í fyrsta sæti, Laufey Karlsdóttir í
öðru sæti og Kristín Eide í þriðja. I
keppni með forgjöf var Herdís
Sigurðardóttir einnig í fyrsta sæti,
Ósk ísabarn í öðru sæti og Kristin
Eideí þriðjasæti.
-ELA.
Frœbbblamir
Taugadeildin
hljóörita á
hljómleikum
Hljómsveitirnar Fræbbblarnir og
Taugadeildin koma fram á hljómleik-
um sem haldnir verða í Félagsheimili
Kópavogs á fimmtudagskvöld.
Áformað er að hljómleikarnir
hefjist klukkan 21 og veröa hljóm-
leikarnir að öllum líkindum hljóðrit-
aðir. Ef vel til tekst verður afrakstur-
inn svo gefinn út á plötu innan
Hvers vegna svo
stórir hattar?
Skrýtnu karlarnir þrír með stóru
hattana birtust á kvöldvöku sem
haldin var í Bolungarvík laugardag-
inn 25. júlí sl. fyrir keppendur á
sundmóti sem fram fór í bænum um
þá helgi. Karlarnir tóku nokkur dans-
spor á sviðinu undir dynjandi diskó-
tónlist og vöktu mikla kátinu meðal
áhorfenda.
Þeim sem ekki hafa þegar áttað sig
á því hvernig í málinu liggur er bent
á að skoða andlit karlanna aöeins
betur. Rennur þá ekki upp fyrir ein-
hverjum að andlitin eru máluð á
maga unglingsstúlkna?
Okkur er sagt að stúlkurnar heiti
Guðný, Kristín og Elín og séu 14—15
ára Bolvíkingar. Nú vitið þið hvers-
vegna hattarnir þurftu að vera svona
stórir. -KMU.
Skrýtnu kariarnirþrír með stóru hattana. DB-mynd Elín Björk Unnarsdóttír.
Og
***** ^ 1
Botli Háðlnsson vlð störfá fróttastofunni. Hann leyslr Ómar Ragnarsson afi fímm mánuði.
DB-mynd S.
Aðgöngumiðaverði verður mjög i
hóf stillt, 20—25 krónur, en hljóm-
leikarnir verða eins og áöur segir í
Félagsheimili Kópavogs, þar sem
Kópavogsbíó var áður til húsa.
skamms. Það er verzlunin Sterío sem
sjá mun um upptökuna og útgáfu
plötunnar ef af verður.